Slóvenía yndislegt land

Erum hjónin að velta fyrir okkur sumarfríi næsta sumar. Höfum lítið getað gert fyrir dætur okkar og okkur í sumar þrátt fyrir gott frí þannig að okkur langar að bæta okkur það upp næsta sumar og hafa svona íbúðaskipti og jafnvel bílaskipti við einhverja fjölskyldu sem langar að heimsækja Ísland og Akureyri.

Eyþór er að verða kominn með slóvneskt ríkisfang eftir að hafa farið þangað dálítið oft en ég hef komið þangað einu sinni og ég var ekki farin þaðan þegar mig var farið að langa þangað aftur. Fallegt land virkilega og fólkið yndislegt.  En það er s.s. svona það sem við erum að velta fyrir okkur að fara til Slóveníu, kemur líka til greina að fara til Ítalíu eða Frakklands. En málið með Slóveníu er að það er svo ofsalega ódýrt að lifa þar, þannig að vera með 5 manna fjölskyldu er ekkert dýrt og maður getur alveg leyft sér ýmislegt. En þetta er allt í skoðun erum komin með fólk í að skoða þetta fyrir okkur og líka búin að skrá okkur fyrir svona heimilisskiptum á netinu. Bíðum spennt. Stelpunum finnst þetta líka voða spennandi og verður þetta endalaust gaman ef af verður sem verður ef einhver vill skipta við okkur.

Buðum Sigrúnu og Snorra í heimagerðar pizzur í kvöld og var það mjög gaman. Sigrún hefur verið að leysa Eyþór af hérna í júlí en er í námi í Danmörku og eru þau því að fara út aftur í byrjun ágúst. Hún er líka skólasystir hans úr Tónskóla Þjóðkirkjunnar þannig að þau hafa þekkst mjög lengi.

Katla ekkert verið spes í dag frekar erfitt lífið en samt betra en áður en hún fékk lyfið, bara eitt skref í vitlausa átt í dag en ég vona að það fari bara aftur fram á við á morgun. Sefur mjög laust núna og er meðvituð um ef ég fer og vaknar strax þannig að ég ligg hér með tölvuna í rúminu og blogga gott mál

Erum að spá í að borgarferð á þriðjudag. Erum komin með íbúð í miðbænum sem kostar 4500 kr nóttin ekkert verð. Ætlum bara að fara á þriðjudag og leggja af stað aftur snemma á fimmtudagsmorgun til að sleppa við verslunarmannahelgar umferðina. Rétt að leyfa stelpunum að kíkja í búðir. Annars er Rakel að fara á Búðardal á morgun og verður líklega þangað til að við förum suður en það á að visu eftir að koma í ljós.

Best að fara að forvitnast á netinu eitthvað   

Sjúlli kveður á leið í borg Vilhjálms 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband