16.12.2008 | 15:44
útskrift loksins:)
Loksins eru einkunnir búnar að skila sér og ég alveg sátt, hjúkrun 8 og stjórnun 7 en á reyndar eftir að fá úr inngangi að kennslufræði en hugsa að þar hafi komið 9 án þess að ég sé viss:) Loksins er þetta búið og ég er s.s. orðin sérhæfður sjúkraliði, eða ofursjúlli eins og við vorum að djóka með. Útskrift verður í háskólabíói á föstudag kl 16 en ég ætla ekki að fara, er bara ekki í standi til þess. Skilar nokkrum aukakrónum á reikninginn minn og vonandi víkkar þetta starfsgrundvöll minn. Ég er alsæl.
Rakel Ýr er að koma í kvöld lendir hér á Akureyri kl 20 og ætlum við Katla að bruna eftir henni þar sem Eyþór er með tónleika. Verður hérna þangað til 7 janúar minnir mig. Fórum niður og gerðum herbergið hennar klárt til vistar áðan...
Ætlum að renna aðeins í bæinn á eftir við þrjár mæðgur og kaupa í matinn og aðeins jólagjafir og svona eitt og annað m.ö.o draga björg í bú. Hef lítið að segja svo sem meira en þetta varð bara að lýsa yfir gleði minni á því að vera búin með þetta allt saman.
Skrifa meira seinna
Sjúlli kveður agalega sérhæfður
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
til hamingju Erna ofurkona nei ég meina ofursjúlli!
Lára Bryndís Eggertsdóttir, 17.12.2008 kl. 11:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.