Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Prestar að bresta nei ég segi svona

Jahérna ég segi nú ekki annað rak trýnið í mbl vefinn áðan og sá þá að samkvæmt einhverri könnun sem var gerð væri 59% karlpresta en tæplega 80% kvenpresta væru með því að Kirkjuþing veitti prestum þá heimild að gefa samkynhneigða saman. Bíddu hvað er að ske. Þorir enginn bara að koma fram og segja þetta þarf að gera þetta í felum eins og með svona könnun. Hvað með prestaþingið sem haldið var á Húsavík var þetta ekki skítfellt þar hvað skeði hvað skeði. Eru sumir prestar svona djö...(ljótt veit) tvöfaldir að þeir geta ekki komið hreint fram varðandi skoðanir sínar. Segja eitt en meina svo annað.....og þessum mönnum/konum á maður að treysta í guðs nafni. 

Skal segja ykkur það, get orðið svo fúl út í þessa prestastétt auðvitað ekki alla en þá sem geta ekki staðið við það sem þeir segja og eru eins og steinaldarmenn þegar að þessum málaflokki kemur. Sjálfsögð mannréttindi, samkynhneigðir eru fólk eins og við hvenær ætla þeir sem það ekki vita eða vilja ekki vita að fatta......

Vona bara að í kjölfar þessarar leynilegu skoðanakönnunar að þá verði þeim prestum sem það vilja leyft að gefa samkynhneigða í hjónaband. Viss um að guð verður gríðarlega sáttur við það......enda öðlingur eftir því sem ég hef heyrt......

Sjúlli kveður útvaxin á ýmsum stöðum en fékk samt hjónavígslu tja....... 


Haustið.....

Vorum komnar snemma á fætur við mæðgur í morgun eða íkringum 7 vorum þá búnar að liggja lengi og telja á okkur tærnar ég er með 10LoLklárt mál taldi svo oftTounge Svo núna þegar litli krílus er sofnaður rallaði ég mér út í ruslatunnu og það er svo algjört haust í loftinu. Kalt en samt hlýtt, sól en samt þoka, fuglasöngur en samt þögn, erfitt að lýsa en yndislegt. Við Katla fórum upp í Kjarnaskóg í gær og það var snilld voru þar engir nema við tvær, tvær konur að skokka og nokkrar kanínur og fuglar bara frábært. Fór svo áðan með mömmu og Kötlu en þar var töluvert af fólki m.a. meistaraflokkur Þórs í spássitúr sýndist mér. Sáum líka kanínur og grenitré full af könglum, alveg logn og þvílík blíða bara.

Er að spá í að fara kannski eitthvað út á eftir í göngutúr kannski enda ég bara í Kjarna finnst nefnilega frekar leiðinlegt að spássera bara á malbikinu og með bílana allt í kring er allaveg ekki í stuði fyrir það núna.  Annars er kvefið á góðri leið með að yfirtaka í mér heilann er að festast í hausnum á mér þannig að ég neyðist líklega til að heimsækja einhvern doktor skal segja ykkur það ef það er ekki dóttirin þá er það ég. Hlýtur að fara að koma þvílík hraustleikatíð.

Hlakka svo til að geta farið að fara á gönguskíði í vetur, fínt að setja Kötluna í dúnpoka á snjóþotu og stika svo af stað hlýtur að vera í góðu lagi gat ekkert farið í vetur og þess vegna bíð ég spennt núna að fara að komast á flottu eiginlega nýju gönguskíðin mín. Var rosalega dugleg í gærkvöldi og byrjaði á legghlífum fyrir Brynju er búin að vera á leiðinni að gera þær lengi en aldrei nennt en núna er ég s.s. byrjuð en það er spurning hvenær ég verð búin með þær haha seint og um síðir líklega.

Best að fara að prjóna eða bara ekki gera neitt þangað til Katla vaknar......

Sjúlli kveður með hor í stað heilaW00t


Fréttafíkill

Mætti svo sem stundum titla mig vera fréttafíkil. Suma daga les ég öll blöð sem ég næ í og horfi á báða fréttatímana í sjónvarpinu og gríp þá jafnvel á plúsnum svona til að meðtaka nú pottþétt allt sem er að gerast í þjóðfélaginu. Í gær las ég snilldar frétt í fréttablaðinu þar sem sagði að lögreglan í Tallin í Eistlandi hefði tekið ökumann fastan og ástæðan var sú að hann var undir áhrifum áfengis en það sem var merkilegra var að hann var BLINDUR hélt ég myndi pissa á mig úr hlátri hefði verið í lagi þar sem ég sat á WC Sick haha...og maðurinn var með þrjá aðstoðarbílstjóra haha skal nú aldeilis segja ykkur það en svona getur þetta verið....

Rettritun.is er flottur vefur skal ég segja ykkur. Mamma benti mér á þennan vef fyrir nokkrum dögum og ég hef aðeins verið að skoða hann og ég skal segja ykkur að ég sem var alltaf  með 10 í stafsetningu í skóla ég bara gerði í buxurnar þarna. Er svona ferlega ekki góð í reglum um stóran og litlan staf. Ég verð greinilega að taka mig á . En án gríns þá er þetta mjög sniðugur vefur, en virkar reyndar ekki alveg enn sem komið er með makkanum en það kemur á víst eftir að fínisera þetta. Upp fyrir menntamálaráðherra og þeim sem gerðu síðuna þetta er flott.

Herra kvef og frú hálsbólga eru enn hér í heimsókn og hafa valdið töluverðum leiðindum og mjög miklum pappírsútlátum, fór auðvitað og keypti silkiklúta á trýnið því ekki vill ég nú fá sár en ég er komin á þriðja silkipappírsdunkinn og sé alls ekki fram á að það sé sá síðasti merkilegt þetta kvef. KAtla er líka með kvef og snýti ég okkur mæðgum hérna til skiptis já já. Annars er til horsuga á þessu heimili sem er notuð á litla stýrið og varð stóra stýrið auðvitað að prófa hana og skal segja ykkur að ég held ég þurfi ekki í hálskirtlaaðgerð þeir næstum fóru bara þvílíkur kraftur hahah. Er með þá áráttu að flest sem ég gef Kötlu eða geri við hana FLEST takið eftir þá prófa ég það á mér líka, varð meira að segja að smakka lyfið hennar og það er sko ekki gott......lýsið læt ég samt í friði, man síðan ég var 6 ára að Þórarinn heitinn Þórarinsson skólastjóri í Skúlagarði neyddi mig til að smakka lýsi og ég ældi því mjög hratt tilbaka og eyðilagði gríðarlega flott vesti sem hún mútta mín hafði nú prjónað í tilefni skóladagsins já það var ekkert grín. En ssvona er þetta ég hef ekki og mun ekki smakka lýsi framar.

Eyþór er að fara suður um helgina er að spila bæði einn og með kirkjukórnum sínum á menningarnótt og svo í útvarpsmessu og ég veit ekki hvað og hvað. Brynja er líka að fara suður að spila að vísu fótbolta lætur orgelið í friði ennþá. Þau koma svo bæði heim á sunnudag. Við KAtla verðum einar heima með hr og frú hor, já svona er þetta.

Læsti síðunni hennar Kötlu í gær að vísu bara albúminu en þið sem vitið e-mailið mitt þá er leyniorðið fyrri hlutinn af því. Mér er alveg sama hverjir skoða en ekki að síðan hennar lendi á einhverri barnaklámssíðu oj bara.

Sjúlli kveður drukknandi í hor 


Kvef

Síðustu daga hef ég hægt og sígandi verið að fá kvef og hélt ég hefði nú náð kveftoppnum í gær en ekki reyndist það nú aldeilis rétt hjá mér því í nótt svaf ég ekki mikið vegna hálsbólgu og því að ég fann hreinlega hvernig horstíflan myndaðist geðslegt ég veit en sannleikur engu að síður. Í dag hef ég verið að bera á mig hið gamla góða Vick krem en það bara virkar lítið sem ekkert og pappírsþurrkur fjúka alveg heilu pakkningarnar.  Sko það eru bara nokkrir dagar síðan síðasta kvef fór og ég er tiltölulega nýbyrjuð að taka einar 5 tegundir af vítamínum svo ég hélt að ég væri nú örugg það sem eftir væri hausts og vetrar en neinei.....tja skal nú segja ykkur það. Ekki nóg með það þá hefur mér tekist að smita litla dýrið mitt þannig að hún er með sömu vanlíðanina.......segi nú bara enn og aftur tja.

Fórum mæðgurnar þrjár í myndatöku til Rúnars í dag en Brynja átti s.s. eftir seinni myndatökuna. Hann tók myndir af okkur mæðgunum þremur og svo systrum og svo Brynju í ca 3 dressum og svo flottar myndir allavega þær sem hann sýndi okkur. Fáum svo allar myndirnar á disk í næstu viku og svo veljum við held ég 12 myndir sem við fáum svo í 2 albúm s.s. eitt handa okkur og svo eitt handa pabba hennar og famili. Hlakka til að sjá þær. Ég fékk að vera á vindvélinni og fannst það ekkert smá fyndið þegar hann bað mig um það.

Kíkti svo aðeins með mömmu og systrum til Hildar og svo bara var verið að slaka á seinnipartinn. Vona að helv...kvefið verði orðið umberanlegt hjá okkur mæðgum báðum á morgun. Talaði við einhver Jón barnalækni í dag varðandi lyfjagjöfina hennar Kötlu og ákváðum við að prófa að taka vikufrí frá lyfjunum s.s. frá og með laugardeginum og ef það gengi þá bara gengi það annars á hún að vera á þessu til 11 des en þá ætlar hann að tala aftur við okkur. Væri snilld ef hún þyrfti bara ekki á þessu að halda meira. Alltaf gott að vona.

Tengdó minn á afmæli á morgun tralallaalla þrátt fyrir að hafa haldið upp á það um helgina. Til hamingju með það Nonni minn:)

Sjúlli kveður með hor í stað augasteina 


Fæðingarorlof

Vá ég fór allt í einu að hugsa, geri það nú ekki mjög oft þannig að það telst fréttnæmt fyrst svo er...en já ég fór að hugsa og það eru ekki nema 4 mánuðir þar til ég fer að vinna frá litla krílinu mínu. Finnst þetta hræðilegt er enn ekki byrjuð að njóta þess að vera í fæðingarorlofi kannski svona næstu vikur sem maður fer virkilega að njóta þess. Katla búin að vera lasin alveg þangað til eiginlega núna. Finnst að það eigi að gera konum kleift að vera heim í 2 ár án gríns. 

Held að þroskalega hafi börn í raun ekkert að gera á leikskóla fyrr en 2 ára. Þau vita ekki hvað er almennilega um að vera fyrr og ættu að fá að njóta þeirra forréttinda að eyða þessum 2 fyrstu æviárum í faðmi foreldra sinna.

Finnst það flott eins og það er í Þýskalandi finnst ekki allt flott þar en þar er konum sko gert kleift að vera heima og með fínasta kaup þar að auki ekki einhver skít og kanil eins og hér ja nema þú hafir verið í hálauna vinnu þá er það svo sem allt í lagi.

Ef ég væri á þingi myndi ég byrja á því að berjast fyrir þessu........fæ alveg illt í skrokkinn að hugsa um að ég þurfi að fara frá henni, ekki það að pabbi hennar verður í jan og feb í fæðingarorlofi og eftir það ætla ég að reyna að komast annaðhvort á kvöldvaktir á Hliið eða í heimahjúkrun þannig að við þurfum ekki að setja hana á leikskóla fyrr en á öðru ári. En mér finnst samt hræðilegt að þetta fæðingarorlof er að verða búið og ég enn ekki farin að fíla mig í því.GetLost

Best að fara að kúra sig hjá litla orminum sínum

Sjúlli kveður ekki sáttur 


Hjólhýsi, tjaldvagnar, húsbílar hvað er málið

Vorum að koma úr ágætis ferð í Sauðhúsaskóg í Borgarfirði þar sem tengdó voru með bústað. Fallegur staður og mikið hægt að gera þarna, en bústaðurinn frekar lítill en eins og sagt er "þröngt mega sáttir sitja" og var það nú einmitt þannig. Fengum mikið og gott að borða og þetta var bara frábært í alla staði.

Þvílík umferð  bæði á suðurleið og norðurleið. Hef heldur sjaldan eða aldrei séð eins mikið af húsum á ferðinni hangandi aftan í bílum. Hvað er eiginlega málið. Hvað varð um gömlu góðu útileguna. Hvað varð um að lemja niður hæla og skríða algallaður niður í svefnpoka og vakna með smá hor í nebbanum og rauð eyru. Núna keyrir fólk á risajeppanum sínum með risahúsið aftan í, er þetta ekki að verða heldur ýkt dæmi, ég veit ekki ég hef aldrei verið í þessum pakka en einhvern veginn heillar þetta mig alls ekki. Það var svolítið um að það mynduðust bílaraðir og kannski 20 bílar í röð og pottþétt að af þeim voru 15 jeppar ef ekki meira og með svona lafandi í rassinum. Maður varla sá þetta fyrir 2 árum síðan. Svo komum við á Blönduós og fórum á Pottinn og Pönnuna og ætluðum aldrei að koma litla Passat með engu húsi fyrir á planinu því það var búið að setja svo mörg bílahús á planið að þar var eiginlega komið hálfgert bílaþorp.

Já svona er nú bara Ísland í dag en mér þykir þetta nú samt alveg ótrúlegt. Sök sér með tjaldvagna en hitt tvennt..jahérna og hér. En líklega er ég bara svona hrikalega gamaldags....ekki að ég er ekkert ofsalega mikið fyrir útilegur svona almennt:)

En nóg um þetta raus. Helgin var fín, mikið etið, skal reyndar viðurkenna að ég svaf lítið og var það ofsalega litlu rúmi að kenna með vondum dýnum en þegar maður á orðið hrikalega góðar dýnur og kodda og kaffivél þá eiginlega þyrfti maður að taka allt þetta með sér í ferðalagið. Maður er orðinn of góðu vanur og svo skammast maður út í þá sem eru góðu vanir í tjaldbúskapnum já maður er skrýtinn

Best að fara að sofa klukkan komin langt fram yfir minn normal háttatíma þannig að það er best að skammast í bælið

Sjúlli kveður tjaldlaus og allslaus 


Þvílíkt og slíkt

Hvað er eiginlega í gangi. Á bæjarstjórn Akureyrar að segja af sér út af þessu. Ég skal segja ykkur það. Ég held að flestir hafi verið mjög ánægðir með þessa ákvörðun en ég skil svo sem þá sem reka verslun og þjónustu auðvitað tapa þeir en er þá ekki bara vilji hjá þessum hópi verslunareigenda að reyna að byggja upp fjölskylduhátíð og reyna að laða frekar að fjölskyldufólk en sleppa því að auglýsa þessa sem fjölskylduhátíð og svo er þetta unglingahátíð í meirihluta.....mér finnst líka fáránleg rök að koma með að fyrst við neitum þessum aldurshóp að koma hingað til að vera fullir og pissa og kúka í garðinn minn hvernig við ætlum að geta boðið þennan sama aldurshóp velkominn hingað í bæinn í framhaldskólana okkar og háskólann ... einu orði sagt fáránlegur samanburður.

Þetta er nú bara mín skoðun og þarf alls ekki að endurspegla skoðun annarra Akureyringa og sem betur fer þá á mér að vera frjálst að hafa mína skoðun. 

Ég er himinlifandi sæl með þessa helgi núna eins og hún var. Góð bæjarstjórn alveg til fyrirmyndar....hipp hipp húrra fyrir bæjarstjóranum:)

Sjúlli kveður sáttur við lífið og tilveruna 


mbl.is Hvetja til afsagnar bæjarstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirsögn vantar

Fátt að segja en eins og oft áður þá kemst eitthvað hérna á blað ef blað skal kalla, síðu kannski frekarCrying Vorum hjónin áðan að horfa á mynd sem heitir Borat og ég skal segja ykkur það að ég meig á mig af hlátri yfir einu atriði og ég hreinlega skora á fólk að horfa á þessa mynd, hneykslar eflaust marga en my gad hvað hún er fyndin. Á samt eftir að horfa á restina af henni, tókum pásu hjúin þar sem litli heimiliskisinn okkar hann Óskar Hafsteinn kom í leitirnar Crying

Verslunarmannahelgin að baki sem er vel fór vel fram og vona ég svo sannarlega að hún verði eins frábær næsta sumar bara reyna að auka fjölskyldufólk í  bæinn og þá er þetta fínt. Þannig er það nú.  Var beðin um að koma í viðtal á Rúv eftir að ég bloggaði um verslunarmannahelgina en ég vil geta bloggað án þess að þurfa að fara fram fyrir alþjóð og styðja mínar skoðanir, öllum er frjálst að hafa skoðanir finnst mér en stundum er það samt ekki staðreyndin, en nóg um það.

Erum að fara í Borgarfjörð um helgina, Brynja fer til pabba síns á ættarmót, Rakel fer með okkur og fer svo til Sigrúnar móðursystur sinnar og verður samferða henni út. Þannig að þessari heimsókn er lokið en kemur aftur um jólin. Það er búið að nefna systir hennar og var hún nefnd Garbríella Rebekka Kristrún Johansdottir Kolström já takk fyrir góðan dag svo heitir hin systirin bara Katla ekki að það er nóg:)

Hverju get ég logið fleiru, tja eg veit ekki held að það væri heillavænlegast fyrir mig að fara að hrúgast í rúmið og sofa eitthvað í hausinn á mér en stundum koma svona moment að það er alveg sama hversu þreyttur maður er að þá nennir maður engan veginn í rúmið það er bara þannig. En ég held samt að ég ætti að gera það og blogga aftur þegar ég hef eitthvað að segja af viti.

Sjúlli kveður tómur algjörlega 


Frábær ákvörðun Akureyrarbæjar

Þeir sem í fyrsta lagi búa ekki hér á Akureyri ættu held ég að byrja á því að kynna sér málið áður en þeir fara að æsa sig yfir þessu öllu saman. Í fréttum undanfarið er búið að tala við þá sem græða á þessari hátíð hér á Akureyri og eðlilega eru þeir fúlir en afhverju er ekki talað við hina almennu íbúa Akureyrar og sjá hvort þeir eru ekki ánægðir. Breytir kannski ekki miklu fyrir þá sem búa í hinum enda bæjarins en ekki í nálægð við miðbæinn eða renneríið sem skapast niður brekkuna. 

Við höfum síðustu sumur orðið fyrir því að það sé stolið úr garðinum hjá okkur og líka að fólk hafi verið að gera þarfir sínar í garðinum líka. Þetta er ein af þeim ástæðum sem ég vil sjá þessa hátíð í þeirri mynd sem hún einmitt er þessa helgi. Við hjónin lögðumst til svefns á föstudagskvöldið og bjuggum okkur undir það að sofa nákvæmlega ekkert því það hefur jú verið venjan síðustu ár en við vöknuðum svona endurnærð um morguninn og ekki orðið var við neitt, rétt rumskað einu sinni við að einhverjir gaurar voru að labba heim sem er bara eins og venjulega um helgar að sumri.  

Það er talað um þessa ákvörðun eins og þetta sé einhver rasismi en þetta er bara common sense enda hefur held ég hvergi í fjölmiðlum heyrst frá þessum aldurshópi eða þeir eitthvað verið að tja sig um að þeir séu ósáttir. 

Ég segi bara að loksins er þetta að verða eins og fjölskylduhátíð sem þetta á að vera því þannig er það auglýst en ekki hátíð þar sem við horfum á unglinga allt niður í 13 ára aldur dauðadrukkna eins og hefur komið fyrir undanfarin ár. Þetta er held ég léttir fyrir alla lögregluna, bæjarbúa og þegar upp er staðið alla. 

Menn hljóta að geta fundið aðrar gróðaleiðir en dauðadrukkna unglinga því jú það hlýtur að vera að mesti gróðinn komi af þeim miðað við hvernig er látið.....

Sjúlli kveður sáttur við lífið og tilveruna 


mbl.is Meirihluti bæjarstjórnar gegn takmörkunum á tjaldsvæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heima er best

Komin heim tja það er nú fréttnæmt. Renndum í hlað um hálf sjö en við lögðum ekki af stað úr borginni fyrr en um eitt leytið þar sem húmóðirin (frumleg) á heimilinu bara varð að komast á útsölu í Intersport haha en hún fann nú samt ekkert af viti þar. Þessi ferð var mjög góð og íbúðin sem við leigðum var á frábærum stað og rosalega hugguleg og nóttin bara á 4500 kr efast ekki um að við eigum eftir að nýta okkur þetta aftur. Eina að sjónvarpið virkaði ekki en það var bara gott þegar upp var staðið því við spiluðum og spjölluðum í staðinn fyrir að góna á tV. Stelpurnar voru ofsalega ánægðar enda maraþon hlaup í kringlunni og smáralind en við hjónin fylgdum þeim eftir svona í vissri fjarlægð ég missti mig að vísu smávegis en það var frekar nettW00t

Katla var frábær í ferðinni góð í bílnum og svaf bara eins og stjarna á nóttunni. Og var í alla staði mjög meðfærileg, sat í vagninum eða lág eftir því sem við átti........

Vorum ekkert á spes tíma því að annaðhvort er að koma í upphafi útsölutímans eða þegar nýjar vörur eru komnar í hús, en það var eiginlega vonlaust að fá föt í Kötlu stærð. Náði samt að þefa uppi nokkra boli og buxur og svo í Intersport buxur og bol skal segja ykkur það. En í borginni eru sko útsölur ekki eins og hér þar sem það er kannski 30% afsláttur á meðan að það er bara 70% afsláttur í borginni. Já skal segja ykkur það.

En allavega held ég að allir hafi verið sáttir við þessa ferð og mér fannst alveg ofsalega gott að komast í burtu frá Akureyri og þó svo að það hafi verið þeytingur og ég hafi yfirleitt alltaf komið þreytt úr Reykjavík þá kom ég núna nokkuð slök bara skal ég segja ykkur. 

Svo um næstu helgi s.s. ekki þessa heldur næstu er 60 ára afmæli hjá tengdó þannig að enn verður maður að fara af stað í bíl. Kvíði pínu fyrir því ég verð svo hræðilega slæm í skrokknum, því þegar hálsinn verður slæmur þá fæ ég verki í alla liði og það er eins og ég sé með beinverki allsstaðar og þannig verð ég þegar ég sef í vondum rúmum....púff...

Sjúlli kveður slakur á sál en spennt á líkama 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband