11.2.2007 | 20:49
Ferming á næsta leyti...
Hef reynt eftir megni að reyna að gleyma því að dóttirin á víst að fara að fermast í maí en nú er bara svo komið að ég get ekki gleymt því lengur þar sem það þarf víst að fara að undirbúa eitthvað...
Var að tala við Sigupál áðan og við erum nokkuð sammála um hlutina bara, ekki það að Brynja ræður þessu algerlega en þau feðgin voru að gera lista yfir hans fólk og Kristínar sem á að bjóða og er það um 30 manns, verður frekar pent í sniðum bara held ég kannski allt í allt 60 manns.....vel sloppið það miðað við að fjórar familiur standa að henni.
Búin að redda sal, þurfti að gera það í ágúst en veislan verður í Víðilundi í salnum þar, ágætis salur og krakkarnir geta hlaupið út í garð og leikið sér ef veður verður gott, ferming s.s. 27 maí hvítasunnudag. Marteinn verður um 2 mánaða gamall stubburinn jájá, bara næs....
Er að bíða eftir að hún komi en hún var s.s. á króknum og er á leiðinni með rútu svolítið seint en það er nú ekki eins og hún sé eitthvað smábarn krakkinn Eyþór er að spila í stuðmessu með afrísku þema og hlakkaði mikið til þegar hann var að fara...ég nennti ekki að fara og sitja á þessum yndislegu bekkjum í kirkjunni...ónei fór að læra, ójá og lærði ekkert mikið en smá samt
Lagðist í heitt bað áðan þegar Eyþór fór og lá lengi, verð að fara að hætta að gera þetta þegar ég er ein heima, ætlaði aldrei að komast upp úr....var eins og belja á fjórum fótum að krafsa mér upp úr, en mikið djéskoti er það samt gott alltsvo að fara í bað....vonast líka alltaf til að þetta ýti nú á Teina minn að fara að skreiðast út, er orðinn alveg nógu stór til að fara að koma
Búin hjúin að kaupa vagn handa blessuðum bumbubúanum, reyndar bara svona svefnkerra en vildum það heldur en einhvern hlunka vagn, enda engin þörf á heilum vagni með burðarrúmi og öllu þegar kallinn á svona flottan dúnkerrupoka sem móðan hans gaf honum, og svo er hvort sem er sumarið að koma og vorið og allt það þannig að:) Er rosalega flottur og fáum hann á fimmtudaginn úr borg bleytunnar
Þannig að þá eigum við bara eftir að redda okkur barnapíu og hókuspokusstól sem við notum nottlega ekki strax en gott að eiga, okkur langar báðum í svona gamaldags hokuspokus ekkert smá krúttlegir
Jæja ætli sé ekki best að fara að setja tærnar í sokka og bruna af stað að athuga með barnið og kannski að fá sér ís í leiðinni já eða jafnvel bragðaref, ekki ónýtt það...
Heilsist ykkur ævinlega hreint
Sjúlli kveður á fjórum fótum
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Það er til hókus pókus á Hjarðarhól.. þau höfðu hann fyrir stubbana en þeir eru nú orðnir of stórir í hann og ég veit ekki til þess að neitt nýtta sé á leiðinni þannig að tjekkaðu hvort Mási vilji ekki deila þessum.. hugmynd allavega:)
Lilja Hrund (IP-tala skráð) 12.2.2007 kl. 12:13
Já geri það......lét mig nú ekki dreyma um að einhversstaðar leyndist svona eðalgripur....ræði við Mása við tækifæri spurning um að renna líka austur við tækifæri svona áður en Marteinn skýst út:)
Erna (IP-tala skráð) 12.2.2007 kl. 17:16
já mæ gad hvernig væri það.. hvenær komstu síðast þangað... þegar þú gekkst með Brynju...(",)
Lilja Hrund (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 16:37
Húmoristi auli...notjs var nú daglegur gestur þar á meðan ég bjó fyrir austan og það eru nú bara 4 ár:::) Ekki það að mér finnst Húsavík frekar óspennandi og leiðinlegur staður í dag vildi geta flutt alla familiuna bara til mín
Erna (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 21:08
já það líst mér vel á.. eru ekki Mási og Erla í þinni fjölsk.. myndirðu ekki taka þau með.. ljúft væri nú að fá þau annað slagið til að elda...það er svo helvíti leiðinlegt að þurfa alltaf að keyra til hú til að fá e-ð almennilegt að éta..(",)
En núna fer ég alveg að riðjast inn til þín.. hef ekki séð þig í marga marga.. fer ekki að vinna fyrr en 17 á morgun...spurning um að ég heyri í þér.. skoða það..*
Lilja Hrund (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 21:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.