Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Klassa helgi að syngja sitt síðasta

Mikið búið að brasa um helgina.Byrjaði daginn á því að fara með Brynju á föndur í skólanum og tókum við Kötlu með. Gerðum jólasokk og kertastjaka jajá. Katla hafði verulega gaman af athyglinni sem hún fékk:) Fórum svo hjúin í að laga til hérna,ekki veitti af þar sem það hafði fengið að sitja á hakanum á meðan húfreyjan var í prófum. Vorum dálítið lengi að þrífa þar sem það þurfti að skafa og þurrka af oftar en einu sinni sökum þykktarinnar á ryki og skítGrin

Laugardagurinn fór í að byrja á því að skutla Brynju á rútuna þar sem hún fór á krókinn í laufabrauðsgerð. Við hjónin með litla verpið okkar vorum svo bara í slökun, fórum reyndar í nokkrar búðir til að eyða pening og ég get alveg sagt ykkur að það misheppnaðist EKKI. Keyptum m.a. þotu handa Kötlu með veltivörn já algert þarfaþing. Bruðum með hana á henni til Óskars og Unu í laufarbrauð um kl 16 og fannst þeirri stuttu það ekkert nema gaman bara. Gerðum laufabrauð og tek það fram að Una bjó til og flatti út allt s.s. einar 60 kökur og kallarnir skáru en ég fékk steikingarhlutverkið. Borðuðum svo hangikjet, uppstúf og tilheyrandi á eftir hjá þeim. Kl 20 vorum við komin heim og voru þá tengdó komin frá Búðardal. 

Sátum og spjölluðum fram eftir kveldi við kertaljós og kamínu huggóWink Færðu okkur helling af hakki og fullt af kleinum yndislegt. Komu svo færandi hendi í dag og gáfu okkar þennan líka eðal ljósmyndaprentara í jólagjöf, ég fékk að fara og velja hann með Eyþór til að ráðleggja í símanum. Get núna farið að prenta út myndir hægri vinstri jibbí skippí. Gáfu okkur líka jólapíramída með ljósi í, bláu ljósi og ekkert smá kósi erum enn ekki búin að ákveða hvort hann verður inni eða úti má vera hvort heldur sem er.

Náði að kaupa slurk af jólagjöfum í dag á bara eftir stelpurnar mínar 3 og kallinn og svo tvo aðra skal segja ykkur það ég er öflug. Jólakortin koma á þriðjudag og þá er eiginlega allt klárt. Bara eftir að baka þrjár sortir en ætla að gera það um helgina ef Rakel skildi vilja vera með en hún kemur á föstudagLoL

Brynja kom svo með rútunni kl 21.30 í kvöld eldspræk eftir að hafa verið á króknum, kom stolt heim með disk sem Alli afi hennar var að gefa út, og tileinkar hann barnabörnum sínum eitt lag og fannst henni það æði sem og það erHappy

Verð að koma einu að hér í lokin, Eyþór búinn að vera í fríi alla helgina og alltaf þreyttur samt enda líður langt á milli hvílda hjá honum. En hann s.s. ætlaði að klæða dóttur sína í sokkabuxur í morgun en skyldi ekki hvað þetta gekk eitthvað illa....sem var reyndar ekki skrýtið þar sem hann var að reyna að troða stóru tánni á sér í sokkabrækurnar. Hahahahhahaha ég get svarið það hélt ég myndi deyja úr hlátri..

Sjúlli kveður með uppþvottahanska á hausnumW00t


Lífið er ljúfara en það hefur lengi verið

Prófin eru búin, það er fyrsti áfanginn en næsti áfangiW00t er að fá út úr þeim. Hef trú á að ég hafi fallið í öðru en náð hinu og ef svo er þá bara verður maður að takast á við það eftir áramót eða ég vona að þannig megi maður gera það.

Katla var heima hjá pabba sínum svo röltu þau sér í kirkjuna, þar sem Katla svaf á meðan pabbinn gerði eitt og annað. Ég kom svo og fékk eðal enska jólaköku hjá Sveini húsverði kirkjunnar. Svo þegar ég kom heim haldiði ekki að stóra barnið mitt hún Brynja hafi verið búin að baka vöfflur með rjóma og öllu heila klabbinu í tilefni af þvi að mamma var að klára prófin sín. Hún er svo mikið yndi þessi stelpa enda elska ég hana hringinn og allt um kringKissing

Ætla að fara að dunda mér við að setja myndir inn á heimasíðuna hennar Kötlu og brenna allar myndirnar yfir á disk sem eru komnar í tölvuna, alltaf að heyra af fólki þar sem talvan hefur hrunið og allar myndir horfið vil ekki láta það koma fyrir mig þá myndi heil lítil ævi tapast svona næstum því.

Svo í fyrramálið er ég að fara með Brynju upp í Glerárskóla en það á að vera föndur og hugguleg með kaffisopa og ætla ég að bjóða Kötlu með mér og leyfa kannski kallinum að sofa held hann eigi nefnilega frí. Fer svo með mömmu til að láta dæla úr sér blóði á morgun og svo tiltekt en gaman. Segi nú eins og einn samnemandi minn að allt í einu er "þrífa" orðið heillandi. Skal segja ykkur það.

Sjúlli kveður kominn í jólahjólaskapLoL


Próf ég elska próf NOT

Eini gallinn við allt nám eru prófin finnst mér, hef alltaf verið skelfilega lítið hrifin af prófum. Verð alltaf nett kvíðin og lokast svo á síðustu metrunum, kem svo út úr prófinu og veit allt...ÞEGAR PRÓFIÐ ER BÚIÐ. Já ekki auðvelt þetta líf en ég hef nú komist í gegnum prófin í sjúkraliðanum og verslunarprófið og skal komast í gegnum þessi:) Ef ekki í fyrsta nú þá bara öðruDevil

Búin að ná að læra töluvert í dag en alls ekki nóg rosalega mikið efni að fara yfir og allt svo líkt finnst mér en hef höfuðverk yfir því kl 15.30 á morgun hlakka svo til. Búið að vera nett þreytt í dag þar sem Katla hélt að mér þætti gott að vaka og vakti sjálf til 3 þá gafst ég upp og gaf stíl þar sem hún vældi og ýldi út í eitt og hún steinsofnaði en að hún svæfi lengur en til 7 DÖÖÖHHH pabbi skoppaði svo fram með hana en þá var ég svo vel vöknuð að ég náði ekki að sofa meira...DÖÖÖHHHHH

Ætlum að fara í laufabrauð um helgina með Óskari, Unu og börnum. Gaman að því og svo ætla ég bara að fara að jólast eitthvað svona létt um helgina. Kallinn í fríi og svona verður bara slappað af og horft á videó og svona. Á eftir að prenta út jólakortin og dembi mér í það líka um helgina.

Er svo óglatt núna, asnaðist til að borða kjötbúðing feitan og fínan í kvöldmatnum og ég fæ alltaf ógleði þegar ég borða feitan mat núna svona síðustu vikurnar. Fékk einu sinni magasár og það byrjaði einmitt svona þannig að nú ætla ég að afstressa mig, hætta að borða feitt, og hlaupa af mér feita rassinn á morgun já eða næsta, já eða bara eftir jólin hann stækkar hvort eð er ;)

UUUUuuuuu hef eiginlega ekkert meira að segja ætla að fara að lesa aðeins meira eða svona meira bara renna yfir efast um að maður læri nokkuð meira núna of stutt til þess, en bíð enn spennt eftir einkunn úr Sál hefði alveg viljað fá hana áður en ég fer í Lolið væri léttir að vita að ég hefði náð og færi ég með gríðarlega stórt bros á smettinu í prófið:)

Sjúlli kveður í stuði með guðiW00t


Iss

Fyrra prófið búið og ég ætla ekkert að segja annað en ég er farin að sofa......

Sjúlli kveður svakalega svekkturAlien


1 des í dag.....

Í dag er 1. des sem þýðir að eftir 34 daga fer ég að vinnaCrying En við mæðgur s.s. ég og Katla trítluðum okkur í bæinn í smá frosti og alveg ekta jólasnjókomu. Ég fór í Janus og fjárfesti í hlýjum og góðum ullarvettlingum og svo í tvennum ullarsokkum á litla jólasveininn minn. Röltum svo í stemningu um bæinn en fólk var hægt og rólega að týnast þangað. Þegar loksins kl var orðin 16.42 varð mín litla pirruð og þá ákváðum við að nóg væri komið og fórum bara heim. Átti að kveikja á jólatrénu en við sjáum það bara altendrað á morgun haha.... En hressandi var þetta og svona prófkvíðalosandi skal ég segja ykkur, fer 5 ferðir á morgunLoL

Bakaði eina sort af smákökum í morgun sem heita kattartungur og eru vinsælustu smákökurnar á mínu heimili, er bara sykur, smjörlíki, hveiti og egg og síðan sett súkkulaðihnappar oná þegar út úr ofninu kemur. Brynju finnst þetta algert möst á aðventunni, enda gekk hún rösklega til verks og er mjög efnilegur bakari. Katla gerði sitt til að hjálpa til og seildist í deigið og náði að smakka á því, og einnig fékk hún smakk þegar var tilbúið og fannst gríðarlega gott.

Enginn ekta aðventukrans í ár hef alltaf búið til svona ekta grenikrans, en ætla núna að vera með frekar nýstárlegan bara fjögur stór kerti á disk og köngla og jólakúlur í kring eða eitthvað í þá áttina, geng í það á morgun:) Hef heldur engan almennilegan stað fyrir krans fyrst við létum borðstofuborðið fjúka, en þegar búið verður að taka allt í gegn hér þá kemur bara annað borðstofuborð.

Eyþór er að stjórna stúlknakórnum sínum á torginu og síðan í kvöld eru Hymnodiu tónleikar þannig að það er nóg að gera hjá honum eins og venjulega á þessum árstíma. Fórum í gær við Brynja og keyptum handa honum afmælisgjöf, var búinn að fá smá en aðalgjöfin var eftir, keyptum úlpu hrikalega flotta að okkar áliti og við hittum svona á rétt númer og allt og hann að sjálfsögðu ánægður með hana ekki þorað annað:)

Ég er svo ómannglögg að ég þoli það ekki, oft sé ég fólk sem ég kannast við en man bara engan veginn hvaðan og kann ekki við að heilsa, svo stundum bara sé ég ekki fólk sem reynir að heilsa mér eða fólk heilsar mér og ég hef ekki grun um hver viðkomandi er. Spjallaði t.d. áðan við konu töluverða stund sem ég hef ekki hugmynd um hver er en greinilega þekkir mig. Annars þekkja svo margir Eyþór og spjalla við mig eins og ég hafi líka þekkt það í 100 ár sem er bara æðislegt. En svona er þetta, þannig að ef ég heilsa einhverjum ekki,  sem heilsar mér er ég ekki dóni heldur bara hef ég ekki tekið eftir því, sérstaklega slæm þegar ég er að keyra, enda á maður að sjálfsögðu að hafa hugann við aksturinnGasp

Ætla að fara að lesa um ástandsbendi og aðstæðubendi hef ekki hugmynd um hvað það er...

Sjúlli kveður á leið í hugræna meðferð 


Kallinn á afmæli trlalalalall

Já hann er næstum því orðinn jafngamall mér haha nær mér samt aldrei verð alltaf eldri og vitrari en hann *hóst* Stelpurnar gáfu honum afmælisgjöf í morgun og voru það uppþvottavettlingar svona eins og þær í "allt í drasli" eru með bleikir með röndóttu efst og geisladiskinn með sprengjuhöllinni. Fær frá mér á morgun ef hann verður góðurTounge Fékk líka gjöf frá Einhyltingum sem voru sveppir s.s. nemandi með nótur og stjórnandinn kúl:) Hildur kom hérna í kvöldkaffi færandi hendi, fékk nú reyndar bara kaffi og Maryland kex:)

Kíktum aðeins við Katla í Hagkaup í dag mikill jólastemmari þar. Fórum svo í kaffi aðeins til Hildar. Svo var bara pizza og leti. Er að dunda mér við að lesa fyrir sálfræðina og gengur svona lala. Tek þetta á síðustu metrunum eins og alltaf, vinn best undir álagi.

Svo verður kveikt á jólatrénu á laugardaginn og ætlum við mæðgur að fara og hitta einhverja jólasveina alltaf gaman að sjá þá kalla. Miðbærinn að verða fallega skreyttur og flottur, stemming í bænum. Ekkert eins huggulegt í kuldanum að fara og rölta í bænum og fá sér svo Swiss mokka í te og kaffi eða parísarkakó á Bláu könnunni....*slurp*

Hellist yfir mig kvef núna hélt ég slyppi en svo virðist ekki vera í þetta skiptið. Hef grun um að litli stubbur sé að kvefast líka, en hún hættir nú alltaf við að fá kvef svo líklega verður ekkert úr því.

Best að fara að prenta út gátlistann í sálfræðinni. Lesa hann í fyrramálið, Eyþór ætlar að vera meira og minna heima þannig að ég ætla að nota tímann sem Brynja er í skólanum vel og skreppa svo með henni aðeins í bæinn seinnipartinn og kannski skella mér í eins og einn ljósatíma með þessari elsku aldrei að vita nema við dettum einhversstaðar inn í kakó og með því:) Hún er svo mikið æði....Halo 

Sjúlli kveður fróður um margt...ekki sálfróður samtW00t

 


Einhent, svefnlaus og sljó

Svaf lítið sem ekkert síðustu nótt þar sem Katla var mjög pirruð. Afhverju fæðast ekki börn bara með tennur eða þá að maður geti stjórnað hvenær þau fá þær. Ég hefði valið að hún væri ekki í þessu standi núna þar sem ég er að fara í 2 erfið próf og hef fulla þörf fyrir að sofa á nóttunni. Hef lítið getað lært í dag bara geispað og horft á bækurnar og engan veginn náð einbeitingu. Stubbur svo sem ekkert skárri í dag heldur en síðustu nótt en svona er þetta baraCrying

Tókst að brenna mig á öllum litla putta við pönnsubakstur, ekki alveg klár hvað ég var að spá með að leggja puttann flatan á pönnukökuplötuna..DÖH.  Þannig að nú er hann risavaxin blaðra haha skal nú segja ykkur það. Suma daga á maður ekki að fara á fætur. Tókst líka að missa allt úr ruslafötunni í dag yfir allt og ég var nú ekki í góðu skapi fyrir en pottþétt að það skánaði ekki. Svo var ég að láta renna í bað fyrir Brynju og eitthvað snerist upp á sturtuhausinn þannig að það var farin að myndast sæmilegast sundlaug inni á baðherbergi allt gólfi rennblautt.

Best að fara að halda áfram að horfa á Lollið hef hvort sem er ekkert að segja..

Sjúlli kveður hálfsofandi 


Til hvers....

Mikið hvað þessar helgar eru fljótar að líða. Fengum heimsókn á laugardaginn en amma og afi Brynju Daggar kíktu við í kaffi, voru að fara í afmæli upp á Bjargi. Færðu mér hérna hinn fallegast nóvemberkaktus í afmælisgjöfGrin

Við Brynja brunuðum með Ronaldo köttinn okkar til dýralæknis á laugardagsmorgun, en þegar hann kom inn um morguninn var hann með stórt sár á hliðinni og mjög ræfilslegur, var reyndar búinn að vera ræfilslegur í nokkra daga en ég beið alltaf með að fara með hann. Þurftum að skilja hann eftir greyið þar sem það þurfti að sauma saman þetta stóra sár og auk þess var hann með hita, sýkingu og verki greyið litla. Það er villiköttur hér í nágrenninu sem ræðst alltaf á hann og auðvitað svarar minn köttur fyrir sig en hlaut s.s. þetta sár. Búin að fá númer hjá manni hjá Dýraeftirlitinu og á að hringja í hann og láta hann taka villiköttinn. Ætlum svo að fara fyrir skóla hjá Brynju á morgun og sækja kallangann. Svona er þetta.+

Una, Óskar og krakkarnir komu svo í kaffi seinnipartinn og var það gaman eins og alltaf, stuð í kringum þau. Litli stubbur þeirra búinn að vera lasinn og greindist svo með lungnabólgu greyið skinnið og endaði á sýklalyfjum, virðist taka litlu krílin þetta kvef, Brynhildur frænka mín er einmitt nýhætt á sýklalyfjum út af bronkítis. Svona er þetta. Bakaði nokkrar pönnsur og tókst að brenna mig djöfullega eiginlega allur litli puttinn ein blaðra andsk....

Katla drullupirruð í gómnum, mikið bólgin og úrill búin að vera í dag litla skinnið. Vona að tennur hafi skilað sér niður.

 Næturvaktin að byrja á plúsnum má ekki missa af því. 

Sjúlli kveður, já fínt. 

 


Enn einn föstudagurinn

Já ótrúlegt hvað tíminn líður rosalega hratt. Mér finnst ég varla hafa gert neitt á þessari viku sem liðin er þó svo að auðvitað hafi ég gert helling. Ég er búin að vera viðundandi dugleg að læra miðað við tímaleysi, en hef samt verið að læra öll kvöld nema reyndar miðvikudagskvöldið þá slakaði ég mér. En s.s. já í dag er föstudagur og ég er að herða mig upp í að þrífa, Katla komin í vagninn þannig að núna annaðhvort fer ég að þrífa eða læra...hmmm ef tvennt leiðinlegt er í boði vel ég heldur lærdóminn í bili allavega.

Hlakka mjög til 6 des þá um kvöldið ætla ég að halda sjálfri mér veislu og vaka lengi frameftir og horfa á einhverja góða mynd. Yeah maður fer ekki fram á mikið þessar vikurnar:)

Veðrið hér er ofsalega fallegt 3°hiti og smá föl. Aðeins byrjað að sjást seríur í næstu húsum sem fær mann til að fyllast stemmara jájá. Fara upp seríur í dag í stofuna hjá mér Brynja Dögg er ráðin í það starf.

Var að klára Harðskafi eftir Arnald stórgóð bók hjá kallinum (já ég gaf mér tíma á kvöldin inni í bæli). Svo langar mig mikið að lesa bókina hennar Eddu Andrésar um Alzheimer og hvernig það fór með pabba hennar. Búin að lesa nokkrar bækur um Alzheimer bæði bækur sem hafa verið skrifaðar um einstaklinga og svo bækur um sjálfan sjúkdóminn. Hef haft mikinn áhuga á þessum sjúkdómi síðan ég vanná Kristnesi en þar var ég læknaritari fyrir Örnu öldrunarlækni sem var með göngudeild Alzheimer á FSA. Spennandi en sorglegur sjúkdómur oft á tíðum.

Hvað á ég að röfla meira er ferlega andlaus og þreytt. Katla var sérlega pirruð í gær eftir sprautuna og var á handlegg meira og minna, en við gerðum nú samt ýmislegt, búin að finna upp tækni til að ryksuga með hana á handlegg eða ekki stundum situr hún á ryksugunni og ég held við hana, gerum ýmislegt sko. Svaf eiginlega ekkert í allan gærdag en svo núna steinsefur hún og svaf í alla nótt vaknaði ekki einu sinni jibbí samt er ég þreytt...

Sjálfsvorkunnarblogg hér á ferð en maður verður að tjá sig um svona einhversstaðar og því ekki hér...vill einhvern vorkenna mér fyrir það sem ég valdi sjálfLoL

Sjúlli kveður vitleysan uppmáluðKissing


Já nú skal bloggað

Eins og sé eitthvað mikið að gera hérna, ekki komið blogg af viti í marga daga isss. Búin að vera síðustu daga á hvolfi að læra, nýtt hverja einustu mínútu liggur við til að lesa, var í einu prófi í dag gekk ekki vel, las reyndar illa fyrir það, þannig að "mér var nær" fílingur í gangi bara.  Annars fer ég í 2 próf upp í VMA annað þann 3 des og hitt 6 des og þá er ég komin í jólafrí...jibbí

Brynja var lasin heima í dag, hafði mjög ljótan hósta í nótt þannig að ég stoppaði hana í að fara í skólann ímorgun og var hún bara heima að slappa af. Hengdi upp seríur í herberginu sínu í gær og henti upp einni hérna í stofunni í dag. Ég hef nefnilega ekki næga þolinmæði í að setja þær upp allavega ekki svo vel fari. Ég setti samt upp jólagardínur í eldhúsið í gær og það er voða jólalegt og notalegt finnst mérHappy Katla sveif hér um í dag og flækti sig í seríunni sem Brynja var að hengja upp haha lítill stuðbolti. Fórum með hana í sprautu í morgun og hefur hún enn ekki orðið neitt pirruð en gera má ráð fyrir pirringi á morgun, var þannig síðast og virkar víst þannig með þessa sprautu.

Vorum að koma úr mat frá Óskari og Unu, fengum heimagerð hrossabjúgu sem komu frá foreldrum Unu og voru hrikalega góðir, ég, Una og Brynja fórum svo upp á loft þar sem Una fann föt af Helgu Margréti síðan hún var lítil svo krúttaralegt, sumt sem amma hennar Unu hafði prjónað og er ekkert smá flott. Una ætlaði að láta Kötlu hafa jólakjól en fann hann ekki en kannski kemur hann.

Vorum að plana laufabrauðsgerð og verður farið í það helgina 7-9 des annan daginn laufabrauð en hinn daginn ætla þau að hafa opið hús fyrir gesti og gangandi í jólaglögg mmmm snilld voru með þannig í fyrra líka og það var æðislegt.

Byrjað að snjóa hérna í logni og mjög fallegt veður úti, kalt en mjög fallegt. 

Best að fara að lesa aðeins í Lollinu ekkert eins yndislegt og þaðWhistling ok kannski ekki vildi frekar vera að kúra mig niður og lesa skemmtilega bók.

Sjúlli kveður bara nokkuð kátur 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband