Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
24.11.2008 | 23:43
Honey I´m home
Allt skemmtilegt tekur enda að lokum. Þessi ferð var bara skemmtileg með tilheyrandi veseni og fleiru haha. Ekkert alvarlegt samt, villtumst bara með tonn af innkaupapokum bara snilld vorum búnar að þræða íbúðahverfin í Dublin fram og tilbaka í leit að lestinni Luas en hún fannst fyrir rest með hjálp góðhjartaðrar konu sem leist held ég ekkert á þessar þrjár kvensniftir sem voru að niðurlotum komnar með fullt af pokum merkt H&M, Penney´s, Next ofl.
Írar eru upp til hópa agalega kurteisir og hjálpsamir og nægjusamir og skemmtilegir en það er vondur matur þarna og ég var ekki lengi að átta mig á því. Pöntuðum okkur ekta írskan morgunverð einn daginn, samanstóð af ógeðslegri skinkusneið, hrærðum eggjum, kartöfluklessu, ristuðu brauði og black pudding sem er einhver þjóðarréttur þeirra og bragðast viðurstyggilega en það er svona svipað og slátur í útliti bara minna JAKK. Ég ákvað nú að kaupa sýnishorn af black and white pudding og færa Eyþóri og hann snæðir þetta eflaust með bestu lyst þegar hann fer í það.
Annars vorum við mest í að versla, sem er reyndar frekar dýrt en vorum svo heppnar að finna Penney´s sem er mjög stór verslun í verslunarmiðstöðinni Dundrum. Þar keypti ég helling af fötum á Kötlu, mig og Eyþór á kúk og kanil. Brynja verslaði sér líka helling og jólagjafir handa öllum vinkonum og vinum held ég. Vorum mest hræddar við yfirvigt á leið heim en það slapp til þrátt fyrir að ein þyrfti hreinlega að hoppa ofaná töskunni til að geta lokað henni nefnum engin nöfn Hildur er það nokkuð.
En eftir ömurlega flugferð í algerlega loftlausri leiguflugvél frá bresku flugfélagi lentum við um kl 19 og vorum svo komnar heim um kl 3 í nótt það var ósköp gott að detta upp í rúmið enda vakti lítill stubbur mig snemma og fékk svo að vera heima í dag:)
Þýðir ekkert að hanga hér, á að vera að skrifa ritgerð um mannauð en ætla bara að fara að sofa enda vinna í fyrramálið og svo þetta venjulega eftir það. Skrifa meira seinna.
Sjúlli kveður gúdd næd
18.11.2008 | 22:48
Dublin here I come
Jæja á morgun leggjum við af stað til Dyflinnar, förum um kl 18 héðan á trukknum hennar Hildar og gistum svo hjá Bjarti frænda í Gyðufellinu og svo bara á fimmtudagsmorgun kviss, bamm, bumm mæting kl 09.00 jebba hlökkum allar verulega til held ég.. Það held ég nú..
Búin að vera rosa dugleg í dag, kláraði að setja upp lokaverkefnið okkar Huldu í hjúkrun og sendi það nú undir kvöldið þannig að það er frá. Prentaði út helling af heimildum fyrir lokaverkefnið mitt í stjórnun sem á að vera um þekkingarstjórnun og þekkingarverðmæti. Prentaði líka út öll verkefni sem ég hef unnið í vetur í hjúkrun þannig að það er bara allt að verða klárt til að lesa fyrir próf en á því byrjar maður um leið og letilífinu lýkur í Dublin. Síðan rauk ég í að baka eins og eina sort af smákökum, og steikti slurk af fiskibollum handa karli föður mínum til að eiga í kistunni, er alls ekki að borða nógu fjölbreytt fæði kallinn þannig að maður laumar svona að honum endrum og eins:)
Annars er ég búin að vera með Kötlu heima bæði i gær og í dag, var með um 39°C á sunnudagskvöldið og hundlasin í gær en svo bara búin að vera spræk í dag, vildi bara hafa hana hitalausa heima einn dag því á dagheimilinu geta þau ekki fengið að vera inni eins og á leikskólum, hlakka til þegar hún fer á leikskóla.
Hvað á ég að tuða meira, jú fékk sjokk í dag þegar ég fékk greiðsluyfirlit frá greiðsluþjónustunni og sá hvað ég á að borga á næstu mánuðum, vá hvað lánin hafa hækkað, spurning um að leita sér að íbúð bara í Dyflinni og flytja til Írlands já eða Færeyja eða Danmerkur já eða Svíþjóðar. Bara lengst í burtu frá þessu bulli öllu saman svei mér þá. Dabbi Odds er drullupeli og ég segi það og stend við það og allt þetta helvítis pakk sem stjórnar þarna.
Jæja ætla að fara að leggja mig fljótlega nema ég detti í að lesa heimildirnar mínar um þekkingastjórnun, almáttugur veit ekkert hvað ég er að fara úti en kemst líklega fljótt að því, fékk frest til 28 nóv að skila áttum að skila 25 nóv getur vel verið að ég nái því og þá er það bara bónus.
Sjúlli kveður á leið til Dyflinnar
14.11.2008 | 21:20
Úr ýmsum áttum
Bloggaði einhvern tímann hérna á síðunni um veitingastað sem ég fór á og tjáði að mér hefði fundist þjónustan og maturinn hræðilegur. Tæp tvö ár síðan og núna fær kallinn minn skammir frá eiganda staðsins fyrir að skíta staðinn út eða eitthvað...haha mér finnst þetta fyndið, í fyrsta lagi ég skrifaði þetta og í öðru lagi það eru tvö ár síðan jahérna hvað fólk hlýtur að vera tæpt á þessum síðustu og verstu:)
Er að fara að læra en ákvað aðeins að munnræpast hér áður. Brynja er farin á gistikvöld í Hamri með Þórsurum og Eyþór er að gera eitthvað I don´t know ekki heima allavega. Gunný og Nonni komu í dag og voru á maraþonferð, stoppuðu í stutta stund og ruku svo tilbaka. Svona er þetta alltaf nóg að gera hjá fólki.
Brynja fer í næstu viku með skólanum að skoða MA en missir af kynningunni á VMA því við verðum úti, heyrist samt á henni að hún sé búin að ákveða sig í hvaða skóla hún ætli og það sé s.s. MA er alveg sátt við það MA góður skóli með mikið félagslíf þannig að það er fínt. Stendur sig enn alltaf jafn vel í skólanum. Hef oft hugsað hvað ég er heppin með það, ég hef aldrei þurft að neyða hana til að læra eða liggur við hjálpa henni neitt, hefur alltaf legið ljóst fyrir henni, alltaf verið með einkunnir 10,9 liggur við, reyndar er enskan að hræða hana núna en hún er meiri raungreinamanneskja en tungumála en samt alltaf fengið góðar einkunnir í þeim líka. Nóg af monti.
Ég fer að vinna í fyrramálið og þarf að sækja Brynju upp í Hamar áður til að passa, Eyþór ætlar í rjúpur með Mása bró og vona að þeir fái bara helling og málið er dautt. Kíkti aðeins á pabba áðan, tók blóðþrýsting hjá kallinum, búinn að vera með svo mikinn höfuðverk og auðvitað alltof hár í tensio, þarf að fara aftur á morgun, eins gott að hann á tvær dætur aðra hjúkku og hina sjúkraliða:) En annars bara sprækur að öðru leyti ætla að demba á hann sore no more á morgun og athuga hvort það lagi eitthvða höfuðverkinn:)
Ætla að fara á morgun eftir vinnu upp í Kjarna að týna köngla og síðan í mótmælagöngu hér á Akureyri og loks að sjá kveikt á jólatrénu á Glerártorgi. Katla er að uppgötva hvað jólin eru mögnuð, allt þetta jólaskraut og ljós voða spennandi. Hleypur fram á morgnana til að athuga hvort ekki sé örugglega jólaljós í eldhúsglugganum ennþá og tekur alveg andvarp þegar hún sér kveikt á því. Fyndið þetta litla stýri.
Best að hætta að rugla hér næ ekki prófum með þessu áframhaldi
Sjúlli kveður í lærdómshug
13.11.2008 | 22:33
My middlename is Bjútí
Verður maður ekki að vera ánægður með sjálfan sig tja. Skellti mér í litun og plokkun í dag, og svo núna áðan fórum við mæðgur í ljós (ég veit krabbavaldandi en hvað er ekki orðið það í dag) maður má ekkert sem er gott þá er eitthvað pottþétt óhollt við það. Sit núna og gúlla í mig skyri var svo svöng.
Á morgun er Bubbakot lokað þannig að Eyþór verður heima með skottið, ætlaði reyndar í rjúpur en það er svona. Ég fer bara í mína vinnu og er svo að vinna um helgina. Um þetta leyti eftir viku er ég komin til Dublin og er að ræða við Íra um efnahagsmálin á Íslandi múhaha með einn dökkan (pepsi max sko fyrir þá sem vita ekki að ég drekk ekki áfengi).
Pantaði ljósakross á leiðið hennar mömmu í dag, verður gaman að koma í garðinn þegar hann verður allur orðinn upplýstur af ljósakrossum. Systur og Hilla komu í heimsókn seinnipartinn og þær fóru svo til pabba síns en Hilla bauð okkur öllum mæðgum á Glerártorg og þar var verið að skreyta og svona stemmari að komast í gang. Keypti mér eina kúlu marglita ofsalega fallega og setti i eldhúsgluggann minn en ég setti jólagardínurnar upp í fyrradag, var að þrífa gluggana og ákvað að láta bara gossa:) Er aðeins að komast í jólagírinn en það gengur frekar hægt, ef eðlilegt væri þá væri ég orðin að jólasveini en líklega verð ég bara jóladvergur í ár
Á ég að segja eitthvað meira....nei hélt ekki þannig að ég ætla að fara að horfa á Mr. Bond, James Bond sem er að byrja á channel 2 úff farin að tala útlenskuna svona liggur við eins og mitt annað tungumál meira að segja með írskum hreim skal segja ykkur það
Sjúlli kveður sweet dreams everyone
11.11.2008 | 22:10
My mouth is open
Hi my name is Dubbý:) Þetta s.s. er einn skjólstæðingurinn minn farinn að kalla mig af því að ég er að fara til Dublin og honum finnst það ógurlega fyndið því öllum er illa við íslendinga. Komumst svo reyndar að því að það er kvikindi í Harry Potter sem er kallaður þessu fallega nafni haha:) Ég ætla að vera Dani eða færeyingur í Dublin verst að ég er arfaslök í dönsku:)
Annars er ég að baka marengs (það er víst skrifað með "g" búin að gúggla það) og ég hef aldrei verið góð í að baka marengs hvað þá að skreyta kökur my gad, en það er s.s. foreldraviðtöl hjá Brynju á morgun og svo kaffihlaðborð sem er fjáröflun fyrir þau s.s. 10 bekk og ég átti að koma með tvær marengs. Jajá svo er ég að læra á milli þess sem ég skondrast til að sletta rjóma og rommkúlum á þetta dót:) Hentist í sturtu á 180 km hraða áðan skaust svo út úr sturtunni og fattaði þegar ég var að byrja að þurrka mér að það er víst betra að skola sjampóinu úr díses maður er þokkalega að verða vitlaus jamms.
Mikið að læra mikið mikið að læra og ég er komin með valkvíða á hvaða verkefni ég á að taka fyrir næst, ég er að vinna næstu helgi og svo fer ég suður á miðvikudag og læri þá ekkert meira líklega fyrr en á þriðjudag, væri fullgróft held ég að taka allar möppurnar með mér, yrði allavega ekki vel liðin af samferðakonum mínum jahérna. Þar sem allt er svo dýrt gæti nú verið gaman að eiga stund á hótelherbergi í Dublin og læra tilbreyting
Fór að hugsa í morgun um stöðu mála á Íslandi og ég hreinlega sé Ísland fyrir mér eins og Rússland fyrir nokkrum árum síðan, allt grátt og ömurlegt, reykstrompar púandi og við sjáum ekki út fyrir mengun...oj og við endum aftur í moldarkofum á meðan ríku durgarnir sem komu okkur í þetta, eru á sólarströnd berrassaðir að drekka viskí...vona að það standi í þeim og þeir fái drullu sem endist þeim ævina.
Hvað á ég að bulla meira, tja kannski bara ekkert þar sem ofninn er farinn að hvína og marengs druslan er tilbúin og ég næ henni ábyggilega ekki úr forminu eins og hinni, en rjómi skal á engu að síður og hananú
Sjúlli kveður á útopnu
8.11.2008 | 22:05
Allt og ekkert
Sit hér með kertaljós, jólalag með Celine Dion og var að klára skilaverkefni í hjúkrun um byltur aldraðra. Þá er næst á dagskrá að henda sér í að gera eitthvað í lokaverkefninu í hjúkrun. Held að við séum nú á mjög góðri leið með það.
Eyþór og Brynja eru bæði úti, Eyþór að spila með stúlknakórnum heyrist hann nú samt vera að koma en Brynja fór í bíó með 4 vinkonum sínum. Litla grjónið sefur eins og hún á að gera eftir að hafa verið í miklu banastuði í kvöld. Svo fer hann í Skagafjörðinn á morgun að halda tónleika með Óskari Pé og svo að spila í tveimur messum þannig að á morgun verður hann tja líklega ekki heima haha. Sé hann annaðkvöld bara. Fékk fullt af góðum gjöfum í dag, pabbi rambaði inn með köku og Hilla og dætur komu og færðu mér ýmislegt fallegt, svo sem kerti og viskastykki sem Hildur var búin að bródera aðeins í og ýmislegt fleira, auk þess sem ég var búin að fá frá þeim vindgalla fá 66°norður, krem frá Elínu sys, frá eiginmanninum og dætrum fékk ég nýja diskinn hans Bubba með stórsveitinni (elska Bubba), Myrká eftir Arnald, aðra bók man ekki hvað hún heitir og svo gjafabréf upp á 10 þús í jöru eða Abaco snyrtidæmi:) Agalega sæl með mig bara. Búin að fá fullt af góðum kveðjum líka takk fyrir það allir saman. Orðin 36 ára hundgömul. Verð alltaf pínu þunglynd á afmælinu mínu eldist allt of hratt, finnst svo stutt síðan ég var 16 ára að gera mömmu og pabba lífið leitt ójá var ekki einn af þessum yndislegu unglingum onei vandræðagepill:) En ég er alls ekki eldri en tvítug þannig séð, en svo kíkir maður í spegil og jú svei mér komin eitthvað yfir tvítugt
Er orðið frekar bumbult eftir allt gramslið í dag, konfekt, köku og svo eldaði Eyþór lambalæri sem einn nemandinn hans skildi eftir hér á tröppunum hjá okkur:) jájá
Ætla að leggjast á meltuna
Sjúlli kveður gamall
2.11.2008 | 21:45
Er að læra eins og sést
Sko ljóska.is eða bara heimsk.is svo maður sé ekki að skreyta hlutina neitt. Almáttugur, er að gera verkefni um krabbamein og ég er bara lost. Lítið efni sem við fengum um þetta ætli ég eigi bara að vita þetta. DAMN stundum langar mig að öskra en í augnablikinu ríf ég í hár mitt og slefa bara úr bræði. Segið svo ekki að það taki á að vera í námi Komin með fjandans hausverk, vöðvabólgan að drepa mig, allt í volli og mér er skapi næst að grýta tölvunni og möppunni út um gluggann en þar sem það er kreppa og ég á ekki mauk af pening þá ætti ég ekki aur til að kaupa mér annað sett af þessu tvennu, nema Jón Ásgeir vinur minn myndi gefa mér eins og eina töllu, tja best ég bjalli í gaurinn.
Annars ekkert nýtt, við mæðgur höfum verið að bralla saman um helgina, kallinn hér og þar aðallega þar, veit enn hvað hann heitir en það fer nú að gleymast miðað við að hann sést ekki hér, kannski kominn með Alzheimer light og man ekki hvar hann á heima, fer svo á Skagann á morgun að halda tónleika. Best að breyta miðanum bara í aðra leið til Dublin, gerist írsk fyllibytta bara já eða írskur sérhæfður sjúkraliði, hitti alltaf vinnufélagana á hverfispubbnum eftir vakt múhaha væri nú fyndið.
Ekkert af viti sem ryðst út úr mér núna "ALDREI" þessu vant. Dagvaktin var fyndin hún er alltaf fyndin, Óli brilleraði núna fastur í ferðasauna, ætla að fá mér þannig og bráðna stekk inn hlunkur en út stöng tja hvað getur maður beðið um betra. Verð kölluð Erna prik haha ekki lengur Óli prik sem verður teiknaður heldur Erna prik.
Sést nokkuð á þessu bloggi mínu hvað ég er lost????Hélt ekki
Sjúlli kveður snarvitlaus
29.10.2008 | 22:21
56 dagar til jóla takk fyrir
Komin með drullu á þessari umræðu um peningamál, maður á eflaust eftir að finna fyrir því en læt hverjum degi nægja sína þjáningu og segi niður með Dabba og sjálfstæðisflokkinn í heild sinni.
Fékk að taka prófið í hjúkrun aftur, fékk 9.5 var gríðarlega ánægð með það, var svo að fá út úr tveimur verkefnum í stjórnun 2 x 10 þar, get ekki annað en verið sátt, líður hreinlega eins og Einstein haha NOT.
Hildur sys bauð mér í óvissuferð í kvöld, sótti mig kl 20.30 og var lúmsk sagði mér að vera með húfu og vettlinga, ég bætti um betur og setti á mig trefil. Færði mér líka endurskinsmerki með bleiku slaufunni sem ég setti á mig og styrkti þetta mig enn í því að við værum að fara í göngu. Enduðum í jólahúsinu, bara frábært að koma þangað alltaf. Keyptum okkur sæta kertastjaka og sleikjó handa litlu börnunum okkar. Síðan enduðum við túrinn á súkkulaði Latte í te og kaffi og skoðuðum nýjasta slúðrið, agalega gott að komast svona út. En þetta ætlum við að gera mánaðarlega við systur og systurnar Solla og Rósa með okkur, þær bara komust ekki í þetta skiptið. Gaman saman:)
Stóran mín varð 15 ára í gær og vorum við með smá kaffi, pabbi, Hildur og dætur komu og svo eftir það fór hún með pabba sínum og fjölskyldu að heimsækja Rögnu ömmu Brynju en hún var að koma úr stórri aðgerð og óskum við henni góðs bata og vonum að allt hafi náðst sem átti að nást. Við gáfum henni Cintamani peysu og svo gáfum við henni með pabba hennar og familiu gervigrasskó og gervigrasbuxur, frá Einari og Unni fékk hún vettlinga, bodylotion, frá Kötlu bol og andlitskrem, frá Unni og Alla 8000 þús, pabba 5000 kr, frá Hillu kerti og stjaka, vettlinga og sturtusápu og bodylotion og stjörnur sem amma Lilja hafði heklað.:) Bara heilan helling:)
Brynja fór í bæinn aðeins í dag með pabba sínum og fjölskyldu, komu svo aðeins hérna í heimsókn, Katla varð skíthrædd við Sigurpál og hágrét haahahha, agalega feimin litla greyið.
Lítið annars að frétta var bara að detta inn, Brynja úti á lífinu, Katla sefur og mér heyrist kallinn vera á leið í bælið líka og kannski er réttast að detta þangað inn líka.
Sjúlli kveður með súkkulaði Latte í mallanum *rop*
25.10.2008 | 21:28
Bleikt þema mánaðarins
Bleikt er litur mánaðarins vegna brjóstakrabbameinsátaksins sem er í gangi þannig að bleikt skal það vera hjá mér núna, var svolítið sein að taka við mér en eins og maðurinn sagði "betra er seint en aldrei"
Klikkað veður allt í kringum mann skilst mér, fínt veður hér á neðri brekkunni bara blíðan, spurning um að skella sér í toppinn og sveifla sér um garðinn, tja kannski bíð með það. Ekkert að frétta hérna, Katla sofnuð, Brynja gónir á tv, Eyþór að tralla með kirkjukórnum einhversstaðar og ég er í tölvunni, já það gæti komið mörgum á óvart. Er að vinna í því að byrja á lokaverkefninu mínu og búin að afla mér hellings heimilda, en á eftir að tala við hjúkku í heimahlynningu hér á Akureyri en eftir það eru okkur Huldu allir vegir færir en við erum tvær saman með þetta verkefni.
Þarf svo að fara í klippingu er að verða eins og argasti hellisbúi hérna, mér lokkana hangandi hingað og þangað og allt í óreiðu, ætla að finna mér tíma í vikunni til þess að láta sneiða af mér dulítið hár. Get ekki litið út alveg eins og drusla:)
Fórum í morgun familian út í garð, við mæðgur slógumst aðeins, ég vann ekki, neibb ég eiginlega var bara algerlega yfirbuguð af stóra barninu, endaði með snjó innan við gleraugun svo ég sá ekki baun, Eyþór setti vetrardekk undir passat og fórum svo i grjónsa til Hillu og dætra, ég át næstum allan pottinn elska grjónagraut, pabbi kom líka jebba.
Ég nenni ekki að segja neitt meira ég ætla að fara að hugsa haha jáhá right.
Sjúlli kveður alger haugur
24.10.2008 | 23:21
Kreppuveður
Þýtur í trjám og snjóar böns hér á eyrinni tja hvað getur maður sagt er ekki kominn vetur bara, jólin á næsta leyti og bara 62 dagar til jóla, allir að verða klárir eða hvað. Ekki ég haha ekki neitt.......
Karlinn var að setja inn á myndasíðuna okkar böns af myndum tja hvað getur maður sagt.....
Klúðraði prófi áðan í hjúkrun það gaf skít í mig og lokaði á mig áður en ég gat svarað svo mikið sem einni spurningu, er það sanngjarnt uhhhhhh nei ekki finnst mér það, át bara nammi og drekkti sorgum mínum í Pepsi max já hvað gat maður gert.
Íhugunarefnið fyrir nóttina er, hvað er að fólki sem prumpar ekki nema í einrúmi jeddúda mía.....
Sjúlli kveður steinhissa á öllu og öllum.