Danadj.....

Þetta var svakalegt, voðalegt og agalegt.................nú segi ég bara áfram Þýskaland og vona að Danir lendi á móti Þjóðverjum sem drulli yfir þá....

Málið er dautt.....over and out

Sjúlli kveður..........


Áfram Ísland

Er við það að fara á límingunum...jeddúda mía...verð grátandi hér í kvöld ef helv.......baunaspírurnar vinna okkur sem þeir AUÐVITAÐ gera EKKI eða hvað.  Búin að fá þvílíkar auglýsingar í maili í dag sem hljóða á þennan hátt "horfið á leikinn við dani í kvöld því herbalife styrkir þá, erum með merki á buxum 7 leikmanna" og VEI eins og ég myndi horfa eitthvað frekar á leikinn þó svo að helv......herbalife merkið sæist einhversstaðar........ég get svarið það hef nú horft á alla leikina og horfi á þennan til að sjá leikinn en ekki herbalife merkið jahérna.....ekki það að gott hjá þeim að styrkja landsliðið en almáttugur ...ekki þessa auglýsingamennsku komin með nóg af henni *ÆL*

En aftur að landsliðinu já það er ekkert meira um það að segja nema bara ÁFRAM ÍSLAND.....ætla að ná mér í mæru.......núna strax.......viss um að ég lendi í árekstri og missi af leiknum.....væri það ekki alveg týpískt....ójú

 

Sjúlli kveður Áfram herbalife já eða er það ekki það sem ég á að horfa áSick


Bara fyndið

Er að læra ég meina það er bara að prenta út og nota tímann í annað á meðanGasp Kíkti aðeins á síðuna í blíðu og stríðu og hélt ég myndi bilast úr hlátri þar var kona að tjá sig um danina og hversu montnir þeir eru alltaf þegar kemur að handbolta, eins og öll blöð í danmörku loga núna af fréttum af því hvað landslið dana urðu fegnir þegar þeir heyrðu að þeir fengju Ísland á móti sér "lélegasta liðið" eins og það var orðað, þá segir konan....

"Danir syngja yfirleitt vi er röde, vi er hvide, vi staar sammen tid om tiden, en ef þeir tapa eins og að sjálfsögðu þeir verða að gera í kvöld og gera þá syngja þeir vi er röde, vi er hvide, vi er sammen ude at skideLoL

Haha bara fyndið. Annars er ekkert títt sit hér enn á náttfötunum alveg á leið í sturtu og svo að lesa Sálfræði um streitu ekki veitir af, auk þess að mín bíða verkefni í Hjúkrun og Líffæra og lífeðlis og UTN...

FArin í rass varð bara að setja þetta inn fannst þetta alveg brilliant eins og Vala kjellan Matt myndi segja.

Sjúlli kveður syngjandi glaðurWhistling


Handbolti, Júró og hvaðeina

Jæja enn ein vikan byrjuð, þetta er með ólíkindum hvað tíminn líður hratt, mætti samt alveg líða ögn hraðar allavega næstu 7 vikurnar, pjúff er alveg komin með nóg af því að vera kona í yfirstærð. Verð nú að segja að ef að þeim sem eru mikið yfir kjörþyngd líður eins og mér þá myndi ég sko löngu vera búin að gera eitthvað í málunum, ég meina ég get ekki reimað skóna mína....ekki snyrt á mér tærnar...fyrir utan allt annað...En þetta er nú samt ekkert illa meintBlush

Helgin leið nokkuð stórslysalaust enda varla við öðru að búast þar sem fjölskyldan hélt sig mest innan dyra. Eyþór fór samt á föstudagskvöldið á árshátíð kirkjukórsins, var að spila þar og kom heim um 23:00. Laugardagurinn var án klæða alltsvo vorum öll á náttfötunum frá morgni til kvölds fyrir utan að Eyþór labbaði niður í Nettó að ná í mat handa okkur svo við gætum nú haldið áfram að vaxa og dafna í okkar letistellingum. Handboltinn maður minn pjúff mikið var ég fegin að Ísland vann Slóveníu á laugardaginn vá hvað það var erfitt að horfa maður minn....en sem betur fer þá unnu þeir með eins marks mun því þeir hefðu held ég aldrei haft Þjóðverjana í gær þó svo að þeir hefðu verið með sitt besta lið....

Hlakka til að sjá þá á móti Danmörku á morgun eiga fína möguleika í að vinna þá ef þeir eru í formi, meira og minna að verða krambúleraðir greyin, nokkuð margir komnir með meiðsl en svona er þetta...Þakka eiginlega fyrir að vera bara í fríi á þessum tíma svo ég missi ekki af neinu...hahaha

Júróvísion var líka á laugardagskvöldið og því miður þá komst pabbi Brynju og hans hljómsveit ekki áfram hefði verið heldur betur gaman fyrir hana að sjá þá fara áfram en þeir voru með alveg ágætis lag fannst okkur allavegaHalo Gengur bara betur næst........Fannst nú eiginlega að Friðrik hefði ekki átt að fara fannst það frekar svona leiðinlegt lag, en Eiríkur svínvirkaði og svo er Jónsi alltaf góðurGasp Brynja fór í Júrópartý til Þórsstelpna og pöntuðu þær sér pizzu og var alveg dúndrandi stemmingGrin

Ég var löt um helgina og nennti ekkert að læra og eins og sést þá er ég enn löt og nenni enn ekki að læra, hvernig fer þetta eiginlega. Annars er voðalega mikið bara upprifjun því það eru margar sem hafa ekki verið í skóla síðan 1700 og súrkál við erum held ég 14 í þessu fjarnámi og þar af er ég 4 yngst hinar eru fæddar '47 og ´52 megnið af þeimGetLost Gaman að því.....Voru tvær sem ætluðu í þetta nám sem voru að vinna með mér í heimahjúkrun en held þær hafi guggnað hef allavega ekki séð þær inni á námssíðunni, þarf að fara að hringja í þetta lið og kanna málið, hefði verið svo fínt að hafa þær og geta hist kannski eins og x 1 í mánuði og farið yfir þettaGasp

Eyþór er í borg Davíðs á óteljandi fundum í dag blessaður, keyrði hann á völlinn kl 7 og kemur hann aftur í kvöld í kringum 20 leytið. Brjálað að gera, var nú samt í fríi alla helgina og held ég að hann hafi nú heldur betur haft gott af því.

Best að fara að læra eitthvað smá...

Sjúlli kveður letin uppmáluðW00t

 


Organistablogg

Halló

Stofnaði nýtt blogg til að röfla um tónlist.  http://www.organisti.blog.is/

Ætla samt ekkert að hætta mínum tíðu skrifum hér

Eyþór


Undur og stórmerki

Það er eiginlega til skammar að ég skuli alltaf láta konuna mína sjá um að blogga hér.  Ég opnaði síðuna og ætlaði að vera ofsa duglegur.  En nú kemur ein færsla.  Er að fylgjast með Venna Páer í sjónvarpinu.  Mér finnst Venni nefnilega fyndinn. Aulahúmorinn er akkurat fyrir mig.  Ég hangi sem sagt heima.  Er drullu slappur vegna blóðsykursóreglu.  Er í fríi um helgina og ætla að taka því rólega.  Nú eru bara 8 vikur eftir að meðgöngunni og undirritaður orðinn verulega spenntur.  Er að fara á taugum vegna utanlandsferðar sem ég þarf að fara í eftir tæpar 4 vikur.  Er að reyna að finna leið til að sleppa við það. 

Myrkir Músíkdagar eru búnir hjá Hymnodiu, fyrri tónleikarnir voru í Langholtskirkju og gengu alveg ágætlega og þeir síðari í Laugarborg í Eyjafirði og gengu þeir stórvel. 

Mig langar rosalega í veiði.  Setti mynd af sjálfum mér þar sem ég sit við Ölvesvatn í miðnætursól á desktoppið á tölvunni minni.  Veit að það er mjög mikill egóismi hjá mér, en ég varð að hafa veiðimynd uppi við.  Spurning hvort ég fari ekki að æfa fluguköstin úti í skafli eða skjóti á olíubrúsa uppi á heiði :)

ekki vil ég nú blogga of lengi svona fyrsta skiptið eftir hlé.  Gæti fengið harðsperrur

Eyþór


Rokrassgat

Já hér er sannkallað rokragggat í augnablikinu, hvín svoleiðis í öllu hérna að það er ekki einu sinni fyndð, hrökk oft upp í nótt við lætin í þessu blessaða roki og var að verða verulega pirruð sérstaklega þegar ég heyrði hvað minn heittelskaði hraut vært og greinilega böggaði hann ekkert þetta veðurHappy

Annars er allt fínt að frétta, strákarnir okkar eru alveg að missa sig í að vinna svona í handboltanum, hélt ég fengi hjartastopp hreinlega gegn Frökkum, gat varla horft á helv....leikinn bjóst alltaf við að nú færu þeir að tapa þessu niður eins og íslendingar gera svo oft í þessum blessaða handbolta en nei þeir unnu ekki það að ég hafði alveg tröllatrú á þessum elskum, skitu svo yfir túnfiskana í gær og var það heldur betur glæsilegt þurfa bara að vinna í raun einn af þessum þremur leikjum sem eftir eru og þá eru þeir komnir í að keppa um 1-8 sætið vííííí, ég er sko ÍSLENDINGUR:)Kissing Bíð spennt eftir leiknum við Pólverjana en hann er kl 17:30 í dag og ef drengirnir eru í stuði eins og á móti Frökkum þá sigrum við PollanaDevil Þið getið skráð ykkur í stuðningsliðið www.ibliduogstridu.is

Sit annars hérna og drekk Tyrkneskt eplate sem er alveg hættulega gott og eiginlega ekkert líkt te hefur nefnilega alltaf fundist te frekar vont en þetta er sælgæti. Bogga naglakona keypti sér svona te úti í Tyrklandi og gaf mér smá og síðan fór ég í Te og kaffi og það fékkst það alger unaðurCool Er að fara að undirbúa smá lærdóm en gat nú ekki setið á mér að tuða smá hérna.

Ágúst vinur vors og blóma kom í gær til að syngja með Hymnodiu og vill ekki betur til en svo að hann er veðurteppur núna blessaður kallinn, fór nú bara að leggja sig núna enda lítið annað að gera á að athuga flug aftur um 10 leytiðWoundering Leiðinlegt að lenda í svona en maður stjórnar ekki veðrinu. Eyþór fór hálfsofandi niður í kirkju og ætlar að æfa sig í smá stund þessi elska svo duglegur, annars sagði hann mér þær fréttir áðan að hann væri í fríi um helgina og sagði strax "hvað eigum við að gera" ég sagði honum að nú slakaði hann bara á og hvíldi sig, svæfi og færi eiginlega í hýðiShocking Spurning hvort að það verði nú ekki ef ég þekki hann rétt.

Hjartapillurnar mínar eru ekkert að virka allavega ekki enn sem komið er en það getur svo sem komið að því fékk nokkrum sinnum hjartastuð í nótt er að verða smá gebbiluð á þessuAlien

Júróvísion um næstu helgi og bíður Brynja verulega spennt þar sem pabbi hennar og hljómsveitin hans eru með eitt lag þar alltsvo hljómsveitin VON. Þannig að það er búið að blása til júrópartýs og ég veit ekki hvað og hvaðGaspÉg er nú spenntari fyrir handboltanum en júró en auðvitað horfi ég ekki spurning.

Annars eiginlega bara ekkert að frétta....Ætla að fara að læra smá...

Sjúlli kveður með geðveikis glampa í glyrnumW00t

 


Vitlaus heimasíða

http://ernuogeythorsbarn.barnaland.is/

 

Þetta er s.s. heimasíða Marteins litla:) Smá ruglingur í gær.

Ísland vann Frakkland ójá eins og maður hafi einhvern tímann efast...HA ekki aldeilis aldrei aldrei og aldrei.

Get ekki beðið eftir að sjá fyrsta leikinn þeirra í milliriðli en það er víst á móti Túnis....

Er að læra ætti ekki að vera að blogga....farin

Sjúlli kveður alveg hroðalega kærulaus


Brjálað að gera

Mikið að gera á öllum vígstöðum ójá. Eyþór kom heim kl 1:30 í nótt eftir að hafa verið um helgina í borg óttans að halda tónleika með Hymnodiu sem gengu bara vel að því að mér skilst, hef nú reyndar ekki hitt hann mikiðLoL Skólinn byrjaður hjá mér og segi nú bara úff yfir því, sýnist maður hafa alveg nóg að gera við að sinna því, 4 ritgerðir núna bara á notime, + allt hitt og svo er talvan mín hálfónýt sem flýtir ekki fyrir, hvernig var það með lottóvinninginn já og happdrætti háskólans hélt það hefði verið komin röðin að mér.

Brynja var á Húsavík á sunnudaginn að keppa á Íslandsmóti í fótbolta innanhúss og að sjálfsögðu unnu þær mótið nema hvaðGasp Fara svo í borg óttans helgina 18 feb held ég til að reyna að ná í Íslandsmeistaratitilinn...jájá ekkert að þessu.

Á meðan var móðirin heima að þykjast læra en gerði eiginlega allt annað en það. Tók mig til og bjó til heimasíðu á barnalandi handa Marteini http://ernuogeythorsbarn.barnaland.is/ ef fólk  hefur áhuga á að skoða síðuna þá bara endilega sendið póst til mín eða Eyþórs og við látum ykkur hafa leyniorð. Bara lítið komið enn sem komið er en það kemur til með  að bætast við þetta í rólegheitunum.

Var að koma frá Gunnari Þór hjartamanninum mínum og hann setti mig á hjartalyf til að reyna að hægja eitthvað á öllum þessum hamagangi. Mjög vægan skammt bara en vonandi nóg til að hægja á en vonandi bara ekki of mikið. Vaknaði þegar Eyþór kom heim í nótt annaðhvort við hann eða verki í bumbunni og ég var eiginlega alveg viss um að nú væri ég að fara af stað. Gekk um gólf í næstum tvo tíma með símanúmer kvennadeildar í hendinni og var við öllu búin þegar allt í einu voru engir verkir, svo ég hlunkaðist inn í rúm og sofnaði en vaknaði svo kl 7 í morgun með sömu helv...verkina og leist nú alls ekki á, en líklega en litli maðurinn að möndlast við að skorða sig eða eitthvað ja allavega er ég ekki búin að fæða og hef enga verki núna en hann sparkar alltaf upp og eru miklu minni læti.....kallinn er bara að koma sér fyrir...væri alveg sama á 36 viku þó svo að hann kæmiHalo

Eyþór er svo hræddur um að verða úti þegar að öllu kemur, þannig að Hildur verður í startholunum, finnst nú samt ömurlegt ef hann yrði ekki heima en ætli það sé ekki líka mikilvægt að klára námið sitt allavega áður en hann fer á ellistyrkW00t

Handboltinn byrjar kl 19 og ég fer eflaust á límingunum. Var alveg að tapa mér í gær, hvað voru mínir menn að gera eiginlega en þeir vinna bara í kvöld með hjálp guðs og góðra vætta, já ég er eiginlega farin að biðja til guðs um að þeir vinni er hrædd um að ég detti annars niður í þunglyndi hreinlega. Ef þeir tapa í kvöld eru þeir að keppa um 13-18 sæti og það vil ég ekki sjá. Varð svo stressuð í gær að ég fékk þrjú hraðsláttarköst yfir leiknum og það engin smá haha......en svona er líf handboltamannsins upp og niður eins og hjá öðrumJoyful

Vonum bara að við vinnum í kvöld...

Áfram Ísland

Sjúlli kveður við það að fara á límingunum en með hjartað í hægum taktiW00t


Öflug

Títt eiginlega ekkert nýtt...enda aldrei neitt að frétta héðan úr MunkaklaustrinuLoLKominn snjór og ætti það að gleðja einhverja, ekki mig endilega enda nenni ég helst ekki út fyrir hússins dyr nema rétt til að nálgast eitthvað til að gleðja á mér gómanaCrying

Skruppum systur á Glerártorg í morgun í frekar leiðinlegu veðri, en við erum nú sveitapíur svo ekki hafði það mikil áhrif á okkur. Keypti sængurverasett handa Marteini mínum, vaggan  er komin í hús þannig að nú er þetta allt að koma, á reyndar eftir að finna vagnTounge

Erum hjónin að hamast við að sækja um fæðingarorlof þvílík flækja að standa í því, pappírar þarna sem þarf að ná í og fara með þangað svo þessi og hinn geti skrifað á þetta, viss um að ég fæði í öllu þessu pappírsflóðiHappy

Brynja var að keppa við Valsara um helgina, gekk sæmilega miðað við að þær eru íslandsmeistarar, annar leikurinn fór 8-1 Val í vil og hinn fór 4-3 Val í vil. Eru svo að fara að keppa á einhverju innanhússmóti á Húsavík um helgina held ég ekki komið alveg á hreint, og svo bara Goðamótið eftir rúman mánuð og það er sko alltaf stemmari í kringum það mótKissing Við Ragnhildur Sól fórum á sunnudagsmorgun að horfa á Brynju keppa og fékk sú stutta að fara á fund og hita niður með stelpunum og fannst það sko ekki leiðinlegt, og kallaði hátt og snjallt þegar Brynja skoraði " áfram Billa" var nú búin að leggja henni orð í munn hahahahWoundering

Fórum og spiluðum Trivial við Óskar og Unu á föstudagskvöldið og var það alveg hrikalega gaman og ekkert smá fyndið, Óskar og Eyþór voru saman í gengi en við Unu saman og verð ég nú að segja að við erum eiginlega miklu betri unnum samt ekki en erum betri, erum að æfa stíft fyrir næsta kvöld sem er ekki búið að ákveða en drengirnir skulu ekki fara með sigur af hólmi. Britney Spears, Desperate housewifes og fleira slíkt lá létt fyrir drengjunum og þó sérstaklega Eyþóri hahaha jájá

Get varla beðið eftir að HM byrji í handboltanum, lá hérna þvílíkt spennt yfir leikjum við Tékkland um helgina. Eru góðir strákarnir en samt ekki alveg nógu góðir eða það segir félagi Alfreð og ekki lýgur hann:) Búið að stofna félag sem heitir "í blíðu og stríðu" ibliduogstridu.is og geta allir skráð sig þarGasp

Eyþór er að fara suður með Hymnodiu um helgina og Brynja á Húsavík þannig að ég ætla að njóta þess að vera hér ein og byrja að læra enda fyrsta sendingin að koma á föstudag og ég er svo spenntGaspskrýtið en ég hlakka verulega til að byrja að læra ójá hélt að ég ætti nú aldrei eftir að segja þetta en svona er þetta nú samt.

Best að fara að knúsa kallinn sem datt í hús núna en er svo að fara aftur að kóræfingast.

Sjúlli kveður í toppformi og þokkalegu skapi...annaðhvort eða í þeim efnumPinch


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband