Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Maður fær nú bara bauga:)

Skal nú segja ykkur það þetta er nottlega bara hneyksli að Jón Ásgeir skyldi ekki vera alveg sýknaður hvað er málið jeddúda mía, pæliði að lenda í einelti í rúm 5 ár issssss þessir skítalubbar sem standa fyrir þessu, ég segi nú bara X Baugur:)

Minn maður Steini (kunningjanafn) var í Kastljósinu áðan alveg eðal magnaður að venju, upp fyrir Steina setja X við V á kjördag jájá skal nú segja ykkur það, svo var nú Katrín varaformaður flokksins í Meistarnum stóð sig svona glymrandi vel en kallinn vann hana samt á síðustu metrunum, setjum líka X við Katrínu.....æi setjum bara x út um allt:)

Stormaði í dag og keypti mér böns af tjull efni og nei fyrir ykkur sem haldið að ég sé að fara að sauma pungbindi á kallinn þá er það rangt, þetta er ætlað sem flugnanet fyrir glugga heimilisins þar sem svo ótrúlega skemmtilega vill til að randaflugur sumarins eru þyrlur en ekki litlar sætar randaflugur, ógeðs hlussur sem ég vil alls ekki fá inn um gluggann hjá mér. Búin að sjæna fyrir einn í stofunni og niðri hjá Brynju hún er alveg niður við blómabeð þannig að inn til hennar koma ótrúlegustu kvikindi eins og María maríubjalla, Golli geitungur og svo ekki sé minnst á Þóru þyrlu. Ætti kannski að skrifa barnabók um þessi kvikindiCrying 

Sit annars hérna ein og yfirgefin Eyþór "skrapp" í vinnuna í morgun og ég sá hann aðeins kl 20 og svo einhvern tímann í nótt þegar hann laumast inn og fer að hrjóta....heyri kannski svona meira í honum jájá

Fórum mæðgur til tannsa í dag, ég ekki farið í næstum ár og viti menn ég ekki með neitt skemmt en á að endurheimta kynni mín við hr. tannþráðInLove Brynja fór svo líka og sama sagan þar engin skemmd, en á að kíkja til Teits tannsa til að láta endurmeta þörf á spöngum en engin skemmd en þrátt fyrir það þurfti ég samt að borga samtals 24.000 kr fyrir að segja okkur að við værum æði, ekki að það er peninganna virði....

 Jæja ætla að fara að læra er að fara í próf eftir 4 daga my gad og ég er eiginlega ekkert byrjuð að læra og við erum að tala um að ég hef kannski 2 tíma á dag til að læra, my gad aftur............

Sjúlli kveður með colgate bros 


Hef enga stjórn á köttunum

POQbum.com
POQbum.com

Það ekki auðvelt að vera heimavinnandi húsmóðir skal segja ykkur það hef ekki einu sinni stjórn á köttunum, sit núna og horfi á í formi eða eitthvað með ágústu Johnson skil ekki að ég skuli ekki vera að tvista með henni og reyna að hrista af mér vömbina...verð orðin eins og kötturinn fyrir rest Sjúlli kveður alveg rasandi

Hiti og sviti

ég sem hef alltaf elskað sól og hita komst að því í dag að ég hreinlega þoli ekki þennan mikla hita sem er búinn að vera, er líklega að eldast eins og maður gerir víst alltaf en hraðar en ég átti von áLoL Katla búin að vera jafn ergileg og mamma í þessum hita og búin að vera hálf nakin hér í allan dag en samt liðið illa, samt er nú kaldara inni en úti, 19°búið að vera í dag og spáð næstu 2 daga, ástandið á mér hlýtur að stafa af því að ég er nýbúin að eiga eða þá að ég á ekkert til að vera í í svona hlýju veðri nema víða og góða jakka, kemst nú ekki í neitt eiginlega ennþá og ekki búin að kaupa mér neitt ennþá en það verður gert sko um leið og ég fæ aur inn á reikninginn minnDevil

Búin að vera að dunda mér við að læra í dag en ekki nógu mikið  miðað við að ég er að fara í próf í kvöld en annaðhvort fellur maður eða stendur svo einfalt er það nú. Étið líka hnetur hér í hálfa gjöf og drukkið vel með ýmist vatn eða pepsi max svona ef þið hefðuð áhuga á því að vita það.

Brynja fór að horfa á æfingu, má ekki spila þar sem hún er tognuð á ökkla og þurftu hún og Eyþór að bíða í næstu 3 1/2 tíma á slýsó í gær til að fá þá niðurstöðu og ég sem var búin að greina þetta...jeddúda....vorum í eðal brunch hjá Unu og Óskari í gær fengum lummur með sírópi hræðilega gott og með eindæmum holltCrying og margt annað góðgæti fengum við líka. Eyþór er að tralla sér í einhverri miðalda messu í miðalda fötum með miðalda fólki með miðaldar húmor skal nú segja ykkur það aftur til fortíðar á vel við. Katla sefur í víbringsstólnum og víbrar á fullu er með smá mallakveisu ekkert af neinu viti samt, er meira örg út í veðurguðina fyrir þennan mikla hitaKissing Skal alltaf væla yfir veðrinu annaðhvort er of kalt eða of heitt aldrei hægt að gera mér til hæfis, ekki það að ég hef svo sem heyrt það svo oft áðurJoyful Ætla út á eftir kannski meira að segja mjög fljótlega kl er bara 16 þannig að það er mikið eftir af deginum enn, fer kannski og fæ mér ís já eða pepsara maxara, te og kaffi búnir að loka þannig að ég fæ ekki swiss mokka í dag, fæ mér hann bara á morgun elska swiss mokka.

Mér leiðist líka og ég er svo þreytt svaf hrikalega illa i nótt, eiginlega ekki neitt og það var sko ekki Kötlu að kenna hún svaf nefnilega frá 21:30 til 03.00 ótrúlega góð en þá auðvitað þurfti mamman að vaka eins og asni.

Best að fara að læra um afhverju maður sér og hvað stafir og keilur eru og fleira svoleiðis skemmtilegt *æl* þoli ekki LOL

Sjúlli kveður í slöku standi 


skandall og skamm

Ætla í þriðja skiptið að reyna að blogga,vistast ekki þetta drasl en s.s. allt er þegar þrennt er.

Er ekki eins svaðalega mikill penni eða jafn djúp og minn elskulegi eiginmaður en ætla nú samt að tjá mig um sama efni og hann er reyndar búinn að vera að tjá sig um.

Þið svartklæddu menn ættuð að skammast ykkar flestir að kjósa á móti giftingu samkynhneigðra. Er þetta ekki bara mannréttindabrot að fá ekki að giftast þeim sem maður elskar burt sé frá því hvort viðkomandi sé maður eða kona, erum við ekki öll menn frammi fyrir guði. Mér finnst það til skammar líka að 42 prestar minnir mig skrifuðu undir en svo kjósa ekki nema 22 ef ég man rétt á prestastefnunni, hvað er málið. Geta menn ekki staðið við það sem þeir skrifa undir. Mér finnst þetta mjög mikil þröngsýni af hálfu kirkjunnar ef ég á að segja alveg eins og er, og ég er í raun ekki hissa þó svo að fólk segi sig úr kirkjunni. 

 Jæja hætt að tjá mig um þetta en vona að það verði haldið áfram að berjast fyrir sjálfsögðum réttindum "hins fólksins" maður hlýtur að velta fyrir sér hvort samkynhneigðir séu ekki bara "hitt fólkið" einhver annar þjóðflokkur miðað við þetta allt saman, fyrir mér eru samkynhneigðir bara eins og við "þetta fólk" og presta, kokkar, bakarar og allt annað:) Jahérna ég er farin að  rugla og ég er svo ekki vön því haha..

Best að fara að hugsa um barnið mitt......litla

Sjúlli kveður alveg skuggalega hissa á öllum prellum þessa lands nema þessum 22:) 


Bori er dauður

Varla að ég leggi í að koma hérna með mínar heimspekilegu vangaveltur eftir að Eyþór hefur ritað svona hálfleygt blogg. Er ekki alveg eins djúpt hugsandi eins og hann er meira svona grunn...hahahh. Aðalfréttin í kvöld var sú að Boris J er dauður, mér fannst það nú ekkert mjög merkilegt, var hann ekki einhver hálfgerður glæpon...nei segi svona hef ekki hundsvit á einhverjum rússneskum karli sem er dauður, veit bara að hann hafði gaman af því að skemmta sér karlinn og það var nú gott.

Lítið títt af þessum bæ Eyþór er inni í stofu með Kötlu í þeirri trú að ég sé að læra haha yeah right, er að því sko bara eitthvað pikkles í wordinu sem ég er að bíða eftir svari frá þeim makkamönnum um hvernig ég eigi að laga:)

Búin að labba eiginlega frá mér allt vit í dag sem var nú reyndar ekki mikið þannig að ég líklega hef labbað það frá mér á fyrstu metrunum, en samt labbaði sko í næstum klukkutíma í dag og datt svo inn á Glerártorg, fékk mér samt ekkert að borða þar eins og venjulega, bara pepsi max og svo keypti ég mér þrjár melónur. Er að verða þekkt í nettó sem melónukonan:) Alger furðufugl.
Hitti fullt af liði á torginu alltaf gaman að rekast á hina og þessa sem maður hefur ekki séð lengi.

Kíkti í Smárahlíðina til mömmu á meðan Brynja var á æfingu, fékk kaffi og kleinur ekki bagalegt það, vorum líka að skoða eldgamlar myndir síðan við systurnar vorum litlar, alltaf gaman að skoða svona myndir.

Búið að ákveða og fá svar og allt að Brynja fer í Glerárskóla í haust og er hún mjög fegin, glórulaust fyrir hana að vera áfram í Brekkuskóla eftir það sem hún lenti í þar fyrir tæpum tveimur árum, allir vinir hennar eru í Glerárskóla, gott mál það, fór út að borða með pabba sínum og familiu áðan fóru á Greifann, kom svo og Unnur systir hennar með henni aðeins að kíkja á Kötlu:)

Best að fara að kanna hvað makkavinir mínir segja þýðir ekkert að hanga bara í bloggheimum eins og maður sé þar með lögheimili.

Sjúlli kveður á leið að fá kúlurass af allri göngunni:)


pirr

Skal nú alveg viðurkenna að stundum verð ég verulega pirruð á þessari fjandans þjónustu hjá símanum alltsvo skjánum. Virkar bara engan veginn á köflum og þegar maður loks er búinn að rífa allt úr sambandi, setja aftur í samband, restarta öllu draslinu og allt það sem manni er ráðlagt að gera þá er uppáhaldsþátturinn manns langt kominn eða jafnvel að enda já þetta pirrar mig verulega veruleg og verulega.

Svona er þetta nú og þetta pirringsmál afgreitt í bili að minnsta kosti. Get líka pirrað mig núna á veðrinu haldiði að það eigi ekki barasta að fara að snjóa á morgun, skil ekki afhverju ég fæddist á Íslandi viss um að mér var ætlað að búa á Bahamas eða Spáni eða eitthvað. Fæ bara hroll af tilhugsuninni um að það eigi enn og aftur að fara að snjóa. Má snjóa næsta vetur þegar ég vil fara á gönguskíði en ekki núna, núna vil ég bara fara út að spássera með Rollsinn hennar Kötlu:) Spurning hvort það sé eitthvað sem ekki pirrar mig núna............tja veit ekki

Pirrar mig t.d. núna líka að batteríið er að verða tómt í makkanum og ég nenni ekki að standa upp til að stinga í samband...nei líklega er ekkert sem ekki pirrar mig núna. Svona getur þetta verið:)

Mig er farið að langa í bíó alveg skuggalega spurning að maður láti sig vaða þegar Shrek 3 kemur í bíó, fer kannski með karlinum, kannski með Brynjunni minni hver veit ekki ákveðið. Langar samt eiginlega meira í klippingu og lét nú verða af því að panta klippinguna, hef ekki farið í klippingu í 4 mánuði, ég veit þetta er hrikalegt enda er ég orðin skuggalega lík Gísla heitnum á Uppsölum nema skeggið er ekki eða held ekki:) Síðan er mig líka farið að langa í lit og plokk, búin að fara í ljós en það gerði ekki mikið fyrir mig, enda ljótan alveg í hæsta klassa þessar vikurnar, held ég hafi aldrei verið svona ljót tja allavega ekki lengi er nefnilega frekar sæt yfirleitt::) Montin ég veit.

Jæja litla fjallið farið að hrína best að kanna málið

Sjúlli kveður á suðupunkti


Kötlusíða komin í lag

Komst nú að því að enginn komst inn á Kötlusíðu héðan af síðunni, gleymdi að breyta tenglinum hérna úpps en er búin að því núna, endilega kíkja og kvitta var að setja inn myndir af sætunni:)

Allt gott að frétta hér, allir sprækir, Eyþór enn svekktur út af saltkjötinu og hefur varla um annað talað í dag en helv....saltkjötið...haha gott á hann.

Nenni ekki að skrifa eitthvað hef ekkert að segja og því er best að þegja, kúltað þetta rímaði

Sjúlli kveður með bauga


Hor og aftur hor

Ef það er eitthvað sem fer í taugarnar á mér þá er það að vakna með nefið og hausinn fullt af hor, enginn undirbúningur ekkert bara allt í einu plaff og það var hor. Þannig dagur hjá mér í dag og ég er sko alls ekki sátt, er alls ekkert lasin bara með hausinn fullan af þið vitið hverju. Best af ofgera ekki orðinu:)

Páskarnir búnir með öllu sínu áti sem reyndar var með minna mótinu hér á þessu heimili allavega ef litið er til kvenpeningsins, við Brynja vorum eins og litlu börnin á páskadagsmorgun vöknuðum snemma til að opna páskaeggin en þegar við vorum búnar að fá málsháttinn þá langaði okkur ekkert í eggin, enda finnst mér þessi egg nú hálfgert prump miðað við það sem var þegar ég var lítil. Núna opnar maður eggið og það er fullt af einhverjum pappír allt nammi er komið í pappír þannig að í raun er eiginlega ekkert nammi inni í egginu frat segi það enn og aftur.

Fórum út í göngutúr í gær að skoða girnileg einbýlishús og láta okkur dreyma, verður ekki nema draumur í bili allavega, eigum okkar góðu íbúð sem við erum ánægð í en er eiginlega að verða heldur lítil núna, fylgir ótrúlega mikið dót henni Kötlu og einhversstaðar þarf það að komast fyrir, kemst ekki meira inn til okkar eiginlega þar er komið skiptiborð og rimlarúm og var nú herbergið enginn salur sko:)
Verð að vinna í Lottó eða eitthvað svoleiðis þá færi ég beina leið og keypti mér einbýlishús, eins og segir í auglýsingingunni "ég hætti ekki fyrr en ég fæ seðil" og minn endir verður "og kaupi svona hús" haha damn er maður ekki bara fyndinn svei mér mætti nú alveg segja mér það.

Ég fór svo í göngutúr í dag með mömmu, Hildi, Brynhildi og Kötlu minni á meðan Brynja og Ragnhildur fóru í bíó, röltum við okkur í bæinn og enduðum á Bláu könnunni í heitu kakó svaka huggó og slúðruðum svolítið alltaf gaman að því:) Vorum svo boðin í mat til Hildar í kvöld og fengum þar dýrindis lambalæri og með því alveg typpikal.

Búin að vera í dag að dunda mér við að gera verkefni í Power Point sem er svolítið flókið í makkanum þar sem allar leiðbeiningar eru eins og maður sé með Pc en ég er samt búin að geta gert 2 verkefni af 4 en þar strandaði ég þar sem ég finn hvergi einn fídus á makkanum alltsvo í Neo office eins og office pakkinn heitir á þessu epli:) En mögnuð talva samt:)

Sótti um í vinnuskólanum fyrir Brynju í dag ætlaði að vera búin að því fyrir löngu en alltaf eitthvað tafið mig, verður frá 10 júní - 27 júlí minnir mig og fyrir hádegi þar fyrir utan, svo er bara spurning hvort hún kemst í Hagkaup eða eitthvað seinni hlutann kemur allt í ljós annars sýnist mér það verða nóg að gera í boltanum í sumar sem er bara af hinu góða:) Svo voru pabbi hennar og Kristín að bjóða henni til Spánar held ég að sé staðurinn og verður það frá 3-10 sept annars kemur það betur í ljós á morgun eða næsta, átti eftir að panta ferðina:)
Bara æðislegt spurning um að gerast laumufarþegi:)

Best að fara að athuga með litla barnið liggur eins og engill í rimlarúminu sínu:)

Sjúlli kveður ofsa hvítur og vel hærður


X-?

Föstudagurinn langi í dag, búinn að vera frekar langur dagur verð nú að viðurkenna það:) Eyþór fór í Mývó kl 10 til að æfa fyrir einhverja tónleika sem eru í þessum skrifuðu orðum. Þannig að við Katla litla erum bara búnar að vera heima í dag. Mamma og Hilla komu reyndar í kaffisopa og svo fengum við Hilla okkur göngutúr með dæturnar og ég verð að segja að það var alveg verulega hressandi. Fann meira að segja fyrir löngun til að elda mér þegar ég kom heim, vorum í 11/2 tíma að spássera.

Sit hér og góni á X-factor og hann Jagvan er bara flottur hlýtur að vinna þessa keppni, samt eru Hara systur líka alveg frábærar. Jagvan er alveg eins og Brad Pitt hefur enginn nema ég tekið eftir þessu...:)

Annars er allt rólegt bara, Brynja er á króknum en kemur á morgun tilbaka, hlakka nú til finnst frekar einmanalegt að hafa gengið mitt ekki hjá mér, stundum fannst mér svona hálfgerð hvíld þegar hún fór til pabba síns og fannst svo æðislegt að hafa smá tíma ein útaf fyrir mig en þetta finnst mér alls ekki lengur nú vil ég hafa þetta lið bara heima hjá mér, eiginhagsmunaseggur:)

Ég var ótrúlega dugleg áðan og svaraði tveimur spurningum í LOL hrikalega dugleg, enda hef ég ekkert lært lengi þannig að þetta er nú afrek, þakka fyrir að þurfa bara að fara í 2 próf en ekki 4 eins og til stóð fyrst.

Ási frændi og familia eru komin norður og eru á Húsavík, fékk sms áðan frá systir um kaffiboð en ég held ég nenni ekki að fara austur á morgun, enda Brynja á leiðinni að vestan þannig að......held við hjúin ætlum að gera árás á Bónus á morgun og reyna að versla eitthvað, fór í Bónus í gær til að kaupa bleyjur og það var ekkert stæði hvergi en loks þegar ég var búin að sólunda þarna fram og tilbaka þá sá ég nú eitt og ætlaði að renna mér inn í það en nei kom ekki Rav æðandi og munaði engu að hann keyrði á mig í æsingi yfir að ná helv....stæðinu sem honum tókst....get svarið það hversu mikil geðveiki er hlaupin í liðið, það var lokað í dag og svo er lokað á sunnudag en það er eins og það sé bara lokað í viku eða eitthvað miðað við þetta kaupæði í liðinu.

Best að halda áfram að glápa á X-factor

Sjúlli kveður


Ha

Kominn tími til að reyna að sýna að hér sé eitthvað lífsmark, mætti halda að maður hefði brjálað að gera:) Ekki það að það er alveg nóg að gera, er með ungfrú Kötlu á júllu meira og minna allan daginn og reyni að gera eitthvað gáfulegt inn á milli sem yfirleitt endar með ósköpum. Fór loksins eftir að hafa ætlað það í alveg ægilega marga daga út í garð og náði mér i páskagreinar til að setja í vatn en verð að viðurkenna að þær eru frekar ljótar þannig að það er spurning hvort ég verði að fara aðra ferð, sé til breytir engu þó svo að þær séu kannski bara ljótar hendi hellings skrauti á þær og þá er málið dautt.

Brynja fór á gistikvöld upp í Glerárskóla í gærkvöldi og hringdi svo kl 8 í morgun til að láta sækja sig, málið var á gistikvöldi að það átti að reyna að sofa sem minnst og þeir sem sofnuðu voru vaktir my gad s.s. mín kom frekar þreytt heim og beint í rúmið en svo hringdi pabbi hennar kl 10:30 og bauð henni út að borða og ætlaði hún sko að koma beint heim og í rúmið aftur, þreytan mikla.

Hérna er núna næstum 14 stiga hiti en rok alltaf rok núna þessa dagana hvað er málið getur ekki verið logn bara, tilhvers að hafa svona fínan hita en svo rok. Skal ræða við guðinn um þetta við tækifæri finnst þetta frekar skammarleg framkoma sérstaklega þegar maður er orðin makkadjella og vagndjella veit ekki hvar þetta endar allt:)

Fórum röltandi í bæinn í gær til að skoða fermingarskjóla á Brynju og hún reyndar bara fann einn sem er voða sætur, mamman gleymdi sér alveg í Gallerí sá fullt af flottum fötum og líka í Fargo og get bara ekki beðið eftir að minnka aðeins meira þá verður rokið af stað og keypt föt, ætla nú að fara í eins og einn ljósatíma núna í vikunni með dótturinni og leyfa henni að prófa, ætluðum að fara í brúnkubekkinn s.s. sprautubekkinn en mér finnst stelpurnar vera að koma svo hrikalega flekkóttar úr honum að það er eiginlega bara ekki fyndið, enda held ég að 1-3 ljósatímar geri nú ekki alvarlegan skandal en allavega í ljósin ætlum við:)

Skruppum á Glerártorgið við hjónin í gær aðeins að versla svona eitt og annað sem okkur vantaði, Katla kom auðvitað með og svaf eins og engill eiginlega bara. Keyptum líka páskaegg handa stelpunum spurning hvort ég fari nokkuð næstum alveg strax í fataleiðangur fyrst páskarnir eru á næsta leyti með sín yndislegu páskaegg skal ekki segja.

Ætla að fara að athuga hvað ég geti gert næst, alltsvo hverju ég nenni, hef ekki nennt að læra siðan eitthvað fyrir Krist og ætti virkilega að skammast mín fyrir það sem ég auðvitað geri en samt greinilega ekki nóg til að haga mér eins og námsmaður og læra....skamm Erna

Hætt að bulla

Sjúlli kveður súkkulaðisjúkur


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband