Hér sé stuð...

Laugardagskvöld og ég sit hér alein og yfirgefin, krílið sofnað, Brynja á Króknum og kallinn í Mývatnssveit að spila með Skara Pé. Ekki það að mér leiðist neitt alls ekki neitt langt í frá. Hef það huggulegt með kaffibolla, kertaljós, horfi á fréttirnar svona með öðru auganum og spá í hvort ég eigi að rjúka í sálfræðina. Er aðeins byrjuð að lesa í henni, sálinn nágranni minn kom svo í kaffi í morgun klikkaði alveg á að fá aðstoð haha frá honum hefði hreinlega átt að biðja hann um að fara með verkefnið og koma með það á morgunTounge

Búin með vefsíðuverkefnið í UTN var mjög einfalt fannst mér. En ég á nú eftir að æfa mig oftar á að gera það allavega lesa það betur, maður lærir ekki alveg allt með því að gera hlutina bara einu sinni neinie.

Var nammidagur hjá mér í dag og ég komst að því að ég elska enn súkkulaðiInLoveekki að ég byggist við öðru. Á mjög erfitt með að borða allt sem ég á að borða ældi næstum i gær af ofáti og liggur við að mig kvíði fyrir hverri máltíð ætla aðeins að breyta þessu en hafa DDV kúrinn að leiðarljósi, get ekki étið svona mikið. Er að byrja að hreyfa mig helst 5 x í viku. Hlaupa, boxa og jafnvel einhverja tíma á eftir að kanna það mál. Jájá svona er það nú.

Höfum lítið gert í dag ég er búin að vera alveg hundkvefuð og með hausverk þannig að við höfum bara verið heima í rólegheitum, þrifum lauslega hérna og lágum svo bara á meltunni.

Snilldaruppskrift hérna svona í lokin mjög góður eftirréttur

2 dl létt AB mjólk, 10 gr hreint kakó (t.d Sollu kakó), sætuefni fljótandi, 10 dr piparmyntubragðefni, 4 dr vanillubragðefni. Hrært allt saman. 150 gr jarðarber brytjuð niður og ein pera og sósunni hellt yfir. *slurp*

Sjúlli kveður saddur og tja eiginlega bara bumbult:) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ruth Antonsdóttir

Æ það er gott að vera búin með vefsíðuna... já það er allt svo auðvelt ef maður kann það.. leiðbeiningarnar voru góðar í vefsiðu-verkefninu....en þetta með súkkulaðið og nammið.... frábært að vita að þetta sé í danska-kúrnum.....er alltaf að reyna að halda mér í danska....ég vona Erna að þér sé farið að batna kveðið.... meiri pestin sem er að ganga....mér líst vel á eftirréttin.... takk fyrir hann.......kv Anna Ruth

Anna Ruth Antonsdóttir, 15.10.2007 kl. 00:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband