Klár stelpa

Já er eins og venjulega alveg að deyja úr monti. Brynja Dögg var að fá einkunnirnar sínar í dag og eins og venjulega eru þær ekki af verri endanum. Lægsta einkunn 8.5 og hæsta 10 og meðaleinkunn 9.2 oseisei já hún er dugleg stelpan sem betur fer.

Skreið snemma inn í ból í kvöld, mér hálfleiðist verð að viðurkenna það að hanga svona ein heima. Meira að segja kettirnir eru farnir út á lífið. Brynja fór suður í dag þannig að við Katla erum bara hérna. Sjónvarpið ekki til að hrópa húrra fyrir og KAtla var örg þannig að við fórum inn í rúm og vorum að spjalla og skoða tærnar á okkur í næstum klukkutíma. Já þið ættuð bara að sjá hversu merkilegar okkar táslur eruLoL Svo fékk Katla sér snabba og steinsofnaði og ætla ég bara að láta hana lúlla uppí hjá mér er ekki eins einmana þá. Á nú samt eftir að fara fram og fá mér smá kaffi og súkkí því það er jú nammidagur hjá mér í dag annars er ég að reyna að hætta þessu sætindaáti og borðaði t.d ekkert í gær.

Eyþór þessi mikli kaffimaður fattaði áðan að í íbúðinni sem hann fékk lánaða hjá vini sínum var ekki til neitt kaffi og í þessum litla bæ þá lokar öllum búðum mjög snemma þannig að hans mesta kvíðaefni í kvöld var það að þurfa að fara að æfa sig án þess að fá kaffi. Ég huggaði hann með .því að ég fengi mér bara eðal kaffi úr góðu vélinni okkar hér hahha. Allt skeður svo snemma hjá Svíum allt lokar snemma, þeir fara MJÖG snemma að sofa held að hjá okkur kallist liggur við vera dagur ennþá meina það.

Sá í Fréttablaðinu að Atli þingmaður vinstri grænna hefði ekki verið við þinggræjið í gær í kirkjunni því hann var að sýna samkynhneigðum vissan stuðning með því ég tek ofan hattinn fyrir honum vissi nú allt að við þessir grænu værum snillingar en SNILLINGAR jújú....Erna Snilli Hauksdóttir seisei já...ætla að prumpast eftir súkkulaði því ég er sko ekki hætt að láta ljós mitt skína í einsemdinni.

Ok fékk mér ekki kaffi nennti ekki að bíða eftir því að hún kveikti á sér, fékk mér bara pepsi max í staðinn með súkkulaðinu, eigum svo mikið af því síðan í fermingu að Sigurpáll og Kristín vildu endilega gefa okkur tvær kippur tveggja lítra, hafa greinilega vitað að ég er forfallinn maxisti og reyndar kallinn líka, ekki skrýtið þó maður sé ör og vitlaus á köflum þegar maður drekkur rótsterkt kaffi og pepsi meira og minna allan daginn W00t

Finn alveg hvernig súkkulaðið þrýstist út í brókina, skal viðurkenna að mér líður ekki vel með að liggja upp í rúmi eins af afvelta rolla étandi súkkulaði, pikkandi á tölvuna og drekkandi gos, þessi lýsing er svona ca sú lýsing sem ég myndi kannski smella á svona lónlý tölvukall ....líklega er ég bara lonelý tölvukellingWhistling

Best að fara í nokkra leiki hérna á netinu sem hún dóttir mín var svo góð að kenna mér hefur líklega vitað hvað móðirin yrði lónlý þessa daga.....

Sjúlli kveður með bumbuna út um ALLT 

 


Þreyta

Hvað er málið, er ógeðslega þreytt en get engan veginn sofnað búin að reyna en nei  það bara er alls ekki að ganga upp, hlusta á litla krílið mitt anda djúpum og værum andardráttum hér við hliðina á mér ósköp notalegt en samt ekki nóg til að svæfa mig....ekkert sem mér finnst ömurlegra heldur en að geta ekki sofið en það kemur.

Brynja er að fara suður á morgun kl 17:30 að keppa og kemur á sunnudagskvöldið aftur seint eða um kl 23 verður bara að reyna að fá far heim frá Hamri þar sem ég hleyp ekkert út núnaLoL Þessi mánuður hjá okkur er búinn að vera svakalega dýr, auðvitað ferming og síðan fótboltagjöldin fyrir sumarið sá að það á að borga þau um helgina 24.000 kr og svo ferðin suður 10.500 já skal nú segja ykkur það dýrðlegt að fá þetta svona allt á sama mánuðinn svo ég tali nú ekki um þegar ég er í fæðingarorlofi og ekki með hæstu tekjurnar...en vil nú hafa hana í boltanum góð forvörn...og félagsskapur

Fórum í dag hin heilaga þrenning eða við mæðgur og keyptum málningu á herbergið hennar Brynju það nýja, vildi hafa einn vegg grænan og svo allt hitt hvítt bara, kláraði að sparsla áðan, dugleg eru að vísu bara tveir veggir sem þarf að mála en það þarf samt að gera það býst við að geyma það fram á mánudag þá verður stelpan komin heim og getur verið með Kötlu á meðan.

Við Katla erum að spá í að bruna á Húsavík á laugardaginn og kíkja á afa Hauk, Hildur og dætur eru að spá í að fara líka kannski, förum samt á tveimur bílum komust ekki í einn erum með svo mikið af börnum. Gaman að koma austur og hitta kallinn á heimavelli. Kíki kannski á systkinin mín ef ég verð í fantaformi sé nú samt til með það.

Jæja best að reyna að fara að kanna hvar hann Óli lokbrá er að hangsa vil fá duft í augun...

Sjúlli kveður með augun galopin 


Bloggfærslur 1. júní 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband