13.8.2007 | 23:32
Fæðingarorlof
Vá ég fór allt í einu að hugsa, geri það nú ekki mjög oft þannig að það telst fréttnæmt fyrst svo er...en já ég fór að hugsa og það eru ekki nema 4 mánuðir þar til ég fer að vinna frá litla krílinu mínu. Finnst þetta hræðilegt er enn ekki byrjuð að njóta þess að vera í fæðingarorlofi kannski svona næstu vikur sem maður fer virkilega að njóta þess. Katla búin að vera lasin alveg þangað til eiginlega núna. Finnst að það eigi að gera konum kleift að vera heim í 2 ár án gríns.
Held að þroskalega hafi börn í raun ekkert að gera á leikskóla fyrr en 2 ára. Þau vita ekki hvað er almennilega um að vera fyrr og ættu að fá að njóta þeirra forréttinda að eyða þessum 2 fyrstu æviárum í faðmi foreldra sinna.
Finnst það flott eins og það er í Þýskalandi finnst ekki allt flott þar en þar er konum sko gert kleift að vera heima og með fínasta kaup þar að auki ekki einhver skít og kanil eins og hér ja nema þú hafir verið í hálauna vinnu þá er það svo sem allt í lagi.
Ef ég væri á þingi myndi ég byrja á því að berjast fyrir þessu........fæ alveg illt í skrokkinn að hugsa um að ég þurfi að fara frá henni, ekki það að pabbi hennar verður í jan og feb í fæðingarorlofi og eftir það ætla ég að reyna að komast annaðhvort á kvöldvaktir á Hliið eða í heimahjúkrun þannig að við þurfum ekki að setja hana á leikskóla fyrr en á öðru ári. En mér finnst samt hræðilegt að þetta fæðingarorlof er að verða búið og ég enn ekki farin að fíla mig í því.
Best að fara að kúra sig hjá litla orminum sínum
Sjúlli kveður ekki sáttur
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Fyrirkomulagið á þýska fæðingarorlofinu hefur nú hingað til ekki verið talið konum til framdráttar þar í landi.
Inga Rós (IP-tala skráð) 13.8.2007 kl. 23:43
Ok minntist bara fréttar þar sem verið var að hækka fæðingarorlof hjá konum í Þýskalandi sem hlýtur því að þýða að þær hafi getað verið lengur heima:)
Ernan (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 09:04
Í þýskalandi er ekki nóg með að konur "geti" verið heima í tvö ár heldur verða þær einfaldlega að vera heima því það er ekki búið að finna upp dagmömmur og litlubarnaleikskóla. Þess vegna reyna þýskar konur (og systir mín þar búandi) að rústa barneignum af á sem skemmstum tíma (max. 2 ár milli barna) og koma síðan ráðvilltar og ruglaðar aftur út á vinnumarkaðinn mööööööörgum árum seinna, algjörlega dottnar út úr öllu. Konur á framabraut + börn = óneiheihei...
Lára Bryndís Eggertsdóttir, 14.8.2007 kl. 13:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.