24.2.2008 | 23:35
Hann Andrés er sætur
Hérna er staðlotusjúllahópurinn minn ásamt kennara með hann Andrés brúðu sem þjáðist af einhverjum kvilla í skjaldkirtil. Kostulegur karakter þessi brúða, gleymdi reyndar mjög mikilvægu í sambandi við hann og það var að athuga hvort hann væri karl eða kona á neðri hæðinni
Var búin að skanna hina tvo sem fengu þann heiður að vera sjúklingar hjá okkur og þeir voru báðir s.s. komnir úr kynskiptiaðgerð. Já svona er tæknin í dag. Stal þessari mynd frá henni Önnu Ruth þar sem maður var svo mikill sauður að taka ekki með sér myndavél í borg, Villa, Dags nei Villa nei Ólafs, pjúff er alveg rugluð í þessu
Er búin að vera að berjast við tölvuna í kvöld, skil ekki hvað hún getur verið vitlaus á köflum, ég er ekki vitlaus, neibb það er sko tölluskrattinn. Var að klára að koma glósum helgarinnar inn og svo á morgun ætla ég að hendast í að lesa LHF veldur mér höfuðverki bara tilhugsunin um það. En þetta verður maður jú að gera ætli maður sér að ná þessum prófum.
Búin að fá verknámspláss, endaði í Hlíð og er mjög sátt við það, koma tvær úr náminu og verða í heimahjúkrun, þær hrikalega heppnar, ekki sviknar af því allavega.
Er á leiðinni í rúmið eiginlega, komin með höfuðverk, eiginlega búin að vera hálf slöpp af þreytu bara í dag, tekur á að sitja í henglum í aftursætinu með ssvona stuttu millibili fram og tilbaka Reykjavík - Akureyri og svo sat maður auðvitað töluvert meira en maður er vanur og það getur greinilega verið þreytandi líka.
Helga Margrét og Óskar Snorri komu í smá pössun í dag, gekk eins og í sögu, voru hress og kát og náðum við Óskar Snorri að slást aðeins, kannski þessvegna sem honum lá svona á að komast heim, ég vann nefnilega haha.
Ætla að skríða í bælið, verð að vera rosalega dugleg á morgun, sakna lúmskt Sæmundínu og Andrésar en svona er lífið múhahah hversu mikill auli getur maður orðið, tja ég get nú bara orðið töluverður auli.
Sjúlli kveður með augun um allt