Þriðjudagur til þreytu

Er það ekki þannig, ótrúlega þreytt allavega í dag og finnst að það ætti að vera lögboðinn frídagur. Kaffið bjargar þessu hef aldrei drukkið á ævi minni eins sterkt kaffi og núna, ákvað að prófa expresso úr kaffivélinni minni flottu og það er bara gott sterkt en gott. Hlýt að vakna.

Er ekki komin lengra en að horfa á námsefnið í Lol er nú ekkert heillandi fyrirsögnin, Þvagkerfið, vökva- saltvægi, sýrubasavægi. Kannski ekkert skrýtið að maður sé þreyttur.

Katla komin í vagninn og ég var að henda nokkrum myndum inn á síðuna hennar. Hún er svo mikill gullmoli þessi elska. Sönglaði í allan morgun mamamamamam og ég er nú að vonast til að það þýði mamma. En ég er s.s. búin með morgunleikfimina því það var eltingarleikur hún í göngugrindinni en ég á fjórum fótum lafmóð:) haha yndislegt.

Við systur erum að fara í blóðprufu í fyrramálið þar sem sjúkdómurinn Hemochromatosis var að greinast í familiunni en þá safnast járn upp í líkamanum. Þannig að maður verður að láta taka úr sér blóð í fyrramálið og ég sem hata nálar eftir að ég átti Kötlu var nefnilega eins og nálapúði eftir það jakk en ég er hörð.

Eitt svona videó í lokin er það ekki svona sem karlmenn vilja hafa okkur...tja hvað haldið þþið

Sjúlli kveður....nöldrandi 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ruth Antonsdóttir

Já maður er bara stundum þreyttur og það er í lagi ef maður passar að hvíla sig ( mikil speki ) það er nefnilega stundum hægara sagt en gert...vonandi gekk þér vel í blóðprufunni... kv Anna Ruth

Anna Ruth Antonsdóttir, 14.11.2007 kl. 14:43

2 Smámynd: Anna Ruth Antonsdóttir

Myndbandið ..... jú þetta hentar karlmönnum örugglega mjög vel.....he he..... kv Anna Ruth

Anna Ruth Antonsdóttir, 14.11.2007 kl. 14:47

3 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Forvitinn um þetta hemochromatosis í ykkur systrum -- kannski kemur mér það óbeint við!

Það er sem sagt ekki alveg víst að það sé kostur að þið systur (frænkur) séuð stálslegnar!

Lát heyra meira.

Og þetta með þá upprúlluðu: Hún virkar frekar daufgerð…

Kv. í bæinn

Sigurður Hreiðar, 15.11.2007 kl. 07:48

4 Smámynd: Svanhildur Pálmadóttir

Ég má nú til að segja ... já þetta með myndbandið ... kom mér í svo gott skap. Er alltaf til góðs að koma kennaranum sínum í gott skap. Kveðja Svanhildur

Svanhildur Pálmadóttir, 15.11.2007 kl. 19:51

5 identicon

Allur vindur úr kellingunni. 

Eyþór Ingi Jónsson (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband