Pælingar

Við Eyþór vorum að spjalla í fyrradag og eftir það hef ég verið mikið að pæla. Vorum að spá í "hvað er Guð" og trúum við á Guð? 

Ég hef aldrei almennilega pælt í þessu ég er jú bara skráð í Þjóðkirkjuna og hef látið ferma mig þar sem ég hafði jú ekkert val um skírina en auðvitað er það það sem ég vil að vera skírð og fermd. En hver er Guð í hvers konar líki er hann og afhverju er alltaf talað um hann Guð nema hún Auður prestur sem kvengerir hann. Ég trúi á guð en ég trúi ekki að guð hafi búið til allan heiminn, hann er enginn töframaður en samt er því haldið fram að hann er skapari himins og jarðar í Bíblíunni. Ég veit ekki og ég á eflaust eftir að pæla mikið í þessu þangað til ég kemst í það að spyrja kunningja að þessu.....hvað er guð...?

Er búin að biðja mikið til guðs, gerði það alltaf þegar ég var lítil fór með faðir vorið á hverju kvöldi og alveg í rauninni þangað til bara fyrir nokkrum árum að ég hætti því svona ca um það leyti sem ég hætti að kúra hjá Brynju minni fyrir svefninn sem er alls ekki svo ýkja langt síðan kannski 3-4 ár en við báðum alltaf bænirnar saman. Svo bara einhvern veginn hef ég gleymt þessu mér til mikillar skammar. Svo núna síðustu daga hef ég beðið mikið til hans vegna Kötlu minnar, er búin að hafa miklar áhyggjur af henni en vona að það sé nú að breytast. En er líka síðan hún fæddist búin að þylja þær yfir henni á meðan ég gef henni kvöldgjöfina. Veitir manni einhverja ró og betri liðan finnst ég vera að gera svo mikið.

Er samt yfirleitt ekki talin vera mjög trúuð og er það alls ekki, finnst t..d frekar leiðinlegt að fara í kirkju og hugsa að með þessum tveimur fermingum og einni skírn á þessu ári fer ég ekkert fyrr en næsta ferming verður....ja nema maður hundskist jú í sunnudagaskólann með krílið þegar þar að kemur.

Nóg um þessar rugluðu pælingar mínar.

Við hjónin erum að skipuleggja sumarfrí fyrir næsta sumar, verður mjög spennandi og er ekki hérlendis. Fyrst við stóðumst 2 fermingar þá hljótum við að geta staðið undir einu sumarfríi með okkar 5 manna familiu ja þetta verður gaman. Finnst snilld að gera þetta svona langt fram í tímann eiginlega bara æðislegt...En þetta kemur allt í ljós. Við ætluðum nefnilega að gera svo margt í sumar en vegna þess hvað KAtla okkar hefur verið lasin þá höfum við lítið sem ekkert gert en hún verður á skemmtilegum aldri næsta sumar....Unglingarnir okkar eru voða spenntir fyrir þessu og eru held ég farnar að pakka næstum því er samt heilt ár í þetta....haha þær eru æði

Rakel okkar var að eignast litla systir.....Til hamingju með það dúllan....á þá tvær nýjar systur fæddar á sama árinu með 4 mánaða millibili, því Katla er einmitt 4 mánaða í dag.....húrra fyrir því...svolítið mikil breyting hjá henni sem hefur alltaf verið ein að eiga allt í einu tvær pínulitlar systur já svona er lífið held hún sé nú alveg hæstánægð með þetta .... 

Ég er búin að vera að hengjast í hálsinum og Eyþór mjög slæmur í öxlinni hann má helst ekki fara í frí því þá verður hann að algerri klessu greyið ætti eiginlega aldrei að taka sér frí en þá kemur upp á móti að hann yrði geðveikur og ekki viljum við það. 

Best að fara að sofa bara já eða finna sér eitthvað að borða, fann í dag hjónabandssælu í Bónus sem er mjólkurlaus og var hún keypt auðvitað:)

Sjúlli kveður mjólkurlaus en samt ekkiLoL

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband