17.5.2007 | 22:07
Hvað er í gangi
Ekki vildi ég vera framsóknarmaður núna úthýst algerlega, segja svo að allir séu bara vondir við þá haha þetta er með ólíkindum. Lýst nú ekki á Ingibjörgu og Geir hefði nú viljað eitthvað annað..en ekki ræð ég því miður því þá væri nú allt vænt sem vel er grænt.....
Kviknaði í eða var kveikt í hér á Akureyri í dag, dekkjum rétt hjá krossanesverksmiðjunni. Hver ætli hafi verið svona stórkostlega heimskur einhver greinilega ekki alveg heill á geðsmunum en sem betur fer þá lagði reykinn ekki yfir bæinn heldur Hörgárbyggð, ef reykurinn hefði staðið yfir bæinn var sagt að hefði þurft að rýma bæinn, hefði samt viljað sjá þá framkvæmd, haha bæjarbúar reknir eins og rollur upp í Vaðlaheiði og látin bíða þar Nei þetta er nottlega bara ekkert grín meira svona háalvarlegt.
Katla er búin að eiga ömurlegan dag í dag en vonandi að það sé búið allavega steinsefur hún núna vafin inn í sængina sína og sefur ósköp fallega litla skinnið, vildi geta tekið þessa magaverki fyrir hana en svo gott er það nú ekki.
Arna frænka frá Húsavík kom í heimsókn í dag með stelpuna sína hana Kareni og vinkonu hennar. Hef held ég ekki hitt hana síðan ég flutti frá Húsavík er nefnilega ekki sú duglegasta að fara til Húsavíkur. Alltaf gaman að sjá hana samt sem áður. Ætlum að reyna að hittast reglulega hér eftir. Hún færði Kötlu tvennar buxur, bol og sokkar bara æði
Mamma og Hildur komu líka seinnipartinn með tvær sólir með sér, urðu að smakka kaffið úr vélinni okkar flottu, fannst það gott held ég. Eyþór er búinn að vera svona svolítið eins og raketta í dag, nottlega mjög ánægður með vélina og drekkur kaffi grimmt og liggur við að hann hafi verið að sveifla sér í
ljósakrónunum hér, he Tarzan me Janegrrrrr haha
Fór í Bónus aðaltilgangurinn var að kaupa bleyjur en næsti tilgangur var að kaupa rjóma og súkkulaði svo ég gæti búið til Swiss Mokka mundi bleyjur en gleymdi hinu, skondið....
Við systur ætlum að fara í göngu í fyrramálið ég með Rollsinn hún með hjólbörurnar haha ég á svo flottan vagn hún reyndar líka en ..........keypti mér nokkuð mjög svo nauðsynlegt á vagninn um daginn hef sjaldan eða jafnvel aldrei fjárfest svona vel, ég keypti glasahaldara á djelluvagninn þannig að núna get ég brunað með vaginn og verið með Swiss Mokka úr te og kaffi og verið samt mjög flott að líta á ekki hálfbogin með glasið í hendinni að reyna að sleppa við að hella yfir Rollsinn.
Eyþór er að horfa á þáttinn sinn Desperate housewifes, vildi nú ekki viðurkenna þegar við vorum í Trivial og hann vissi ÖLL svör sem tengdust þessum þætti að hann horfði á þetta en *hóst* hann er að horfa og er stjarfur tökum eftir því og flissar yfir honum. haha fæ líklega skammir þegar hann sér að ég er búin að setja þetta leyndarmál hans á netið en svona er lífið. Æi hann er æði
Á ég ekki bara að hætta að röfla hér, finnst það samt svo gaman, finnst ég eitthvað svo stórfengleg þegar ég hendist með puttana yfir lyklaborðið og finnst ég hafa svo margt að segja sem ég svo reyndar fatta eftir á að er bara rugl.
Ég er hætt
Sjúlli kveður æðisleg að vanda