Skólafærsla en ekki hvað:)

Vorum á Húsavík í dag, fórum um hálfellefu í morgun og komum til baka um 5 leytið. Pabbi var bara sprækur og var búinn að sjóða hangikjet þegar við komum þannig að ég sletti mér í að búa til jafning og svo var snætt. Fórum svo í bíltúr upp á Húsavíkurfjall og út um allt í nágrenni Húsavíkur var virkilega flott veður og svona sól en kalt. Katla var í banastuði alveg hreint og mikið kát enda afi hennar alltaf að glenna sig eitthvað framan í hana. 

Pabbi fann gamlan olíulampa niður í geymslu sem amma Þuríður hafði átt og aldrei verið notaður og ég sem er svolítið hrifin af gömlum stíl svo ég tali nú ekki um ef ég veit að einhver amma mín eða afi hafi átt eitthvað. En s.s. hann gaf mér þennan fallega gamla lampa til að hengja á vegg og er ég núna að leita að stað til að setja hann upp.

Lærði s.s. ekkert í dag en hefði virkilega þurft að gera það en svo þegar ég ætlaði að fara að senda verkefni í gegnum WebCt þá auðvitað virkaði það ekki þannig að ég ætla nú að fara og hitta vini mína í Haftækni á morgun og biðja þá að setja inn þær stillingar sem eiga að vera í tölvunni er alltaf að lenda í brasi.

Jæja á að gera smá verkefni í UTN hér þannig að ég ætla að henda því inn í aðra bloggfærslu. 

Sjúlli kveður kátur að vanda 


Hún er komin

Já stóran mín er komin heim. Verð nú að segja að mér létti haha ótrúlegt en satt hugsa að ég sé háðari henni en hún mérSmile En allavega komin heim sólbrún og sætari, fékk að vísu sólarofnæmi en það er á miklu undanhaldi, hendi henni bara út í rigninguna hér og athuga hvort þetta skolist ekki burt. Var svo fegin að koma heim en fannst alveg ofsalega gaman og skemmti sér mjög vel og er mjög kát. Keypti sér mikið, og auðvitað keypti hún bol handa systir sinni merktur katla 10 en uppáhaldsfótboltamaðurinn hennar er nr 10 þannig að auðvitað valdi hún það handa stubbu litlu:) Gaf okkur Eyþór ofsalega flottar myndir sem einhver maður málaði á meðan hún beið, tvær í fjólubláu og svörtu og mjög flottar þarf að finna ramma undir þær svo að sjálfsögðu keypti hún nammi handa nammigrísnum, nei ekki Eyþóri vissi að ykkur dytti hann fyrst í hug nei handa mérPinch Svo tyggjó og meira tyggjó og ég veit ekki hvað og hvað.  En aðalmálið að það er gott að fá hana heim.

Er búin að vera að reyna að læra í dag gekk svona ágætlega þangað til að mér datt í hug að taka tölvuna inn í sama herbergi og ég var að læra í nema hvað ég datt á netið og gleymdi mér og heyri allt í einu að sú stutta er bara vöknuð og skildi hreinlega ekki hvert tíminn hafði farið já svona getur maður verið klikk.

Eyþór er að vinna og vinna og vinna og verður að vinna til allavega 10 í kvöld. Við ættum ekki að fá leið á hvort öðru eða hvað. Erum kannski að spá í að renna á Húsavík á morgun pabbi gamli átti afmæli í gær og ætluðum við að fara á sunnudag en það var svo fúlt veður þannig að við ætlum að skoða það á morgun. Annars bara fínt að frétta held ég. Svefn var í minni kantinum í nótt þar sem Katla heldur að á milli 3 og 5 eigi hún að vera með skemmtiatriði og spjalla og toga í mann og svona en er svo voðalega hissa þegar hún heyrir vekjaraklukkuna hringja kl 7 og vill sofa meira:) Tja svona er þetta.

Ætla að fara að spjalla við þessa brúnu stelpu hérna við hliðina á mér

Sjúlli kveður hvítur sem apaskítur 

 


Heili.....

Fingurnir á mér eru eins og nýsmurðir og ég hendist hérna yfir lyklaborðið og finnst ég hafa gríðarlega mikið og merkilegt að segja en ég hef það auðvitað ekkiDevil Snjóaði í dag og við Katla fórum út til að kanna áferðina á þessum hvítu tutlum henni fannst það mjög merkilegt og mömmunni líka haha. Fórum svo til ömmu kl 12 og vorum svo heppnar að hún var að elda súpu ótrúlega heppnar var auðvitað með þetta planað að detta inn á matartíma nei segi svona. Fleiri höfðu látið sér detta þetta í hug því Hillus og co voru þarna líka. En s.s. við borðuðum og fórum svo heim því okkar beið kaffiboð í nágrenninu. Fórum til Unu,Óskars og barna og fengum eðal pönnukökur, Eyþór fékk gulrætur, súkkulaði og kex heppinn strákur:) Eftir mikið spjall og mikinn hlátur eins og alltaf fengum við egg með okkur heim tja ekki veitir af að hressa mann aðeins viðLoL Foreldrar Unu búa í sveit og með hænur þannig að hún átti birgðir. 

Svo kom Skari Pé og söng hérna í eins og klukkutíma á meðan Eyþór djöflaðist á píanóinu og Katla söng með í nokkrum lögum fannst þetta mjög gaman. Mamman trallaði svona með reyndi að láta það ekki heyrast mjög fölsk að vanda en finnst engu að síður gaman að syngja.

Byrjuð í skólanum og hef verið að lesa aðeins í dag, opnaði LOL bókina og fékk eiginlega höfuðverk fljótlega en svo hef ég verið að lesa í dag og meira að segja skilið smá. Kötlu fannst nú ekki mjög gaman að mamman væri að lesa þannig að ég hætti bara. Les meira á morgun þegar Katla fer í vagninn fínn tími að nýta hann í það. Eigum að vera með bloggsíðu í upplýsinga og tækni faginu og ef við ekki eigum áttum við að stofna eitt slíkt company og nú eru flestar skólasystur mínar byrjaðar að blogga, húrra fyrir þeim::) Mér finnst mjög gaman að blogga, burtséð frá því hvort einhver les það eða ekki skittir nú engu enda ekki mikil viska í mínu bloggi. Samt sko ég veit hvað Plasma og Serum er sko þarna það vitið þið ekki nema auðvitað þið sem eruð sjúllar, hjúkkur eða meiri sjúllar eins og við ÁrmúlagellurnarHappy Segið svo ekki að viskan sé að fara með mig.....

Æi er með hausverk ætla að fara að reyna að ná honum burt kem aftur síðar

Sjúlli kveður blóðrauður í framanGasp


Dauðinn kemur alltaf við mann

Í dag var gömul skólasystir mín borin til grafar 38 ára að aldri og lætur eftir sig þrjú börn á aldrinum 5-18 ára er lífið sanngjarnt ekki finnst mér það. Setningin "þeir deyja ungir sem guðirnir elska" finnst mér bara alls ekki eiga við jú eflaust elskar guð þá en hann elskar alla ekki satt. Fyndist hann mega aðeins slaka á þá í að elska allt þetta unga fólk því það deyr allt of mikið af fólki langt um aldur fram. 

En þetta hefur setið svolítið í mér eftir að ég frétti að hún væri látin og ég hef mikið hugsað um hversu fljótt allt getur breyst. Maður getur aldrei verið viss um það að vakna á morgun eða að lífið verði á morgun eins og það var í dag. Þetta er allt spurning um hver sé næstur og það getur alveg eins verið ég eða þú sem lest þetta. Ef ég á að segja eins og er þá er ég pínu hrædd við dauðann bæði vegna mín og eins vegna þeirra sem eftir verða. KAnnski vegna þess að ég veit ekki hvað bíður mín þarna hinumegin og svo vil ég ekki láta fólk verið sorgbitið vegna mín. Söknuður er alltaf sár og sérstaklega fyrir lítil börn sem fá aldrei að sjá mömmu sína aftur. Vá hvað lífið er ósanngjarnt.

Blessuð sé minning Helgu Línu

Sjúlli kveður með tárin í augunum


Glorr

Ég er mætt hvað annað læt nú ekki fréttast að það heyrist ekkert frá mér í langan langan tímaLoL
Ég hef ekkert að segja en einhverra hluta vegna þá er ég hingað komin. Einhver köllun svei mér þá. Við sitjum hérna hjónin og okkur finnst hvort annað greinilega mjög leiðinlegt því við erum bæði í tölvunni og ræðumst ekki við. Spurning að kveikja á msn og daðra smáGasp Nei svona er þetta bara ég var að skoða fyrstu sendinguna af námsefni og hann er að vinna eitthvað í sinni töllu.

Ég hafði stór orð um vini mína í Haftækni í síðasta bloggi. En ætla að leiðrétta núna að þeir eru bara alveg fínir bara. Fór niður í búðina með alla fjölskylduna mér til halds og trausts og tölvuna, ætlaði nú aldeilis að derra mig út af batteríinu og ekki kaupa neitt þar fyrir utan. En góð þjónusta varð til þess að ég fór heim með ekkert batterí en 7000 kr fátækari já hversu heppinn getur maður nú verið.

Svei mér það verður ekki manni út sigandi á morgun og snjókoma á hálendinu svei mér þá ég skal segja ykkur það, mikið vildi ég að ég og Jóhannes værum vinir alltsvo Bóner maðurinn því þá myndi ég díla við hann að hendast með mér já eða bara lána mér einkavélina sína og skella mér á erlenda strönd, tja gæti verið gaman.

Ég ætla að fara að leika mér í tölvunni, hef hvort eð er ekkert að segja.

Una aldrei að vita nema ég komi í kaffi þegar veðrinu slotar kannski á föstudag svo þurfum við nú að fara að ræða sláturgerð skilst að karlarnir viilji taka alla helgina í þetta:)

Sjúlli kveður hætt við að breyta makka í mann:) 


Ég bý í sveit á sauðfé á beit..nei segi svona

Allt prýðilegt að frétta like always svo ég sletti nú svona smávegis, er eitthvað svo heimsborgaraleg núna í kvöld, sit hér ein í þögn og drekk kaffi og hef það huggó og að sjálfsögðu er ég í töllunni minn hvað annaðTounge Eyþór er á leið úr Húnavatnssýslu þar sem hann var með kórinn sinn Hymnodiu eitthvað að söngla og verður kominn heim tja svona bráðum ef allt gengur að óskum.

Brynja er farin til Spánar og ég get svarið að mér líður liggur við eins og þegar hún fór til Mallorca með pabba sínum og Kristínu þegar hún var minnir mig 5 ára vá mér leið svo illa var á límingunum haha en pabbinn greinilega man hvað móðirin var viðkvæm þá því hann sagði áðan já svo heyrirðu frá henni allavega 1-2 sinnum í ferðinni...já svona móðursjúk kelling gleymist ekki haha en hún var svo spennt og hlakkaði svo til að ég hef aldrei séð hana eins og hún var í dag en s.s. hún er farin og flýgur út á morgun kl 14.55 minnir mig og kemur heim á afmælisdag afa Hauks þann 17 sept.

Katla hrýtur inni í rúmi vona að hún geri það bara sem lengst finnst svo gott að eiga kvöldin svona í slökun því þegar hún sefur á daginn þá gerir maður eiginlega ekkert fyrir sjálfan sig, það þarf að setja í vél, og hengja upp og laga til og svona því ég þoli ekki að hafa íbúðina mína algerlega á hvolfi bara alls ekki enda á það ekki að þurfa. Er farin að hlakka til að sumu leyti til að vinna í jan og feb og fá frí frá því að hengja upp þvott, elda, og svona það sem þarf að gera daglega og maður nýtir tímann í á meðan barnið sefur því svo þess á milli er maður að sjálfsögðu að sinna barninu þó svo að hún endist alveg í grindinni sinni eða teppinu þá lætur maður hana ekki vera þar heillengi aleina onei allavega ekki ég:) Finnst nú eiignlega það að vera heimavinnandi húsmóðir ætti að vera launað starf ekki bara 80% af launum heldur bara 100% því þetta er finnst mér allavega alveg full vinna og ég er oft þreyttari á kvöldin núna heldur en þegar ég var að vinna tvöfaldar vaktir. En ég skal hætta að kvarta það má víst ekki.

Þoli ekki fólk sem getur ekki komið hreint fram eins og t.d. ef ég þoli ekki samknhneigða þá bara segi ég það og því ætti ég að vera að segja eitt en meina annað. En málið er að ég þoli þá og er ófeimin við að segja það, en ég veit um fólk sem er svo miklir hræsnarar að það veit ekki hvað snýr út eða inn á sjálfum sér það er svo tvöfalt. Þetta fólk ætti að skammast sín og loka sig einhversstaðar inni og íhuga sálarkimann á sjálfum sér. Ég þoli nefnilega ekki rasista og rasismi getur komið fram í margri mynd ójájá.

Eins og flestir vita þá á ég epla tölvu s.s. apple...og um daginn dó hún og ég að sjálfsögðu rauk með hana niður í Haftækni þar sem allir eru alltaf glaðir NOT. Þá kom í ljós að batteríið var ónýtt og gaurinn glaði ætlaði að panta nýtt. Ég hringdi svo foxill á föstudaginn til að kanna málið þar sem það voru nú að verða liðnar 2 vikur og þá höfðu gleðipinnarnir þurft að panta það að utan...DÖH samt sagði hann að þetta væri þekkt vandamál í eplinu en eiga þetta samt ekki á lager ég skal nú aldeilis segja ykkur það..þannig að í fílu minni (smitaðist af garunum) þá er ég núna að reyna að troða PC forritum í eplið mitt til að fá allavega eitthvað jákvætt í gripinn sem er nú eiginlega ekki lengur flottasta tölva í heimi eins og ég hélt fram nú langar mig í Dell. Ég veit ég er alger api og ætti að loka mig inni með þeim sem eru tvöfaldir í roðinu bara til að halda þeim félagsskap.

Best að fara að reyna að breyta makka í mann

Sjúlli kveður glaður glaður og endalaust glaður 


Bang!

Eyþór skrifar:

Það liggur nú við að manni sárni föst skot eiginkonunnar úr síðasta bloggi, sérstaklega þegar maður leggur það á sig að sætta sig við að sofa aðeins í 3 tíma og rífa sig svo framúr til að redda jóla- og áramótasteik fjölskyldunnar.  Vann við afar erfiðar aðstæður í dag, í gríðarlegum hita, en tókst auðvitað að bjarga jólunum og áramótunum með því að koma með jólamatinn heim.  Það þrátt fyrir að nýleg sjálfvirka vinnuvélin hafi bilað.

Jamm byssufjandinn klikkaði einu sinni enn.  Keypti þessa byssu fyrir rúmu ári síðan og hún hefur bara verið til vandræða.  Ég fór í illsku minni og skilaði henni í dag.  Ellingsen tók mjög vel á málinu og ég fæ mun betri og traustari byssu fyrir litla milligjöf.

Tvíhleypan mín góða bjargaði mér í dag.  Tók hana með til öryggis.  Ég er samt að hugsa um að losa mig við hana, þar sem ég nota hana lítið.  Þessi gamli góði ítalski eðalgripur fæst á góðu verði. Gerðin er SGS, Y/U tvíhleypa með 27 1/2" hlaupum og tveimur gikkjum.  Skiptanlegar þrengingar, 3 fylgja

Nýlega yfirfarin af byssusmið.

 

php82nti9PM

 


Döhhhh

Máttugur ætlaði að skoða hnyttna og skemmtilega bloggið sem ég skrifaði í gær en hvað það hefur ekki vistast jahérna margir sem hafa misst af góðu og safaríku bloggi þar DAMN.

Blogga bara núna um eitthvað og ekkert. Brósi og Eyþór eru núna í gæsum, að nenna að leggja það á sig að vakna kl 3 að nóttu taka sig til og vera sprækur takið eftir, ef Eyþór þarf að mæta í messu og fer að sofa á skikkanlegum tima og þarf að vakna kl 7 þá er það OFSALEGA erfitt. En ef menn eru að fara á gæs og sofna seint þá er samt ekkert mál að SPRETTA á fætur og fara af stað jafnvel sönglandi með gleði í hjarta.....þeir eru eins og leyniskyttur...svei mér þáLoL En þeir eru s.s með sviðakjammana sem Eyþór fór að sjóða þegar var að nálgast miðnætti einhversstaðar rétt hjá Grenivík já svo koma þeir heim og engin gæs.........en sviðakjammarnir eru búnir....tja maður hugsar sig tvisvar um þegar maður spáir í hvað þeir séu að gera á gæs.....*hóst* Sofa út í móa (finnst það báðum snilld), vakna svo og næra sig eins og villimenn rífa í sig andlit koma svo heim til eiginkvennanna og segja bara enga gæs hafa verið....allt yfirskin.....tja ég skal nú segja ykkur það.

Þeir fóru líka þegar Ágúst var hérna á gæs og Mási og fengu enga gæs en voru akkúrat í kaffi þegar gæsirnar komu haha alveg í massavís...haha þetta er svo fyndið......eins og maður trúi því þá einmitt hafa þeir verið að tala saman svona kallamál og borða...út í náttúrunni karlmennin...

Fínt veður núna næstum 14 stiga hiti og sól. Er að dunda mér við að skrifa reikninga og er elsti reikningurinn síðan í ágúst í fyrra, málið við erum búnin að reyna að rukka sjálf x 3 og bankinn x 2 og núna er þetta s.s. síðasti séns fyrir fólkið að borga áður en Intrum fær málið. Skil ekki hvernig fólk getur gift sig en getur svo ekki borgað reikning upp á heilar 15.000 kr. Svona er lífið skrýtið.

Katla sefur úti í blíðunni og allt bara eins og það á að vera. Er farin að kvíða svo fyrir því að klára fæðingarorlofið er núna fyrst að byrja að njóta þess því Katla búin að vera lasin í raun þangað til núna. En svo veit ég bara ekki hvort ég fæ meiri vinnu á Hlíð, Eyþór ætlar að vera í fæðingarorlofi í jan og feb og ég vil gjarnan vera í 80% vinnu þann tíma en minnka svo eftir það og vera helst á næturvöktum eða bara ekki vinna neittLoL Ætla nefnilega alls ekki að setja Kötlu á leikskóla fyrr en hún er 2 ára. Hefur ekkert að gera þangað fyrr. Vildi svo gjarnan að einhvern eða eitthvað fyrirtæki vantaði einhvern sauð út á landi til að vinna í ritvinnslu fyrir sig,ég er nefnilega mjög fljót að pikka og er mjög góð í íslensku að eigin mati allavega og ég hef unnið sem læknaritari og hef því vélritað eftir diktafóni en þetta er ekki enn komið í tísku á Íslandi....vildi að það væri því ég er svo mikið heima og í tölvunni einmitt að það væri mjög gaman að geta nýtt það eitthvað en líklega er það nú ekki.

Jæja ætla að fá mér kaffi og svei mér ef ég læt ekki eins og einn súkkulaðibita fylgja með Devil

Sjúlli kveður súkkulaðisæturW00t

 


Nýtt albúm

Henti inn nokkrum fermingarmyndum af gellunum endilega tékkið á þessu:::)

 

Sjúlli kveður á 100 


Bloggedí blogg....

Mikið skelfilega ósköp varð ég glöð áðan þegar ég sá að einhver hafði skrifað í athugasemdir.....það les þá einhver ruglið í mér skal segja ykkur það og Lilja mín ég skal auðvitað blogga engin spurning.....oh how happy I am og klár í úttlenskunni...skal nú segja það.

_MG_1025 Já fengum myndirnar í gær frá Myndrún mikið af flottum myndum eins og þessi af okkur mæðgum já skal segja ykkur það.

Hér haugrignir í augnablikinu, stakk Kötlu út í rollsinum og þegar ég leit svo út áðan þá var hún við það að fljóta út úr vagninum þrátt fyrir að regntjaldið væri yfir þannig að mamman kippti rolls bara innfyrir dyrnar og þar sefur hún og sefur ekki rífst aðallega við sjálfan sig núnaLoL í svefnrofunum.

Ágúst vinur Eyþórs kom í gær og ætlar að vera hér um helgina, gaman að því, setti hann í dýflissuna hennar Rakelar s.s í kjallarann:)  

Skólinn fer að byrja og ég hlakka all verulega til. Verð alltaf jafn hissa þegar ég segi þetta því í denn þá var maður með rennara yfir því að þurfa að mæta í skólann, þannig að ég sleppti því bara að mæta og var því tekin á teppið hægri vinstri. Já maður var ekki alveg mest heillandi nemandinn hérna í denn.

Var með skólastjóra í Lundarskóla sem mér samdi alls ekkert sérstaklega vel við og gerði ég reyndar í því að láta hann skammast eitthvað í mér. Átti til að gera ýmislegt miður fallegt og segja bæði við hann og konuna hans og sagði svo þessi skólastjóri við mig á skólaslitum í 10 bekk að hann væri nú alveg viss um að það yrði ekkert úr mér. Þessi sami maður er aðstoðarskólastjóri í Glerárskóla skólanum hennar Brynju hahaha mér finnst það brill en hlakka reyndar ekki til að hitta hann ef til þess kemur. Hann sér nú eflaust að ég er móðirin og verður ábyggilega hissa þegar hann sér einkunnir Brynju og rifjar svo upp mínar tja maður ætti alltaf að halda sig á mottunni.............en mér finnst þetta samt fyndið....bwhhaha

Bara svona smá útúrdúr. Eyþór er að fara að spila í jarðarför í Skagafirði með Óskari Péturssyni gaman að því, skilst að það sé mjög GAMAN að jarðsyngja í skagafirði hahah já höfum bara húmor fyrir því ábyggilega gaman ef Óskar er annars vegar hann er SVVVVO fyndinn.

Svo er hann að fara að spila út í Grímsey um næstu helgi. Grímseyingar deyja víst líka haha og það sem meira er að það verða tvær flugur í einu höggi því svo heppilega vildi til að það dóu tveir með stuttu millibili og verða jarðsungnir sama dag. Skal segja ykkur það, ljótt að gera grín en samt skemmtileg tilviljun.

Er að fara í grjónsa til Hills og co á eftir þegar Kötlulingur vaknar langt síðan ég hef fengið mjólkurgraut verð samt bara að borða lítið þar sem ég er enn að passa mig á mjólkinni, drekk bara þeim mun meira pepsi max :)

Dagurinn byrjaði illa, var að fara að gefa Kötlu að borða ætlaði að fara að gefa henni lýsi og sótti flöskuna en ég sauðurinn hafði ekki sett tappann á almennilega í gær og skvettist úr helvítis flöskufjandanum út um allt og ég HATA lýsi og lyktina af því en það er samt sem áður mitt parfume í dag skal ég segja ykkur anga eins og tja lýsi svo einfalt. Bölvaði Eyþór strax fyrir að hafa ekki lokað flöskunni og hugsaði mér að skamma hann allsvakalega þegar hann vaknaði en mundi þá að sökin var mín þar sem ég gaf henni í gær...oh hefði verið gaman að skammast ég elska að skammastFrown

_MG_1021sh_MG_1063_MG_7542_MG_1131_MG_5374_MG_5376_MG_6682bt_6699Já varð að setja nokkrar inn af gellunum. Brynja fór í myndatöku í Myndrún en Rakel í Dagsljós:) Og ég vil sérstaklega benda á myndina af Brynju í svarthvítu að ég var á vindvélinni ójájá hef sjaldan hlegið eins mikið og þegar hann bað mig að stjórna vindvélinni:)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sjúlli kveður og úr honum allur vindur múhha 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband