10.11.2007 | 16:32
Hálka út um allt
Ekkert smá hvað er hált, renndi mér aðeins út í húsasmiðju áðan til að sækja öryggisdót fyrir litla stubb svo hún hætti að klemma sig á eldhússkápunum og rota sig á píanóinu og það var svo hált. En ofsalega fallegt veður samt, höfum hjúin ekkert gert nema ég tók eitt próf og gekk alveg sæmilega miðað við síðast Eyþór er lasinn, Brynja er í fjáröflun og Katla sefur. ÆTla að renna mér til Hildar kannski á eftir mæðgur voru að taka forskot á sæluna og baka smákökur verð að testa þær:)
Annars bara allt í rólegheitunum, fjárfesti í málningarstrigum áðan og ætla að strekkja efni eða veggfóður á þá og prófa að vera smá skapandi, spurning hvort það verði ekki klúður bara. Varð að setja þetta inn þetta er ótrúlega fyndið
Sjúlli kveður með aulahúmor og það fullt af honum
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Til lukku með prófið alltaf gott að vera búin....mér líst vel á þetta með veggfóðrið.. eins öryggið á skápana... og svo er spurning með hjálm... það var ég allavega að spá í þegar strákarnir mínir voru litlir.... gangi þér vel með veggfóðrið og allt hitt....kv Anna Ruth
Anna Ruth Antonsdóttir, 11.11.2007 kl. 08:41
Æ gleymdi að commentera á brandaran... góður!!!!!!!!! kv Anna Ruth
Anna Ruth Antonsdóttir, 11.11.2007 kl. 08:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.