hvaða hvaða

Sit hérna eins og teiknimyndafígúran Tommi (Tommi og Jenni) með tannstöngla til að halda uppi augnlokunumTounge og reyni að svara gátlistanum í Lollinu. Katla svaf kannski 2 tíma í nótt og ástæðan jú foreldrarnir áttu að prófa að minnka bakflæðislyfið Losec mups til að kanna hvort bakflæðið væri á undanhaldi en nei nei held að það sé komið í ljós að svo er ekki og lyfið fékk hún aftur í morgun DAMN. En sefur eins og engill núna þrátt fyrir mjög mikla riginingu. Sefur kannski þess vegna svona vel tja maður spyr sig. 

Var dálítið dugleg í gærkvöldi byrjaði á gátlistanum og svo núna er ég að hringla eitthvað í honum aðallega bara horfa á hann, skil minna en finnst ég eitthvað svo dugleg að sitja hér við bækurnar þrátt fyrir að gera eitthvað lítið haha, get svo montað mig já ég lærði í allan morgun ahhahahaha right

Katla vöknuð og ég líka

Sjúlli kveður 


Bloggfærslur 21. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband