28.3.2007 | 22:13
opið blogg
Held mér hafi tekist núna að opna fyrir bloggið hennar litlunnar okkar á barnalandi. Ætti að vera opið núna en ef ekki verðið þið bara að henda á okkur mail og láta okkur vita:)
Allt fínt að frétta, rólegheit bara, sitjum hérna fjölskyldan og horfum á dramaþætti í sjónvarpinu, húsbóndinn nýbúinn að ganga frá tveimur vélum af þvotti á meðan ég lét prinsessuna éta á mér júllurnar er ofsa dugleg við það búin að vera í dag:) Sem betur fer því þá fer gulan fyrr.
Gunný og co komu við hér í dag á leið til Rvík og Búðardals, kemur svo hluti af þeim aftur um helgina þegar verður skírt.
Búin að vera með þvílíkasta hausverkinn í dag, þoli ekki hausverk ekki fengið hausverk síðan ég varð ólétt en kemur núna aftur gleðilegt. Langar að fara út og fá lit í vangana, leið á að líta úr eins og vampíra föl og aumingjaleg.
Nenni ekki að segja neitt meira enda ekkert að segja, andi röflsins ekki yfir mér.
Lilla amma er 80 ára í dag hipp hipp húrra fyrir henni allir saman nú, spræk konan.
Sjúlli kveður andlaus
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Er ekki bara kominn tími á einn nuddtíma, vöðvabólga og brjóstagjöf fer ansi oft saman Been there, done that!!! Já, nú skelliði rollsa niður tröppurnar um helgina og töltið með litlu sætluna í göngutúr ef veður leyfir, um að gera að viðra ykkur. Þið hafið öll gott af því Sjáumst á morgun kv Miðsystir
hildur litla (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 01:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.