Döhhhh

Máttugur ætlaði að skoða hnyttna og skemmtilega bloggið sem ég skrifaði í gær en hvað það hefur ekki vistast jahérna margir sem hafa misst af góðu og safaríku bloggi þar DAMN.

Blogga bara núna um eitthvað og ekkert. Brósi og Eyþór eru núna í gæsum, að nenna að leggja það á sig að vakna kl 3 að nóttu taka sig til og vera sprækur takið eftir, ef Eyþór þarf að mæta í messu og fer að sofa á skikkanlegum tima og þarf að vakna kl 7 þá er það OFSALEGA erfitt. En ef menn eru að fara á gæs og sofna seint þá er samt ekkert mál að SPRETTA á fætur og fara af stað jafnvel sönglandi með gleði í hjarta.....þeir eru eins og leyniskyttur...svei mér þáLoL En þeir eru s.s með sviðakjammana sem Eyþór fór að sjóða þegar var að nálgast miðnætti einhversstaðar rétt hjá Grenivík já svo koma þeir heim og engin gæs.........en sviðakjammarnir eru búnir....tja maður hugsar sig tvisvar um þegar maður spáir í hvað þeir séu að gera á gæs.....*hóst* Sofa út í móa (finnst það báðum snilld), vakna svo og næra sig eins og villimenn rífa í sig andlit koma svo heim til eiginkvennanna og segja bara enga gæs hafa verið....allt yfirskin.....tja ég skal nú segja ykkur það.

Þeir fóru líka þegar Ágúst var hérna á gæs og Mási og fengu enga gæs en voru akkúrat í kaffi þegar gæsirnar komu haha alveg í massavís...haha þetta er svo fyndið......eins og maður trúi því þá einmitt hafa þeir verið að tala saman svona kallamál og borða...út í náttúrunni karlmennin...

Fínt veður núna næstum 14 stiga hiti og sól. Er að dunda mér við að skrifa reikninga og er elsti reikningurinn síðan í ágúst í fyrra, málið við erum búnin að reyna að rukka sjálf x 3 og bankinn x 2 og núna er þetta s.s. síðasti séns fyrir fólkið að borga áður en Intrum fær málið. Skil ekki hvernig fólk getur gift sig en getur svo ekki borgað reikning upp á heilar 15.000 kr. Svona er lífið skrýtið.

Katla sefur úti í blíðunni og allt bara eins og það á að vera. Er farin að kvíða svo fyrir því að klára fæðingarorlofið er núna fyrst að byrja að njóta þess því Katla búin að vera lasin í raun þangað til núna. En svo veit ég bara ekki hvort ég fæ meiri vinnu á Hlíð, Eyþór ætlar að vera í fæðingarorlofi í jan og feb og ég vil gjarnan vera í 80% vinnu þann tíma en minnka svo eftir það og vera helst á næturvöktum eða bara ekki vinna neittLoL Ætla nefnilega alls ekki að setja Kötlu á leikskóla fyrr en hún er 2 ára. Hefur ekkert að gera þangað fyrr. Vildi svo gjarnan að einhvern eða eitthvað fyrirtæki vantaði einhvern sauð út á landi til að vinna í ritvinnslu fyrir sig,ég er nefnilega mjög fljót að pikka og er mjög góð í íslensku að eigin mati allavega og ég hef unnið sem læknaritari og hef því vélritað eftir diktafóni en þetta er ekki enn komið í tísku á Íslandi....vildi að það væri því ég er svo mikið heima og í tölvunni einmitt að það væri mjög gaman að geta nýtt það eitthvað en líklega er það nú ekki.

Jæja ætla að fá mér kaffi og svei mér ef ég læt ekki eins og einn súkkulaðibita fylgja með Devil

Sjúlli kveður súkkulaðisæturW00t

 


Nýtt albúm

Henti inn nokkrum fermingarmyndum af gellunum endilega tékkið á þessu:::)

 

Sjúlli kveður á 100 


Bloggedí blogg....

Mikið skelfilega ósköp varð ég glöð áðan þegar ég sá að einhver hafði skrifað í athugasemdir.....það les þá einhver ruglið í mér skal segja ykkur það og Lilja mín ég skal auðvitað blogga engin spurning.....oh how happy I am og klár í úttlenskunni...skal nú segja það.

_MG_1025 Já fengum myndirnar í gær frá Myndrún mikið af flottum myndum eins og þessi af okkur mæðgum já skal segja ykkur það.

Hér haugrignir í augnablikinu, stakk Kötlu út í rollsinum og þegar ég leit svo út áðan þá var hún við það að fljóta út úr vagninum þrátt fyrir að regntjaldið væri yfir þannig að mamman kippti rolls bara innfyrir dyrnar og þar sefur hún og sefur ekki rífst aðallega við sjálfan sig núnaLoL í svefnrofunum.

Ágúst vinur Eyþórs kom í gær og ætlar að vera hér um helgina, gaman að því, setti hann í dýflissuna hennar Rakelar s.s í kjallarann:)  

Skólinn fer að byrja og ég hlakka all verulega til. Verð alltaf jafn hissa þegar ég segi þetta því í denn þá var maður með rennara yfir því að þurfa að mæta í skólann, þannig að ég sleppti því bara að mæta og var því tekin á teppið hægri vinstri. Já maður var ekki alveg mest heillandi nemandinn hérna í denn.

Var með skólastjóra í Lundarskóla sem mér samdi alls ekkert sérstaklega vel við og gerði ég reyndar í því að láta hann skammast eitthvað í mér. Átti til að gera ýmislegt miður fallegt og segja bæði við hann og konuna hans og sagði svo þessi skólastjóri við mig á skólaslitum í 10 bekk að hann væri nú alveg viss um að það yrði ekkert úr mér. Þessi sami maður er aðstoðarskólastjóri í Glerárskóla skólanum hennar Brynju hahaha mér finnst það brill en hlakka reyndar ekki til að hitta hann ef til þess kemur. Hann sér nú eflaust að ég er móðirin og verður ábyggilega hissa þegar hann sér einkunnir Brynju og rifjar svo upp mínar tja maður ætti alltaf að halda sig á mottunni.............en mér finnst þetta samt fyndið....bwhhaha

Bara svona smá útúrdúr. Eyþór er að fara að spila í jarðarför í Skagafirði með Óskari Péturssyni gaman að því, skilst að það sé mjög GAMAN að jarðsyngja í skagafirði hahah já höfum bara húmor fyrir því ábyggilega gaman ef Óskar er annars vegar hann er SVVVVO fyndinn.

Svo er hann að fara að spila út í Grímsey um næstu helgi. Grímseyingar deyja víst líka haha og það sem meira er að það verða tvær flugur í einu höggi því svo heppilega vildi til að það dóu tveir með stuttu millibili og verða jarðsungnir sama dag. Skal segja ykkur það, ljótt að gera grín en samt skemmtileg tilviljun.

Er að fara í grjónsa til Hills og co á eftir þegar Kötlulingur vaknar langt síðan ég hef fengið mjólkurgraut verð samt bara að borða lítið þar sem ég er enn að passa mig á mjólkinni, drekk bara þeim mun meira pepsi max :)

Dagurinn byrjaði illa, var að fara að gefa Kötlu að borða ætlaði að fara að gefa henni lýsi og sótti flöskuna en ég sauðurinn hafði ekki sett tappann á almennilega í gær og skvettist úr helvítis flöskufjandanum út um allt og ég HATA lýsi og lyktina af því en það er samt sem áður mitt parfume í dag skal ég segja ykkur anga eins og tja lýsi svo einfalt. Bölvaði Eyþór strax fyrir að hafa ekki lokað flöskunni og hugsaði mér að skamma hann allsvakalega þegar hann vaknaði en mundi þá að sökin var mín þar sem ég gaf henni í gær...oh hefði verið gaman að skammast ég elska að skammastFrown

_MG_1021sh_MG_1063_MG_7542_MG_1131_MG_5374_MG_5376_MG_6682bt_6699Já varð að setja nokkrar inn af gellunum. Brynja fór í myndatöku í Myndrún en Rakel í Dagsljós:) Og ég vil sérstaklega benda á myndina af Brynju í svarthvítu að ég var á vindvélinni ójájá hef sjaldan hlegið eins mikið og þegar hann bað mig að stjórna vindvélinni:)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sjúlli kveður og úr honum allur vindur múhha 


Matur, rakettur........

Ætla að blogga hrattBlush 

Pabbi kom í gær með ber sem ég skellti í umbúðir og í kistuna, var búin að búa til sultu þannig að nú á ég helling af berjum í súpu.

Fórum í matarboðið hjá hinni heilögu þrenningu Eyþóri, Pétri og Óskari. Voru þeir búnir að fara og týna fjallgrös í brauðið og sveppina í sósuna og ég veit ekki hvað og hvað. Forrétturinn var grillaður humar með heimabökuðu brauði, og salati.  Aðalrétturinn var hreindýr með furuhnetusósu, salat, kartöflur, ananast og avókadó. Eftirréttur voru Brownies með valhnetum og þeyttur rjómi. Allt svona flott skreytt og borðið svona flott og þeir bara flottir:) Þetta var fínt, við Katla fórum reyndar heim um hálf níu en þá var eftirrétturinn eftir en þar sem Eyþór hafði séð um að baka hann var ég svo sem búin að laumast til að smakka þær. En frábært kvöld í frábærum félagsskap og með frábærum mat s.s. Niðurstaða FRÁBÆRT

Ekkert svo sem annað að segja. HAta flugelda. Einu sinni voru þeir alltaf bara á áramótum nú má enginn liggur við eiga afmæli án þess að flugeldar komi við sögu. Það er verið að sprengja um versló, á Akureyrarvöku, við opnum nýs banka, liggur við ef einhver merkilegur maður skítur þá eru flugeldar sprengdir. Afhverju þarf að ofgera öllum skemmtilegum hefðum. Vil sjá þetta á gamlárskvöld og þrettánda........

Farin var ekkert rosalega fljót að blogga

Sjúlli kveður með rakettu í rassgatinu ekki gott 


Eðalmatur og félagsskapur

Já skal segja ykkur það....það verður aldeilis veisla á morgun en Eyþór, Óskar og Pétur ætla að elda og bjóða eiginkonum sínum og börnum í mat. Þeir eru æði, mér skilst að þetta sé þriggja rétta og eru þeir búnir að vera að undirbúa þetta síðustu daga, bæði verið fundir og svo e-mail og sms gengið á milli og verð ég að segja að ég er spennt......Spurning hvort maður verði að mæta í gala dressi eða hvort gallabuxurnar og hettupeysan duga, þarf að kanna þetta nánar......SPENNT

Fór og keypti mér síma í gær ég veit ég er fíkill s.s. símafíkill en hann er flottur kostaði reyndar meira en ég ætlaði en hann er keyptur. Ég labbaði inn í búðina kl 5 mín í 6 og sagðist vilja kaupa sport síma og hún kom með Sony Ericson en ég ætlaði upphaflega að kaupa Nokia og alls ekki samlokusíma, hún sagði þennan síma mjög góðan og málið var dautt ég labbaði með kvikindið út. Walkman eitthvað er með skrefamæli, kaloríumæli, vegalengd, Mp3 og ég veit ekki hvað og hvað ég er þvílík djella og 30.000 kalli fátækari.....en ég varð að fá síma svo er ekki nóg með það að ég fékk síma og Brynja gamla minn því hennar skemmdist en hún öfundarmmig af nýja símanum þannig að hún er að biðja um styrk til að kaupa sér annan já svona er þetta...hún erfði þessa fíkn frá mér en þetta er alls ekki versta fíknin:)

Svona er þetta maður ræður sér ekki í eyðslunni. Eyþór er að spila með Hymnodiu í Sjallanum já eru barasta farin að troða upp þar haha á einhveru leikskólakennaraþingi.

Fórum og horfðum á Brynju og co snýta Breiðablik 2-0 bara gaman að því búnar s.s. að vinna 7 leiki í röð og geri aðrir betur, gætu endað í 3 sæti í riðlinum ef úrslit hjá öðrum liðum verða hagstæð.

Jæja ég er víst orðin ein í k kotinu fyrir utan Kötlu sem hrýtur inni í rúmi  þannig að sjónvarpið verður tekið í nefið núna...'

Sjúlli kveður....aleinn 

 


Mér leiðist....

Já verð bara að viðurkenna það opinberlega að mér leiðist, kemur reyndar mjög sjaldan fyrir að mér leiðist en svo er núna. Katla er farin að sofa í 1-11/2 tíma í einu og ég hreinlega bara veit ekki hvað ég á að gera við tímann á meðan. Langt síðan að ég átti stund svona langa fyrir mig. Auðvitað ætti ég að vera að þvo þvott og eitthvað svoleiðis gríðarlega mikilvægt og gáfulegt en nei bara hreint út sagt ég nenni því ekki enda er ástandið svo á heimilinu núna að maður þarf að mylja liggur við ætla ekkert nánar út í þaðTounge

Við Katla fórum til ömmu í hádeginu með smá bakkelsi úr Bakaríinu við brúnna og þar voru Hilla og Brynhildur. Vorum þar dágóða stund eða allavega nægilega langa til að ég gat étið á mig gat.......hahah og mér leið gríðarlega vel á eftir. Byrjaði nefnilega að úða í mig herbalife og hef held ég aldrei langað eins mikið í mat og étið eins mikið þannig að ég er ekki alveg að skilja það lið sem missir einhver kíló á þeessum kúr en ég ætla nú ekki að gefast upp og held í vonina að átbrjálæðið gangi nú yfir.

Sól og blíða ef maður gjóar glyrnunum út um gluggann ekki það að ég ætli neitt að kanna það nánar allavega ekkki strax getur meira en vel verið að maður hendist í Kjarnann þegar krílus vaknar. Þarf reyndar líka að fara að gera eitthvað í símamálum þar sem sími dótturinnar ákvað að deyja í gær og hún vill endilega fá minn síma svo ég NEYÐIST til að fá me´r nýjan en þeir sem þekkja mig vita að mér finnst það bara alls engin neyð onei .........en þetta á eftir að skoðast ögn betur þegar stóran dettur heim af fótboltaæfingu.

Hyggjum fara í mikla sláturgerð fljótlega við organistahjónin og prestshjónin verður gaman að því kannski verður farið í foodfight nei segi svona:) Eigum eftir að finna uppskriftir og annað slíkt en gerum það fljótlega ætlum að fá bæði hjá mömmu minni og mömmu Unu eða tengdamömmu og bera saman og sulla svo einhverju saman og éta með bestu lyst...AMEN 

Hvað skal segja en ekki þegja hef lítið við þennan viskubrunn að bæta sem ég hef þegar ritað þannig að líklega verða einhverjir sárir að fá ekki fleiri fróðleiksbrot að lesa úr mínu lífi en svona er nú lífið, bíður bara betri tíma ekki gaman að lesa allt lífið í einu.

Sjúlli kveður .......síblaðrandi 


Prestar að bresta nei ég segi svona

Jahérna ég segi nú ekki annað rak trýnið í mbl vefinn áðan og sá þá að samkvæmt einhverri könnun sem var gerð væri 59% karlpresta en tæplega 80% kvenpresta væru með því að Kirkjuþing veitti prestum þá heimild að gefa samkynhneigða saman. Bíddu hvað er að ske. Þorir enginn bara að koma fram og segja þetta þarf að gera þetta í felum eins og með svona könnun. Hvað með prestaþingið sem haldið var á Húsavík var þetta ekki skítfellt þar hvað skeði hvað skeði. Eru sumir prestar svona djö...(ljótt veit) tvöfaldir að þeir geta ekki komið hreint fram varðandi skoðanir sínar. Segja eitt en meina svo annað.....og þessum mönnum/konum á maður að treysta í guðs nafni. 

Skal segja ykkur það, get orðið svo fúl út í þessa prestastétt auðvitað ekki alla en þá sem geta ekki staðið við það sem þeir segja og eru eins og steinaldarmenn þegar að þessum málaflokki kemur. Sjálfsögð mannréttindi, samkynhneigðir eru fólk eins og við hvenær ætla þeir sem það ekki vita eða vilja ekki vita að fatta......

Vona bara að í kjölfar þessarar leynilegu skoðanakönnunar að þá verði þeim prestum sem það vilja leyft að gefa samkynhneigða í hjónaband. Viss um að guð verður gríðarlega sáttur við það......enda öðlingur eftir því sem ég hef heyrt......

Sjúlli kveður útvaxin á ýmsum stöðum en fékk samt hjónavígslu tja....... 


Pabbi ber?

cd00022

Ég verð að monta mig aðeins af pabba mínum.  Hann "skrapp" aðeins í berjatínslu.  Fór í xxxxxhlíðina í aðalbláber (staðsetning verður ekki gefin upp, hún er fjölskylduleyndarmál).  Á 5 tímum tíndi hann 75 lítra af berjum!  Hann er ótrúlegur.

Eyþór


Haustið.....

Vorum komnar snemma á fætur við mæðgur í morgun eða íkringum 7 vorum þá búnar að liggja lengi og telja á okkur tærnar ég er með 10LoLklárt mál taldi svo oftTounge Svo núna þegar litli krílus er sofnaður rallaði ég mér út í ruslatunnu og það er svo algjört haust í loftinu. Kalt en samt hlýtt, sól en samt þoka, fuglasöngur en samt þögn, erfitt að lýsa en yndislegt. Við Katla fórum upp í Kjarnaskóg í gær og það var snilld voru þar engir nema við tvær, tvær konur að skokka og nokkrar kanínur og fuglar bara frábært. Fór svo áðan með mömmu og Kötlu en þar var töluvert af fólki m.a. meistaraflokkur Þórs í spássitúr sýndist mér. Sáum líka kanínur og grenitré full af könglum, alveg logn og þvílík blíða bara.

Er að spá í að fara kannski eitthvað út á eftir í göngutúr kannski enda ég bara í Kjarna finnst nefnilega frekar leiðinlegt að spássera bara á malbikinu og með bílana allt í kring er allaveg ekki í stuði fyrir það núna.  Annars er kvefið á góðri leið með að yfirtaka í mér heilann er að festast í hausnum á mér þannig að ég neyðist líklega til að heimsækja einhvern doktor skal segja ykkur það ef það er ekki dóttirin þá er það ég. Hlýtur að fara að koma þvílík hraustleikatíð.

Hlakka svo til að geta farið að fara á gönguskíði í vetur, fínt að setja Kötluna í dúnpoka á snjóþotu og stika svo af stað hlýtur að vera í góðu lagi gat ekkert farið í vetur og þess vegna bíð ég spennt núna að fara að komast á flottu eiginlega nýju gönguskíðin mín. Var rosalega dugleg í gærkvöldi og byrjaði á legghlífum fyrir Brynju er búin að vera á leiðinni að gera þær lengi en aldrei nennt en núna er ég s.s. byrjuð en það er spurning hvenær ég verð búin með þær haha seint og um síðir líklega.

Best að fara að prjóna eða bara ekki gera neitt þangað til Katla vaknar......

Sjúlli kveður með hor í stað heilaW00t


Fréttafíkill

Mætti svo sem stundum titla mig vera fréttafíkil. Suma daga les ég öll blöð sem ég næ í og horfi á báða fréttatímana í sjónvarpinu og gríp þá jafnvel á plúsnum svona til að meðtaka nú pottþétt allt sem er að gerast í þjóðfélaginu. Í gær las ég snilldar frétt í fréttablaðinu þar sem sagði að lögreglan í Tallin í Eistlandi hefði tekið ökumann fastan og ástæðan var sú að hann var undir áhrifum áfengis en það sem var merkilegra var að hann var BLINDUR hélt ég myndi pissa á mig úr hlátri hefði verið í lagi þar sem ég sat á WC Sick haha...og maðurinn var með þrjá aðstoðarbílstjóra haha skal nú aldeilis segja ykkur það en svona getur þetta verið....

Rettritun.is er flottur vefur skal ég segja ykkur. Mamma benti mér á þennan vef fyrir nokkrum dögum og ég hef aðeins verið að skoða hann og ég skal segja ykkur að ég sem var alltaf  með 10 í stafsetningu í skóla ég bara gerði í buxurnar þarna. Er svona ferlega ekki góð í reglum um stóran og litlan staf. Ég verð greinilega að taka mig á . En án gríns þá er þetta mjög sniðugur vefur, en virkar reyndar ekki alveg enn sem komið er með makkanum en það kemur á víst eftir að fínisera þetta. Upp fyrir menntamálaráðherra og þeim sem gerðu síðuna þetta er flott.

Herra kvef og frú hálsbólga eru enn hér í heimsókn og hafa valdið töluverðum leiðindum og mjög miklum pappírsútlátum, fór auðvitað og keypti silkiklúta á trýnið því ekki vill ég nú fá sár en ég er komin á þriðja silkipappírsdunkinn og sé alls ekki fram á að það sé sá síðasti merkilegt þetta kvef. KAtla er líka með kvef og snýti ég okkur mæðgum hérna til skiptis já já. Annars er til horsuga á þessu heimili sem er notuð á litla stýrið og varð stóra stýrið auðvitað að prófa hana og skal segja ykkur að ég held ég þurfi ekki í hálskirtlaaðgerð þeir næstum fóru bara þvílíkur kraftur hahah. Er með þá áráttu að flest sem ég gef Kötlu eða geri við hana FLEST takið eftir þá prófa ég það á mér líka, varð meira að segja að smakka lyfið hennar og það er sko ekki gott......lýsið læt ég samt í friði, man síðan ég var 6 ára að Þórarinn heitinn Þórarinsson skólastjóri í Skúlagarði neyddi mig til að smakka lýsi og ég ældi því mjög hratt tilbaka og eyðilagði gríðarlega flott vesti sem hún mútta mín hafði nú prjónað í tilefni skóladagsins já það var ekkert grín. En ssvona er þetta ég hef ekki og mun ekki smakka lýsi framar.

Eyþór er að fara suður um helgina er að spila bæði einn og með kirkjukórnum sínum á menningarnótt og svo í útvarpsmessu og ég veit ekki hvað og hvað. Brynja er líka að fara suður að spila að vísu fótbolta lætur orgelið í friði ennþá. Þau koma svo bæði heim á sunnudag. Við KAtla verðum einar heima með hr og frú hor, já svona er þetta.

Læsti síðunni hennar Kötlu í gær að vísu bara albúminu en þið sem vitið e-mailið mitt þá er leyniorðið fyrri hlutinn af því. Mér er alveg sama hverjir skoða en ekki að síðan hennar lendi á einhverri barnaklámssíðu oj bara.

Sjúlli kveður drukknandi í hor 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband