Færsluflokkur: Bloggar
9.5.2006 | 16:17
Viti menn
Það fór næstum því eins og ég var hræddur um, þ.e. að ég myndi ekki endast meira en eina viku í að skrifa á síðuna. En nú er ég mættur. Fjandi góður dagur í dag. Kalt og hressandi úti. Gott að fá smá kulda, því það er nefnilega alltaf svo rosalega heitt og gott á Akureyri . Ég er kominn í vorskap, nenni ekki að vinna og langar mest í veiði. Ég er búinn að fá byssurnar mínar og búinn að prófa þær. Haglabyssan er snilld en ég þarf að fínstilla kíkinn á rifflinum.
Laugardagurinn var langur hjá mér, 18 tíma vinna. Stúlknakórinn var með æfingadag og eftir æfingu fórum við í Kjarnaskóg og grilluðum og fórum í fótbolta og leiki. Síðan gisti hluti kórsins hér í kirkjunni og ég var hjá þeim fram yfir miðnættið. Í einni pásunni spilaði ég svo í tveimur giftingum. Æfingin gekk rosalega vel og erum við að vera tilbúin fyrir Austurríkis-og Slóveníuferðina. Á fimmtudag ætlum við að hitta Önu, sem er slóvensk, en hún ætlar að hjálpa okkur með framburðinn á slóvenskunni. Í kvöld er ég að spila með Óskari P í afmæli á KEA hóteli og síðan tekur við kóræfing hjá kirkjukórnum.
Það er kannski best að koma sér heim og fara að elda. Það er sú besta afslöppun sem ég veit. Ég ætla að malla eitthvað gott heimatilbúið grænmetis- og kjúklingabaunakarrý. Namm! Ætli ég sleppi ekki hlaupabrettinu í dag. Það er ótrúlega magnað að hafa það svona heima hjá sér. Við erum komin með fína aðstöðu í kjallaranum, hlaupabretti, stigvélina hennar Margrétar, lóð og önnur líkamsræktartól. Sjónvarp fyrir framan og geislaspilarinn í eyrunum. Ef ég ætla ekki að drepast á fjöllum næsta haust í rjúpnaveiðinni, þá verð ég að hlaupa af mér öll hnévandræði. Svo hjóla ég allt sem ég þarf að fara þessa dagana.
Jæja Elvý, núna stóð ég við yfirlýsingar mínar frá í gær,
Eyþór
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.5.2006 | 14:14
Sólstrandagæji það er í góðu lagi að vera gabbagabbagæji:)
Reykjavíkurferðin var fín, merkilegt samt hvað ég verð alltaf hrikalega þreytt í borginni, pirruð og örg....allir að farast úr stressi, flautað á mann hægri vinstri og ég veit ekki hvað og hvað. Kann best við mig í rólegheitum Náði samt að eyða alveg einni og einni krónu sko...keypti mér brúðarkjól og svo ýmislegt meira.
En hvað um það var að koma frá sjúkraþjálfaranum mínum honum Einari sem að mínu áliti er sá besti sem til er...kom mér í lag þegar bakið gaf sig fyrir 3 árum og svo núna er hann að laga hálsinn á mér eftir áreksturinn síðasta sumar, setti inn beiðni hjá Einari fyrir tæpum 3 mánuðum og komst að í dag er ekkert smá þolinmóð, Eyþór var alltaf að segja mér að fara til einhvers annars yeah right En nóg um það keypti mér disk í Haggaranum áðan sem heitir Papar á balli og keypti hann bara út af einu lagi sem er Sólstrandagæji, búin að halda mikið upp á þetta lag eiginlega bara síðan ég var 20 ára átti disk með Sólstrandagæjunum sem reyndar var stolið af mér og er ófáanlegur núna
en gæfi mikið fyrir að eignast hann.
Var í gær að safna flöskum fyrir Þórsara í gær með Brynju og Valdísi þvílíkt sem fólk drekkur sem betur fer fyrir okkur náðum 12 pokum á mjög stuttum tíma, síðan opnaði bara Endurvinnslan fyrir okkur og foreldrar töldu flöskur alveg í þúsunda taliVar verið að safna fyrir einhvern strák sem lamaðist en var í Þór.
Hlaupabrettið sem við verðandi hjónin fjárfestum í í Intersport er komið á eyrina og kemur um þrjúleytið hingað þannig að hér verða allir á hlaupum næstu vikur, mánuði og ár. Brynja er að þjálfa upp þolið hjá mömmu sinni og fór með hana upp í Kjarna í fyrradag og kenndi mér tæknina í hlaupinu, fór svo ein í gær og get svarið það að ég hélt að ég væri að deyja, með blóðbragð í munninum og ég veit ekki hvað.
Jæja best að fara að reyna að blása einhverju af öllu rykinu í burtu oft var þörf en nú er nauðsyn eins og einhver góður maður sagði
Trallla Afhverju byggirðu ekki reykháf alveg helvítis hellings reykháf, þú veist að konur eru mikið fyrir menn með stóra reykháfa Svo mörg voru þau orð.....Kv gabbagabbagabbagabbagabbagæji
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2006 | 00:50
Vorið er komið
Í dag fékk ég fyrst þá tilfinningu að vorið væri í alvöru komið. Þetta var einn af þessum ekta vordögum, bjart, hlýtt og stíf sunnanátt. Núna er klukkan hálftólf um kvöld og það er enn 11 stiga hiti. Það grænkar allt mjög hratt þótt snjórinn sé enn mikill í fjöllunum. Ég fæ svo rosalega mikla þörf til að vera úti á þessum tíma. Ég sakna alltaf sauðburðar, lóunnar og öllu sem vorinu fylgir. Mér finnst annar af stóru göllunum við að búa í þéttbýli vera sá að maður missir þessi beinu tengsl við náttúruna. Hinn gallinn er mengunin, þeas loft-, hljóð- og ekki síst ljósmengun. Ég er ekki nógu duglegur við að fara út úr bænum til að upplifa vorið. Ég þyrfti eiginlega að komast í sveit á vorin. Hjálpa nokkrum kindum í burði og marka nokkur lömb á nóttunni. Sveitarómantíkin er nefnilega alveg einstök og það er ekkert sem jafnast á við hana.
Á þessum tíma árs verð ég óþreyjufullur og langar á fjöll og á veiðar. Ég fór í fyrradag og pantaði mér tvær nýjar byssur. Nú á ég bráðum heilt vopnabúr! Gömlu ítölsku tvíhleypuna, eina sjálfvirka haglabyssu og svo riffil. Eða eiginlega bara riffling (22 cal) Ég er að verða vitlaus af spennu, því hann Daníel lögga er búinn að vera veikur í nokkra daga og því fæ ég ekki innkaupaleyfið afgreitt. Svo er að koma helgi og á mánudag er frídagur og ég fæ því ekki leyfið fyrr en í fyrsta lagi á þriðjudag. Ég er eins og barn á jólum. Mér leið eins þegar ég pantaði flugustöngina mína. Ég ætla á næstu dögum að setja hana saman og fara að æfa mig fyrir sumarið.
Við pabbi stefnum á að fara á fjöll í ágúst. Ég hlakka mikið til, því ég hef ekki komist almennilega á fjöll með honum í 3 ár. Mér finnst alveg meiriháttar að fara með pabba á fjöll á gamla Patroljeppanum hans. Við pabbi erum nefnilega svolítið líkir, hægir og fámálir og okkur finnst gaman að vera út í náttúrunni. Margar af mínum bestu útiverum hafa verið með pabba. Þar má helst nefna gönguna á Herðubreið og ferð okkar um svæðið sem afmarkast af Öskju í vestri, Kárahnjúka (Óspillta) í austri og Mývatn í norðri.
Við Erna ætlum að vera dugleg við að ganga í sumar og er stefnan m.a. sett á Heljardalsheiði. Ég setti stefnuna á Glerárdalshringinn í júlí (24 tindar) en ég sé að dagskráin mín og úthaldið leyfir það ekki að þessu sinni. Vonandi kemst ég samt eitthvað í fjallgöngu með Pétri vini mínum og Mása mági mínum. Það er svipaða sögu að segja með marga vini mína, að ég vil helst geta komist á fjöll með þeim. Ég vil geta farið með Ernu í fjallaferð, pabba á hálendið, Ágúst í rjúpu í Dalina og í veiði á heiðar, Hjörleif á Skagaheiðina í veiði, Mása í allskyns veiðar og aðra útiveru og núna um daginn rakst ég á minn gamla góða vin Guðna í Nettó og við ræddum þann möguleika að fara eitthvað upp á við saman.
Kammerkórinn minn yndislegi, Hymnodía, ætlar að hittast í Mývatnssveitinni í maí ásamt mökum. Það verður rosalega gaman og ég hlakka mikið til. Í fyrsta lagi er frábært að umgangast þetta skemmtilega fólk. Við erum búin að eyða mörgum stundum saman á síðustu mánuðum og núna langar okkur til að launa okkar nánustu þolinmæðina með því að fara með þá um helgi til Ernu og Péturs í Reynihlíð. Við ætlum að gista þar í tvær nætur og njóta þess að vera á besta stað í heimi. Hvar er betra að vera á vori en í Mývó? Hvergi, held ég fram. Erna Þórarins er kórfélagi og hún og Pétur maður hennar reka Hótel Reynihlíð. Við hlökkum mikið til söngs, matar, baðs og samveru í Mývetnskri náttúru. Síðan verður maður jú að fygljast með Júróvísjón!
Í kvöld var besta Stúlknakórsæfing ársins. Æfingin gekk rosalega vel og stelpurnar sungu svo vel að ég fékk langvarandi og króníska gæsahúð. Í lok æfingar fórum við upp í kirkju og stelpurnar improviseruðu yfir gamalt finnskt þjóðlag. Það var svona upplifun sem maður fær afar sjaldan. Þær sungu svo yndislega hreint og fallega. VÁÁ!
Á morgun ætlum við Munkarnir að skella okkur í hvíldar- og menningarferð í höfuðborgina. Ég er vanur að fá heimþrá um leið og ég er kominn á Moldhaugahálsinn eða þegar ég kominn í flugstöðvarbygginguna á Akureyrarflugvelli, en það en nú sennilega aðallega vegna þess að ég er svo oft að flækjast einn. Yfirleitt líður mér ekkert sérlega vel í ys og þys borgarinnar, en það er sennilega vegna þess að ég er svo sveitó! Ég er landsbyggðarrotta og er stoltur af því. En samt fer svona landsbyggðar/þéttbýlisrígur rosalega í taugarnar á mér. Ég er á þeirri skoðun að fólk sé ekkert betra á einum stað en á öðrum. Maður getur vissulega gert grín að ákveðnum stöðum og viðhorfum íbúa þar, en málið er að það er alltaf hægt að gera grín af þeim stað sem maður er staddur á og býr á. Maður þar bara smá húmor og sjálfíroníu. Vissulega eru reygvígínar bissí júnó avað verra (með amerrískum framburði skilluru) kúl mar og helst að vera allir eins sko og vesla í sudján, allt leim sem er staðsett fyrir udan mosó og smáralind, o sbrengja barrí kellingar júnó, AKureyringar eru virkilega loKaðir og allt ömurlegt fyrir sunnan, finnst aKuryeri vera miðdePill heimsins, þeir éTa á BauTanum og drekka kók úr BauK með punnnKKTTerað á bílnum. (allt þetta sagt á sjö mínútum) og Húarar (Sér þjóðflokkur) (sorrý Húarar sem ég þekki og tengist) munu aldrei kunna að gefa stefnuljós, stoppa við gangbraut né kunna að leggja bíl, EN!!!!! Það er eitt sem ekki er einu sinni hægt að þrasa um. Veðrið er betra hér á Akureyri en fyrir sunnan Ég er mikið á ferðinni og reyni að líta mjög hlutlaus á málið. Veðrið er best hér á Brekkunni á Akureyri. Oft þega veðrið er yndilegt er skítaveður fyrir austan, stórhríð á Dalvík ófært á Ólafsfjörð, Þæfingur í Hörgárdalnum, rok í Þorpinu og á meðan ég skrifaði þessa setningu var rok og riging, rok og sól, rok og slydda og svo rok og rigning aftur á stófkeflavíkursvæðinu. Ég held ég hafi lent í flugvél u.þ.b. 50 sinnum sl. 6 ár í Keflavík og ég hef einu sinni lent þar í góðu veðri. Og að þessu sinni er ég virkilega ekki að ýkja. Veðrið er meira að segja verra þar en í Reykjavík, og jafnvel verra en á Akranesi!!! Ég fullyrði að núna lít ég algerlega hlutlaust á málin. Ég lenti í smá þrætu við veðurfræðing í fyrra. Hún sagði til að rökstyðja mál sitt (var að reyna að halda því fram að í raun væri þetta allt saman misskilningur að veðrið væri betra hér á Akureyri) að vissulega væru sólarstundir fleiri hér á Akureyri en í Reykjavík, Jú það blési alls ekki eins mikið hér og vissulega væri úrkoman mikið minni, EN, meðalhitinn væri ekkert meiri. Þarna jarðaði ég hana. Það er nefnilega staðreynd að meðalhitinn er jú mældur allan sólarhringinn og þegar heiðskýrt er á sumrin þá er kaldara á nóttunni. En það er miklu kaldara á veturna sagði hún, jú það er rétt, þar sem það er svo oft heiðskírt, logn og frost á meðan það er rok og slydda á strórkeflavíkursvæðinu!!!! Eins og ég hef svo oft tekið fram þá er ég bara að skrifa þetta algerlega hlutlaust og lít afar raunsætt á hlutina
Best að hætta þessu áður en ég móðga alla sem ég þekki, þvottavélin bíður mín full af hreinum en blautum þvotti
góða nótt,
Eyþór
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.4.2006 | 12:49
Sumarskap
Eðal veður hér á Eyrinni í dag, skellti mér út að skokka kl 6 og var þá Eyþór vaknaður búinn að fara í sturtu og var að fara að æfa sig, duglegur strákur Viddi mágur kom svo hérna rúmlega 7 var að koma af sjónum og fékk sér hollan og góðan morgunmat með okkur mæðgum, nýbakað brauð og hafragraut og kom svo Elín og sótti hann og afhenti mér í leiðinni lykla að Gyðufellinu
Er farin að hlakka til að skipta aðeins um umhverfi og komast suður á bóginn þrátt fyrir að hérna eigi að vera sól og sumar en rigning í borginni, leita skjóls í búðunum haha. Var að vinna og er að fara að vinna aftur í kvöld og eins á morgun og svo komin í fjögurra daga frí og það verður snillllldddddddd.
Settum Passann á sumardekk í gær og þvílíkur munur að keyra dýrið miklu betra, rann líka í gegnum skoðun þessi ljúflingur óvenjulegt að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því því þegar hondan var og hét var það alltaf lottóvinningur ef hún komst í gegn
Þarf að fara að hendast með Brynju fljótlega í passamyndatöku og láta endurnýja passann hennar fyrir Danmerkurferð með Þórsurum eru að fara 8 júlí að taka þátt í einhverju móti í landi bauna og kemur aftur heim þann 15 júlí. Verður ábyggilega algjör snilld hjá þeim, fara um 40 stelpur þannig að það verður fjör hjá þjálfurum og fararstjórum.
Ætla ekki að hafa þetta meira í bili er að fara í litun og plokkun reyna að flikka eitthvað upp á sig alltaf gaman að því.
Heilsist Ernan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.4.2006 | 20:15
Fnykur
Þegar ég vaknaði í morgun fann ég að fnykur mikill var í svefnherberginu okkar. Ég var nú frekar utan við mig í morgunsárið, sennilega vegna þess að ég kíkti á Lúlla vin minn í gærkvöldi og fékk mér nokkra bjóra hjá honum, ég gerði þess vegna ráð fyrir að fnykur þessi ætti uppruna sinn að rekja til mín. Það kemur nefnilega fyrir að ólykt fylgi bjórdrykkju, sérstaklega ef Guinness hefur verið þjóraður. Þess vegna var ég hissa þegar ég dragúldinn labbaði inn á baðherbergið og komst að því að fnykur þessi var jafnvel verri þar. Ekki gat verið að vindgangur undirritaðs hefði verið svo kraftmikill að hann bærist á milli herbergja, í gegn um lokaðar dyr? Síðan kom í ljós að lykt þessi fannst um alla íbúðina, en mest þó þar sem gluggar voru opnir. Heilasellurnar mínar voru ekki í túrbógírnum í dag og ég var að átta mig á því núna síðdegis að brennisteinslykt þessi er auðvitað tilkomin vegna Skaftárhlaups. Lyktin hefur sem sagt borist með sunnanáttinni hingað, en ekki komið úr mínum rassi.
Brynja var svo kraftmikil í morgun að hún náði að draga okkur með út að hlaupa. Úthaldið á stelpunni er endalaust en ekki er hægt að segja það sama um okkur gamla fólkið. Ég var reyndar nokkuð ánægður með mig, en fór nú samt heim eftir c.a. 2 km vegna hælsæra. Brynja náði að draga mömmu sína upp Dalsbrautina á móti vindi og þær fór því tæpa 4 km. Núna ætla ég að taka mig á. Strengi þess heit að hlaupa a.m.k. helmingi oftar en ég hef gert undanfarið. Ég þarf s.s. að hlaupa tvisvar fram að jólum til að ná því takmarki.
Helga systir var fyrir norðan um helgina og hún kom í heimsókn til okkar í dag. Það var gott að sjá hana, maður er orðinn svo vanur að hitta hana nánast daglega áður en hún fór suður, þannig að ég var farinn að sakna hennar pínulítið.
Erna og Brynja fóru í pönnsukaffi til Hildar og Guðmundar en ég æfði mig á meðan. Er í fínu formi í æfingunum þessa dagana. Það er svo gaman að æfa þegar vel gengur. Ég er reyndar að æfa mjög stór og erfið verk, en það er bara enn skemmtilegra. Ég er með fullt af tónleikum á næstu mánuðum og eins gott að fara að koma sér upp efni. Ég er nefnilega að spila á mjög ólík hljóðfæri og get lítið spilað sömu verkin á mismunandi hljóðfæri. Ég er með tónleika á Sumartónleikaröðinni í Akureyrarkirkju í júlí og 4 dögum síðar er ég að spila á barokkorgelið í Hietaniemi á landamærum Svíþjóðar og Finnlands. Það er hluti af orgelhátíð sem haldin er á þeim slóðum. Ég er svo með tvenna tónleika í Hallgrímskirkju í ágúst, en þar spila ég ekkert verk tvisvar. Ég spila svo í Piteå um miðjan september. Ég er reyndar að velta fyrir mér að reyna að fá tónleikana flutta til Gammelstad sem er stutt frá Piteå. Þar er frábært orgel sem ég hef aldrei spilað á á tónleikum. Ég er svo að hugsa um að sækja um tónleika í Reykholti í sumar, og fá í stað þess afnot af íbúð sem þar er. Þá getum við farið öll þangað og slappað af í nokkra daga. Síðan á ég inni nokkur tónleikaboð hér og þar um landið sem ég ætla að fara að huga að. Annars vil ég geta eytt tíma heima hjá mér í sumar, og svo ætla ég að reyna að komast eitthvað í veiði og líka á fjöll með pabba. Það mætti alveg bæta nokkrum vikum við sumarið mín vegna
Blómin í garðinum eru farin að taka við sér, graslaukurinn löngu kominn upp og rabarbarinn farinn að kíkja upp úr moldinni. Ég er svo bjartsýnn að halda að ég geti farið að taka bílinn af vetrardekkjunum. Ætla að velta því fyrir mér fram að helgi. Ég nenni ekki að keyra suður um næstu helgi á negldu ef það er autt alla leiðina.
meira síðar,
Eyþór
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.4.2006 | 17:20
Snjókorn falla...tralallal
Skrýtið í gær var þetta yndislega veður sól og sæla í dag er éljagangur hmmm kannski ekkert svo skrýtið samt miðað við að við búum á gamla góða Fróni Annars byrjaði dagurinn reyndar á sól vaknaði við sólskin inn um gluggann, dreif kallinn með mér í spássara um 9 leytið og komum við við í Bakaríinu við Brúna og keyptum morgunbakkelsi
Vöktum Brynju með nýbökuðu ilmandi brauði ekki slakt það. Eyþór er búinn að vera gríðarlega duglegur að æfa sig er í annarri æfingatörninni í dag og ætlar að taka annað eins á morgun harkan sex í verðandi eiginmanni mínum.... ég verð bráðum frú Erna Jónsson segir Brynja
Gaman að því og hlakka mikið til þess....Brynja fór í leikhús með systir sinni og ömmu Rögnu á Kardimommubæinn og var varla komin þaðan þegar hún var rokin í bíó og á Subway með vinunum...brjálað alltaf að gera.
Ég horfði á Arsenal-Tottenham og hafði gaman af fór 1-1 og þar sem ég vissi nú að mágkona mín og börnin hennar voru á vellinum með Arsenal klúbbnum hafði ég enn meira gaman af því að Arsenal skyldi nú ekki sigra svona er maður rotinn haha Vorum hjúin að planera hvernig brúðkaupið ætti að vera þurfum nú kannski að fara að gera eitthvað í því en nennum því engan veginn, gerum allt á síðustu stundu eins og við reyndar gerum nú dálítið oft frekar létt á því.
Erum að fara suður um næstu helgi og ætlum þvílíkt að vera löt, við Brynja stefnum samt ákveðnar í Intersport og ætlum að eyða nokkrum peningum þar elska þá búð Eyþór veit ekkert um þær áætlanir enn allavega ekki fyrr en hann les það þá hér múhahha. Elín stóra systir lánaði okkur íbúðina þeirra í Gyðufellinu þannig að við verðum með risaíbúð út af fyrir okkur algjör snilld.
Ótrulegt hvað manni tekst alltaf að ryðja einhverju út úr sér þrátt fyrir að hafa "ekkert" að segja.
Farin Erna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.4.2006 | 15:38
Sól sól skín á mig
Þvílík blíða núna, sólin glennir sig bara eins og henni sé borgað fyrir það Lítið að frétta eins og alltaf, mæðgur Sól og Hilla voru hér í heimsókn og Sólin var ekki alveg sátt við Móðu sína finnst hún vera frekja held ég....svolítið líkar frænkur
Eyþór er að vinna til 4 en síðan held ég að hann eigi bara helgarfrí ótrúlegt að hann eigi frí tvær helgar í röð er í fríi næstu helgi líka. Kominn tími til. Ég var að vinna til 12 og er s.s. komin í helgarfrí, er að búa mig undir að þrífa búin að vera að því síðan kl. 13 og lítið gert enn, vildi að maður hefði róbóta í þessi verk hræðilega leiðinlegt, er kannski ekki að flokkast undir það að vera hin fullkomna húsmóðir finnst þeim þetta ekki svo gaman?
Ætlaði að fara upp í Kjarnaskóg að skokka áðan en fannst fullhvasst ein léleg afsökun enn fyrir að nenna ekki hlutunum en ætla nú samt að fara á eftir..maður verður að hreyfa sig eitthvað verður svo gífurlega sprækur. Er annars alveg að mæla með því að eiga boxpúða maður fær þvílíkustu útrásina á því að lemja hann, enda núna er Eyþór næstum alveg hættur að kippast til ef ég nálgast hann og Brynja segir að ég sé skapbetri...borgaði sig alveg að fjárfesta í honum, svo verður hlaupabrettið næst
Farin að skutla stelpunni á fótboltaæfingu...Have a nice day Ernan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.4.2006 | 13:11
Gleðilegt sumar
Gleðilegt sumar og farsælt komandi ár!
Við Erna vorum að koma inn úr gönguferð í frábæru veðri. Um að gera að njóta þess á meðan hægt er. Ætli fjandans norðanáttin komi ekki aftur á morgun. Við tókum því rólega í morgun, vöknuðum reyndar snemma, þ.e. við hjúin, en Brynja svaf fram eftir morgni. Við spiluðum og slöppuðum af. Hildur og Ranghildur Sól komu svo í morgunkaffið. Erna fer á kvöldvakt í kvöld og ég er með kóræfingu á eftir og síðan syngur Hymnodía við afhendingu menningastyrkja Akureyrarbæjar. Við verðum reyndar fáliðuð í dag, ætli ég verði ekki að syngja með og verð samt einn í minni rödd. Þar á eftir er æfing hjá Stúlknakórnum, engin miskunn þar. Ég fer svo á stuttan fund eftir það. Brynja er farin í fótbolta, viti menn! Við erum farin að hlakka mikið til að skreppa í frí eftir rúma viku. Við erum búin að redda okkur íbúð í Reykjavík og ætlum bara að slappa af þar.
Eigið góðan dag,
Eyþór
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2006 | 15:34
Þriðji í bloggi
Hjelló..enn er ég mætt ótrúlega dugleg án þess þó að hafa nokkuð að skrifa þannig séð en samt getur maður alltaf ruglað eitthvað:) Er búin að vera að velta fyrir mér að fara í meira nám og var þá annaðhvort að hugsa um framhaldsnámið í sjúkraliðanum eða hjúkrun í háskólanum. Var eiginlega ákveðin í hjúkrun en svo hef ég mig ekki í slaginn í gegnum klásusinn hef held ég ekki taugar í það, þannig að ég fór að velta fyrir mér framhaldsnámi í sjúkraliðanum en nei þá líklega verður það ekki kennt út á land aftur allavega ekki strax.....þannig að ég fer bara í hringi, annars var Hildur sys að segja mér að það yrði kannski ekki klásus í hjúkrun hér þannig að þetta er bara allt eitt stórt spurningarmerki hjá mér þessa dagana, en kemur í ljós vonandi:) Fer að styttast í að ég þurfi að fara að finna mér eitthvað til að vera í á brúðkaupsdaginn gengur víst ekki að vera á brókinni en hefði nú kannski ekki á móti því þar sem kjólar og ég eigum enga samleið en ég er nú heldur ekkert til að hrópa húrra fyrir á brókinni þannig að kjóllinn verður fyrir valinu
Veit hvernig kjól mig langar í en gallinn er sá að ég efast um að hann finnist einhversstaðar, kemur í ljós eins og svo margt annað. Annars á þetta ekki að verða neitt ofurbrúðkaup bara látlaust og lítið....garðveisla og grill og svona allir í lopapeysum og bara útilegustemmari.....
Er að fara að vinna á eftir og nenni því engan veginn, var að vinna í morgun líka að vísu bara til 12 og er svo að vinna frá 17-22...skemmtileg vinna samt held þetta sé skemmtilegasta vinna sem ég hef unnið bara og hlakka alltaf til að fara í hana, frábærir skjólstæðingar og yndislegir vinnufélagar Jæja ætla að láta gott heita og fara að skutla Eyþóri í klippingu orðinn svo loðinn kallinn að það sést varla í hann...hafið það sem allra best í dag....Erna
P.s Helga Björg ég er svo dugleg tralalalal
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.4.2006 | 14:07
Pólítískur?
Ég hef nú aldrei verið sérstaklega pólítískur, hef ekki einu sinni alltaf kosið í Alþingis- eða sveitastjórnarkosningum síðustu árin. Hef stundum ekki mátt vera svoleiðis vitleysu. En maður blandast oft inn i pólítískar umræður hér og þar og ég veit það eitt að ég þyki vera vinstrisinnaður í flestum skoðunum. Ætli það sé ekki raunin um flestar listaspírur.
Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson flutti eina af sínum snilldarræðum í messu í Akureyrarkirkju í gærmorgun. Óskar er mjög góður ræðumaður og er óhræddur að tala um viðkvæm málefni og er oft gagnrýninn í orðum sínum. M.a. studdi hann með eftirminnilegum hætti baráttumál samkynhneigðra stuttu eftir að hann hóf störf hér við kirkjuna. Hann kom inn á náttúruvernd og friðarhorfur í ræðu sinni í gær. Ef ég einfalda málið verulega, þá talaði hann um að friðarhorfur í heiminum væru eiginlega ógn við atvinnulífið á Suðurnesjum, þ.e. herinn fer, og náttúrvernd ógnar uppbyggingu á iðnaðarstarfsemi og virkjunarhugleiðingum. Náttúruvernd og friður eru s.s. frekar neikvæðir faktorar í augum margra. Þvílík hræsni! Við erum auðvitað að vera búin að glata öllu séríslensku í menningu okkar og þjóðfélagi og við hömumst jafnvel meir við að herma eftir og taka upp siði frá USA og Evrópu, við erum meira að segja farin að líta niður á hin Norðurlöndin. Séríslensk náttúra er á undanhaldi og þar sem við erum farin að líta á okkur sem stórveldi og hömumst við að vera "vel upplýst" þá eru meira að segja séríslenskir karakterar að hverfa. Og þar sem við viljum jú ekki lengur halda neinu sem minnir á Ísland, þá heita öll helstu fyrirtækin Group nöfn eins og Íslandsbanki eru lögð niður með hraði. Búnaðarbankinn skipti um nafn og sáðmaðurinn rifinn niður af bönkunum. Ég er reyndar með tillögu: Samasemmerki hefur jú lengi verið á milli Framsóknarflokksins og gamla Búnaðarbankans. Í ljósi skiljanlegs hruns þess flokks ætti hann kannski að upp nafnið FF Group og fá lánaðann gamla sáðmanninn úr merki Búnaðarbankans og í stað þess að láta hann strá fræjum getur sáðmaðurinn verið með dínamíttúpur í höndum og dreift í kring um sig. Já eða önnur stíflugerðarefni. Við þetta myndu kannski frambjóðendur flokksins þora að nota nafn flokksins í kosningaráróðri.
Jæja ég ætla að nýta þennan frídag minn í annað en að röfla um pólítík.
Eyþór
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)