já hvað annað

Bara verð að skrifa eitthvað hér, hef ekkert að gera og nenni engu. Eyþór er að horfa á Rauðhettu alltsvo teiknimyndina og honum finnst hún leiðinleg en auðvitað klárum við það sem við erum byrjuð á. 

Brynja var í partýi með vinnuskólanum en Rakel var úti með vinkonum sínum...hún fór í dag og bætti við gati í andlitið sem er allt í góðu og reyndar bara krúttlegt en hún fékk sér lokk í nebbann finnur reyndar til í því en allt fyrir lookið. Katla er nýtt barn allavega miðað við hvernig dagurinn er búinn að vera, hlegið og hjalað, togar í tærnar á sér hægri vinstri og skellihlær. Var reyndar eitthvað slök í morgun en síðan eiginlega nokkuð bara spræk langt frá því að vera góð en skárri allavega.

Fór til sjúkraþjálfara í dag og fékk yndislegt nudd, lifi fyrir að fara í þessa tíma finn ekkert til í smá tíma á eftir og vildi að ég ætti hreinlega eins og einn sjúkraþjálfara til að hafa hér og nudda okkur hjónin erum held ég að verða bara gömul ja hvað á maður að halda.

Mig langar að gera svo margt og mig langar líka í svo margt. Veit að ég hef skammast yfir græðgi fólks en kannski er ég ekkert skárri, mikill vill meira og aldrei er neitt nógu gott handa manni.. Mig er farið að langa í einbýlishús já eða myndi alveg sætta mig við raðhús en þetta er ekkert á leiðinni strax, er búin að finna hús í innbænum sem mig langar í og ætla að kaupa þegar ég verð stór það er æðislegt og risastórt...

Hef ekkert að blogga um þannig að ég ætla að fara að sofa, þarf að vakna eftir ca klukkutíma ef mín litla ætlar að halda sinni rútínu og heimta júllu kl 1 en kannski er það eitthvað breytt eftir að líðanin hennar fer batnandi hver veit en ég ætla nú samt að búa mig undir það.

Sjúlli kveður í draumaheimi 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband