21.10.2007 | 10:29
hvaða hvaða
Sit hérna eins og teiknimyndafígúran Tommi (Tommi og Jenni) með tannstöngla til að halda uppi augnlokunum og reyni að svara gátlistanum í Lollinu. Katla svaf kannski 2 tíma í nótt og ástæðan jú foreldrarnir áttu að prófa að minnka bakflæðislyfið Losec mups til að kanna hvort bakflæðið væri á undanhaldi en nei nei held að það sé komið í ljós að svo er ekki og lyfið fékk hún aftur í morgun DAMN. En sefur eins og engill núna þrátt fyrir mjög mikla riginingu. Sefur kannski þess vegna svona vel tja maður spyr sig.
Var dálítið dugleg í gærkvöldi byrjaði á gátlistanum og svo núna er ég að hringla eitthvað í honum aðallega bara horfa á hann, skil minna en finnst ég eitthvað svo dugleg að sitja hér við bækurnar þrátt fyrir að gera eitthvað lítið haha, get svo montað mig já ég lærði í allan morgun ahhahahaha right
Katla vöknuð og ég líka
Sjúlli kveður
18.10.2007 | 17:03
Dugnaður:)
Er nokkuð ánægð með mig í dag. Var langt fram á kvöld í gær að gera UTN og sendi ég s.s. vefsíðuna sem ég var löngu búin með og svo gerði ég tvö verkefni í Excel og byrjaði á því þriðja en þá var ég bara orðin svo þreytt að ég varð að fara að sofa. Svo í morgun var andinn verulega yfir mér og ég las allt LOlið og prófaði svo að nýta mér minnisaðferðir úr Sálfræðinni sem byggjast upp á að búa til teningar yfir í efnið á sem litríkasta máta og ég skal nú bara segja ykkur að sá hluti sem ég gerði þannig man ég mjög vel en þetta tekur smá langan tíma. Ég er nefnilega ferleg með að muna og verð einmitt til að skilja hlutina að geta tengt en þetta er mjög mögnuð leið Sé fram á að geta klórað mig í gegnum Lolið jája um að gera að vera bjartsýnn.
Helga mágkona mín er hérna hjá okkur og ætlar að vera fram yfir helgi gaman að því, ætlar að rifja upp takta í stúlknakórnum hjá bróður sínum og skella sér á eins og eina kóræfingu í dag. Við Katla brenndum í Nettó að sækja okkur eitthvað að snæða og svo höfum við eiginlega bara verið að spjalla og slást í morgun. Smá ergelsi í gellunni en ekkert sem er alvarlegt tönnsla nr. 2 að brjótast upp.
Var rosa dugleg í gær og hljóp 3,5 km verð að viðurkenna að ég var nær dauða en lífi en rosalega hressandi, ætla að hlaupa í dag líka þegar Brynjan mín kemur heim úr skólanum engin æfing hjá henni í dag þannig að hún passar krúttlið sitt. Annars er hún þessa dagana að selja eins og 12 kg af lakkrís eru reyndar ekki nema 7 eftir og það án þess að hún hafi gengið í hús mjög auðseljanlegt og voru meira að segja pantanir inni ef hún færi að selja svona lakkrís aftur. 1000 kr 1 kg alveg gefið. Og mjög góður ójá var með magaverki í fyrra af þessu en ekkert núna enda nammidagur ekki fyrr en á laugardag maður er nefnilega svo gríðarlega stapíll.
Ætla að halda áfram að setja Lol í minnið og það alla leið í langtímaminnið
Sjúlli kveður mjög minnugur
16.10.2007 | 22:36
Einn fyrir svefninn
Íri var á bar og sat að sumbli. Þegar hann var búinn að fá nóg og ætlaði að standa upp af barstólnum datt hann framfyrir sig og beint á smettið. Hann reyndi að standa upp en datt bara aftur.
Þá skreið hann út að hurð. Þar reyndi hann að standa upp, en aftur datt hann. Hann skreið út og ákvað að skríða þess 600 metra sem voru heim til hans. Þar reyndi hann enn að standa upp og enn sama sagan hann datt.
Hann skreið upp stigana og svo inn í hjónaherbergi þar sem hann datt beint á andlitið í hjónarúmið og sofnaði.
Morguninn eftir vaknaði hann við að konan hans öskraði: Ómar varstu á fylleríi eina ferðina enn. "Já sagði hann"
Þeir voru að hringja af barnum, þú gleymdir hjólastólnum eina ferðina enn....
Sjúlli kveður í stuði...
16.10.2007 | 13:36
Gulrót Hvítkálsdóttir:)
Hef aldrei á minni stuttu æævi (er svo ofsalega ung) étið eins mikið af grænmeti og síðustu tvær vikurnar reyndar minnkaði grænmetið þessa vikuna og hafði hjúts nammidag en samt fauk 1.4 kg tja tja maður bara skilur þetta ekki. Reyndar hef ég verið að hlaupa dálítið en ég hef tekið 20 mín suma morgna og svo aftur 20 mín seinniparta, fæ stundum svona þörf og bara verð að hreyfa mig og það rösklega. En nóg um það samtals 2.8 kg farin og það er gott. Vonandi fara hin hægt og sígandi líka.
Kalt hér á Akureyri í dag, var snjókoma og ógisslega kalt í morgun en hefur nú aðeins ræst úr þessu og er nokkuð bjart veður en kalt engu að síður. Ætla að fara að fjárfesta í úlpum við tækifæri, Brynja á eftir að velja sér sína en við ætlum að gefa henni hana í afmælisgjöf, förum í Sportver við tækifæri verður að eiga úlpu stelpan, keypti sér reyndar sjálf úlpu í fyrra en hún fílaði hana svo aldrei þannig að ég ætla að reyna að selja hana, kostaði 24 þús en var á 50% afslætti þannig að hún fékk hana á 12 þús og hefur aldrei notað hana jahérna þessir unglingar
Bauð mömmu í mat í hádeginu á morgun ætla að gefa henni eðal DDV mat grænmetisbuff og eftirréttinn sem ég gaf upp hér í síðustu færslu. Snilldar matur.
Við mægður kveiktum upp í kamínunni í morgun og höfðum það huggulegt og góndum á söngvaborg og sungum og slógumst, Katla er að verða dálítill fantur en ætlar sér að vera góð kemur voða fallegt hljóð úr hennar munni en svo fylgir hártog með átjs ekki gott en ótrúlega fyndið. Tönnslan hennar er komin vel upp og er hún farin að geta bitið frá sér með henni, pabbi hennar tróð putta upp í hana áðan til að tékka á þessu og hún beit hann múhahahahha honum er nær, organistanum að vera að hætta fingrunum á sér.
Var rosalega dugleg í morgun og kláraði sálfræðiverkefnið er núna að dunda mér við að glósa aðeins úr köflunum sem það var úr eða kaflanum réttara sagt. Mikið að læra. Drullaði á mig í prófi sem ég tók í síðustu viku fékk mjög lélega einkunn ætla ekki einu sinni að flagga henni hér en hún var léleg. En hvað um það ég veit allavega hvað ég kann og hvað ekki.
Best að fara að læra nóg af því framundan
Sjúlli kveður verður bráðum sjúkraliðafræðingur ehakki.......
13.10.2007 | 19:53
Hér sé stuð...
Laugardagskvöld og ég sit hér alein og yfirgefin, krílið sofnað, Brynja á Króknum og kallinn í Mývatnssveit að spila með Skara Pé. Ekki það að mér leiðist neitt alls ekki neitt langt í frá. Hef það huggulegt með kaffibolla, kertaljós, horfi á fréttirnar svona með öðru auganum og spá í hvort ég eigi að rjúka í sálfræðina. Er aðeins byrjuð að lesa í henni, sálinn nágranni minn kom svo í kaffi í morgun klikkaði alveg á að fá aðstoð haha frá honum hefði hreinlega átt að biðja hann um að fara með verkefnið og koma með það á morgun
Búin með vefsíðuverkefnið í UTN var mjög einfalt fannst mér. En ég á nú eftir að æfa mig oftar á að gera það allavega lesa það betur, maður lærir ekki alveg allt með því að gera hlutina bara einu sinni neinie.
Var nammidagur hjá mér í dag og ég komst að því að ég elska enn súkkulaðiekki að ég byggist við öðru. Á mjög erfitt með að borða allt sem ég á að borða ældi næstum i gær af ofáti og liggur við að mig kvíði fyrir hverri máltíð ætla aðeins að breyta þessu en hafa DDV kúrinn að leiðarljósi, get ekki étið svona mikið. Er að byrja að hreyfa mig helst 5 x í viku. Hlaupa, boxa og jafnvel einhverja tíma á eftir að kanna það mál. Jájá svona er það nú.
Höfum lítið gert í dag ég er búin að vera alveg hundkvefuð og með hausverk þannig að við höfum bara verið heima í rólegheitum, þrifum lauslega hérna og lágum svo bara á meltunni.
Snilldaruppskrift hérna svona í lokin mjög góður eftirréttur
2 dl létt AB mjólk, 10 gr hreint kakó (t.d Sollu kakó), sætuefni fljótandi, 10 dr piparmyntubragðefni, 4 dr vanillubragðefni. Hrært allt saman. 150 gr jarðarber brytjuð niður og ein pera og sósunni hellt yfir. *slurp*
Sjúlli kveður saddur og tja eiginlega bara bumbult:)
13.10.2007 | 13:14
Einn helgarbrandari:)
Snarvitlaust maður með nýsteikt lambalæri í hendinni vindur sér inní Nóatúnsverslun og beint að kjötborðinu og segir við unga afgreiðslumanninn.
ÉG VAR AÐ STEIKJA ÞETTA LÆRI SEM ÉG KEYPTI HÉR Í DAG OG ÞAÐ VARÐ EKKI AÐ NEINU. ÉG ER MEÐ MATARBOÐ OG ÞETTA DUGAR ALLS EKKI. (ÞRUMAÐI HANN ÚT ÚR SÉR)
Afgreiðslumaðurinn ungi horfir skelkaður á þann reiða og sagði svo:
Jaá veistu hvað?!! Ég keypti mér lopapeysu um daginn, svo varð hún skítug og ég henti henni í þvottavél og síðan í þurrkara og hún bara hvarf!!!!!!
.....bætti svo við. Hedurðu að þetta geti verið af sömu rollunni?????!!!!!::::))))))))
Sjúlli kveður með aulahúmor að vopni
12.10.2007 | 10:41
Haus fullur af hori...er ekki lífið yndislegt:O
Ótrúlegt, ég sem kom hér með yfirlýsingu um daginn að ég væri svo eitruð að kvefið vildi bara ekki nálgast mig hefur greinilega ekki verið rétt.Ég er gersamlega stútfull af kvefi að það er eiginlega bara grátlegt. Þoli ekki kvef því þegar ég verð kvefuð sest það að í hausnum á mér og andliti og bara er þar óþolandi. En svona er lífið bara og ekkert við því að gera
Fórum og dekkuðum salinn í gær og vorum snögg að, hljóp svo heim með vagninn þegar kl vantaði korter í 7 því ég ætlaði að vera mætt aftur kl hálf átta til að selja inn. Skutlaði Kötlu í náttföt og gaf henni að borða á meðan ég eldaði mér fisk í ofninum og grænmeti. Skutlaði mér í föt þarna inn á milli, gaf litlu brjóst og sótti mömmu og þá var nú kominn alveg hellingur af fólki. En sonur Óskars og Jónína voru komin í miðasöluna þannig að þetta var allt undir control.
Fullur salur og mjög gaman, þeir félagar fóru á kostum og var þetta ofsalega gaman :) Óskar söng uppáhaldslagið mitt í restina sem Eyþór tileinkaði konunni sinn (mér::) og litlu dótturinni (sem finnst þetta mjög skemmtilegt lag) en það heitir Vertu hljóð og er vögguljóð. Reyndar orðaði Eyþór það þannig að það mátti skilja það sem svo að ég ætti að vera hljóð...haha klaufalegt en fyndið Óskar Pé átti stórgóða setningu en Sr. Óskar Hafsteinn var með svona speki inn á milli laga um ástina og söknuðinn og svo var Óskar Pé að kalla hann upp og sagði að svo heppilega vildi til að umboðsmaður þorpsins þarna uppi væri staddur hér......
hélt að salurinn myndi springa. S.s. frábær kvöldstund. Var komin heim rétt fyrir 10 og þá var mín stutta bara vakandi og vildi sko ekki fara að sofa en um leið og hún sá mömmuna lá við að augun lokuðust:)
Fallegur dagur í dag, 12 stiga hiti og sól. Sveiflast mjög mikið hitastigið hérna þessa dagana. Brynja fór á hjóli í skólann þar sem það er einhver hjóladagur, var nú ekkert mjög kát með það því hún þarf yfirleitt alltaf að vera með tvær frekar þungar töskur en lét sig hafa það. Hún er svo að fara á Krókinn á laugardaginn á að vísu eftir að ná í pabba sinn en svona stefnir á það allavega og koma aftur á sunnudagskvöldið. Ekkert hitt þau síðan þau voru á Spáni þannig að það er kominn tími til, saknar systkina sinna mikið sem er eðlilegt og líka bara allra hinna á Króknum:)
Best að fara að lesa eitthvað í sálfræðinni áður en stubbur vaknar
Sjúlli kveður í bili
11.10.2007 | 16:25
Hvað getur maður sagt
Jahérna meiri dagurinn hjá mér. Suma daga vildi ég að ég hefði bara verið í rúminu. En s.s. ég ákvað að fara og versla fyrir tónleikana hjá Óskari Pé og Eyþóri í kvöld, rauk í Bónus og fjárfesti í 8 kg af Machintosh og 3 kg af Nóa Síríus og ég hef aldrei keypt svona mikið nammi í einu og það sem meira er að ég má EKKI fá mér bita jahérna. En það var nú ekki aðalmálið. Á meðan biðu systur sætar og góðar úti í bíl svo þegar ég kom heldur montin með allt nammið þá startaði ekki bílfreturinn.
Eins og þeir sem vita sem þekkja mig er ég ekki sú þolinmóðasta né rólegasta þegar svona skeður, en Brynja var að verða of sein þangað sem hún var að fara þannig að hún hljóp en ég hringdi í kallinn minn fokvond eins og þetta væri bara allt honum að kenna Hann hringdi fyrir brjáluðu konuna í Óskar Pé sem kom kjellu til bjargar og keyrði hana heim. Einhver helvítis Altenator ónýtur og ekki ódýr viðgerð skýt á 100 þús svona ALLAVEGA.
En Óskar var varla búinn að henda mér út þegar hann kom með bíl til að lána mér hann á nefnilega 3 bíla og ég fékk bara einn og svo fór hann í að bruna með bílinn á verkstæði eins gott að þekkja bifvélavirkja:)
Við Katla ætlum svo að rölta okkur fljótlega niður í Safnaðarheimili og hjálpa Jónínu hans Óskars að raða á borð og svoleiðis og svo tónleikar kl 8 húrra fyrir því
Sjúlli kveður alveg ónýtur
10.10.2007 | 09:59
Gott að eiga góða að:)
Vinur minn sem ég sinnti í heimahjúkrun er duglegur að senda mér tölvupóst með allskyns vitleysu, hann sendi mér þetta áðan og ég bara verð að miðla þessu til ykkar:::)
Hann sagði.....ÉG skil ekki afhverju þú ert í brjóstahaldara það er ekkert til að halda.
Hún svarar......ÞÚ ert í nærbuxum er það ekki?
Hann spyr.....eigum við að skipta um stellingu í kvöld?
Hún svarar....Það er frábær hugmynd, þú stendur við strauborðið á meðan ég sit í sófanum
Hann spyr.....Hvað ertu búin að gera við alla matarpeningana sem ég lét þig fá?
Hún svarar...Snúðu þér á hlið og líttu í spegilinn.
Spurning: Afhverju eru giftar konur feitari en ógiftar?
Svar: Þegar þær ógiftu koma heim og sjá hvað er í ísskápnum....fara þær í rúmið,
þegar þær giftu koma heim og sjá hvað er í rúminu .....fara þær í ísskápinn...
Já er ekki lífið yndislegt
Sjúlli kveður hóstandi
9.10.2007 | 12:04
Tónleikar
Við Óskar Pétursson verðum með tónleika í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju kl. 20 á fimmtudag. Þema tónleikanna er "Ástar- og saknaðarljóð". Sonur Óskars, Björn Elvar, verður gestaundirleikari. Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson fjallar um mikilvægi tónlistar í gleði og söknuði. Kaffi og konfekt verður á borðum.
Eyþór
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)