Gleði, hrotur og gleði:)

Ætli sé ekki alveg óhætt að bjóða bara góðan dag svona í upphafi, veit nú ekki hversu góður hann er samt klukkan rétt að verða hálfátta og ég að fara að vinnaÞögull sem gröfin svo sannarlega ljúft líf. Frekar kalt úti eða rétt í kringum 12 gráður, maður er orðinn svo góðu vanur síðustu tvo daga að nú er kalt ef er ekki 20 gráður haha, en það er logn og fallegt veður þannig að það bætir þennan skítakulda nú upp:)

Allir steinsofandi ennþá meira að segja kettirnir sem eru nú meðal fyrstu íbúa hússins á fætur venjulega en nei þeir ætla greinilega að virða hvíldardaginn og hananú..engar fuglaveiðar í dagSaklaus

Vöknuðum um 5:30 í morgun við einhverja gleðiganda sem voru í banastuði og fannst þeim þeir alveg eðalfyndir og skemmtilegir, strákarnir töluðu hátt og snjallt og voru verulega fyndir enda engin furða fullt af stelpum í hópnum, Eyþór út í glugga að tékka á þessum villtu unglingum og heyrðist mér hann segja að þeir væru í garðinum okkar, ótrúlegt þetta lið en þetta kemur nú sjaldan fyrir og þessum greyjum ekki of gott að vera í stuði....mættu samt hætta að hafa húshornið mitt sem aðalstaðinn.....verður þokkalegt um næstu helgi...pjúff.

Man um verslunarmannahelgina í fyrra að þá vaknaði Eyþór einmitt við einhver læti og kíkti út um gluggann og sér þá einn gaur vera að munda sig til við að míga á vegginn sem er í kringum garðinn, rýkur minn maður út á svalir  og mig minnir að hann hafi hótað stráknum að míga á hann ef hann léti svo mikið sem einn dropa falla á vegginn....haha það var eitthvað í þessa áttina allavega og alls ekki líkt Eyþóri en strákurinn fór með dindilinn á milli lappanna eins og barinn hundur...bara fyndiðHissa

Var að skoða vaktaplanið mitt áðan og sá þá að ég á bara eftir að vinna í 10 daga áður en ég fæ frídag og þá einn heilan og er þá búin að vinna í 17 daga í bunu, finnst þetta eiginlega fullmikið en hlýt að verða rík og ágætt að vinna bara eins og svín þar sem frá 1 okt stend ég uppi atvinnulaus, veit einhver um vinnu, alveg sama hvað, liggur við:)

Rakel er með vinkonu í gistingu og var virkilega gaman hjá þeim í gærkvöldi miðað við flissið sem heyrðist frá herberginu. Brynja er enn á króknum og ég veit ekki hvenær hún kemur kannski í dag eða á morgun....

Var hálflasin eftir vinnu í gær lá meira og minna og svaf og var svo komin inn í rúm um 23.00 og algerlega rotuð...ekki sú skemmtilegasta þessa dagana....en fer skánandi vonandi fyrir hina....

Jæja rokin af stað í vinnuna.....hafið það sem best í dag

Sjúllinn kveður á leið út í kuldannÖskrandi

P.s mútta þetta tókst hjá þér og vertu nú dugleg að kvitta kona góðKoss


American next topmodel.....

.... er í sjónvarpinu og ég fyrirlít þessa andskotans þætti.  Legg því á flótta úr stofunni niður í kjallaraholuna.  Mási og Lilja Hrund komu í kaffi áðan.  Lilja er að flytja til Akureyrar frá Húsavík og voru þau að koma með afgang af búslóðinni hennar.  Brynja fór til pabba síns í dag og Rakel er í heimsókn hjá vinkonu sinni.  Það er s.s. einsemdin sem dregur mig að tölvunni (auk andúðar á American next topmodel).  Erna vinnur hvern einasta dag núna, er stundum bæði á morgunvakt og á kvöldvakt.  Það hefur svo sem verið mikið að gera hjá okkur báðum undanfarið og verður á næstunni.  Eftir næstu helgi verð ég kominn í c.a. 20 athafnir á 10 dögum.  Það er svo sem ekkert gasalegt, en þegar maður er farinn að spila 6 sinnum á dag er komið nóg.  Þannig var það einmitt síðasta laugardag.  Ég hef oft spáð í hvað maður er oft mikið í vinnunni í huganum þótt maður sé heima.  Það á nú við flesta sennilega.  Erna talar t.d. gjarnan um heilbrigðismál og ég um tónlist.  Óskar P sagði mér frá manni sem skírði bílinn sinn sálmanafni.  Bíllinn hét sem sagt nafni sálms sem var með sama númer og bílnúmer hans.  Bíllinn okkar heitir Lát þitt ríki, ljóssins herra! Heitir þetta ekki að taka vinnuna með sér heim!

Eyþór


Veiði á Skagaheiði

Í gær fór ég með Hjörleifi vini mínum á Skagaheiðina, nánar tiltekið í Ölvesvatn.  Þetta er orðinn árviss viðburður hjá okkur.  Þessi ferð var einhver besta veiðiferð sem ég hef farið í!  Allt hjálpaðist til að gera daginn að yndislegri upplifun.  Góður félagsskapur, góð veiði, frábær náttúra og einstaklega fallegt veður.  Þokunni létti þegar við mættum á svæðið rétt fyrir hádegið og eftir það var stöðug barátta sólar og þoku allt í kringum okkur.  Það var oft mjög flott sjónarspil.  Þegar leið á daginn var komið logn og kvöldsólin speglaðist fallega í vatninu og litaði fjöllin í kring.  Þoka var yfir Skagafirðinum og sá maður Tindastólinn og Tröllaskagan tignarlegan blasa við fyrir ofan þokuna.  Náttúran var eiginlega með leiksýningu fyrir okkur þennan dag.  Við komumst m.a.s í tveggja metra fjarlægð við tvo minka.  Ég hefði auðveldlega getað drepið þá með steini en ég fékk mig ekki til þess þarna, ég var eitthvað svo meyr í fegurðinni Brosandi.  Eina hljóðið sem maður heyrði þarna var söngur fuglanna og suðið í flugunum.  Og svo auðvitað skvampið í fiskunum.  Við veiddum í þremur vötnum, og í á á milli tveggja vatna.  Við veiddum vel, hirtum rúmlega 30 fiska en hentum slatta af smáfiski.  Dagurinn leið hratt og heimleiðin líka.  Ég varð auðvitað miður mín þegar ég áttaði mig á að ég var með bíllykilinn í vasanum, en ég er svo vel giftur að mér er það fyrirgefið. 

Þessar veiðiferðir okkar Hjörleifs eru einhverjar bestu afslöppunarstundir sem hægt er að hugsa sér.  Maður kemur heim dauðþreyttur á líkama en endurnærður á sál.  Það gerir útiveran, íslensk náttúra í sínu fegursta og svo frábær félagsskapur.

Hjörleifur tók nokkrar myndir, ég setti nokkrar inn á albúmið, en þær eru full smáar.  Bæti úr því síðar.  Þið getið skoðað þær hér: http://picasaweb.google.com/karlinn/VeiditurSkagiJul06?stop=1 

Eyþór


Sælan

Hvað getur maður sagt:) Vinnum hérna hjónin út í eitt og hittumst varla nema yfir blánóttina sem er jú skárra en ekkert:) Stelpurnar á fullu að sinna vinunum og sýnist mér það ganga alveg þokkalega vel. Brynja var fyrir sunnan um helgina að keppa á Íslandsmóti og unnu Keflavík 4-3 en gerðu jafntefli við Þrótt R 2-2. Mega vera sáttar með þetta.

Eyþór fór í veiði í morgun með Hjörleifi eitthvað inn í Skagafjörð nema hvað þegar í gærkvöldi kallinn var að taka sig til leita að maðk og svona þá var bara ekki einn einasti ormur í garðinum... hann hamaðist við að vökva garðinn í von um að kvikindin kæmu upp á yfirborðið en ekkert skeði. Enginn sem hann vissi um sem var að selja orma nema einhver kall á Dalvík en ekki nennti hann þangað. Svo þegar ég vaknaði í morgun var garðurinn svona vel plægður og flottur og kall búinn að ná í nokkur stykki af maðkSvalur Þessir karlmenn.

Eftir vinnu hjá mér þá ætluðum við stelpurnar að fara í sund fram á Þelamörk og tökum okkur til en nema hvað haldiði ekki að litli organistadrengurinn hafi bara svona upp á grínið farið með lyklana af Passat með sér í Skagafjörð, hann var heppinn á því mómenti sem ég fattaði það að vera ekki í símasambandi gat reyndar tautað nokkur vel valin orð á talhólfið hjá honum....þannig að í sárabætur pöntuðum við okkur pizzu og helling af drasli af Greifanum og förum í sund á morgunSaklaus

Kallanginn mér er runnin reiðin núna þannig að það verður ekkert ofbeldi hér á minu heimili í dag múhahhaha....

Annars er margt spennandi framundan sem við munum fræða gesti og gangandi um þegar nær dregur.....

Hafið það sem allra best í dag lömbin mín og verið góð hvert við annað og KVITTIÐ

Sjúllinn sem var snar í dagÞögull sem gröfin


Moskító

Já þá eru allir semsagt komnir heim úr sínum ferðalögum.  Ég var í 5 daga í Övertorneå í Svíþjóð.  Var að spila á tónleikum á orgelhátíð þar.  Með í för voru 4 íslenskir orgelnemar og tveir makar.  Hátíðin var nokkuð skemmtileg en hefði verið enn betri ef þáttakendur á námskeiðum hefðu verið aðeins betri.  Íslensku nemarnir báru af þarna enda öll hörkuefnileg.  Flestir hinna þáttakenda voru eldri konur sem voru afleysingaorganistar í litlum sveitakirkjum.  Tónleikarnir mínir voru í lítilli kirkju á stað sem heitir Hietaniemi.  Þar er lítið barokkorgel, mjög gott hljóðfæri en svolítið krefjandi á tónleikum.  Ég spilaði verk eftir Buxtehude, Muffat, Pál Ísólfsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Jón Leifs.  Þjóðlagaútsetningar Jóns vöktu nokkra athygli.  Tónleikarnir gengu ágætlega, en mér tókst einhvern veginn ekki að ná upp almennilegri stemmningu hjá sjálfum mér.  Andrúmsloftið var einhvern veginn of afslappað þarna.  Ég náði ekki einu sinni að láta það auka hjartsláttinn að flutningabíll keyrði á 60 fyrir framan mig rétt fyrir tónleika, og þá staðreynd að ég mætti 7 mínútum fyrir tónleika á staðinn.  Ég fór svo á nokkra tónleika þar sem aðrir spiluðu.  Fyrsta daginn voru útitónleikar og ég aðstoðaði organistann á tónleikunum.  Þetta svæði er þekkt fyrir moskítóflugurnar og eftir þessa tónleika var ég kominn með einhver 30-40 bit.  Ég gat nefnilega ekki farið að baða út höndunum til að slá burt flugurnar á tónleikunum.  Kvöldið áður en ég fór heim hlustaði ég á tónleika með Martin Sander og voru þeir hreint út sagt stórkostlegir.  Ég er rosalega kröfuharður á túlkun á Buxtehude, en Sander fór hreinlega á kostum.  Áður en ég fór út spilaði ég á Sumartónleikaröðinni í Akureyrarkirkju.   Það var mjög gaman, fannst mér amk.  Ég var með dansþema og spilaði tónlist frá Miðöldum til barokktímans.  Spilaði m.a. með kirkjuklukkunum.   Næstu dagar fara bara í jarðarfara- og brúðkaupsspil.  Held ég sé kominn með einhverjar 30 bókanir (athafnir og æfingar) næstu vikuna.  Mér finnst afskaplega gefandi og gaman að spila við útfarir.  Allt í lagi að fá smá törn, en ég vil samt ekki hafa of mikið að gera í því.  Þá held ég að maður fari smám saman að gera þetta bara í einhverri rútínu.  1-2 í viku er fínt.  Ekki það að ég óski eftir ákveðið mörgum dauðsföllum á viku!  Brúkaupin eru yfirleitt stíf og uppskrúfuð.  Oft minna þau mig á leiksýningar.  Sviðskrekkur er greinilega oft að hrjá aðalleikarana.  Kannski vantar bara leikstjóra.  Reyndar líst mér ágætlega á þessar athafnir á laugardag.  Kannski er viðhorfið í brúðkaupunum að breytast.  Ég er amk farinn að sjá fleiri og fleiri brúðhjón horfast í augu í athöfninni og sumir líta m.a.s. á prestinn og virðast hlusta á hann. 

Eyþór


Bull bull bull bull og vitleysa.......

Sökum mikils þrýstings frá aðdáendum síðunnar þá ætla ég að skrifa eitthvað hér. Fatta ekki eitt og það er að síðuna hafa heimsótt ca á dag síðustu daga 30 manns og þetta fólk vil ég spyrja haldiði að gestabókin bíti....smá vangavelturSvalur Það eltir ykkur enginn uppi þó svo þið kvittið fyrir heimsóknina og hananú.

Að öðru....allir búnir að skila sér úr ferðalögum, Brynja var sú síðasta skilaði sér heim kl. 07:30 á sunnudagsmorgun og var þreytt alveg gríðarlega þreytt....en glöð A lið hafði lent í 5-8 sæti af 24 liðum og geri nú aðrir betur...bara vel gert. Annars eru þórsarastelpur ásamt þjálfara með heimasíðu og er ferðasagan komin þar innSvalur

Ég var að fá vinnuplanið mitt fyrir ágúst og ég s.s. vinn 41 vakt á 30 dögum og hananú sagði hænan ekki allt heilar vaktir en vinn yfirleitt bæði morgun og kvöldvaktir. Geðveikt dugleg.... Er að reyna að hætta með niggaragúmmið en það er svo djöf....gott að það gengur ekki en það hefur verið minnkuð notkunin töluvert...extra grár tugginn í staðinn....ekki eins góður.

Eyþór er að vinna eins og skrattinn í sauðalæknum líka, er með einar 6 jarðafarir og 4 giftingar og ég veit ekki hvað og hvað svo er verið að fara að syngja á Gásum Hymnodian hans um helgina verður örugglega snilld hjá þeim eru svo miklir snillingar þar á ferli. Ljótt að segja það en ég les dánarfréttirnar með gróðahugsjón pæla hvað maður er mikið fífl...en eins dauði er annars brauð eins og stendur einhversstaðar í góðu ritiÞögull sem gröfin

Var að þrífa ísskápinn þar sem ónefndur eiginmaður minn gusaði úr ólífukrukku yfir allt sem í honum var í gærkvöldi og nenntum auðvitað ekki að fara að þrífa þá.....laghentur strákurinn verður nú ekki af honum tekið.  Vissi ekki að það væri svona mikill vökvi í ólífukrukkuSaklaus

Farin að bulla út í eitt hérna og finnst það gaman. Ætla að fara að gera eitthvað annað en að bulla hér....SKRIFA svo í gestabókina gott fólk.......KOMA SVO

Kv. Sjúlli á kafi í ólífum


Familian að skila sér.

Þá er nú fjölskyldan hægt og rólega að skila sér heim. Eyþór og Rakel komu í gærkvöldi og Brynja kemur í fyrramálið. Fínt bara, núna sofa allir á sínu græna nema ég sem vaknaði kl 5 við sólina og Birtu fugl sem söng eins og hún ætti lífið að leysa já eða Birta sem heitir núna Fífill reyndist vera með dindilSaklaus

Ofsalega fallegt veður en svolítið hvasst sýnist mér, er nú svo sem alls ekki búin að reka nefið neitt út. Vona að maður geti kannski aðeins rekið nefið út og fengið einhvern smá lit, ekki verið mikið af því í sumar.

Kíkti á Sollu og bumbubúann í fyrradag, fer að styttast hjá stelpunni á eftir um 2 vikur sem er kannski bara nóg:) Var barasta hress og kát....

Hef ekkert að segja veit ekki hvað ég var að spá, ætla að glápa á tv....

Over and out sjúllinn orðinn stjörnuvitlaus


Saga fyrir svefninn:)

Tjái mig bara hér þrátt fyrir að bara Hildur skoði síðuna allavega miðað við kvitt.

Var að tala við Eyþór áðan og hann var að kafna úr hita og skordýrabiti...eitthvað annað en við hér með rok og rigningu og 7 stiga hitaSvalur Gekk vel hjá honum að spila á tónleikunum í morgun þannig að núna er hans hlutverki úti lokið en kemur samt ekki fyrr en á föstudagskvöld.

Við Sóla mín fórum upp í Kjarna í dag að elta kanínur, vorum svo heppnar að sjá eina kanínu sem var alls ekki eins heppin og við því Sólin var ákveðin í að ná henni og elti hana hrópandi og kallandi út um allt túnið í Kjarna og bað svo um liðstyrk þegar hún sá konur koma labbandi, benti þeim að koma og kallaði "krakkar komiði" haha algert met, fórum líka í blómaval og fengum okkur bragðaref svona til að slá á sárasta sultinn...Alger gullmoli þessi krakki enda náskyld mérUllandi

Annars bara rólegheita dagur, fór og lyfti nokkrum lóðum og hljóp og lagðist svo í langt og gott bað og er núna að bíða eftir úrslitum úr Rockstar supernova finnst þessi Delana alveg yfirburða best en er ekki eins hrifin af okkar manni en hann var samt miklu betri í gær heldur en síðast vona auðvitað að hann komist sem lengst.

Ekkert heyrt frá Brynju eða þeim í dag en sá að þeim er að ganga alveg ágætlega eru í 2 sæti sýndist mér í sínum milliriðli eða hvað þetta er kallað. Bara gaman....

Ætla að fara núna í smá tásusnyrtingu á meðan ég býð eftir úrslitunum.

Ciao sjúllinn kveður er í fríi


Bara eins og Palli var einn í heiminum:)

Mætti halda að það væri alltaf einhverjar fréttir hjá mér svona einni í kotinu en svo er nú ekki, er bara farið að leiðast að vera ein heima held ég þrátt fyrir miklar yfirlýsingar hversu gott það yrði og væri og ég veit ekki hvað og hvaðÖskrandi

Vaknaði á nokkuð góðum tíma í morgun miðað við aðra tíma eða um hálftíu, hefði liklega ekki gerst nema ég stillt klukkukvikindið.....mæðgur Sól og Hildur kíktu svo í morgunkaffi sem endaði með því að ég var boðin í mat í kvöld Yössssssss enginn mislukkaður hamborgari á ferð í kvöld, gaf þeim hina borgarana sem ég ekki vildi og fannst ég ferlega góðÓákveðinn

Var að leika landslagsarkitektúr hér úti með Pétri nágranna og við ætlum okkur sko stóra hluti næsta sumar spurning hvort úr verður eða ekki, garðurinn hjá okkur er horror hálfgert eilífðarverkefni en ætlum að reyna samt að gera eitthvað sniðugt við hann greyið....Eyþór veit  það ekki ennþá en þetta byggir svolítið á karlmannlegri vinnu næsta sumar haha ég skal vera þrælahaldarinn...ójá.

Var að skoða dana-cup síðuna hjá Þórsarastelpum og öll liðin þeirra hafa keppt x 1 í dag s.s. á móti svíum, norðmönnum og bandaríkjamönnum og náðu einungis að vinna norðmenn.....damn hefði verið ljúft að sigra hina alræmdu svíagrýluSvalur En það er einn leikur yfirstandandi í þessum orðum skrifuðum og gaman að sjá hvernig það fer. Áfram Þórsarar.

Ákvað að hlaupa ekkert í gær þar sem táin var með derring og ég var farin að hallast að því að hjartað á mér hefði flust þangað niður miðað við sláttinn í tánni en svo reyndist sem betur fer ekki og hjartað er á réttum staðSaklaus

Er að fara að vinna syngjandi sæl, minni þá 2 sem á síðuna koma að kvitta eða eitthvað það er nefnilega gestabók á síðunni svona fyrir þá sem ekki vita og koma svo allir 2.

Sjúlli kveður í syngjandi sveiflu á leið í vinnu.

 


Brotnar tær......úff

Helst í fréttum í dag er að Eyþór er farinn til Svíþjóðar að spila á tónleikum fór í gærkvöldi eftir að hafa verið með þessa líka flottu tónleika hér í Akureyrarkirkju og dinner á Rósagarðinum á eftir sem var sko ekkert slor....slefa bara af því að hugsa um það, hann er s.s farinn einn í brúðkaupsferðina Gráta

Brynja er í Frederikshavn í Danaveldi að spreyta sig með liðinu sínu Þór á fótboltamóti sem kallast Dana-cup. Fá að keppa við lið frá USA, Finnlandi, Svíþjóð og fleiri löndumKoss Gaman að því bara. Eyddu samt fyrsta deginu s.s. í gær við að slaka á í sundlaugargarði skildist mér og dagurinn í dag átti að fara að versla í Álaborg svo eflaust er stuð á þeimHissa Mótið er svo sett í kvöld s.s. liklega búið að því og hefjast leikirnir á morgun.

Rakel er í Búðardal núna og var í Borgarnesi fram á sunnudag en kemur heim líklega á föstudag ef ekkert breytist.

Þannig að ég er heima ein og finnst það alveg ágætt bara, stundum gott að fá tíma bara fyrir sjálfan sig og þurfa ekki að hugsa um neitt nema sjálfan sig sem í mínu tilfelli getur nú orðið töluvert. Sbr það að í dag druslaðist ég fram úr rúminu kl. 11 og var engan veginn vöknuð og rak litlu tána svona líka rösklega í og auðvitað í minni heppni tókst mér að brjóta hana ekki að þetta þurfi að koma á óvartHissa En ég s.s. lét kíkja á kvikindið og fékk þann úrskurð að mjög líklega væri hún brotin, ekkert hægt að gera við því þannig að til að ná úr mér skapvonskunni fór ég heim og drap boxpúðann allrækilega.

En núna s..s er ég í matarpásu og skrapp heim og steikti mér einn yndislegan hamborgara eða það hélt ég, var búin að hlakka mikið til að borða og fór og keypti mér allt í þetta, en svo reyndist sjálft kjötið bara vont mæli ekki með að kaupa kjöt frá Eðal hef reyndar aldrei heyrt um það fyrrGráta En niður fór hann samt og svo núna hangi ég bara í töllunni þangað til ég þarf í næstu vitjun um kl 18:40.

Best að hætta þessu bulli og drullast áleiðis í vinnuna er búin kl 22 og þá ætla ég að prófa að hlaupa með brotna tá held það geti virkað en efast um að stíllinn verði flottur haha.......

Adios amigos sjúlli kveður á leið til vinnu

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband