19.4.2007 | 18:23
Fyrsta brosið
Katla litla hélt upp á sumarið og um leið 4 vikna afmælið með að brosa alveg út að eyrum. Hún hafði verið að glotta út í annað undanfarna daga, en áðan marg brosti hún og það tísti svo fallega í henni. Hún var auðvitað dásamlega falleg og bræddi annars skapvondan pabba sinn með brosinu. Er ekki undarlegt hversu mikil áhrif krílin hafa á mann, aðra stundina er maður í vondu skapi og við það eitt að dóttirin brosi framan í mann er maður farinn að gráta gleðitárum
Eyþór
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
ooohhh þið eruð svo yndisleg* Til hamingju með fallega brosið ykkar og gleðilegt sumar þið öll.. Knús frá Egs*
Lilja Hrund (IP-tala skráð) 19.4.2007 kl. 18:58
Fyrsta brosið er svo æðislegt, eitthvað svo mikill áfangi ;) Gleðilegt sumar
kv úr Einholtinu
Hildur (IP-tala skráð) 19.4.2007 kl. 21:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.