Dóp og rugl

Vá hvað lögreglan á mikið hrós skilið fyrir aðgerðir gærdagsins. Ekkert smá magn sem þeir eru að uppræta og margir fíklar sem urðu af sínum skammti. En ætli sé ekki nóg dóp í umferð samt þó svo að þetta hafi náðst er nú heldur betur hrædd um það.

Er frekar ljót í dag, allavega ljótari en venjulega, svaf mjög lítið í nótt, dóttlan mín var ómögleg fram undir miðnætti og sofnaði þá og ég fór að þykjast læra. Stóra dóttlan mín var á svokölluðu Rósaballi í Glerárskóla og ég sótti hana um miðnætti akkúrat þegar ég var að þykjast vera að læraGasp En já sofnaði ekki fyrr en að verða 2 og var mín rumskandi í alla nótt. Já svona er nú að vera mamma skal ég segja ykkur og ekkert að því nema þetta með ljótuna, langar svo að vera sætLoL

Ætla að henda inn einni mynd hérna sem ég fann á netinu og finnst smá sniðug en á henni sjá ungir krakkar 9 höfrunga ég hef ekki séð 9 enn en ég er enn að leita en er kannski orðin of gömul til að sjáUndecided

hofrungur

Þetta er s.s. myndin og skoðið nú ég er farin að læra haha

Sjúlli kveður langar að verða löggaPolice

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ruth Antonsdóttir

Já alveg sammála þessu með dópfundin... þeir eru frábæri að finna þetta... maður fer að hugsa hvort margar svona skútur séu búnar að koma hinga til lands með þessi efni... hrikalegt..... verst er að það virðist bara koma maður í mans stað í þessum eiturlyfjaheimi..... jæja ég er alveg að fara í þunglyndi  af þessu tala ..... þetta með höfrungana er búin að sjá nokkra, þetta er flott mynd gaman að spá í þetta....jæja best að halda áfram ég er sveitt við að fatta all á blogg síðunni og er alveg að brenna yfir  en það þýðir ekkert bara halda áfram að fikta..... gangi þér vél í uppeldinu... það rifjast upp fyrir mér þetta að sækja á skólaböllin og allt hitt þetta var bara skemmtilegt..  ..... kv Anna Ruth

Anna Ruth Antonsdóttir, 22.9.2007 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband