Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
7.6.2007 | 18:35
Snillingur
Var að tala við Eyþór, búinn í seinna prófinu og nældi sér í úrvalseinkunn þar...duglegur drengur átti það alveg skilið miðað við púlið og bara allt síðustu mánuði svo ég tali nú ekki um þessa daga þarna úti. Var alveg í skýjunum eðlilega......ohhhh ég er montin.
Fengum okkur göngutúr ég, Brynja, mamma og KAtla upp í lystigarð í góða veðrinu í dag, orðinn ofsalega fallegur garðurinn hef ekki farið þarna mjög lengi, kannski einu sinni á þessum 4 árum sem ég hef búið hér. Síðan skruppum við mæðgur aðeins að ná okkur í björg í bú og eins var Brynja að láta minnka hringa sem hún fékk í fermingargjöf og ég armbandið sem þau stjúpfeðgin gáfu mér í fæðingargjöf.
Vona að veðrið verði eins gott á morgun, mér er eiginlega alveg sama þó svo að það sé engin sól finnst það bara betra ef maður ætlar að labba.
Súkkulaðifíkn er ekki betri en önnur fíkn hvað get ég gert til að losna við þessa hrottalegu löngun í súkkulaði ekki bara hvaða súkkulaði sem er heldur marsipan súkkulaði frá Lindu er brjáluð í það og því miðru þá eru seld 3 stykki í pakka og ég fer létt með það....Verð að komast út úr þessum vítahring. Þyngist ekkert samt því Katla étur þetta af mér en mig langar svo að losna við þetta, líður sko ekki betur heldur en þegar ég reykti, jafn sterk löngun liggur við...
Talvan orðin straumlaus eða að verða það ætla að stinga í samband
Sjúlli kveður brúnn utan sem innan
3.6.2007 | 10:43
Hvað er betra.....
En að byrja morguninn á eðal góðum Latte, held ekkert, hlusta á kirkjuklukkurnar klingja í Akureyrarkirkju og þvílíkur friður einhvern veginn. Vöknuðum mæðgur í svitabaði í morgun, sólin skein svo fallega inn um gluggann okkar, Katla hjalaði góða stund bleyjulaus og mamma dormaði. Fórum síðan á lappir og ætluðum upp í Kjarnaskóg en ætla að fresta því til morguns úr því sem komið er. Katla sefur núna, ég var að klára að þrífa svona lauslega og er síðan komin með þennan áðurnefnda eðal Latte í hönd
Er nú eitthvað að kólna sýnist mér úti, en er samt 15° enn voru rúmlega 18° fyrst í morgun. Talaði við Brynju eftir fyrri leikinn í gær þær töpuðu honum en fall er fararheill og vonandi bara vinna þær ÍA í dag. Eiga svo fyllilega skilið stelpurnar að vera í suðurlandsriðli þær eru góðar.
Fór að borga æfingagjöldin í gær, hélt ég yrði svona 10 mín í mesta lagi en nei við biðum 40 mín í röð, Kötlu fannst það fínt horfði bara á krakkana en mamman fór í hendinni
Eyþór æfir og æfir fyrir útskriftartónleikana sína sem eru á morgun, efast um að það sé notalegt því það er 25° hiti þar sem hann er, hlakka til að fá hann heim, finnst líka æðislegt að hann sé að ná að klára þetta því hann var alltaf á mörkunum að hætta bara, en sem betur fer þá er hann harður drengur, búið að vera hrikalega erfitt, kostar auðvitað þvílíkan böns og þá er ég ekki bara að tala um peninga heldur allskyns fórnir og fleira.......en hann er að klára masterinn í þessu og klárar rest næsta haust
Náði að mála eina umferð á hvíta vegginn inni hjá Brynju í gær, ætla að klára þann vegg helst áður en hún kemur heim svo ég geti aðeins lagað til þarna svo hún geti sofið þar. Tek vegginn sem á að vera grænn í nefið á morgun nema ég nái því kannski í dag, fann fína leið til að hafa Kötlu góða setti stólinn hennar upp í rúm og geiflaði mig svo og gretti annaðslagið til hennar og hún var alveg eins og stjarna, við reddum okkur kjellurnar.
Best að fara að setja í eins og eina þvottavél og jafnvel að hengja út úr henni, fínn þurrkur.
Sjúlli kveður í sólskinsskapi
1.6.2007 | 23:12
Klár stelpa
Já er eins og venjulega alveg að deyja úr monti. Brynja Dögg var að fá einkunnirnar sínar í dag og eins og venjulega eru þær ekki af verri endanum. Lægsta einkunn 8.5 og hæsta 10 og meðaleinkunn 9.2 oseisei já hún er dugleg stelpan sem betur fer.
Skreið snemma inn í ból í kvöld, mér hálfleiðist verð að viðurkenna það að hanga svona ein heima. Meira að segja kettirnir eru farnir út á lífið. Brynja fór suður í dag þannig að við Katla erum bara hérna. Sjónvarpið ekki til að hrópa húrra fyrir og KAtla var örg þannig að við fórum inn í rúm og vorum að spjalla og skoða tærnar á okkur í næstum klukkutíma. Já þið ættuð bara að sjá hversu merkilegar okkar táslur eru Svo fékk Katla sér snabba og steinsofnaði og ætla ég bara að láta hana lúlla uppí hjá mér er ekki eins einmana þá. Á nú samt eftir að fara fram og fá mér smá kaffi og súkkí því það er jú nammidagur hjá mér í dag annars er ég að reyna að hætta þessu sætindaáti og borðaði t.d ekkert í gær.
Eyþór þessi mikli kaffimaður fattaði áðan að í íbúðinni sem hann fékk lánaða hjá vini sínum var ekki til neitt kaffi og í þessum litla bæ þá lokar öllum búðum mjög snemma þannig að hans mesta kvíðaefni í kvöld var það að þurfa að fara að æfa sig án þess að fá kaffi. Ég huggaði hann með .því að ég fengi mér bara eðal kaffi úr góðu vélinni okkar hér hahha. Allt skeður svo snemma hjá Svíum allt lokar snemma, þeir fara MJÖG snemma að sofa held að hjá okkur kallist liggur við vera dagur ennþá meina það.
Sá í Fréttablaðinu að Atli þingmaður vinstri grænna hefði ekki verið við þinggræjið í gær í kirkjunni því hann var að sýna samkynhneigðum vissan stuðning með því ég tek ofan hattinn fyrir honum vissi nú allt að við þessir grænu værum snillingar en SNILLINGAR jújú....Erna Snilli Hauksdóttir seisei já...ætla að prumpast eftir súkkulaði því ég er sko ekki hætt að láta ljós mitt skína í einsemdinni.
Ok fékk mér ekki kaffi nennti ekki að bíða eftir því að hún kveikti á sér, fékk mér bara pepsi max í staðinn með súkkulaðinu, eigum svo mikið af því síðan í fermingu að Sigurpáll og Kristín vildu endilega gefa okkur tvær kippur tveggja lítra, hafa greinilega vitað að ég er forfallinn maxisti og reyndar kallinn líka, ekki skrýtið þó maður sé ör og vitlaus á köflum þegar maður drekkur rótsterkt kaffi og pepsi meira og minna allan daginn
Finn alveg hvernig súkkulaðið þrýstist út í brókina, skal viðurkenna að mér líður ekki vel með að liggja upp í rúmi eins af afvelta rolla étandi súkkulaði, pikkandi á tölvuna og drekkandi gos, þessi lýsing er svona ca sú lýsing sem ég myndi kannski smella á svona lónlý tölvukall ....líklega er ég bara lonelý tölvukelling
Best að fara í nokkra leiki hérna á netinu sem hún dóttir mín var svo góð að kenna mér hefur líklega vitað hvað móðirin yrði lónlý þessa daga.....
Sjúlli kveður með bumbuna út um ALLT
1.6.2007 | 00:16
Þreyta
Hvað er málið, er ógeðslega þreytt en get engan veginn sofnað búin að reyna en nei það bara er alls ekki að ganga upp, hlusta á litla krílið mitt anda djúpum og værum andardráttum hér við hliðina á mér ósköp notalegt en samt ekki nóg til að svæfa mig....ekkert sem mér finnst ömurlegra heldur en að geta ekki sofið en það kemur.
Brynja er að fara suður á morgun kl 17:30 að keppa og kemur á sunnudagskvöldið aftur seint eða um kl 23 verður bara að reyna að fá far heim frá Hamri þar sem ég hleyp ekkert út núna Þessi mánuður hjá okkur er búinn að vera svakalega dýr, auðvitað ferming og síðan fótboltagjöldin fyrir sumarið sá að það á að borga þau um helgina 24.000 kr og svo ferðin suður 10.500 já skal nú segja ykkur það dýrðlegt að fá þetta svona allt á sama mánuðinn svo ég tali nú ekki um þegar ég er í fæðingarorlofi og ekki með hæstu tekjurnar...en vil nú hafa hana í boltanum góð forvörn...og félagsskapur
Fórum í dag hin heilaga þrenning eða við mæðgur og keyptum málningu á herbergið hennar Brynju það nýja, vildi hafa einn vegg grænan og svo allt hitt hvítt bara, kláraði að sparsla áðan, dugleg eru að vísu bara tveir veggir sem þarf að mála en það þarf samt að gera það býst við að geyma það fram á mánudag þá verður stelpan komin heim og getur verið með Kötlu á meðan.
Við Katla erum að spá í að bruna á Húsavík á laugardaginn og kíkja á afa Hauk, Hildur og dætur eru að spá í að fara líka kannski, förum samt á tveimur bílum komust ekki í einn erum með svo mikið af börnum. Gaman að koma austur og hitta kallinn á heimavelli. Kíki kannski á systkinin mín ef ég verð í fantaformi sé nú samt til með það.
Jæja best að reyna að fara að kanna hvar hann Óli lokbrá er að hangsa vil fá duft í augun...
Sjúlli kveður með augun galopin
30.5.2007 | 23:13
Hetjurnar
Vá hvað það eru margar hetjur til í þessum heimi okkar og þá er ég ekki að meina svona feik hetjur eins og mig sem er með hetja sem mail heldur hetjur sem berjast við illvíga sjúkdóma og trúa því svo innilega fram á síðustu stundu að það komi til eitthvað kraftaverk sem veldur því að þau lifa.
Hún lést í dag Ásta Lovísa sem var kosin kona ársins af tímaritinu Ísafold ótrúleg manneskja. Banameinið var krabbamein. Ótrúlegt að læknavísindin skuli enn ekki vera búin að finna neitt upp við þessu helvíti því ef eitthvað helvíti er til þá held ég að það sé þessi sjúkdómur. Hef fylgst svolítið með blogginu hennar og las síðast í gær nokkur blogg aftur í tímann og ég hágrét allan tímann. Afhverju lærir maður ekki af svona eða gerir maður það kannski. Lærir maður að meta lífið meira eftir að lesa svona? Ég held það að allavega ætti maður að taka sig í smá naflaskoðun og sjá hvað maður hefur það gott í raun, maður LIFIR nokkuð sem þessi kona t.d fékk ekki og þurfti að yfirgefa 3 lítil börn. Blessuð sé minning Ástu Lovísu...
Ég hef aldrei misst neinn nákominn mér hvorki af slysförum né úr langvinnum sjúkdómi sem betur fer, hlýt að teljast ofsalega heppin því mér sýnist þetta vera spurning alltaf bara hver er næstur og maður veit aldrei hver verður næstur. Held við ættum að hætta að taka fólki sem sjálfsögðu og muna líka eftir þvi að segja fólki að okkur þyki vænt um það
Best að hætta áður en fólk sem þekkir mig heldur að ég sé að verða skrýtin en það kostar ekkert að pæla í þessu aðeins og auðvitað á ekki að þurfa andlát til að við gerum það....það kostar svo lítið að brosa en gæti fengið einhverjum til að líða svo mikið betur.
Sjúlli kveður mjög þenkjandi
29.5.2007 | 20:48
Fermingin
Þriðja skiptið sem ég byrja á bloggi varðandi ferminguna Litlan mín hefur alltaf þurft athygli þegar ég er rétt að byrja en svona er þetta og spurning hvort þetta hafist núna.
Brynja var svo falleg og flott á fermingardaginn og stóð sig algerlega eins og hetja. Tókum daginn snemma þar sem hún átti að vera mætt í greiðslu og förðun kl 7:45. Kirkjuathöfnin var 1 og korter og hefði ekkert mátt vera lengra. Voru rúmlega 500 manns í kirkjunni þannig að það var þétt setið. Katla svaf eiginlega alla athöfnina og var alveg eins og stjarna. Fórum svo í það fljótlega að skreyta salinn í Víðilundi en Kristín, Unnur og Ragna sáu að mestu um það ég hringlaði eitthvað þarna inn á milli. Enda Kristín alvön að henda upp veislum
Veislan var rosalega fín, góður matur, frábært fólk, fallegt fermingarbarn, yndisleg fjölskylda og bara allt hreinlega fullkomið. Þegar flestir voru farnir þá hjálpuðumst við að þrífa, ss. Unnur, Alli, Ragna, MAggi, Didda, Brynja, Eyþór, Ég, Kristín og Siggi og gekk það mjög hratt og vel fyrir sig. Settumst síðan niður á meðan fermingabarnið opnaði gjafirnar og fékk hún sko þvílíkt fallegar gjafir. Hún fékk í pening 278 þús, 5 hálsmen, 3 hringi, eina eyrnalokka, ökklaband, fótsnyrtingu, spámanninn (bók), hárblásara, bók, snyrtivörur, myndavél frá Rögnu, Magga og Jönu, rúm frá pabba sínum og Kristínu, fartölvu frá mér og Eyþóri, heppin stelpa og átti þetta allt alveg skilið enda falleg og góð.
Finnst nú nett skrýtið að vera búin að ferma hana, finnst ekkert ofsalega langt síðan ég var með hana eins og Kötlu svona litla, en sem betur fer virðist okkur hafa heppnast vel með hana og gengur henni vel alveg sama hvað hún tekur sér fyrir hendur. Ohhh er svo stolt mamma.
Maturinn var rosalega góður en það var grillaður lamb, grilluð lúða og grillaður kjúlli með tilheyrnandi meðlæti frá Greifanum, svo á eftir var fermingarterta, kransakaka, rice crispies kaka og snittur sem Siggi og Kristín komu með....
Verð að hætta Katla farin að veina.....meira síðar en allavega var dagurinn æðislegur og ég set inn myndir við fyrsta tækifæri.
Sjúlli kveður stoltur af stelpunni sinni
26.5.2007 | 23:03
Tralal
Allt að gerast skal ég segja ykkur. Sitjum hérna hjónin alveg saliróleg og pikkum á okkar fartölvur eins og óð séum. Allt klárt fyrir ferminguna, við Brynja vorum að koma frá því að raða borðum í salnum og fara með ýmislegt dót þangað. Mamman búin í nöglum ægileg djösssss budda.....get varla skeint barninu er svo fín
Skrapp til Hildar seinnipartinn var svo heppin að lenda í grilli, pabbi var þar líka. Að vísu hringdi húsvörðurinn í Víðilundi í mig þegar ég ætlaði að fara að borða og sagðist vera með lyklana yrði í um 15 mínútur enn í Víðilundi ég reif í mig eins og villisvín og sótti Brynju en hún var í fermingarveislu hjá kærastanum.
Sendi tengdasyni mínum og fjölskyldu skeyti í dag en fattaði áðan að ég sendi það á vitlaust heimilisfang haha að vísu bara 7 hús á milli þannig að það kemst vonandi til skila.
Setti saman rice crispies kökuna áðan og grýtti inn í skáp æði skreytti hana með fánum hrollvekjandi ekki fallegt hjá mér.
Var virkilega farin að trúa því að ég yrði að fara í fermingu dóttur minnar á Evu klæðum og var farin að finna til með fólki, fór í Centro í morgun og Brynja með mér held ég hafi verið MJÖG leiðinleg mamma, kvartaði kveinaði og hreytti. Fór í haggarann fann eitt svart og blátt tjald þar og sokkabuxur, keypti tvær til öryggis ef ske kynni að ég myndi springa, fór líka í Gallerí og fann goltreyju, afhverju heitir þetta goltreyja spyr sá sem ekki veit. Þannig að ég bjargaði heilli kirkju frá glötun eiginlega
Brynja er ekki stressaðri en svo að hún hentist í bíó kl 22 en þá var uppselt og þá var bara farið heim til vinar að spila...ætlar að koma heim um 12 jájá ekki stressi þar fyrir að fara, kvíðir fyrir að sitja í kirkju svona lengi, skil hana vel veit að ég verð orðin þreytt.
Katla búin að vera í stuði í dag.......sefur núna
Ég er að fyllast af hor, vona að það verði farið á morgun.
Sjúlli kveður "horaður" hihih
24.5.2007 | 20:49
Meistari hvað!!!!!
Sá mig knúna til að blogga þrátt fyrir að hafa gert það áðan. Meistarinn er í sjónvarpinu og kem ég hreinlega aldrei til með að skilja afhverju Eyþór er ekki hreinlega í þessum þáttum þar sem hann bara VEIT allt, án gríns og ekki bara að hans eigin áliti. Ætla að skrá hann næst engin spurning heldur engin spurning að þá verðum við 5 millum ríkari.
X við Eyþór í meistarann næsta vetur ójá...
Sjúlli kveður farinn að kaupa fyrir 5 millurnar
24.5.2007 | 18:52
Hvar er sumarið
Auglýsi hér með eftir sumrinu, er nú ekki alveg sátt ég meina það er kominn 24 maí og það var snjókoma í morgun öllu má nú ofgera sko. Hef ekki þorað út úr húsi í dag vegna veðurs bara verið heima og hugsað um hvernig tjald ég eigi að kaupa utan um mig fyrir ferminguna...já ég sagði tjald, verst að seglagerðinÆgir sé ekki hér til heimilis....damn.
Búin núna að ÖLLU nema finna föt á mig pæliði í því, ég verð þessi nakta í kirkjunni með júllurnar niður á tær ásamt huppunum. Ok ég fer ekkert framhjá neinum þarf engar lýsingar.
Var að klára að drekka eðal cappucino úr nýju vélinni minni og er hann alveg þrælgóður, Eyþór er með stúlkakórsæfingu hef ekkert séð hann nema hann rétt skaust heim til að taka á móti nýja stóra rúminu hennar Brynju en svo var hann rokinn aftur ójá kem ekki til með að sjá hann af neinu viti fyrr en 10 júní og þá leggst hann í rúmið í einhverjar vikur þannig að ja um miðjan júlí skulum við segja.
Svona er nú lífið bara ekkert hægt að gera við því, Brynja kláraði síðasta prófið sitt í Brekkuskóla í morgun og ef ég þekki hana rétt þá fær hún fínar einkunnir ekki vön öðru svo dugleg þessi elska, Þula vinkona hennar kom svo til hennar og voru þær boðnar upp í Brekkuskóla í pizzaveislu en þeir krakkar sem voru með fæstu punktana alltsvo hegðunar og mætingarpunkta var boðið, hefur þetta nú frá mömmunni Fóru síðan í sund og á Subway og hún var varla komin þaðan þegar hún hjólaði út í þorp til að horfa á einhvern fótboltaleik, bissi krakki.....
Fannst nú ekkert smá fyndið þegar ég fattaði hver væri aðstoðarskólastjóri í Glerárskóla en það er enginn annar en gamli skólastjórinn minn úr Lundarskóla í Öxarfirði hann HAlldór Gunnarsson. Okkur samdi aldrei mjög vel og sagði hann mér oft að það kæmi nú aldrei til með að verða neitt úr mér...haha....var villingur, vona að hann fatti ekki hver er móðir Brynju Daggar þessa afburðanemanda með topp einkunn í hegðun *hóst* hefur það ekki frá mömmunni...haha var nefnilega frekar erfið í gagganum og var vísað úr skóla og ég strauk líka og makaði súkkulaði í brækur eins kennarans míns það var reyndar fyndið leit nefnilega út eins og já ekki meira um það...ég var villingur þar með er það ljóst
Allir voða spenntir varðandi fermingu, var að tala við Sigurpál hann sér um myndatöku, Kristín, Ragna og Unnur ætla að koma í að dekka upp borðin með okkur, Eyþór sækir kökurnar í bakaríið eftir að hann er búinn að spila í fermingunni þetta verður bara snilld.
Farin að faðma Kötlu
Sjúlli kveður allsber
22.5.2007 | 19:56
Gangbrautir hvað er málið?
Eitt sem ég hef pirrað mig á í mörg ár er virðing ökumanna fyrir gangbrautum. Merkilegt nokk en það er meirihluti ökumanna sem virðir ekki gangbrautir. Hef verið mikið á hjóli hér á Akureyri og hef mátt þakka fyrir að lenda ekki margsinnis í maski upp á slysó vegna einhvers sem heldur að hann sé yfir hjólreiðamenn hafinn og ætlar að valta yfir þá. Ég sjálf persónulega virði ALLTAF gangbrautir nema í þeim tilfellum þegar það eru tvær akreinar í sömu átt því þá er það oft að ef ég stoppa að bíllinn á næstu akrein heldur áfram og virðir ekki gangbrautina sem að sjálfsögðu getur valdið slysi.
Var í morgun að labba með Rollsinn og þurfi á leið minni að fara 6 sinnum yfir gangbraut af þessum 6 skiptum stoppuðu bílar ekki í 3 skipti og í 3 skipti var enginn bíll.....í eitt skiptið var ég komin út á gangbrautina þegar bílskrattinn kom og sveigði framhjá mér. Ég meina það hvað halda bílstjórar að þessar merkingar þýði alltsvo strikin yfir götuna, get orðið svo reið yfir þessu. Svo ég tali nú ekki um þegar bílstjórar sjá börn bíða eftir að komast yfir en stoppa ekki, tilhvers er verið að kenna börnum umferðareglurnar, þyrfti held ég að taka mun harðar á þessum hluta umferðalaganna.
Vildi að ég væri lögga myndi sko taka á þessu, langaði alltaf að verða lögga, reyndar út af búningnum hélt ég myndi líta vel út i honum Alltaf verið svag fyrir búningum vildi að sjúllabúningarnir væru flottari...
Annars er dagurinn búinn að vera fínn, rölti mér s.s. til Hildar í morgun og tilbaka, hitti Erlu mágkonu og Lilju þar, fórum við Brynja svo að versla í kransakökuna sem Harpa ætlar að gera og skutluðum til hennar og síðan komu mæðgur, Lilja og Erla í kaffi voru á leið austur aftur. Alltaf gaman að sjá ættingjana, sé þær aftur um helgina í fermingu.
Allir voða spenntir yfir að vita hverjir fái ráðherrastól, Steingrímur fær engan sem mér finnst rosalega vitlaust, hann átti að verða umhverfisráðherrahipp húrra fyrir því. Katrín menntamálaráðherra, ég var búin að ákveða þetta allt saman, finnst þetta hálf skítleg ríkisstjórn, óttalegt prump að samfylking skuli vera svona vitlaus, á ekki til orð get samt ekki hætt að skrifa um þetta.....afhverju er ég ekki forsætisráðherra þá væri nú Ísland heldur betur í góðum málum og grænum....hahahaha þarna þið sjálfstæðispungar....
Hef í raun ekkert vit á stjórnmálum, bara að reyna að þykjast hafa eitthvað vit á þeim, veit bara að ég vil hafa landið mitt grænt en ekki grátt þannig er það nú....
Katla er að verða búin að sjúga túttuna út í gegnum hnakkann sýgur hana svo fast best að fara að skella út júllum, þegar litla skinnið lítur á mig sér hún bara tvær nýmjólkurfernur haha bláar og flottar....jájjá svona er þetta, fyndið samt hún kann varla á túttu hahaha litla skinnið....
Sjúlli kveður svalur sem aldrei fyrr