Ásfangnir krummar á Sigurhæðum

Sko Ernu mína, duglega að blogga.  Ég náði mynd af þessum krummum út um gluggann á skrifstofunni minni, þeir voru búnir að vera að kela lengi en hættu því þegar ég mundaði vélina.PICT0322

Ofvirk, meðalvirk, eða bara virk:)

Suma daga kemur ekkert hér á síðuna en aðra daga er eins og annar eigandinn sé með munnræpu, en skýringin er bara sú að hún s.s. ég tala ekki nógu mikið við annað fólk þannig að þá fæ ég útrás hér, já eða eitthvaðGasp Eyþór er alltaf með svona skynsemisblogg og miklar pælingar í sínum bloggum svo kem ég bara eins og sauður í fjósi og bulla og finnst það gamanDevil

Það er nú samt ekki eins og það sé eitthvað nýtt að frétta héðan út Munkanum ónei ekki aldeilis, liðið sefur, borðar og ....... þetta sem allir verða að gera óg hefur það notalegt bara. Annars gátum við Brynja virkjað húsbóndann í jólakortagerð í gærkvöldi eftir að hann hafði verið að láta kórfólkið sitt kyrja einhverja sálma. Virkilega skemmtileg og skondin afhöfn en gaman og honum tókst að gera mjög fallegt kort en á samt enn eftir að fullklára það svo duglegur þessi elskaInLove Ekki oft sem við getum sest öll niður svona saman og gert eitthvað. Svo ætlum við systur að fara að baka saman um helgina blúndur sem eru eðalkökur sem settur er rjómi inn í og súkkulaði ofaná og í frysti *slurp* ógeðslega gott. Ómissandi þegar maður vill viðhalda lærapokum og bumbuW00t

Fékk holter tækið á mig áðan er s.s. svona hjartasíriti sem skráir hvernig hjartað á mér hagar sér í þennan tiltekna sólarhring, er með hann lafandi utaná mér í lítilli tösku og fékk nottlega 2 sinnum hjartsláttarkast þegar verið var að setja hann á mig hahaWoundering

Bóner saltkjötið brann í gær hreinlega steiktist í helvítis pottinum, fór nefnilega að hlýða Brynju yfir fyrir próf og steingleymdi kjötinu, Eyþór reddaði því og kom með kjötbúðing til að lýðurinn myndi nú ekki svelta...dagurinn í gær var svona frekar mislukkaður í hnotskurn, ætlaði að baka pönnsur en deigið var ónýtt (eins flókið og það á nú að vera haha), missti smjörlíki á gólfið og tókst að dreifa því um allt gólf þannig að hægt var að skauta á eldhúsgólfinu mínu.... og fleira í þessum dúr, enda um kvöldmatarleytið var orðið frekar hættulegt að nálgast mig vegna skapvonskuDevil

Svona er nú lífið ekki alltaf dans á rósum. Svo mæðraskoðun í fyrramálið þar sem Marteinn mun eflaust stíga dans og tralla magnaður krakki eins og ég hef reyndar komið að áðurCool Verður eins og pabbinn mikill dansmaður.... já eða þannig, ætluðum hjónin að skrá okkur á dansnámskeið nú í haust en látum það bíða betri tíma þar sem við myndum engan veginn ná saman LoL

Jeddúda ætla að hætta að röfla ja allavega hér, hafið það sem allra best í allan dag gott fólk og KVITTIÐAlien

Sjúlli kveður með gleði í hjarta og mikið stuðHeart


Fallegt:)

Svo fallegt úti, mokar niður snjó og kominn alveg ótrúlega mikill snjór en það er eiginlega logn og bara fallegt veður, tek það fram að ég hef ekkert farið út í dag ekki ennþá og efast um að ég fari að glennast eitthvað núnaJoyful 

Eyþór kom heim í morgun úr borginni eftir að hafa verið þar veðurtepptur í eina nótt, bara gaman að því held ég, kíkti á vini og vandamenn ekki oft sem það geristGasp Ég hef ekki farið suður síðan barasta ég veit ekki hvenær, eða bara farið yfirleitt eitthvað hef ekki farið á Húsavík eða Búðardal síðan á síðustu öld eða eitthvað, ýki kannski aðeins en er samt óhugnarlega nálægt því.

Fékk loksins hringingu frá Hlíð á að byrja 21. nóv var nýbúin að lofa að vinna nokkrar vaktir í heimahjúkrun en verð að afboða mig á þær leiðinlegt.... þoli ekki að þurfa að bakka með eitthvað sem ég hef lofað en þar sem þær í heimahjúkrun geta ekki boðið mér fastráðningu þá verður þetta bara að vera svona.

Eins var hringt frá FSA og ég fæ Holter á morgun og verð með í einn sólarhring til að skoða þetta blessaða hjarta mitt sem lætur eins og asni og svo fer ég á mánudaginn í ómskoðun, ágætt að gera þetta þá kemur bara í ljós að allt er í lagi og manni getur liðið betur með það.

Eyþór er búinn að vera að vinna síðan hann kom heim úr borginni rétt skaust heim í mat í hádeginu en kemur svo aðeins í mat og svo er kóræfing, nóg að gera og minnkar sko ekki á komandi mánuði.

Brynja var í prófi í dag samfélagsfræði en átti líka að vera í dönsku sem að hennar áliti er mál djöfulsins og hundleiðinlegt fag en það frestaðist, er búin að vera í nokkrum prófum núna og árangurinn alltaf eins fékk 10 í stærðfræði um daginn og það er sko EKKI frá mér komið og reyndar ekki pabba hennar heldur, gengur bara svo vel sem betur ferInLove Svo um helgina er hún að fara í æfingabúðir á Skagann með fótboltanum og er ekki lítið spennt yfir því skiljanlega, ekkert skemmtilegra en að spila fótbolta heila helgiLoL

Vaknaði kl. 4 í nótt við annaðhvort hausverk eða það að Marteinn var á trampólíni eða einhverju slíku allavega var gleðin slík í minni bumbu að ég gat ekki sofnað aftur fyrr en um 6 leytið, þessi kútur ætlar greinilega að vera í formi þegar hann hendist út, verður svona minnkuð mynd af íþróttaálfinum....Whistling

Bíð spennt eftir svari um skólann en umsóknarfrestur rennur ekki út fyrr en á morgun þannig að ég fæ líklega ekkert að vita fyrr en í des, en vonandi kemst ég inn.

Jæja ætla að hætta þessu bulli og fara að kíkja í pottana er nebbilega að sjóða saltað hrossakjöt úr BónerDevil

Sjúlli kveður bless

 


Snjókorn falla á allt og alla tralallalal

Já nú er sko orðið virkilega jólalegt á henni Akureyri þó fyrr hefði verið, vona að þessi snjór virki hvetjandi fyrir þá sem eiga seríur og slíkt dóterí í geymslunni hjá sér og þeir fari nú að grýta þessu uppW00t Dýrka jólin..... Er ekki eins og margir röflandi yfir því hversu snemma búðirnar fari nú að bjóða upp á jólavöruna og blala eins og það sé ekki bara allt í lagiog hana nú.

Brölti með Eyþór í hinni yndislegu snjókomu í flug í morgun og skellti mér svo í morgunkaffi hjá Hillu og kúr hjá Brynhildli minni Sól, alltaf jafn gott að knúsa þetta litla dýrInLove Síðan bröltum við systur af stað í bæjarferð til að ná okkur í föndurvörur, minns er nefnilega enn á fullu í jólakortunum og er alltaf að fá nýjar og fleiri hugmyndir að kortum haha , þannig að þetta fara að verða nokkuð margar útfærslur bara gaman að þvíWizard

Setti upp fyrsta jólaljósið okkar í gær í eldhúsið ekkert mjög jólalegt bara rauð kúla en við hér á Munkanum lítum ekki við jólaljósum nema þau séu marglit okkur finnst það eiginlega vera eini sanni jólaandinn þar sem hinir litirnir eru eiginlega allt árið um kring í gluggum landsmannaTounge

Ætlum að smella okkur í laufabrauðsgerð fljótlega, eitthvert kvöldið í miðri viku bara alltaf stemming í því, síðan byrjar maður fljótlega að baka og svona...jájá allt að koma, búin að snæða nokkra kassa af konfekti ójá aldrei verið eins ofvirk í konfektinu, var búin að kaupa svona eðalmolakassa frá Nóa og ætlaði að gefa í jólagjöf en hann er nú kominn niður í bumbu til Marteins hihiLoLmeiriparturinn allavega.

Brynja og Eyþór voru svo góð í sér og gáfu mér gjafabréf í Centro í afmælisgjöf þar sem þau voru orðin frekar þreytt á hjalinu í mér um að ég ætti engin föt, fékk svona fína 2 buxnakjóla þar, svo gáfu þau mér líka heilsukodda og það fylgdi með honum konfektkassi ójájá og svo gáfu þau mér geisladiskinn hans Bubba ójá hann hefur ekki farið úr tækinu síðan alltsvo er þetta 06.06.06 diskurinn hans, bara góður, flottasti maður sem ég veit um fyrir utan manninn minn er jú Bubbi og Eyþór lifir vel með því þar sem hann er alltaf að gefa mér diska með honumGrin

Jæja ætla að fara að fá mér jólaöl, nóakonfekt, kveikja á kerti, kveikja á jóladisk, og búa til jólakort

Sjúlli kveður með konfekt í öllum götumSick


Erna á afmæli

Erna bjútí

Elskuleg eiginkona mín, móðir og stjúpmóðir, Erna Hauksdóttir frá Framnesi í Kelduhverfi, síðar til heimilis á Húsavík er 34 ára í dag.

Tekið verður við gjöfum af því tilefni í dag að heimili hennar að Munkaþverárstræti 1.

Blóm og kransar afþakkaðir

Eyþór, Brynja Dögg og Rakel Ýr


Hasar á Húsó

Já glæpirnir gerast allsstaðar og líka á Húsavík, ótrúlegt hvað fólk getur verið brenglað í kollinum en tek nú samt fram að árásarmaðurinn er Raufarhafnarbúi ekki Húsvíkingur vildi bara taka það fram, þokkalega bilaður náungi skal ég segja ykkur. Devil

Vorum í sónar í morgun við hjónin og Marteinn alveg heill að sjá og þrælsprækur, sparkaði um allt og lét öllum illum látum, snemma byrja gestastælarnir. Fengum svo mynd af honum í stellingu "hugsuðarins" spekingur eins og pabbinn. En ég á að fara til hjartalæknis í ómskoðun af hjarta þar sem ég er alltaf með einhvern hraðslátt þannig að ég verð kölluð í það á næstunni annars bara allt í gúddí fíling.

Brynja fór á krókinn í morgun til pabba síns þar sem það er frí í skólanum og kemur aftur seinnipartinn á morgun. Annars hélt hún hérna upp á afmælið sitt á laugardagskvöldið og voru hér 14 unglingar sem var bara gaman, sérstaklega gaman að fylgjast með strákunum sem voru bara 4 og höfðu athygli allra stelpnanna, auk þess sem það var horft á hryllingsmynd sem krafðist þess að stelpurnar hreinlega köstuðu sér í fang strákanna, haha bara fyndiðInLove

Drullaðist í að byrja að gera jólakortin, ætla nú að hafa þau einföld í ár, ekkert stórkostlegt föndur en get samt ekki hugsað mér annað en að gera þau sjálf, stemmari í því, Eyþór ætlar svo að skrifa á þau en hann er nú að vísu heilt kvöld að skrifa á eitt þannig að það er eins gott að hefjast handaKissing

Hef nákvæmlega ekkert að segja ætla að henda mér í heitt bað og slaka á með kertaljós og tónlist...

Hafið það sem allra best og verið góð hvert við annað....

Sjúlli kveður í jólaskapi


Jólin........

Ótrúlegt hvað mánuðirnir líða hratt, þa styttist alveg skuggalega mikið í jólin sem er auðvitað bara gaman þar sem maður er nú eiginlega hálfgerður jólasveinn í dulargerviWizard

Er eins og litlu börnin þegar kemur að jólunum, hristi pakka og læt eins og ég sé 5 ára......finnst líka hrikalega gaman að búa til jólakortin og baka smákökurnar og svoleiðis dund...fór í gær og keypti mér jólakortaefni og verður farið í það svona á næstunni að byrja að gera eitthvað varðandi þau.

Skelltum okkur familian í bíó í gærkvöldi á Mýrina og þvílík og önnur eins mynd, mér fannst hún svo góð að ég gæti vel hugsað mér að fara aftur, Ingvar S er nottlega bara snillingur sem Erlendur og eins sá sem leikur Sigurð Óla mæli eindregið með þessari mynd, Eyþór varð held ég fyrir smá vonbrigðum var búinn að gera sér svo miklar væntingar eins og hann sagði en honum fannst hún samt góðTounge

Er á fullu þessa dagana að sækja um skólavist þar sem ég ákvað skyndilega að fara í skóla eftir áramót þ.e.a.s. ef ég kemst inn, en þetta er framhaldsnám sjúkraliða sem er að byrja í fjarnámi í janúar en það komast ekki nema einhverjir nokkrir inn skylst mér og fer allt eftir einkunnum og meðmælum og slíku svo nú krossa ég fingur. Er búin að redda öllum pappírum nema Dísa er að skrifa meðmælabréf handa mér sem ég sæki eftir helgi og þá er allt tilbúið. Verður kannski smá strembið eftir áramót að vera í 50% vinnu, ólétt og eiga og í skóla en ég gerði þetta þegar ég var með Brynju þannig að ég er í æfingunni, verst að ég þarf líklega að vera í verknámi í sumar og ég sem ætlaði að vera í fríi en það kemur í ljós, held að ef ég fari ekki núna þá fari ég aldrei, Eyþór klárar sitt í vor þannig að næst er það kjellan.Devil

Jæja ætla að fara að hendast og sækja saumavélina til hennar systir minnar og fara að draugast við að sauma gardínur fyrir stofuna, maður verður vitlaus af að hanga bara og gera ekkert, búin að vísu að gera helling í morgun en margt enn eftir. Fer að vinna eftir hádegi á morgun redda sjúkraliðum sem ætla á eitthvað námskeið en það er nú ekki nema að baða tvær vinkonur mínar og kíkja í létt spjall til eins kalls þannig létt og laggottShocking

Hætt að bulla og er rokin

Sjúlli kveður alveg að fara á límingunum

 


Dagur að kvöldi kominn

ójá hversu frumlegur getur maður nú verið og ofvirkur í blogginu svo ekki sé meira sagt. Dagurinn liðið hratt, Eyþór búinn að vera að vinna og rétt skaust heim í 2 tíma og er svo farinn aftur.
Hlakka til að fara að vinna fast eins og allir, er yfirleitt búin að öllu um 10 á morgnana af því sem ég ætla að gera og svo líður dagurinn við að leita sér að einhverju að gera fyrir utan að sauma gardínur hóst..........

Fékk s.s. vinnuna 50% á Hlíð og byrja um miðjan , vinn frá 8-12 og aðra hverja helgi, valdi að vinna jólin núna þar sem Eyþór er að vinna þá líka en verðum bæði í fríi um áramótin og  Brynja heima. Rakel sefur fram að hádegi um jólin þannig að hún verður bara við það að vakna þegar ég kem úr vinnunni, sem er bara gottKoss

Bakaði eðal súkkulaðiköku í dag sem við Brynja skófluðum í okkur þegar hún kom heim úr skólanum, afmælisgjafirnar eru enn að streyma til hennar og fékk hún í dag gjöf frá pabba sínum og fjölskyldu en það var óskadraumurinn Man. united búningurinn, tóm gleði yfir þvíHissa

Best að við mæðgur förum að næra okkur og Martein auðvitað er að búa til refafóður sem er alveg eðalgóður heitur réttur:)

 Sjúlli kveður glaður með nýju vinnuna


Það er kominn mánudagur!!!!!!!!!!!11

Maður varla fattar orðið hvaða dagur er þar sem allir dagar renna einhvern veginn í eitt eða hafa allavega gert hér á þessu heimili síðustu daga. Pest eftir pest búin að stinga sér niður hér hjá okkur og einnig nærliggjandi heimili, hlýtur að fara að taka enda. Eyþór fór í vinnuna núna í morgun með snýtuklúta í öllum vösum og ég ligg hér upp í sófa kolstífluð, lýsið var svolgrað í morgun þannig að þetta er að verða búiðÖskrandi

Var hringt í mig af Öldrunarheimilinu Hlíð á föstudaginn og mér boðin vinna, átti að vísu umsókn þar og búin að eiga lengi en bjóst alls ekki við að fá neitt þar. Á að koma í viðtal á eftir, hef ekkert fast í heimahjúkrun nema svona tímavinnu sem er að vísu alveg fínt en á meðan ég get unnið þá vil ég vinna, væri fínt að fara í 60% vinnu svona fram að fæðingu en sé til fæ kannski ekkert svo það er best að gera sér engar vonir.

Héldum smá kaffiboð í tilefni þess að Bimban okkar varð 13 ára, flestir voru nú samt veikir en hraustleikatröllin á Húsavík s.s. Elín og co komu brunandi...Mási bró var að fara að skella sér á árshátíð hjá sjúkrahúsinu með kjellunni sinni efast ekki um að það hafi verið alveg brill, skemmti mér alltaf konunglega á þeim samkomumKoss Hildur kom líka með sína litlu púka og mömmu en þetta var fínt. Brynja fór svo og gisti hjá vinkonu sinni og kom ekki heim fyrr en seint í gær...nennir ekkert að hanga yfir gamla settinu og allra síst þegar þau eru eins og síðustu daga.

Annars er allt bara við það sama svona eiginlega. Veðrið hérna er rosalega fínt, allt orðið autt aftur en það stendur nú ábyggilega ekki lengi, á að kólna og hlýna og kólna, ekki skrýtið þó landinn fyllist af hori.

Marteinn er farinn að láta finna fyrir sér, virðist ætla að verða kraftmikill krakki miðað við kikkin sem hann gefur manni undir naflann, flottastur. Eyþór dundaði sér við að mæla á okkur bumburnar, ég hafði vinninginn og hann var glaður, það hefur líka aldrei skeð áður að hann sé með minni en ég...stendur ekki lengi er á meðan erSaklaus

Enn ekki búin að sauma gardínur fyrir stofuna, efnið liggur í poka inni í skáp orðið 2 mánaða gamalt, vorum að vísu bara að fá stangirnar fyrir gluggana en hefði alveg getað verið búin að rimpa þeim saman. Ætlaði líka að vera byrjuð á að gera jólakortin, var byrjuð um þetta leyti í fyrra en ekkert byrjuð heldur að gera í þeim efnum núna, lýsir best letinni sem er í gangi hér.

Best að fara að týna á sig einhver tjöld ef maður ætlar að fara upp á Hlíð og kanna vinnuaðstæður, fengi að vinna í nýja rýminu sem er verið að opna á morgun jibbí, allt glænýtt og flott vinnuaðstaða eftir því sem maður hefur heyrt.  Hætt að bulla les þetta enginn hvort sem er en samt gott að geta röflað svona á prenti, líður alltaf eitthvað vel á eftir þegar ég er búin að bulla.

Hafið það gott lömbin mín og já það verða sko etnar rjúpur um jólin engin spurning.......

Sjúlli kveður á leið í larfana


Sjónvarpsgláp og starfsheiti

Ég er sjónvarpsfíkill

Undanfarna daga hef ég algerlegta sökkt mér í sjónvarpsgláp.  Búinn að vera lasinn og ég fann mér því miður ekkert uppbyggilegra að gera en að glápa á sjónvarpið.  Hef horft mikið á Discovery rásirnar allar saman, BBC Prime, Norrænu stöðvarnar og íþróttir.  Það er auðvelt að festast yfir þessu enda oft gott efni í sjónvarpinu, sérstaklega á discovery stöðunum.  Núna, þegar ég er orðinn nokkuð hress af pestinni, langar mig ógurlega til að halda áfram að glápa á sjónvarpið.  En ég ætla að gera eitthvað uppbyggilegra í staðinn.  Byrjaði strax í morgun þegar ég sat á klósettinu með kaffibollann.  Fór þá að spila tölvuleik í símanum (þegar ég var búinn að spjalla við Óskar P í símanum).  Núna er ég fyrir framan tölvuna og blogga og á eftir ætla ég kannski að setjast niður með fartölvuna og halda áfram að semja kennsluefni í orgelfræðum.  Er þetta ekki framför frá sjónvarpsglápinu??

En í öllu sjónvarpsglápinu fór ég að hugsa um öll þau starfsheiti sem til eru.  Ég horfði á hinn ágæta spurningaþátt "the weakest link" á BBC og ég áttaði mig á því að ég skildi ekki nema brot af öllum þessu fínu starfsheitum sem fólkið hafði.  Þetta er komið hingað til lands, þ.e. að búa til fín nöfn yfir allt.  Einhver þátttakandi í íslenskum þætti var dælitæknir. Ég efast stórlega um að íslenskufræðingar geti samþykkt þetta starfsheiti.  Sjarmör þessi vann við að dæla skít úr skólplögnum.  Sem sagt dælitæknir.  Ekki dælumaður, dælustjóri, skítsuga, heldur dælitæknir.  Ég er alls ekki að gera lítið úr starfi mannsins heldur starfsheitinu.  Sum starfsheiti eru lögvernduð og er það gott.  Ég er feginn að ég get ekki skráð mig á skyndihjálparnámskeið og kallað mig lækni eða hjúkrunarfræðing á eftir.  Ég þekkti einu sinni par sem voru skráð í símaskrá málari og leikskólakennari.  Hvorugt þeirra hafði neitt lært í þeim fögum sem þau þóttust vinna við.  Hann var vissulega handlangari hjá málara og hún vann á leikskóla, en þau gátu samt skráð sig með þessi lögvernduðu starfsheiti í símaskrána.  Ég er organisti.  Er stoltur af því og ég er í raun nokkuð ánægður með að allir þeir sem sinna því starfi innan kirkjunnar séu kallaðir sama nafni, óháð menntun.  Ég hef 7 ára háskólanám í þeirri grein á meðan aðrir hafa kannski ekkert nám en mikla hæfileika í tónlist.  Mér dettur ekki í hug að fara fram á að þeir hafi einhvern annan titil en ég.  Öðru máli gegnir um starf Ernu minnar, hún er sjúkraliði og það þýðir að hún hefur ákveðna menntun að baki til að sinna fólki og vinna inni á heilbrigðisstofnunum.  Þótt sumar heilbrigðisstofnanir ráði ófaglærða og láti þá ganga í lögvernduð störf sjúkraliða, þá vil ég geta treyst því að faglært fólk sinni mér þegar ég ligg inni á sjúkrahúsi.  A.m.k í hjúkrunarstörfunum.  Því miður er það nokkuð algengt að fólk sem aldrei hefur unnið við umönnun er að sinna sjúklingum með afar alvarlega og erfiða sjúkdóma hér í bænum.  Sjúkdóma sem krefjast þekkingar á, til að geta sinnt sjúklingum.  Aðstandendur hafa ekkert um málið að segja, jafnvel þótt slæm mistök í meðhöndlun hafi átt sér stað.  Ég ætla ekki að hætta mér meira út í þessa sálma. 

Eyþór


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband