Dammdamm

Smá pása frá lærdómnum og ég strax komin í bloggið já maður verður nú að láta netheima vita hvað maður er að bralla. Búin að læra slurk í kvöld en enn er mikið eftir ójá. En ætla ekki að ræða það núna einu sinni.

Mikið að gera í vinnunni í morgun, sumir dagar eru á hvolfi og þá gleymir maður að taka með sér út af stöðinni lykla, lyf og slíkt sem gerir það að verkum að maður er seinni að öllu. Meira að segja tók með mér lykla heima frá einum MS sjúklingnum mínum jahérna.

Mamman mín er búin að kaupa sér íbúð, fólkið tók barasta tilboðinu hennar. Ofsalega falleg íbúð og ég hreinlega öfunda hana af henni og sérstaklega eldhúsinnréttingunni my gad hún er svo flott. En þetta er frábært, ætlum að reyna að ganga frá þessu í vikunni s.s. að skrifa undir og svona sjáum til hvernig heilsan hjá konunni verður.

Eyþór renndi upp í Mývatnssveit með Hågan til að leyfa honum að dýfa sér í jarðböðin, og ég hef s.s. séð hann samanlagt í dag í 10 mínútur ca og hitti hann svo bara í fyrramálið smá stund, já svona er að vera í hjónabandi, eitt jákvætt maður getur ekki fengið leið á hinum aðilanum eða hvað.

Helvíti slæm í hálsinum í dag, vöðvabólgan alveg að fara með mig, Pétur doktor lét mig hafa Ibufen til að reyna að ná þessu úr mér en það virðist ekki ætla að ganga hratt fyrir sig, er komin með svima og læti en þetta fer fyrir rest, geri æfingarnar mínar og svona og þá kemur þetta allt saman

Tók eitt próf í dag úr verklega hlutanum sem við vorum í fyrir sunnan, tók það á mettíma og fékk 8,5 gerði tvær ferlega klaufavillur og eitt hreinlega bara vissi ég ekki en er alveg sátt við þessa niðurstöðu. Var að flýta mér því Katla búin að vera ergileg í dag og bæði Eyþór og Brynja upptekin þannig að ég greip tímann þegar hún sofnaði en hún svaf barasta ekkert mjög lengi haha en þetta gekk samt.

Vinna á morgun og svo læra og læra og læra, maður gerir lítið annað en það, enda íbúðin mín að morkna úr skít og ég ætla að leyfa henni það svona allavega framyfir prófið á föstudag, er mun jákvæðari fyrir hinu held það verði nú alls ekki eins erfitt.

Best að halda aðeins áfram og leggja sig svo

Sjúlli kveður Bless 


Allt það besta bara

Kominn tími á smá röfl frá mér ehakki. Maður má nú ekki alveg gleyma því að röfla á milli þess sem maður reynir að moka einhverri visku í kollinn á sér. Búin að læra nokkuð um helgina, ekki nóg samt því maður lærir víst aldrei nóg. Reyni að læra þegar litla krílið mitt lullar eða dundar sér sem hún er sem betur fer að verða nokkuð dugleg við.

Vil titla mig sem einstæða móðir, því heimilisfaðirinn hefur varla sést hér undanfarnar vikur og kemur ekki til með að sjást fyrr en í næstu viku já eða þarnæstu eða bara seinna. Eru að klára í dag að taka upp plötuna og þá tekur bara eitthvað annað við. Já svona er þetta *pirr*

Hef lítið gert um helgina annað en að éta, læra, éta meira og þvo þvott. Frekar einhæft líf eitthvað, kíkti í kaffi til pabba í gær en hann svaf sína fyrstu nótt í nótt. Er í rólegheitunum að koma sér fyrir og verður bara virkilega huggulegt þarna hjá honum, enda íbúðin alveg ofsalega falleg og skemmtileg. Býr á 5 hæð í lyftublokk og er með gríðarlega fínt útsýni, ætla að láta hann taka frá fyrir mig stúkusæti í sólstofunni á gamlárskvöldLoL

Hef verið nokkuð dugleg við að hjóla undanfarið og fór ég með Kötlu í hjólatúr á fimmtudaginn og vildi ekki betur til en svo að stýrið litla sofnaði bara fyrir aftan mig, greinilega gott að sitja í hjólastólnum, þannig að við fórum bara heim að skoða blómin og grasið í garðinum:)

Enginn friður núna, stubburinn litli er með kaffiboð þannig að það er eins gott að henda sér í platkaffi og gerviköku.

Sjúlli kveður gervisvangur..... 


Skeit upp á bak allaleið

Hversu ömurleg er ég. uuuuuu mjög, Hågan vinur Eyþór frá Svíþjóð er hérna, hann er samt Finni sko. Er að koma að taka upp fyrir Hymnodiu, alveg vænsti drengur svona við fyrstu kynni. Ég tjáði honum strax að ég væri frekar léleg í ensku bara svona til að vara hann við. Jæja svo fór Eyþór á kirkjukórsæfingu og ég sat hérna hjá honum á meðan hann borðaði. Spyr vinurinn afhverju við höfum skírt Kötlu þessu nafni, því þetta nafn er víst þekkt í einhverri sögu eftir Astrid Lindgren. Jú ég svissa mér í enska gírinn, reyndi að tala með hreim (gekk ekki) og tjáði honum á minni snilldar ensku að Katla væri nú eldfjall hér á Íslandi, we choose the name Katla because we have a fire mountain here in Iceland WHAT.....gat ég ekki dritað út úr mér Volcano bara NEI

Að ég skuli ekki bara þegja eins og mér einni er lagið eða þannig.......ég fæ enn aulahroll eftir bakinu, spurning um að ég fari nú að draugast í enskuskóla.  Fólk skilur kannski núna afhverju ég verð alltaf pínu hrædd þegar Eyþór tjáir mér að það séu að koma erlendir vinir í heimsókn, altalað verður í hans erlenda vinahóp sem er ekki lítill að kellingin hans sé hundleiðing og dónaleg jahérna, enskuskóli verður það næst.

Að öðru eins og sést þá er ég að læra, en ákvað að rita hérna aðeins og vera auðvitað snögg að því. Var frekar léttur dagur í vinnnunni í dag og fékk að fara með Hillu systir hjúkku að skoða sár og það voru mjög sérkennileg sár, blöðrur sem myndast bara endalaust og verða svo að sárum, koma ný á hverjum degi, er víst eitthvað mjög sérstakt við þetta. En ég hef s.s. endalausan áhuga á sárum og hvernig best sé að græða þau. Búin að fá loforð um það frá yfirmanni mínum að ég fái ásamt einhverri hjúkku að fara á námskeið í sáraumbúnaði.....jibbí vonandi ekki fyrr en ég er samt búin með skólann.

Hvað meira tja held bara ekkert, fór aðeins eftir vinnu á andarpollinn en andarkvikindin vildu ekki brauðið mitt, hmmm orðnar kannski pjattaðar bara, var nú aðeins farið að slá í það en ég meina það samt, endaði með því að ég fór í fílu og henti því í ruslið, þær fá ekki brauð frá mér á næstunni. Skrapp svo aðeins til Hillu sys og síðan bara heim til þess eins að brillera í enskunni.

The Sjeil say goodbye 


Djöfull er ég flottur..megaháttar báðu megin

Vá hvað ég er orðin eitthvað þreytt á þessum endalaus verkefnum eitthvað, alltaf nóg að gera á öllum vígstöðvum sýnist mér. Búin að læra í allt kvöld og í morgun náði ég að læra slurk en mikið verk enn óunnið.

Pabbi kom í dag með Moltutunnu handa mér þannig að nú getur maður farið að búa til sína eigin mold, já já maður er nú ekki vinstri grænn fyrir ekki neitt. Svo arfleiddi hann Brynju og Eyþór af harmonikkunni sinni og sá síðarnefndi gekk hér um gólf og trallaði á nikkuna, fer líklega að leggja orgelið á hilluna og spilar á gömludansaböllum í Lóni á næstunni tja hvað segiði um það.

Fórum í morgun við hjónin með örverpið út að hjóla rúmlega 8 urðum að prófa fína stólinn sem Hilla móa og co gáfu henni í jólagjöf og þetta var svo gaman, gott veður, og verulega glatt barn fannst þetta sko ekki leiðinlegt. Eyþór fór svo að vinna en við dunduðum hér heima fyrripartinn en fórum svo til ömmu Lilju og Hildar líka seinnipartinn. Snilldar veður búið að vera og ætlaði ég reyndar að vera gríðarlega dugleg að rölta með lilluna mína í bæinn en svo bara nennti ég því ekki. Leti já eiginlega

Núna er mín tónlist hrotur frá karlinum, enda þreyttur eftir mikla vinnu síðustu daga, var í allan dag að æfa með Hymnodiu en þau eru að fara að taka upp plötu í vikunni og verður vinur Eyþór hérna frá Finnlandi en ég held að hann sé að taka upp fyrir þau. Já verður maður ekki bara orðinn mellufær í finnsku tja ekki tjái ég mig mikið á enskunni þó svo að ég sé alveg mellufær í henni samt og skilji hana alveg. Verð geðveikt upptekin bara:)

Frikki snigill er glaður kominn í eigið húsnæði alltsvo eigið eigið húsnæði, því hann bröltir jú um með húsið á bakinu, en við settum mold og kál og ýmislegt góðgæti í box og núna bara tjillar hann og hefur það huggó, nennir nú samt ekki að vakna nema þriðja hvern dag en ég myndi nú líka gera það ef ég væri snigill.

Best að hætta að röfla þetta og fara að læra smá meira já eða sofa kannski bara þar sem það festist ekkert í hausnum á mér þegar ég er orðin svona þreytt. Hver vill vita hvað Kalsíumgangalokar eru já eða ANgiótensín II blokkar tja ég á að vita hvað þetta er en hef samt ekki hugmynd. Merki um að ég eigi bara að fara að sofa og njóta þess að hrjóta eins og eiginmaðurinn gerir svo snilldarvel í stofunni, svei mér ef hann hrýtur ekki einhverja sónötu já eða eitthvað fúga eða bara popplag í G.

Sjúlli kveður með fullt af aukaverkunum...... 


Snigillinn Friðrik

Já það er s.s. komið nýtt gæludýr á heimilið og er snigill sem hlaut það skemmtilega nafn Friðrik, án þess þó að gengið hafi verið úr skugga um að hann sé kkLoL Hann er s.s. franskur að uppruna og kom hingað á heimilið með vínberjaklasa sem keyptur var í ónefndum stórmarkaði hér á bæ.  Ég sem er ljóska eins og flestir vita, ætlaði að fara að henda pokanum undan vínberjunum þegar ég sé þennan líka flotta kuðung og var dágóða stund að velta fyrir mér hvernig kuðungur gat lent í vínberjapoka, því aldrei hafði ég séð svona ekta snigil með hart hús á bakinu:) En Brynja sem þó er ljóska líka, vissi nú strax hvað þetta var og var verulega hneyksluð á mömmunni að halda að þetta væri kuðungur. Þannig er það nú og núna býr hann í herbalife hristiglasi en á eftir að fá betra húsnæðiCrying Eyþór fór auðvitað að slefa um leið og hann vissi að þetta væri snigill og sagði "étum hann" eins og við færum að borða Ronaldo eða Snúð, halló þetta er einn af heimilisdýrunum núnaInLove

En að öðru, nei ég er ekki búin að vera dugleg að læra, en reyni þó, sofnaði í gærkvöldi þegar ég byrjaði að lesa, eitt kvöldið var One Tree Hill og ég bara varð að sjá það, er reyndar aldrei upplögð að læra á kvöldin en það er samt eini tíminn sem ég hef, æi nenni ekki að tala um lærdóm.

Fórum í labbitúr í bæinn ég, Brynja og Katla í góða veðrinu, 10 stiga hiti og þvílík stemning í miðbænum, allir að fá sér ís og svona, Kötlu fannst mjög gaman og röflaði heil ósköp allan tímann, liklega verið að segja okkur Brynju eitthvað merkilegt en við vorum á kafi í að slúðra sjálfar og vissum ekkert hvað hún var að rausa. Fórum á hótel KEA og sóttum atvinnuumsókn fyrir Brynju en hana langar alls ekki að vera í vinnuskólanum þannig að nú verður sótt um allt, ætlar að sækja um í Kristjáns niður í miðbæ fær vonandi eitthvað annað en unglingavinnuna.

Kíktum svo aðeins í Bónus og á mömmu seinnipartinn og fórum svo heim að dansa Bumm bumm dansinn say no more.

Eyþóri gengur vel með dæluna og vonandi verður svo bara áfram, er að vísu að myrða sig í vinnu en hver gerir það ekki á þessum síðustu og verstu tímum. 

Best að fara að kíkja á hvað hinir eru að gera 

Sjúlli kveður sætastur 


Klárlega að læra

Ég er að LÆRA jahá en varð að taka smá pásu þar sem hugurinn var kominn á flug og hættur að fylgja eftir lungnasjúkdómum og lyfjum jahér. Finnst eins og allir séu hættir að blogga, búin að fara á fullt af síðum í dag en hvergi neitt nýtt, hvað er þetta ekkert að frétta

Var að skoða íbúð í dag með mömmu, alveg prýðilega íbúð bara, kemur í ljós hvað verður um að gera að íhuga málin í rólegheitunum bara. Elín sys kom hérna kl 7.30 í morgun  með fullan bíl af kössum frá Húsavík sem fór í sameignina hja mér þar til mamma verður komin með íbúð. Ætlum að renna svo austur á laugardag, við öll hér og Hildur og fjölsk og reyna að klára það sem þarf að klára, pakka með pabba því sem eftir er og svona bera dót hingað og þangað:) Ætlaði reyndar að fara að horfa á Þrekmeistarann á laugardagsmorgun þar sem deildarstjórinn mín hún Dísa er að keppa í einstaklings en ég verð að gera það seinna bara, get ekki verið á mörgum stöðum.

Fór í klippingu í dag er ekki lengur bara sæt heldur rosalega sæt, maður verður nú að vera ánægður með sig eða hvað. Hef ekki hlegið lengi eins og ég gerði í klippingunni, er nefnilega með svo klikkaða hárgreiðslukonu haha alger snillingur.

Á ég ekki bara að halda áfram að læra eða hvað jú svei mér, er í fríi á morgun og föstudag þar sem Eyþór er að fara suður og vonandi get ég verið ógeðslega dugleg. Svava mín við rúllum þessu upp gæskanLoL

Sjúlli kveður agalegt rassgat 


Rosalegt

Ekkert sérstakt sem er rosalegt, gafst bara upp á að finna fyrisögn eins og svo oft áðurLoL Vorum að koma úr fermingarveislu, ofsalega góður matur og temmilega margir, þekkti samt ekki nema kannski svona 10 varla mikið meira en það. Hitti þar systur sem hétu Erna og Katla okkur fannst þetta ofsalega fyndið öllumBlush Bróðir tengdamömmu var s.s. að ferma og var veislan í Lundarskóla, fórum að vísu áður en kakan var borin fram þar sem Eyþór var að fara að spila með Óskari upp í Mývó og Katla er enn og aftur í tanntökuveseni jibbí. Komum við í Strax á leiðinni heim og fjáfestum í sætindum í stað tertunnar, má ekki sleppa því sæta ÓNEI.

Var svo að enda við að taka Brynju í næstum hálftíma fótsnyrtingu með lökkun og öllum pakkanum, agalega góð mamma sko. Hún er að fara að keppa á morgun við KA og ætlum við Katla að reyna að mæta og sjá allavega fyrri hálfleikinn, síðan ætlar Brynja að fara og selja inn á tónleikana hans Eyþórs en hann er með óskalagatónleika kl 17 á morgun og spilar t.d. Queen og fleira skemmtilegt. Hún ætlar svo að koma heim og passa Kötlu á meðan ég fer og hlusta á kallinn jájá.

Tengdó voru að fara ásamt Möggu mágsu og börnum. Helga ætlar að vera hérna fram á mánudag og meira að segja redda okkur og passa fyrir okkur þann dag. Eyþór er svo að fara á fimmtudag og föstudag að láta setja upp dæluna fyrir sunnan þannig að ég fékk bara frí í vinnunni. Annars auglýstum við á miðvikudag og það er ein kona sem við ætlum að tala betur við kannski eftir helgi. Veit ekki alveg hvað verður langt í að mamma verði hress, var útskrifuð í gær og verður tíma að vinna upp þrek, kemur allt í ljós bara.

Keypti mér nýjan síma á þriðjudag og fór svo með hann í dag og fékk nýjan þar sem hinn var gallaður, slökkti á sér í tíma og ótíma og ég ekki með þolinmæði fyrir svoleiðis dæmi, jeddúda mía. Hinn dæmdur ónýtur enda át Katla hann því sem næst, fullur af slefi og veseni haha... 

Fór með kettina mína í hina árlegu kattarfárssprautu á mánudag og endaði með því að þeir komu heim nauðasköllóttir á þriðjudag, búnir að vera í svo miklu hárlosi og með mikla flösu í feldinum að það eina sem hægt var að gera var að snoða greyin, eru frekar ljótir en verða það bara í eins og eina viku eða svo allavega engin hár á heimilinu núna sem er nú aldeilis munur.

Húsið á Húsavík er selt jibbí og pabbi búinn að fjárfesta í íbúð hér á Akureyri í þjónustukjarna sem er bara snilld. Þannig að nú eru þau bæði hér á Akureyri sem er nú gott.

Hef ekkert getað lært en það er nú eiginlega bara að verða gömul lumma, blogga um ef ég læri bara það er kannski betra....

Jæja búin að tuða helling og ætla að láta nægja að sinni barasta og fara fljótlega að sofa held ég barasta. 

Sjúlli kveður sætur eins og alltaf 


Þúsund sinnum segðu já

Ég er tossi, meina það. Ég hef ekki lært svo lengi, reyndar alltaf eitthvað sem kemur í veg fyrir það en ég náði að gera 1/2 verkefni í LHF í morgun, nenni ekki að byrja að læra ef ég veit að ég hef kannski korter eða hálftíma, rétt að komast í gírinn og þá er málið dautt. Er að hlusta núna á námsskeið sem ég skráði mig á í gegnum WebCt á vegum Framvegis en þeir ætla að fara að bjóða upp á námskeið sem við sjúkraliðar höfum hingað til þurft að sækja suður í gegnum netið alveg brilliant. En þetta er s.s. tilraunanámskeið um samskipti á vinnustöðum, og gerir maður verkefni og umræður og svona eitt og annað skettilegt og sérstaklega þar sem ég hafði EKKERT við tímann að gera.  En gaman að þessu.

Tengdó voru hjá okkur um helgina, voru á harmonikufélagsárshátíð. Svo komu Elín og Viðar í gærkvöldi og bauð ég upp á steiktar pylsur á pönnu með kartöflum huggó:) Þau voru svo hin rólegustu bara og buðu Brynju með sér í leikhús kl 22 í gærkvöldi.

Pabbi og mamma loksins búin að selja húsið á Húsavík glæsilegt bara, þannig að nú er bara fyrir þau að leita sér að íbúðum til kaups jájá allt að gerast, verða að losa húsið einmitt í kringum prófin hjá mér, eins gott að ég er vön að lesa með annarri og gera eitthvað allt annað í hinniLoL Mamma er enn á sjúkrahúsinu og ekkert á leið þaðan í bráðina, vonandi að þetta fari eitthvað að gera sig. 

Feðgin sofa inni í rúmi og Brynja gerðist bókaormur og ég er að búa mig undir að læra, gleypti í mig eins og eina ibufen í von um að hálsinn haldi í smá tíma á meðan ég geri eins og eitt verkefni í hjúkrunarfræðinni. Púslvika að byrja, Eyþór með jarðarför á hverjum einasta degi þannig að þetta verður bras, en gengur efast ekki um það. Ég á að fara í starfsmannaviðtal hjá Dísu á þriðjudag kl 12.15 spennó hef aldrei farið í svoleiðis. Búin að hitta verknámshjúkkuna mína hana Hörpu, byrja 19 maí á 8 vikna verknámi 100% vinna, bara gaman, kem til með að taka blóðprufur, setja upp þvagleggi og sprauta alveg hægri vinstri og búa um sár og bara fullt. Geng lyfjavaktir þannig að ég verð yfir á vaktinni skettilegt, ætla að vera ferlegur harðstjóri haha nei segi svonaHappy

Best að halda áfram því sem ég á að vera að gera

Sjúlli kveður, á límingunumW00t


Second day of peisk

Já tungumálin hafa alltaf verið mín sérgrein og ekki er dóttir mín síðri á þeim vettvanginum. Var s.s. að koma úr ferð frá Barcelona þar sem auðvitað var hrikalega gaman. Svo voru alltaf skráð niður svona comment sem stelpurnar gáfu frá sér og í eitt skiptið þá villtist bílstjórinn þeirra á Spáni og mín svona þolinmóð eða hitt þó heldur fannst þetta orðið gott og kallaði til hans "bílstjóri are we wild" haha mér fannst þetta snilld hefur þessa enskukunnáttu klárlega frá mömmunniLoL

En nóg um það páskarnir á seinna hundraðinu, þessi hátíð búin og var einkennilega fljót að líða. Fékk páskaegg í gær sem ég reyndar þurfti að fjárfesta í sjálf, var frekar vont, þannig ég borðaði bara Brynju egg enda keypti ég það líka LoL Fékk málshátt, man hann ekki þannig að við skulum ekki velta því meira fyrir okkur. 

Katlan litla hélt upp á afmælis sitt á laugardag eða hélt og ekki hélt, komu nokkrir í kaffi og með því. 1 árs daman. Fékk margt skemmtilegt og fallegt. Vöknuðum snemma í gærmorgun, Eyþór var að fara að spila í messu og vaknaði 5.20 við Katla líkaGasp Síðan skreið ég inn í rúm um hálf elleftu í gærkvöldi eftir að hafa unnið Brynju alltaf í spilum haha gott á hana (ok hún vann oftar enda svindlaði hún) og ég gafst upp á að hlusta á eiginmanninn hrjóta í takt við tónlistina í Little trip to heaven sem hann var búinn að bíða lengi eftir að sjá, skal segja ykkur það ZZZzzzzz.

Vinna á morgun, spurning hvar Kötlu verður troðið held samt að Brynja sé í fríi hún reddar okkur þessi elska hmmm ekki satt.

Er að prenta út fullt af vísdómi til að lesa og ætla að hætta þessu bulli hér og framkvæma það

Sjúlli kveður stútfullur af súkkulaði 


Gleðin tekur öll völd eða hvað.........

Enn á ný er hiti frændi kominn í heimsókn. Vaknaði í nótt við lítinn heitan búk sem reyndi að troða sér inn í mömmuna, var komin með þennan líka mikla hita. Ég fór í vinnuna, fékk að losna við eina vitjun og fór svo heim s.s. um rúmlega 10 en þá var Óskar Pé að hampa henni en hún er eitthvað lasin litla greyið ekki kvefuð samt af neinu viti. Alltaf bara hiti. Varð að fresta því að hitta verknámshjúkkuna mína hana Hörpu leiðinlegt, en ætla að reyna að svindla mér til hennar á morgun ef Katla verður spræk tek ég hana bara með mér.

Brynjan mín er í sælunni á Barcelona, ekki mikil sól þar en hiti á bilinu 17-23°sem verður nú að teljast bara fínt. Töpuðu fyrsta leiknum sínum 3-1 en unnu seinni 7-3 minnir mig og svo eru þær að keppa í dag en veit ekki hvernig það hefur farið enn. Þær eru svo heppnar stelpurnar að það eru yndislegir fararstjórar með þeim og líður mér mun betur með það að vita af svoleiðis, maður hættir líklega aldrei að hafa áhyggjur af þessum börnum sínum:) Brynja á 15 ári og ég er alltaf eitthvað með áhyggjur af henni ekki að þess þurfi alls ekki en svona eru þessar mömmur.

Hef lítið svo sem segja, er að fara að gera skattaskýrsluna fyrir hana mömmu mína, bíð alltaf með það fram á síðustu stundu liggur við, merkilegur ávani en ég er skotfljót þegar ég byrja. Mín fer til endurskoðanda ásamt Eyþórs skýrslu þannig að ég þarf ekkert að hafa áhyggjur af því.

Best að fara að gera eitthvað meðan krílus sefur

Sjúlli kveður "skárri en síðast" 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband