Lífið er ljúft

thumb_88113_633595690976007058Sá þetta á netinu og fannst þetta alveg brillíant haha, vandamálin bara leyst með þessari pillu. Maður verður að hafa húmor fyrir hlutunum ekki satt. Fínt að frétta hér, ég er með litlu mini me hangandi í mér allan daginn og má ekki snúa mér við án þess að hún lafi einhversstaðar i mér.

Fórum og bökuðum okkur heilar 4 vöfflur áðan, deigið varð svolítið abstrakt, erfitt að gera allt með annarri hendi, og svo varð það of lítið í þokkabót og of þunnt og eitthvað bragðlaust, mundi ekkert hvað átti að vera í vöfflum tja sem ég segi lífi er ljúft.

Var að vinna i morgun og gekk það eins og alltaf sinn vanagang, gefandi sem aldrei fyrr, gott að hitta gamla fólkið sem er svo jákvætt í öllum þessum hamagangi í þjóðfélaginu enda man það nú tímana tvenna alla vega sumir.

Á eftir að druslast í bankann og redda gjaldeyri fyrir Brynju vona að ég fái nokkur bresk pund án þess að hafa farseðilinn hennar, nú annars hendi ég því bara inn á kortið hennar og hún fær þau í Leifsstöð vonandi, kortið hennar er reyndar ekki komið, týndi sínu nefnilega og þurfti að sækja um nýtt, vona samt að það nái annars verður hún bara að fá að fara með kortið mitt aumingja hún lítið inni á því haha

Best að hætta að bulla um allt og ekki neitt

Ein góð mynd hér að lokum hafið það gott þar til næst

thumb_88113_633595952704576806 Sjúlli kveðurW00t


Það var nebbilega það

Dagurinn tekinn snemma hér, komnar fram við mæðgur kl 05.55 óvenjulega snemmt svona miðað við síðustu daga en þá hefur klukkan vakið okkur kl 06.45 hélt að allt væri nú að breytast en neinei greinilega ekki, nema það séu bara helgarnar sem verði svona morgunhressar.

Allt við það sama hérna á klakanum, allt i voða sem vonandi fer nú að einhverju leyti að dvína, hef svo sem ekki miklar áhyggjur ekki þannig, þetta er samt dapurt að hugsa til þess að nokkrir menn geti komið heilu landi á hvolf, en svona er lífið, maður getur gert ýmislegt með peningum. Eins gott að maður á bara tiltölulega lítið af þeim því það sannast held ég að margur verður af aurum api.W00t Enn öll erum við jú komin af öpum en spurning hvernig maður vinnur úr því haha.

Brynja fór upp í Hlíðarfjall með félagsmiðstöðvunum hér á Akureyri og ætluðu að gista, fara í ratleik og svona skemmtileggt, var búin að hrella hana temmilega með draugasögum, ég gisti nefnilega þarna þegar ég var 14-15 ára en þá fór Lundarskóli í skíðaferðalag og var gist í fjallinu, ætla ekki að lýsa þeim hljóðum sem yfir okkur gengu á næturnar og auðvitað var þetta allt bendlað við draugagang frekar en að húsið væri orðið gamalt en verður gaman að heyra hvað henni fannst þegar hún kemur heim ósofin og fín.

Skrapp aðeins til Hillu í gærkvöldi og Elín sys var hjá henni og ætlaði að gista, var búin að prjóna svo fallega ullarskokka svarta handa Sólunum og dró fram einn svo fallegan sem hún hafði gert handa Kötlu líka, ekkert smá krúttleg stóra systir:) Enda sagði Ragnhildur Sól, "Afþví að amma Lilja er dáin þá verður einhver að kunna að prjóna" og ég er sammála því eins gott að maður á góða að í þessum efnum, en í leiðinni lýsti þessi litla frænka mín skít á mig og mömmu sína haha eins og við getum ekki prjónað allt spurning um tíma og að nennaLoLEn Katla fór í hann í morgun og er svona ljómandi fín í honum. Annars fékk  hún gefinst annan ullarkjól og daginn með hettu og ekkert smá flottur frá henni Ingu Salome, er aðeins og stór ennþá en hann verður vel notaður þegar fer að líða á veturinn.

Eyþór er að fara að vinna og verður að vinna í allan dag þannig að við Katla lufsumst hérna með Brynju hálfsofandi inni í herbergi, spurning hvað við gerum okkur til dundurs. Svo er Brynja að fara til Manchester á fimmtudaginn og Eyþór til Þýskalands þannig að við verðum ALEINAR um næstu helgi, og meiri hluta vikunnar líka, en svo fer ég til Dublin og bara get ekki beðið að losna aðeins úr þessari venjulegu rútínu.

Hugsa að í dag verði frekar lítið um lærdóm en verð að vera þeim mun duglegri í kvöld bara jeddúda nóg framundan í þeim efnum, maður klárar eitt verkefni þá bíður annað og svona rúllar það. Á að skrifa smá greinargerð um það núna hvernig ég kenni börnum handþvott á sem árangursríkastan hátt, er að læra svona smá í kennsluaðferðum inni í sjúkraliðanáminu, verður hausverkur jeddúda

Sjúlli kveður djúpt hugsi 


Allt á leið til fjandans

Ekki hér enn sem komið er allavega. Orðin leið á því að heyra kalla sem eru búnir að koma sér vel fyrir með böns af peningum undir koddanum væla um að allir verði að standa saman, þeir ættu kannski að moka undan koddahelvítinu og hætta þessu rugli, er þetta ekki þessum köllum að kenna sem hafa fengið fleiri tugi milljóna í laun á mánuði og fjárfest eins og andskotinn væri á hælunum á þeim. Hef ekkert vit á þessu bara gaman að tuða. En Steingrímur Joð er alger snillingur samt sem áður og sá eini sem virkilega þorir að segja þessu liði til syndanna.

Var á læknafundum í vinnunni í morgun, verða á þriðjudögum liggur við út nóvember, förum á heimilislæknalínuna og förum yfir alla sjúklinga sem við erum að sinna ekki mjög gaman en nauðsynlegt samt. Var með mjög mikið í dag 3 böð og 3 ADL og lyfjaskutl tja hvað maður er duglegur og þetta hafði ég af með naumindum frá 9-13 seisei já

Var að lesa í stjórnun áðan jahérna komst að ýmsu mjög fróðlegu, ákvað að lesa þetta yfir aftur frá upphafi og ég skildi þetta einhvern veginn betur núna eftir að hafa verið í lotunni fyrir sunnan, stelpur ég held ég sé að komast í gang svei mér þá.

Skil ekki tilhvers maður er í greiðsluþjónustu, komst að því í dag að þeir höfðu bara ekki greitt námslánin hjá eiginmanninum og ég nottlega heyrði í þeim og nei þá höfðu þeir rétt af greiðslureikninginn í apríl og tekið til þess peninginn sem átti að koma inn til að borga reikninga þannig að nú kom út eins og ég skuldaði hluta af einum mánuði, og ekkert verið að láta mann vita, fæ aldrei send yfirlit eða neitt varðandi þessa blessuðu greiðsluþjónustu DAMN varð reið. En svona er lifið alltaf að koma manni á óvart, svo tjáði hún mér að afborganir hefðu hækkað svo mikið eins og ég hafi ekki tekið eftir því. Ekki lítið sem matur hefur hækkað fór áðan að versla, verslaði í 2 poka og það kostaði rúmar 8 þús díses.

Ætla að taka slátur kannski um helgina og gera fullt af því og borða svo bara slátur í alla mata, slátur á brauð, slátur steikt, slátur soðið, slátur með graut, erum líka búin að redda okkur 2 skrokkum hjá bónda hérna inni í sveit og það verður saltað og soðið og bara á allan mögulegan hátt og hananú. Svo er það nottlega gamli góði hafragrauturinn sem kemur sterkur inní svona hremmingum.

Best að hætta þessu rugli og fara að sofa er ákveðin í að lesa Pollyönnu fljótlega athuga hvort maður verður ekki svífandi jákvæður

Sjúlli kveður á barmi neikvæðninnar.W00t


81 dagur og 19 klst til jóla

Einn af þessum dögum þar sem ég er með bloggræpu. Var vöknuð kl 6.30 í morgun ekki sú ferskasta en dröslaðist nú samt fram og gerði hafragraut handa okkur mæðgum, hressti mann við að fá hann og svo sterkan kaffibolla á eftir, góð byrjun á deginumLoL Eyþór fór svo að spila í messu og kemur um kl 13 þannig að við verðum að dindlast eitthvað hérna þangað til að hann kemur. Já svo fer nú að styttast í jólin gott fólk, við systur og dóttirin mín ætluðum að gera þvílíkt góð kaup í Dublin en endar ábyggilega með því að við sitjum inni á hótelherbergi og tímum ekki að gera neitt haha onei alveg eins gott að versla þar og hér, allavega ekki dýrara:)

Var voða dugleg í gærkvöldi og prentaði út þvílíkt mikið af glærum, gerði svo restina af þeim verkefnum sem ég var ekki alveg búin með og henti inn á WebCt.

Við Katla renndum okkur til pabba í gærmorgun eftir að hafa reynt árangurslaust að búa til snjókall hér í garðinum (ekki nægur snjór) og fengum kaffi og nammi hjá honum. Fórum svo til Hillu og dætra og fengum grjónsa og slátur alveg eðal og þá var kominn tími fyrir litla genið mitt að fara að sofa. Ég hljóp svo 5 ,2 km og var alveg sátt við það:) Verð að komast í gang aftur eftir sukkið í borginni. Enda fór ég og keypti mér 2 kg af hreinu skyri.

Fallegt veður hér núna, sól og logn bara og um 1 °C er að spá í hvort ég eigi að nenna að rölta eitthvað út með Kötlu er einhvernveginn ekki alveg í stuði en stundum verður maður að gera hluti þó maður nenni þeim ekki:)

Sjúlli kveður frekar þreyttur 


Snilldar Reykjavíkurlotu lokið...

Alltaf er jafn gott að koma heim eftir að vera að heiman. Fór s.s. suður í gærmorgun og beint upp í skóla þar sem var klístrað alveg hellings lærdómi á heilann til 15.30. Þá fórum ég, Anna R, Elísabet og Hulda F á kaffihús og önduðum aðeins áður en við geystumst upp í Sjúkraliðafélag þar sem var haldin kynning á fagdeild öldrunarsjúkraliða og snittur og læti á eftir, mjög fínt. Var komin upp á hótel um kl 19.

Síðan í dag var maður mættur í skólann kl. 09 og setið svo til stöðugt við til kl 13 og það var svo skemmtilegur fyrirlesari að maður hreinlega veltist um af hlátri á köflum. En þetta var um gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu mjög gaman. Fórum þá og fengum okkur að borða aftur hin heilaga ferning á cafe Mílanó og reykspóluðum svo upp á Landakot þar sem við fengum að skoða t.d. líknardeildina og alzheimerdeildina. Allt mjög fróðlegt og skemmtilegt.

Þessi ferð var mjög skemmtileg í alla staði og þessar konur sem eru í þessu námi með mér eru bara snillingar frá A-Ö. Sakna þess bara að hitta þær ekki oftarGrin Anna R á þvílíku þakkir skyldar fyrir allt skutlið, bara frábær:)

Hildur systir sótti mig svo á flugvöllinn og ég laumaðist hérna inn og þá kom litla krílið mitt hoppandi á móti mér en var eins og smá feimin fyrst en knúsaði svo mömmsluna sína, ekkert smá gott að sjá hana, ótrúlegt hvað maður getur orðið háður þessum elskum. 

Ætlaði svo að fara að prenta út alveg helling af glærum þegar ég kom heim, gat prentað út 30 stk þá var fjandans blekið búið og mín verulega skapvond yfir því:( neyðist til að fara að kaupa prenthylki á morgun svei mér...

Eyþór er svo að fara í gæsir með Mása bró í nótt, Brynja er farin í Garðinn á samféslandsfund, þannig að ég og litli gullmolinn verðum hérna tvær að krúsast á morgun. Farið að haugsnjóa hérna, verð nú að viðurkenna að mér lýst ekki mikið á að kallinn sé að fara á bílnum á sumardekkjum en þeir eru alltaf svo góðir bílstjórar að eigin áliti þannig að mér skilst að ég þurfi engar áhyggjur að hafa.

Búið að vera óglatt síðan ég kom heim, líklega bland af hraðáti í dag og svo flugferð, er alveg svakalega flughrædd og flugvélin hristist aðeins og ég þurfti að halda niður í mér ælunni...húff var voða fegin þegar vélin var lent.

Svona var þetta, svo tekur núna bara við lærdómur á lærdóm ofan, verð að fara að komast í gang, svakalegt efni sem á eftir að lesa og læra, best að fara að byrja á einhverju af þessu.

Góða nótt 

Sjúlli kveður svakalega ánægður með lotuferðina sína 


Dabbi Odds og félagar að meika það

Þvílík læti hjá Dabba Odds maður minn, hann ætlar ekki að gefast upp á því að knésetja Bónusfeðga. Já sumir eru með horn og hala jeddúda mía. Þvílíkt vald sem einn maður hefur, er sammála því sem var sagt í útvarpinu áðan að landinu er ekki stjórnað frá neinum stað nema Seðlabankanum. Sem betur fer hef ég verið með það mikla vitglóru að hafa ALDREI kosið sjálfstæðisflokkinn enda þeir menn sem hafa verið í framvarðarlínu þar aldrei verið mjög frýnilegir.

Ég styð Jón Ásgeir og vona að hlutirnir eigi nú eftir að snúast honum og Jóhannesi í hag. Þessir menn hafa ekki lítið gert fyrir okkur Íslendinga. Spurning að fá annan sem forsætisráðherra og hinn sem seðlabankastjóra LoL

En annars allt fínt að frétta, búið að snjóa smávegis hér í dag og bara stemning í því, ætlaði að fara í dag og kaupa mér einhverja hlýja og góða Cintamani peysu en viti menn úrvalið bara ekkert og ef eitthvað úrval var þá var ekki til nema dvergastærðir og þar sem ég er stór dvergur passaði ekkert á mig, get svo svarið það DAMN. Ætla að athuga á morgun aftur átti víst að koma ný sending í dag eða morgun í Sportver skildist mér á gaurnum sem sýndi mér lítinn sem engan áhuga þrátt fyrir tilraunir til að fá hann til að leiðbeina mér DÖH

En hvað um það hljóp í dag aftur rúma 5 km á meðan ég horfði á Tomraider eða hvernig sem það er skrifað með Angelinu Júllu og fleiri góðum. Röltum okkur hjúin niður í bæ í kuldanum með Kötlu sofandi og það var kaldur göngutúr enda er maður ekki alveg að átta sig á því að það er víst að koma vetur merkilegt nokk.

Fékk útborgað og ég fékk lítið útborgað ferlega er þetta lélegt kaup sem ég er á, er reyndar bara í 60% vinnu en mér er sama, ferlega úldið, fer einu sinni í Bónus og málið er dautt, miðað við allt í dag, þarf ekkert að hlaupa horast bara afþví ég fæ svo lítið útborgað haha stemmari í að koma með svona smá væl í restina ekki satt.....Kaupa Cintamani en á ekki fyrir mat, ætti að skammast mín og þakka fyrir að búa ekki í Eþjópíu (hvernig sem það er skrifað)

Sjúlli kveður horfallandi 


Dojng

Drullaðist loksins til þess í dag að bóka flugið suður, ætla að taka fyrstu vél á fimmtudagsmorgun og lending er 8.30 og ég á að vera mætt upp í skóla kl 9.00 eins gott að leigubílar Reykjavíkur séu snöggir þoli ekki að vera sein, mæta eins og auli síðust, skeður aldrei vegna þess að mér finnst það ömurlegt en kannski næ ég þessu barasta, farin að hlakka til að hitta hina ofursjúllana ekki oft sem maður umgengst svoleiðis fólk haha við erum bestar:) Kem heim á föstudagskvöldið býst fastlega við að minn eðalmaður verði tilbúinn með steik og með því til að fagna komu frúarinnar víííííí, kannski les hann þetta :)

Var í fríi í dag, byrjaði daginn á að skokka rúma 5 km agalega dugleg, fór síðan í sturtu og keyrði frumburðinn í skólann, síðan í lit og plokk og bara að hanga í bænum:) Brynja er að fara á Samfés landsfund eða eitthvað svoleiðis um helgina, nokkrir krakkar sem hafa unnið mest í félagsmiðstöðvunum fá að fara gaman að því, verður haldið í Garði. Brjálað að gera hjá dömunni var í vörutalningu í dag á vegum Þórs, taldi skrúfur í Byko af miklum móð.

Eyþór sést eitthvað lítið, dettur inn þegar hann fer að verða svangur og svo *púff* farinn aftur. Svona er nú lífið, er svona pínu grasekkja á köflum.

Katla fór í sprautu í dag og sparkaði í punginn á lækninum, ég hefði gert það sama ef hann hefði ætlað að sprauta mig, átti þetta skilið. Ef hann fann til (sem hann hlýtur að hafa gert þetta var fast) þá lét hann ekkert í ljós, *fliss* mér fannst þetta ógeðslega fyndiðLoL Stelpan stækkar meira en þyngist en það er barra hið besta mál, er alls engin horrengla bara temmilega enda orkuskott af bestu gerð. 

Hvað get ég röflað meira, jú Hilla sys keypti sér gellujeppa í dag, svartan Terrano með topplúgu og leðri alger buddubíll, *öfund* til lukku með gripinn átt hann svo sannarlega skilið gæskan.

Okkur langar að skipta um hús, ekki mjög hagstætt þessa dagana sýnist manni, ekki nema einhver vildi hafa makaskipti (hverslags orð er það um húsaskipti) en jújú makaskipti er það kallað. Tja ætlum samt að skoða möguleikana á því, þreytt á að vera í svona sambýli.

Jæja best að læra eitthvað er ég ekki í skóla til þess,,,hélt það

Sjúlli kveður bara sætur 


nýjar myndir

Nýjar myndir komnar á myndasíðuna okkar:

www.123.is/munkar

Katla

Katla2













Kvold

Fish and chips

Enn veikindi í litla stubb, með ólíkindum, hugsa ég fari nú í dag og láti tékka á þessu, ómöglegt að moka í hana hitalækkandi dag eftir dag án þess að láta kíkja á hana, hrædd um líka að hún fari að þorna upp greyið litla.

Bjartur frændi datt hérna inní gær og fékk sér eðal expresso í sterkari kantinum hugsa að hann hafi alveg slegið met í hraða til Húsavíkur haha. Var á leiðinni heim til að læra en hann er í borginni að nema lögfræði, eins gott að einhver er að læra eitthvað af viti...kem til með að nota mér þetta eflaust einhverntímann, fæ kannski 5% fjölskylduafslátt hahahhaha

Lítið getað lært síðustu tvo daga, var líka að fatta að ég á eftir að kaupa eina bók, betra seint en aldrei, hélt ég væri komin með allt en eitthvað leit ég skakkt á hlutina:) Fer í það á morgun er nefnilega komin í 4 daga helgarfrí jájá sei. Alger lúxus. Var eins og tuska í morgun, blóðþrýstingur 95/50 og púls 120 sá allt í einhverju rugli og svo fékk ég eitthvað tak fyrir brjóstið, held það hafi nú reyndar bara verið millirifjagigt. Þetta leið hjá eftir að ég hafði drukkið um 1 líter af vatni en eftir sat ofsa hausverkur, kannski er maður að fyllast af einhverri helv....pest ekki í fyrsta skipti sem ég eyði langri helgi í slíkt. Ekkert hreyft mig síðan á sunnudag og er að verða ógeðslega pirruð en hreyfi mig af krafti þegar þar að kemur, er svo að fara suður á fimmtudag en kem á föstudag aftur og þá getur maður virkilega farið að láta sig hlakka til Dublinarferðar jájá engin spurning það verður snilld

Best að laga aðeins til hérna á meðan krílið sefur, allt í rúst og ekkert verið tekið til né þvottur þveginn hér lengi lengi og angar allt af skít held ég...kveiki á reykelsi og þá lagast sá vandi haha:) Best að gera eitthvað

Sjúlli kveður algjör fiskur 


Leiðinda tími

Veikindi og aftur veikindi, rétt rúm vika síðan litla eldfjallið mitt var lasið og svo í gær varð hún aftur lasin með háan hita og búin að vera í dag með 39.4°C og hreint alveg hundlasin, litlu lungun alveg stútfull af kvefi ömurlegt. Eyþór var með hana fram að hádegi í gær og í dag og ég tók svo við þegar ég kom heim og verð heima með hana á morgun. Skyldi þetta engan enda ætla að taka. Skilst að flensan sé komin og greinist bara enn sem komið er í börnum. En s.s. búinn að vera tiltölulega rólegur dagur bara viljað kúra og láta lesa fyrir sig, ekkert borðað og lítið sem ekkert drukkið. Var reyndar búið að segja mér að bakflæðisbörn væru veikari fyrir þannig að það er greinilega að sanna sig bara.

Sit núna og er að velta fyrir mér hvenær ég eigi að panta mér flug suður í næstu viku, hvort ég eigi að taka sénsinn á að fara með morgunflugi á fimmtudaginn og gista bara eina nótt eða hvort ég eigi að taka síðasta flug á miðvikudagskvöldin og gista 2 nætur. Hugsa að ég geri það en ætla að melta það til morgun, ætlaði að leigja mér sjúkraliðaíbúðina afþví að hún er í göngufæri við skólann en hún er í leigu þannig að ég ætla að reyna að troða mér inn á Bjart frænda upp í Breiðholti nema ég verði bara á gistiheimili/hóteli sem eru beint á móti skólanum:) Leik greifa í nokkra daga ekki slæmt það:) Skoða það á morgun.

Búið að vera töluvert að gera í náminu, er búin að skila af mér 3 verkefnum og er strax búin að fá úr einu þeirra jebb fékk 10:) Ekki reyndar strembið verkefni en 10 engu að síður:)

Hef ekkert getað hreyft mig núna í 2 daga og ég er að klikkast finn alveg hvernig hálsinn fer alveg til fjandans um leið eiginlega, ætla að hreyfa mig áður en Eyþór fer í fyrramálið í vinnuna bara verð til að höndla daginn. Er hrikalega svöng núna en að sjálfsögðu fæ ég mér ekkert nema kaffi eða vatn, reyndar 4 döðlur sem tróðu sér upp í mig áðan bölvuð frekja í þessu þornuðu stykkjum.

Þarf að fara með Poloinn í skoðun á föstudaginn, er í fríi þá og Eyþór líka held ég, vorum að spá í að fara í Mývatnssveitina og vera á hótel Reynihlíð yfir helgina en hugsa að við geymum það þar til í október, Katla lasin og ég þarf að læra og Brynja er að fara á Rósaball og ég veit ekki hvað og hvað, sendi kannski kallinn bara á gæs í staðinn, hann tímir bara aldrei að borða það sem hann skýtur......Mási nennirðu ekki að fara með honum hann er að gera mig brjálaðaTounge

Best að hætta þessu rausi og fara að læra eins og ég ætlaði mér upphaflega að gera, alger letihaugur svei mér þá, bara kem mér ekki til að lesa um  aldurstengdar breytingar á sjón og heyrn...tja hvað getur maður sagt.

Sjúlli kveður latur 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband