21.4.2006 | 15:38
Sól sól skín á mig
Þvílík blíða núna, sólin glennir sig bara eins og henni sé borgað fyrir það Lítið að frétta eins og alltaf, mæðgur Sól og Hilla voru hér í heimsókn og Sólin var ekki alveg sátt við Móðu sína finnst hún vera frekja held ég....svolítið líkar frænkur
Eyþór er að vinna til 4 en síðan held ég að hann eigi bara helgarfrí ótrúlegt að hann eigi frí tvær helgar í röð er í fríi næstu helgi líka. Kominn tími til. Ég var að vinna til 12 og er s.s. komin í helgarfrí, er að búa mig undir að þrífa búin að vera að því síðan kl. 13 og lítið gert enn, vildi að maður hefði róbóta í þessi verk hræðilega leiðinlegt, er kannski ekki að flokkast undir það að vera hin fullkomna húsmóðir finnst þeim þetta ekki svo gaman?
Ætlaði að fara upp í Kjarnaskóg að skokka áðan en fannst fullhvasst ein léleg afsökun enn fyrir að nenna ekki hlutunum en ætla nú samt að fara á eftir..maður verður að hreyfa sig eitthvað verður svo gífurlega sprækur. Er annars alveg að mæla með því að eiga boxpúða maður fær þvílíkustu útrásina á því að lemja hann, enda núna er Eyþór næstum alveg hættur að kippast til ef ég nálgast hann og Brynja segir að ég sé skapbetri...borgaði sig alveg að fjárfesta í honum, svo verður hlaupabrettið næst
Farin að skutla stelpunni á fótboltaæfingu...Have a nice day Ernan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)