14.8.2007 | 23:16
Kvef
Síðustu daga hef ég hægt og sígandi verið að fá kvef og hélt ég hefði nú náð kveftoppnum í gær en ekki reyndist það nú aldeilis rétt hjá mér því í nótt svaf ég ekki mikið vegna hálsbólgu og því að ég fann hreinlega hvernig horstíflan myndaðist geðslegt ég veit en sannleikur engu að síður. Í dag hef ég verið að bera á mig hið gamla góða Vick krem en það bara virkar lítið sem ekkert og pappírsþurrkur fjúka alveg heilu pakkningarnar. Sko það eru bara nokkrir dagar síðan síðasta kvef fór og ég er tiltölulega nýbyrjuð að taka einar 5 tegundir af vítamínum svo ég hélt að ég væri nú örugg það sem eftir væri hausts og vetrar en neinei.....tja skal nú segja ykkur það. Ekki nóg með það þá hefur mér tekist að smita litla dýrið mitt þannig að hún er með sömu vanlíðanina.......segi nú bara enn og aftur tja.
Fórum mæðgurnar þrjár í myndatöku til Rúnars í dag en Brynja átti s.s. eftir seinni myndatökuna. Hann tók myndir af okkur mæðgunum þremur og svo systrum og svo Brynju í ca 3 dressum og svo flottar myndir allavega þær sem hann sýndi okkur. Fáum svo allar myndirnar á disk í næstu viku og svo veljum við held ég 12 myndir sem við fáum svo í 2 albúm s.s. eitt handa okkur og svo eitt handa pabba hennar og famili. Hlakka til að sjá þær. Ég fékk að vera á vindvélinni og fannst það ekkert smá fyndið þegar hann bað mig um það.
Kíkti svo aðeins með mömmu og systrum til Hildar og svo bara var verið að slaka á seinnipartinn. Vona að helv...kvefið verði orðið umberanlegt hjá okkur mæðgum báðum á morgun. Talaði við einhver Jón barnalækni í dag varðandi lyfjagjöfina hennar Kötlu og ákváðum við að prófa að taka vikufrí frá lyfjunum s.s. frá og með laugardeginum og ef það gengi þá bara gengi það annars á hún að vera á þessu til 11 des en þá ætlar hann að tala aftur við okkur. Væri snilld ef hún þyrfti bara ekki á þessu að halda meira. Alltaf gott að vona.
Tengdó minn á afmæli á morgun tralallaalla þrátt fyrir að hafa haldið upp á það um helgina. Til hamingju með það Nonni minn:)
Sjúlli kveður með hor í stað augasteina
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Alla mína samúð. Kvef og hálsbólga eru einstaklega leiðinlegar pestir og því miður hafa þær tilhneigingu til að koma samtímis. Og svo vont sem er að hafa það sjálfur er hálfu verra að horfa upp á blessuð börnin með þetta -- við getum þó nokkurn veginn snýtt okkur skammlaust sjálf!
Ég átti frænda sem sagði að eina ráðið við kvefi væri að þamba fullt glas af volgu vatni á klukkutíma fresti allan daginn. Ég hef oft byrjað á þessu og þambað fullt glas af volgu vatni þegar ég paufast fram úr fyrsta pestarmorguninn -- svo yfirleitt gleymt að drekka meira. Kannski vilt þú vera tilraunadýr?
Heilsist ykkur sem fyrst.
Sigurður Hreiðar, 15.8.2007 kl. 09:10
Haha þetta er gott ráð en hugsa að ég yrði nú eins og þú með þetta og myndi gleyma:) Já blessuð börnin geta ekki snýtt sér sjálf en einhver snillingur fann upp svokallaða "horsugu" þannig að málinu var reddað:)
Ernan (IP-tala skráð) 15.8.2007 kl. 16:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.