4.11.2007 | 22:47
Lærdómur
Ég ætla að vorkenna sjálfri mér aðeins hér bara verð að gera það svona aðeins til að létta á mér Mig vantar svo svona eins og 10 klst í sólarhringinn án gríns. Ég hef ekki tíma til að gera allt sem ég þarf að gera, var í raun búin að gleyma hvað það er mikil vinna að vera með kríli kannski afþví að maður hafði svo mikla aðstoð þegar Brynja var kríli, gat eiginlega gert allt sem ég vildi var með mömmu og pabba á efri hæðinni og svo hin amma og afi í húsinu á móti lá við. Ég hef engan tíma til að læra, þegar ég er loksins búin að telja mér trú um að ég hafi tíma og sest niður þá les ég kannski í 1/2 - klst og er rétt að komast í gírinn þá vaknar stubbur og ég læri ekki mikið með hana ekki ef ég ætla að ná að einbeita mér. Svo hef ég ekki getað hreyft mig í nokkra daga og það kemur niður á skrokknum á mér og ástæðan fyrir hreyfingarleysi er að Brynja er á kafi í skóla, og svo félagsstarfi og fótbolta og séest hérna kannski yfir daginn í einn klukkutíma, Eyþór sést hér bara alls ekki. Nóg um þetta það reddast alltaf.
Fórum til Húsavíkur í gærmorgun og hittum pabba og vorum þar að spjalla til um hálf fimm en þá var haldið í afmæli til Viðar þar sem boðið var upp á forrétt, aðalrétt og eftirrétt. Rækjuforréttur, lambalæri og kjúklingaréttur og svo kökur á eftir *slurp* Brunuðu svo heim um 8 leytið og vorum komin um 9 alltaf gott að koma heim og var þó Katla fegnust af okkur því hún var orðin svo yfir sig þreytt að hún eiginlega grét rúmlega helminginn af leiðinn en stóra systir bjargaði málunum að mestu.
Svo í dag á hún Hildur sys afmæli og varð hún 38 ára en það eru akkúrat 3 ár og 4 dagar á milli okkar systra. Við fórum og fjárfestum í afmælisgjöf og fengum franska súkkulaðitertu með rjóma og kaffi. Stórfínt og frænkur mínar voru í stuði. Ragnhildur Sól ætlar svo að koma til mín á morgun þegar Katla er vöknuð og hún sjálf búin á leikskólanum og við ætlum að mála piparkökur en það er gríðarlega mikið sport, ágætt að gera það núna og jafnvel aftur í des taka smá forskot á sæluna
Eyþór er fyrir sunnan fór í dag og var með tónleika í kvöld sem mér skildist að hefðu verið vel sóttir, var að vísu mjög illa stemmdur í sykri alltof hár sem líklega kemur vegna óreglulegs svefns undanfarið og mikils álags og streitu. Svona er að vera með sykursýki gott fólk svo er maður að kvarta. Svo er hann með tvo fyrirlestra s..s einn á morgun og annan á þriðjudaginn fyrir nemendur í Tónskóla þjóðkirkjunnar, svo kemur hann heim og fer þá eiginlega beint í að æfa fyrir tónleika sem hann og Óskar Pé verða með á fimmtudagskvöldið og svo reyndar á hann frí um helgina en hann ætlar að reyna þá að komast eins og einn dag í rjúpur sem er að hans sögn svona afslöppun...hvað kallast svona vinnufíkn eða... Gott allavega að hann nennir að vinna en mætti samt vera minna og jafnara
Ég er orðin verulega þreytt, náði að klárra að skila af mér sálfræðiverkefni sem var mjög erfitt og ég vona bara að ég fái eitthvað annað í einkunn en 0. Fékk fyrir sálfræðiverkefni í dag sem mér fannst erfitt líka reyndar og fékk hærra en ég bjóst við fyrir það.
Svo liggur fyrir próf í Upplýsinga og tölvutækni og annað í Lol þannig að það er enn nóg eftir. Púff ætla að reyna að taka UTN prófið þegar Eyþór kemur heim var aldrei tími fyrir það í þessari stuttu heimsókn sem hann var í núna en næ því vonandi ámiðvikudag. Og svo stefni ég á Lol prófið um helgina. Skal - get og vil og ætla eða eitthvað á þá leiðina.
Best að fara að sofa því ekki hefur verið meira um svefn en ca 4 tíma síðustu tvær nætur stubbur verið mjög ergileg og tönnslur vonandi að koma niður að ofan, gæti farið að þiggja 4 tíma í heilu lagi en ekki hálftíma og hálftíma.
Best að hætt að kvarta og kveina yfir því sem maður valdi sér sjálfur og ég er mjög glöð með en getur verið erfitt um leið..
Sjúlli kveður bjartsýnn þetta reddast
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Já þetta er heljar-innar vinna...að vera með lítið kríli krefst mikils, og þau ganga auðvita fyrir öllu... maður hefur það á tilfinningunni að það sé pressa á manni.... tíminn líður svo hratt, eins og þú sagðir Erna það vantar nokkra tíma í sólahringinn... hann er orðin frekar stuttur......en ég held að þetta reddist samt allt það er þetta með þolinmæðina ... gangi þér áfram vel að læra og passaðu ekta- manninn þinn... kv. Anna Ruth
Anna Ruth Antonsdóttir, 5.11.2007 kl. 21:41
Elsku Erna mín*
Þetta er aaaðeins öðruvísi hérna hjá mér... ég er í 80% vinnu sem segir 32 klst á viku. Allir klukkutímar fyrir utan það hef ég Ekkert að gera... ég laga til jú annað slagið en það tekur varla marga klukkutíma í 80 og eitthvað fermetra íbúð. Ég myndi glöð láta þig hafa nokkra klukkara ef ég gæti,,, og ég myndi sko glöð passa fallegu frænku mína sem ég sé aldrei....en ég er víst ekki almáttug..eins og ég held stundum. En vonandi gengur þetta allt vel hjá þér, ég ætla að óska þess*
knús og kremj frá egilsstöðum
Lilja Hrund (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 16:38
Anna R já þetta líður allt of hratt verðum búnar í þessu námi og byrjaðar í geðhjúkrun aldraðra fyrr en varir eða stendur ekki til að fara af stað með það fljótlega eða var mig að dreyma? Krílin ganga fyrir og maður púslar bara alltaf gott að láta aðeins vorkenna sér:::)
Lilja þetta var eins hjá mér áður en ég varð ófrísk af Kötlu þá var ég í 80% vinnu og var með aukavaktir upp í 150% en samt fannst mér ég eiginlega ekkert hafa að gera:) Veit ekki hvernig þetta verður eftir áramót bætist þá við að ég verð farin að vinna haha. Drífðu bara í því að koma með eitt lítið kríli þá reddast þetta þá verður sko enginn frítími:)
Móðir, kona, sporðdreki:), 6.11.2007 kl. 21:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.