Þvílíkt og slíkt

Hvað er eiginlega í gangi. Á bæjarstjórn Akureyrar að segja af sér út af þessu. Ég skal segja ykkur það. Ég held að flestir hafi verið mjög ánægðir með þessa ákvörðun en ég skil svo sem þá sem reka verslun og þjónustu auðvitað tapa þeir en er þá ekki bara vilji hjá þessum hópi verslunareigenda að reyna að byggja upp fjölskylduhátíð og reyna að laða frekar að fjölskyldufólk en sleppa því að auglýsa þessa sem fjölskylduhátíð og svo er þetta unglingahátíð í meirihluta.....mér finnst líka fáránleg rök að koma með að fyrst við neitum þessum aldurshóp að koma hingað til að vera fullir og pissa og kúka í garðinn minn hvernig við ætlum að geta boðið þennan sama aldurshóp velkominn hingað í bæinn í framhaldskólana okkar og háskólann ... einu orði sagt fáránlegur samanburður.

Þetta er nú bara mín skoðun og þarf alls ekki að endurspegla skoðun annarra Akureyringa og sem betur fer þá á mér að vera frjálst að hafa mína skoðun. 

Ég er himinlifandi sæl með þessa helgi núna eins og hún var. Góð bæjarstjórn alveg til fyrirmyndar....hipp hipp húrra fyrir bæjarstjóranum:)

Sjúlli kveður sáttur við lífið og tilveruna 


mbl.is Hvetja til afsagnar bæjarstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Erna mín... langt síðan síðast..:)

Já það er alveg greinilegt hvar þú stendur í þessum málum,, og bara gott með það. En ég bara verð að vera ósammála þér með þetta allt, ekki það að ég sé enn á þessum aldri því ég er víst að verða 26 og mátti því alveg tjalda í þessum bæ en Fannar er 21 og mátti það semsagt ekki... ekki hefði ég sent hann til eyja og komið ein til Ak, kannski hefðum við viljað vera saman á Ak um versló en það hefði ekki verið hægt, ég hef ekki efni á að vera á hóteli þarna.... mér finnst þetta asnalegt og trúi bara ekki að þetta verði svona áfram:)

 En allar skoðanir er góðar:)

Knúsiknús*

Lilja Hrund (IP-tala skráð) 9.8.2007 kl. 13:57

2 identicon

Er ekki bænum frjálst að setja takmörk á þá þjónustu sem þeir bjóða? Eigendur skemmtistaða setja aldurstakmörk á sína staði, ekki satt? Gat ekki þessi hópur verslunareigenda og vinir Akureyrar bara leigt sér tún og klósett og boðið sjálfir upp á tjaldstæði fyrir aldurshópinn sem ekki gat verið á bæjartjaldstæðunum?

orgelstelpa (IP-tala skráð) 9.8.2007 kl. 17:56

3 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Ég verð að leyfa mér að taka undir með Sjúlla og þykja Akureyringar menn að meiri að afstýra þessu unglingafyllíríi. Hef ekki fylgst með þeim rökum að þeir eigi þá ekki heldur að vilja unglinga sem koma til að læra -- eru þeir líka bara á fylliríi og slarki?

Skil reyndar bara alls ekki útihátíðir per se. Almennt séð eru þær eitthvert það leiðinlegasta fyrirbæri sem til er, og þess vegna kannski ekki undur þó fólk reyni að gera sér þær bærilegar með því að drekka frá sér ráð og rænu…

Stend með þér, Erna mín! Þetta fólk sem þið kusuð er að vinna fyrir kaupinu sínu.

Sigurður Hreiðar, 9.8.2007 kl. 23:27

4 identicon

Ég skil ekki heldur alveg rökin fyrir að það séu ofurölvi og úrgangslosandi ungt fólk bara þessa helgi. Það er trafík niður brekkuna í bæinn hverja einustu helgi, en hundruðir skólamanna hella í sig áfengi um hverja helgi allan veturinn og sumarið líka og eru ekki allir 18-23. ÞEtta er bara partur af prógrammet hvort sem manni líkar betur eða verr.  En ég er ekki að mæla fyrir unglingadrykkju enda finsnt mér 18-23 ára ekki unglingar. En útiloka einn hóp fyrir nokkra svarta sauði finnst mér pínu út úr kortinu, ég verð að segja það.

Hildur (IP-tala skráð) 10.8.2007 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband