27.11.2007 | 20:39
Einhent, svefnlaus og sljó
Svaf lítið sem ekkert síðustu nótt þar sem Katla var mjög pirruð. Afhverju fæðast ekki börn bara með tennur eða þá að maður geti stjórnað hvenær þau fá þær. Ég hefði valið að hún væri ekki í þessu standi núna þar sem ég er að fara í 2 erfið próf og hef fulla þörf fyrir að sofa á nóttunni. Hef lítið getað lært í dag bara geispað og horft á bækurnar og engan veginn náð einbeitingu. Stubbur svo sem ekkert skárri í dag heldur en síðustu nótt en svona er þetta bara
Tókst að brenna mig á öllum litla putta við pönnsubakstur, ekki alveg klár hvað ég var að spá með að leggja puttann flatan á pönnukökuplötuna..DÖH. Þannig að nú er hann risavaxin blaðra haha skal nú segja ykkur það. Suma daga á maður ekki að fara á fætur. Tókst líka að missa allt úr ruslafötunni í dag yfir allt og ég var nú ekki í góðu skapi fyrir en pottþétt að það skánaði ekki. Svo var ég að láta renna í bað fyrir Brynju og eitthvað snerist upp á sturtuhausinn þannig að það var farin að myndast sæmilegast sundlaug inni á baðherbergi allt gólfi rennblautt.
Best að fara að halda áfram að horfa á Lollið hef hvort sem er ekkert að segja..
Sjúlli kveður hálfsofandi
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Æ litla greyið... það er örugglega vont þegar tennurnar eru að ryðjast niður....og það er líka ferlega vont að brenna sig....æææ.... og alltaf er þetta á versta tíma.... en það er gott að geta fengið sér pönsu.. það hefur reddað deginum...þetta með ruslið og sturtuna hljómar eins og góðri gaman mynd, þá hefur verið gaman hjá Kötlu.... og það er betra að horfa á Lollið en góða bíómynd svona rétt fyrir próf..... við rúllum þessu upp.... gangi þér vel að lesa Erna....kv Anna Ruth
Anna Ruth Antonsdóttir, 29.11.2007 kl. 08:33
Innilega til lukku með daginn Eyþór*
Lilja Hrund (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 14:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.