Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Hlunkur um hlass frá jussu til brussu

Ég sit hér, úða í mig nammi og tek tímann á hvað unglingurinn minn er lengi að hlaupa vissa vegalengd í rigningu og trekk. Er ég eðlileg svo kvarta ég um björgunarhring og 10 kg en voga mér að gera þetta. Crying Ég ætti að skammast mín og vera að hlaupa með henni en NEIIIIIII, hlunkurinn klístrast fastur við sófann með tölvuna í fanginu og súkkulaði út á kinn og skilur ekkert í því afhverju þetta er svo DÖHHH.

Hvað er annars títt..ekki mikið hér á bæ, enn að bíða eftir einkunn, miskunn en aðallega vorkunn Bwaahaaa. Síðasti dagurinn í heimahjúkrun í dag í heila 2 mánuði og þegar ég kem aftur verða þær komnar á glænýjan stað og ég rata ábyggilega ekki. Byrja á mánudag á Hlíð og er gassalega spennt.  Vann extra hratt í morgun, Katla fór nefnilega í aðlögun og ég hafði 1 1/2 tíma til að klára það sem ég þurfti að klára og það gekk og meira segja án þess að vera mjög stressuð.

Heimsótti svo mömmu mína á spítalann ekki gott ástand þar, maður krossar bara putta. Mási bró kom hérna í dag og svo aftur í kvöldmat til mín með Himma, voru að fara í bíó kallarnir og svo heim. Elín sys kom líka var á leið suður en kíkti til mömmu í leiðinni, Mási gerði það líka, og húsvitjaði pabba í leiðinni. Alltaf gott að sjá þetta lið. Pabbi kom líka í dag og Hilla sys, Guðmundur og dætur þannig að öll ættin næstum búin að koma geri aðrir betur á einum degi Tounge

Allt gengur sinn vanagang bara, Eyþór kominn að sunnan en búinn að vinna í allan dag samt. Kemur heim í kvöld um 22.30, allt vetrarstarf í kirkjunni að enda þannig að nú fer að verða rólegra hjá honum. Hann eignaðist eiginlega nýtt líf þegar hann fékk insúlíndæluna, hefur lagt helling af (annað en kellingin) og bara ekki eins orkulaus eins og hann var. Var fyrir sunnan í eftirliti og það gekk líka svona skafið. Tveir sem fengu dæluna á sama tíma hér á Akureyri þannig að þeir geta haft smá stuðning hver af öðrum gott mál.

Ætla að henda mér yfir nokkra þætti af Grace Anatomy hef EKKERT annað að gera með súkkulaðiátinu

Sjúlli kveður ofvaxinn á ýmsum stöðum 


Skyldi maður spyrja sig.....tja því ekki

Var að dunda mér við að horfa á One Tree Hill á netinu þegar fjandans þátturinn fraus í miðjum klíðum þannig að ég nennti ekki að downloada honum aftur og ákvað að blogga bara eins og smotterís. Var heima í morgun með Kötlu lasna, hundlasin með hitavellu og slef sem hefði dugað í Rauðahafið. En svo allt önnur núna í kvöld, ekkert nema stríðnin. Kíkti aðeins með hana í Bubbakot og þar vildi hún ekki tala við Önnu né Svenna fyrst í stað en svo kom það nú allt saman og ætlum við aftur seinnipartinn á morgun. Var svo boðið með í sveitaferð á föstudaginn eftir hádegi að skoða litlu lömbin og held ég nú að það verði gaman bara.

Er að bíða eftir því að fá einkunn úr síðasta prófinu mínu vona að ég hafi slefað.

Mamman mín enn einu sinni komin á spítala alveg hundlasin, með vatn í lungum og byrjandi hjartabilun, ástand á henni blessaðri, vona að þetta komi nú til með að lagast eitthvað, ætla að kíkja á hana á morgun en hún var í einhverjum rannsóknum í dag.

Pabbi og Guðmundur fóru á Yfirliðsbræður í KA heimilinu og held þeir hafi skemmt sér alveg konunglega, allavega skemmti ég mér konunglega hér í eldhúsinu þegar þeir voru að æfa þetta prógramm, þokkalegir rugludallar alveg hreint.

Eyþór fór til Reykjavíkur í gær kom heim í dag og fer aftur til Reykjavíkur á morgun og kemur á fimmtudaginn, spurning hvort ekki væri ódýrara að eiga bara eins og eina rellu tja maður spyr sig. Kannski loftbelg bara tja maður spyr sig aftur bara.

Ætli sé ekki best að maður fari að drulla sér í bælið í staðinn fyrir að vera að röfla hér tíma steypu, held það nú bara. Stelpurnar allar farnar að sofa og ekki mjög algengt að elsta stelpan (Ég ef einhver skyld ekki kveikja) sé síðust í rúmið, er yfirleitt eins og gamla fólkið komin í bælið tja ekki seinna en 22.30.

Sjúlli svakalegi kveður alveg svaka sætur, tja maður spyr sig. 


Það er komið sumar...

en engin sól sem glennir sig samt, ekki enn en greinilega ekki langt í hana. 16°hiti á mæli, ofsalega hreint og fallegt loftið þar sem það rigndi í nótt jájá. Var að svæfa Kötlu áðan úti í vagni, labbaði mjög hratt hérna um garðinn þvi það er mikið af þeim röndóttu og feitu á sveimi og mér er alveg sérlega illa við þær *hrollur* en þetta er hluti af sumrinu svo maður lætur sig hafa það á meðan þær fara ekki að bjóða sér inn til mín í hunangLoL

Fórum í langan hjólatúr með Kötlu í gær í rigninunni, hún sofnaði reyndar á leiðinni heim bara fyndið. Svo þegar við komum heim tók hinn agalegasti söngur á móti okkur, þá voru það þeir Óskar Pé, Jónas Þórir og Örn Árna að æfa sig fyrir tónleika sem þeir eru með hér í kvöld. Eyþór hafði verið búinn að gefa þeim leyfi á píanóið, flott enda græddi ég fékk að hlusta á allt prógrammið þar sem ég kemst ekki á tónleikana, en buðum bara pabba og Guðmundi mágsa í staðinn:) Eyþór er nefnilega farinn í borgina til að dæma prófdæma hjá orgelnemendum sínum og til læknis í leiðinni, kemur aftur á morgun eftir hádegi.

Varð afskaplega ill út í lítinn gutta áðan sem var að labba með pínulítinn svona tjíváva (kann ekki að skrifa) í bandi, var svo með sand í poka og grýtti alltaf af öllum kröftum í litla hundsgreyið. Ótrúlegt auðvitað er þetta óvitaskapur en sama. Hundskvikindið var auðvitað ýlfrandi og svona og ég sagði við guttann að maður mætti ekki gera svona við dýrin þau fyndu til, en þá sagði hann að hann væri svo óþekkur, og á því augnabliki kallaði mamman í hann annars hugsa ég að ég hefði farið og rifið í rassinn á drengnum, þoli ekki svona. Gasp

Búin að vera að rífast við launadeildina hjá bænum, hef verið að halda því fram að ég sé í röngum launaflokki, ekkert fengið nema skít á móti, og ekki launaflokkshækkun, en núna sér fram á bjartari tíð því við erum komnar með trúnaðarmann sem segir mig vera í röngum launaflokki og þá er nú bara að breyta því minn kæri launakall og ekkert múður. 

Katla ef á fullu að taka tennur með tilheyrandi slefi og ýlfri einar 2-3 tennur að ryðjast upp núna, pabbi hennar er mest hræddur um að hún verði eins og hákarl þegar allar eru komnar, þar sem okkur finnst hún alltaf vera að taka tennurW00t Fær svona hitatoppa þegar þær brjótast í gegn. Hljómaði núna í tækinu Bía Bía en það þýðir Brynja, við megum varla neitt gera bara hún Bía:) En sofnaði aftur eftir smá rugg.

Hef eiginlega ekkert meira að segja, sá mér til mikillar gleði að helvítis roðamaurinn er að vakna til lífsins verð að drepa hann með einhverjum ráðum spurning um kaffikorginn ætla að prófa það. 

Sjúlli kveður með allt á hornum sér 

 


Hvítasunna afhverju hvíta?

Sit hérna og eiginlega bíð eftir að örverpið mitt vakni, búin að sofa í blíðunni í næstum  11/2 klst. Var að vinna í morgun og Rakel að passa, gekk sæmilega, vann hratt og var komin heim um 10. Veit ekki hvernig fer á þriðjudag, en Eyþór fer suður spurning hver passar?

Rakel er s.s komin, kom seinnipartinn á föstudag og verður til 15 júlí. Ætlar í bæjarvinnuna ef hún fær vinnu þar, ekki komið svar ennþá. 

Ofsalega gott veður hérna og hitinn kominn í tæp 12 stig. Fer hækkandi núna með degi hverjum.

Skólinn búinn hjá mér, síðasta prófið var á föstudag, mikill léttir að það sé búið en svo er ég að byrja eins og áður hefur komið fram þann 19 maí á Hlíð í 100% vinnu í 2 mánuði og þá er þeim kafla í náminu lokið. Þá á ég bara eftir tvö fög og 2 ferðir suður, eina vettvangsferð og svo útskriftarferð í desember 2008 jibbí.  Verð nú samt ekki róleg fyrr en ég fæ einkunn úr þessu prófi, var ofsa erfitt og reyndar ekki mikið lesið en það lufsast held ég samt. Krossa fingur allavega.

Eyþór er að spila í fermingu núna, fyrir ári síðan á hvítasunnu var ég að ferma, mikið líður tíminn hratt, hvítasunnan reyndar fyrr á ferðinni í ár, ég fermdi 26 maí minnir mig.

Brynja er á Selfossi að keppa og þjappa liðinu saman, fóru bæði kk og kvk 3 fl. og skilst mér að það sé gríðarleg stemning. Reyndar ekki heyrt í henni nema í gegnum sms þar sem hún týndi fyrst símanum og svo þegar hún fann hann þá dó hann:) 

Rindill farinn að lemja tækið þannig að það er best að sækja elskuna litlu.

Sjúlli kveður þreyttur ennþá 


Tralalla nú skal gleðjast

Já ef ekki er ástæða til að blogga þá er það aldrei. Ég var að fá út úr Lyfhrifaprófinu og ég snýtti einni 7 þar, var án gríns algjörlega viss um að ég myndi falla en reyndar er ég hrædd um það fyrir hvert próf þannig að jibbí ......

Ekkert lært í dag, var samt snemma búin í vinnunni ætlaði að fara að læra, vaknaði ormurinn, og einhvernveginn getur þetta ekki verið tilviljun hún fær alltaf eitthvað hor í nös þegar ég á að taka próf, síðustu viku var hún að kvefast einmitt á miðvikudegi eða fimmtudegi, svo varð aldrei neitt úr því, svo núna lekur úr nebba, ergelsi og lítil í sér týpískt en svona er þetta. Læri bara í kvöld þegar hún er sofnuð.

Einn skjólstæðingur minn lamdi mig eða boxaði mig, er að drepast í trýninu, svona á milli augnanna, gerði það nú ekki viljandi er bara með svo mikinn spasma í útlimum að mér var bara nær að vera að flækjast svona nálægt honum haha, gleraugun beygluðust og allt í volli. En svona er þetta.

Hef nú ekki mikið að segja í augnablikinu, varð bara að segja einhverjum að ég hefði náð prófi, aldeilis hlessa.

Sjúlli kveður snilli tilli 


I have to blogg, I really do

Ekki slök í útlenskunni tja nei ....

Lögðum af stað systur í góðum gír kl 7 í morgun til Húsavíkur, höfðum fengið mömmu bíl til að fara á, ofsa glaðar systur sem keyrðum út úr bænum lá við að við værum sönglandi gamla slagara svo kátar vorum við  "klukkan 7 að morgni takið eftir" Vorum komna á svalbarðsströndina þegar Hillus fór að kvarta yfir því að bíllinn væri nú eitthvað kraftlaus, svalar á því héldum samt áfram en allt í einu missti kagginn kraft og svalinn lak af okkur systrum. Renndum bílnum út í kant og gaus upp þessi líka fína gúmmí/hitalykt. Eins og sannar sveitastelpur, hentum okkur ofaní húddið til að kanna málið, jújú næg olía komumst við að eftir að Hillan hafði þurrkað af með pappír, allt eins og okkur hafði verið kennt, jú nægur rúðuvökvi líka, ekki að það kæmi málinu við.

Hringdum í Eyþór sem kom og sótti okkur svo við gætum sótt bílinn hennar Hildar. Fórum aftur af stað kl að verða 8 enn þónokkuð svalar, Hildur keypti sér orkudrykk í leirunni svona til að hafa næga orku til að ýta bílnum sínum ef eitthvað myndi klikka, setti upp þau bleiku (gríðarleg bleik gleraugu) og af stað. Hlógum þegar við keyrðum framhjá Polo þar sem greyið hýmdi í vegkantinum. Svona er nú lífið. Þar er hann enn verður vonandi reddað á morgun:)

Komumst á leiðarenda þar sem við byrjuðum á að fá okkur veitingar og síðan voru tuskur og kústar hafnir á loft og sú sem orkudrykkinn hafði drukkið var eins og ofvirk randafluga um allt klósett, en ég fór að þrífa flugnaskít,  náðum að gera eiginlega allt sem gera þurfti áður en við renndum tilbaka á Eyrina. Pabbi kom svo seinnipartinn með rúm sem ég fékk að hirða Hildur átti það reyndar, geri það upp við hana síðar, kaupi handa henni blá gleraugu og orkudrykk.....

Er að búa mig undir að læra fyrir hjúkrunarpróf, gekk hroðalega illa í Lyfhrifafræði. Kemur í ljós hvernig það gekk samt. Katla með kvef eins og mamman og búin að vera mjög ergileg í kvöld. Brynja fór að passa með vinkonu sinni og Eyþór er á Ólafsfirði með kórnum (man ekki hvaða kór)

Ætla að fara að undirbúa lesningu efast um að ég leggi í að byrja í kvöld en gott að gera allt klárt.

Þetta blogg ætla ég að tileinka mínum ástkæra bróðir honum Mása sem ELSKAR að lesa bloggin mín:::) 

Sjúlli kveður "svaka heitur" 


Andinn farinn

Þá er einu erfiðasta prófi lokið sem ég hef farið í, vá vissi að það yrði erfitt en svona strembið, krossa putta fyrir eins og einni 5LoL Þegar ég kom svo heim eftir prófið var hún Brynja mín búin að þrífa alla íbúðina ekkert nema dugnaðurinn og systir hennar að vakna og allt gekk svona ljómandi vel, gott að eiga eina svona stelpu sko. Fórum og fjárfestum í hillum í herbergið hennar í dag og hægindastól fyrir Kötlu sem hún reyndar misskilur eitthvað og ýtir honum á undan sér eins og bíl haha en vill ekki setjast í hann.

Kvef að herja á okkur hér, Katla komin með smá hor vona að það stoppi áður en það verður meira, ég með hálsbólgu og hor og svona skemmtileg. En það er nú kannski ekki skrýtið þegar veðurfarið er heitt, kalt, heitt, kalt til skiptis.

Erum við systur að bruna til Húsavíkur kl 7 í fyrramálið til að klára að þrífa á Garðarsbrautinni, pabbi reyndar búinn að eiginlega öllu eitthvað smotterí eftir bara, ætlum að vera komnar fyrir kl 12 aftur.

Mamma búin að skrifa undir kaup á sinni íbúð bara flott. Ætla að sækja lykla að geymslunni á morgun svo hægt verði að fara að týna í geymsluna hjá henni dót.

Svo er annað próf á föstudaginn næsta og svo styttist í verknámið mitt sem byrjar 19 maí, allt að gerast, Katla í aðlögun á Bubbakot þann 13 maí og byrjar síðan algerlega þann 19 maí og þá fer ég í verknám. Hlakka verulega til 15 júlí þegar ég verð búin með það allt saman. Fer þá aftur að vinna í heimahjúkrun og svo sumarfrí 11 ágúst til 25 ágúst, á svo lítið þetta árið en það er allt í lagi. Svo byrjar bara sama geðveikin, vinna, læra, heimili og það allt saman. 

Beest að hætta þessu og kúra fyrir framan sjónvarpið ekki leyft mér það undanfarin kvöld sökum prófalesturs. Er svo þreytt, þreytt og endalaust þreytt

Sjúlli kveður búinn á sál og líkama 


Dammdamm

Smá pása frá lærdómnum og ég strax komin í bloggið já maður verður nú að láta netheima vita hvað maður er að bralla. Búin að læra slurk í kvöld en enn er mikið eftir ójá. En ætla ekki að ræða það núna einu sinni.

Mikið að gera í vinnunni í morgun, sumir dagar eru á hvolfi og þá gleymir maður að taka með sér út af stöðinni lykla, lyf og slíkt sem gerir það að verkum að maður er seinni að öllu. Meira að segja tók með mér lykla heima frá einum MS sjúklingnum mínum jahérna.

Mamman mín er búin að kaupa sér íbúð, fólkið tók barasta tilboðinu hennar. Ofsalega falleg íbúð og ég hreinlega öfunda hana af henni og sérstaklega eldhúsinnréttingunni my gad hún er svo flott. En þetta er frábært, ætlum að reyna að ganga frá þessu í vikunni s.s. að skrifa undir og svona sjáum til hvernig heilsan hjá konunni verður.

Eyþór renndi upp í Mývatnssveit með Hågan til að leyfa honum að dýfa sér í jarðböðin, og ég hef s.s. séð hann samanlagt í dag í 10 mínútur ca og hitti hann svo bara í fyrramálið smá stund, já svona er að vera í hjónabandi, eitt jákvætt maður getur ekki fengið leið á hinum aðilanum eða hvað.

Helvíti slæm í hálsinum í dag, vöðvabólgan alveg að fara með mig, Pétur doktor lét mig hafa Ibufen til að reyna að ná þessu úr mér en það virðist ekki ætla að ganga hratt fyrir sig, er komin með svima og læti en þetta fer fyrir rest, geri æfingarnar mínar og svona og þá kemur þetta allt saman

Tók eitt próf í dag úr verklega hlutanum sem við vorum í fyrir sunnan, tók það á mettíma og fékk 8,5 gerði tvær ferlega klaufavillur og eitt hreinlega bara vissi ég ekki en er alveg sátt við þessa niðurstöðu. Var að flýta mér því Katla búin að vera ergileg í dag og bæði Eyþór og Brynja upptekin þannig að ég greip tímann þegar hún sofnaði en hún svaf barasta ekkert mjög lengi haha en þetta gekk samt.

Vinna á morgun og svo læra og læra og læra, maður gerir lítið annað en það, enda íbúðin mín að morkna úr skít og ég ætla að leyfa henni það svona allavega framyfir prófið á föstudag, er mun jákvæðari fyrir hinu held það verði nú alls ekki eins erfitt.

Best að halda aðeins áfram og leggja sig svo

Sjúlli kveður Bless 


Allt það besta bara

Kominn tími á smá röfl frá mér ehakki. Maður má nú ekki alveg gleyma því að röfla á milli þess sem maður reynir að moka einhverri visku í kollinn á sér. Búin að læra nokkuð um helgina, ekki nóg samt því maður lærir víst aldrei nóg. Reyni að læra þegar litla krílið mitt lullar eða dundar sér sem hún er sem betur fer að verða nokkuð dugleg við.

Vil titla mig sem einstæða móðir, því heimilisfaðirinn hefur varla sést hér undanfarnar vikur og kemur ekki til með að sjást fyrr en í næstu viku já eða þarnæstu eða bara seinna. Eru að klára í dag að taka upp plötuna og þá tekur bara eitthvað annað við. Já svona er þetta *pirr*

Hef lítið gert um helgina annað en að éta, læra, éta meira og þvo þvott. Frekar einhæft líf eitthvað, kíkti í kaffi til pabba í gær en hann svaf sína fyrstu nótt í nótt. Er í rólegheitunum að koma sér fyrir og verður bara virkilega huggulegt þarna hjá honum, enda íbúðin alveg ofsalega falleg og skemmtileg. Býr á 5 hæð í lyftublokk og er með gríðarlega fínt útsýni, ætla að láta hann taka frá fyrir mig stúkusæti í sólstofunni á gamlárskvöldLoL

Hef verið nokkuð dugleg við að hjóla undanfarið og fór ég með Kötlu í hjólatúr á fimmtudaginn og vildi ekki betur til en svo að stýrið litla sofnaði bara fyrir aftan mig, greinilega gott að sitja í hjólastólnum, þannig að við fórum bara heim að skoða blómin og grasið í garðinum:)

Enginn friður núna, stubburinn litli er með kaffiboð þannig að það er eins gott að henda sér í platkaffi og gerviköku.

Sjúlli kveður gervisvangur..... 


Skeit upp á bak allaleið

Hversu ömurleg er ég. uuuuuu mjög, Hågan vinur Eyþór frá Svíþjóð er hérna, hann er samt Finni sko. Er að koma að taka upp fyrir Hymnodiu, alveg vænsti drengur svona við fyrstu kynni. Ég tjáði honum strax að ég væri frekar léleg í ensku bara svona til að vara hann við. Jæja svo fór Eyþór á kirkjukórsæfingu og ég sat hérna hjá honum á meðan hann borðaði. Spyr vinurinn afhverju við höfum skírt Kötlu þessu nafni, því þetta nafn er víst þekkt í einhverri sögu eftir Astrid Lindgren. Jú ég svissa mér í enska gírinn, reyndi að tala með hreim (gekk ekki) og tjáði honum á minni snilldar ensku að Katla væri nú eldfjall hér á Íslandi, we choose the name Katla because we have a fire mountain here in Iceland WHAT.....gat ég ekki dritað út úr mér Volcano bara NEI

Að ég skuli ekki bara þegja eins og mér einni er lagið eða þannig.......ég fæ enn aulahroll eftir bakinu, spurning um að ég fari nú að draugast í enskuskóla.  Fólk skilur kannski núna afhverju ég verð alltaf pínu hrædd þegar Eyþór tjáir mér að það séu að koma erlendir vinir í heimsókn, altalað verður í hans erlenda vinahóp sem er ekki lítill að kellingin hans sé hundleiðing og dónaleg jahérna, enskuskóli verður það næst.

Að öðru eins og sést þá er ég að læra, en ákvað að rita hérna aðeins og vera auðvitað snögg að því. Var frekar léttur dagur í vinnnunni í dag og fékk að fara með Hillu systir hjúkku að skoða sár og það voru mjög sérkennileg sár, blöðrur sem myndast bara endalaust og verða svo að sárum, koma ný á hverjum degi, er víst eitthvað mjög sérstakt við þetta. En ég hef s.s. endalausan áhuga á sárum og hvernig best sé að græða þau. Búin að fá loforð um það frá yfirmanni mínum að ég fái ásamt einhverri hjúkku að fara á námskeið í sáraumbúnaði.....jibbí vonandi ekki fyrr en ég er samt búin með skólann.

Hvað meira tja held bara ekkert, fór aðeins eftir vinnu á andarpollinn en andarkvikindin vildu ekki brauðið mitt, hmmm orðnar kannski pjattaðar bara, var nú aðeins farið að slá í það en ég meina það samt, endaði með því að ég fór í fílu og henti því í ruslið, þær fá ekki brauð frá mér á næstunni. Skrapp svo aðeins til Hillu sys og síðan bara heim til þess eins að brillera í enskunni.

The Sjeil say goodbye 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband