10.10.2007 | 09:59
Gott að eiga góða að:)
Vinur minn sem ég sinnti í heimahjúkrun er duglegur að senda mér tölvupóst með allskyns vitleysu, hann sendi mér þetta áðan og ég bara verð að miðla þessu til ykkar:::)
Hann sagði.....ÉG skil ekki afhverju þú ert í brjóstahaldara það er ekkert til að halda.
Hún svarar......ÞÚ ert í nærbuxum er það ekki?
Hann spyr.....eigum við að skipta um stellingu í kvöld?
Hún svarar....Það er frábær hugmynd, þú stendur við strauborðið á meðan ég sit í sófanum
Hann spyr.....Hvað ertu búin að gera við alla matarpeningana sem ég lét þig fá?
Hún svarar...Snúðu þér á hlið og líttu í spegilinn.
Spurning: Afhverju eru giftar konur feitari en ógiftar?
Svar: Þegar þær ógiftu koma heim og sjá hvað er í ísskápnum....fara þær í rúmið,
þegar þær giftu koma heim og sjá hvað er í rúminu .....fara þær í ísskápinn...
Já er ekki lífið yndislegt
Sjúlli kveður hóstandi
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Þessi er frábær...hehehe. með þeim betri sem ég hef heyrt.. er enn að hlæja meðan ég er að skrifa.... takk Erna þessi reddaði deginum í dag.. Já lífið er yndislegt... sérstaklega þegar maður er búin með LOL prófið ...bara frábær brandari.... reyndu að ná þér í danska brjóstdropa.... þeir svínvirka.. þessir norsku eru ekki til lengur....kveðja Anna Ruth
Anna Ruth Antonsdóttir (IP-tala skráð) 11.10.2007 kl. 11:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.