Diggilú diggilei tralalalal

Snjóar og ég hélt að sommerið væri að koma bara nákvæmlega í dag. Svona gengur þetta og bendir hreinlega allt til þess að ég eigi ekki heima í veðurklúbbnum á Dalvík hvorki nú né síðar, spurning hvort þeir taki mig inn í nýja veðurklúbbinn sem verið var að stofna fyrir sunnan með Þór veðurfræðing sem heiðursfélaga, gæti kannski fengið að vera heiðursfélagi 2Kissing

Allt gott að frétta vonandi hjá ykkur ÖLLUM sem lesið þetta röfl í hvalnum. Jónas í hvalnum er löngu orðinn úreltur nú er það bara sagan um Ernu hval. En ég segi ykkur hana seinna ekki í stuði til þess núna. Svaf eins og engill í alla nótt, stökk fram úr beddinu kl 7:30 fann enga verki ekkert bara eins og ég væri ofsa feit, svolítið svona sein á mér en engir verkir takið eftir því og hananú. Eyþóri greyinu ofbauð og spurði hvaða orkuskoti ég væri á, þar sem ég hringsnerist og tók óhrein föt af gólfinu og sveif niður í þvottahús, grýtti í eina vél og braut saman úr annarri. Ekki séð frúna vera svona aktíva ja allavega ekki síðustu dagana.Gasp Veit ekki hvað er í gangi. Tja svei......hann vonar að þetta bendi nú til að ég fari að kreista mig síðar í dag, veit ekki hvort það verði nú að veruleika hef eiginlega bara enga trú á því. Og það sem meira er mér er eiginlega sama Marteinn kemur þegar hann kemur og hananú. Ja það er allavega nokkuð ljóst að það getur ekki brugðistPinch

Elín og Viddi mágsi komu hér í gær, náðu okkur í bælinu ekki það að það var allt í lagi, stoppuðu hér í eina 2 tíma en svo þegar þau ætluðu að leggja í hann var Víkurskarð lokað vegna slyss þannig að þau reykspóluðu bara Dalsmynnið í staðinn á sínum fjallajeppa. Gaman að fá þau í heimsókn hef ekki séð hann mág minn síðan á nýjársdag vegna þess að hann er sjómaður dáðadrengur en ekki drabbariWhistling

Fórum svo í vöfflukaffi í Smárann til mömmu og það var auðvitað eðal og át ég mikið eins og hvalir eiga að gera á þessum árstíma. Haha held ég hafi borðað einar ........nei almáttugur ætla ekki að láta það út á netið einu sinni einhverjum gæti ofboðið, en jafnframt skilið stærðina á hvalnum haha ég hlakka svo til að verða ýsa afturKissing

Eyþór fór að klára að redda síðustu pappírunum fyrir feðraorlofið sitt, vantaði eitthvað upp á hjá honum þannig að hann svífur um allan bæ og leitar að pappírum varðandi það. Annars er hann að mestu heima þessa dagana og passar upp á hlunkinn sinn, góður kall sem ég náði í svei attan ég á hann tralalal. Erum svo að fara á eftir og kaupa fermingargjafirnar handa dætrunum og kallinn ætlar að gefa kellu sinni fermingargjöf líka og mig hlakkar svo til verð ógisslega mikil djellaW00t Er það fyrir eða sko já ræðum það bara seinna.

Best að fara að hundskast til að læra eitthvað svona smotterís......um að sjálfsögðu heilann, yeah eins og minn er nú upp á marga fiska. Förum í mæðraskoðun á eftir hipp hipp fyrir því.......nýjar myndir á síðunni hans Marteins undir bumbumyndir 2 allt að gerast

Sjúlli kveður alveg snaróðurW00t


Geðveik eða bara geðveikari

17 mars kominn og bráðum verður komið sumar, hversu dásamlegt verður það. Er nú búið að snjóa samt hér í dag en það eru svona restarnar af vetrinum eða það held égShocking Laugardagskvöld og ég sit fyrir framan tölvuna eins og svo oft áður, Eyþór fór að spila í afmæli á KEA og Brynja í bíó með vinkonum sínum.

Rukum öll upp á spítala ímorgun fullviss um að nú væri sko einhver alvara í Marteini með þetta verkjastand sitt, nei engir verkir þegar þangað var komið og Marteinn bara farinn að sofa eftir að hafa haldið móðurinni vakandi alla nóttina. Skemmtilegt eða hitt þó heldur, María ljósa lét mig hafa tvær verkjatöflur og sagði mér að reyna að slaka vel á og sofa og athuga hvort verkirnir myndu ekki bara koma aftur af krafti. Búin að sofa eiginlega í allan dag en hvað litlir sem engir verkir, smávægilegur seiðingur......jahérna

Vona að nóttin verði samt góð og Marteinn sofi bara en sé ekki með stæla. Er búin að reyna að ræða við hann í dag en hann hefur lítið viljað hlusta og bara verið með takta....Haloen hann má það afþví að hann er hann.

Fengum okkur eðal dinner í gærkvöldi, kótilettur og ábresti og þvílíkt gott, *slef* ábrestir eru eitt af því besta sem ég fæ en hef ekki fengið að smakka í einhver 5 ár fyrr en núna. Eðal. Brynju leist ekki eins vel á það og fékkst ekki til að borða það haha bara betra fyrir okkur fengum meira. Annars var bara leti í kvöld og  pöntuð pizza af Greifanum og lukkaðist hún bara ágætlega.

HEf ekkert að segja er frekar þreytt að verða á þessum endalausu verkjum en svona er líf óléttu konunnar. Erum að fara að horfa á nýju James Bond myndina þegar Eyþór kemur heim.

Best að fara að kíkja á tv í smá stund

Sjúlli kveður með auma vömbSick


Já því ekki það.....

Þvílíkt veður getur engan veginn ákveðið hvort það ætlar að æla út úr sér snjókomu eða leyfa sólinni að vera. Væri alveg sama þó svo það myndi æla snjókomu sést ekki á meðan hvað það er mikið ryk hjá mér. Ótrúlegt hvað allt verður skítugt í mikilli sólGaspKemur líka alltaf jafn mikið á óvart....

Títt ekkert bara held ég. Búin að vera ógisslega dugleg í morgun, gera tvö verkefni eitt í sál og annað í hjúkrun og skila þeim báðum. Er svo að byrja núna á verkefni í LOL nema ég nenni því ekki fyrr en ég hef drullast niður í Penna og keypt mér eins og eina möppu þar sem hin er orðin full. Ótrúlegt blaðafargan sem maður prentar útShockingAlveg komin með næstum heilan kjarnaskóg í möppu og stefni núna á hallormsstaðarskóg jájá ekki vandamálið. Svona er sá græni égSick

Búin að vera með töluverða verki síðustu daga og ákváðum við hjúin ásamt dóttur að trilla okkur upp á fæðingardeild í gærkvöldi eftir skammarlestur frá stóru systir, jújú mér var hent í monitor og Brynja fékk þar að heyra hjartsláttinn í systkini sínu í fyrsta skiptið, og Maríu ljósu fannst nú ekkert vera að ske en ákvað að skoða og viti menn komin í 4 í útvíkkun, mýktur og styttur legháls og fann lítinn koll og bara allt að gerast. Ekki það að krílus gæti alveg látið bíða eftir sér í einhverja daga enn en það er allavega eitthvað að gerast. Verkir annaðslagið í allan dag og svona bara gaman að þessuLoL Fæddist lítið barn á stofunni við hliðina á okkur í gærkvöldi og það var svo krúttarlegt að heyra allt í einu svona krílaorg....InLove

Fórum svo bara heim og leigðum okkur myndina Börn og mikið hrikalega fannst mér hún góð, hún er spes en rosalega góð get ekki beðið eftir hinni myndinni Foreldrar. Mæli alveg með þessari.

Vaknaði kl 03:00 í nótt og gat engan vegið sofnað þannig að ég skrölti fram og fékk mér .............megið giska einu sinni...........nú að borða hvað annaðLoLJógúrt og páskaöl alveg eðal og lærði svo í 1 1/2 tíma í hjúkrunarfræðinni. Laumaðist svo inn í rúm aftur um 5 leytið og steinsofnaði, ótrúlegt hvað námið getur gert mann þreyttan. Var að vísu að rífast við kettina meira og minna þennan tíma þar sem þeir voru alveg klárir á því að fyrst að fóstran þeirra var komin á fætur væri þeirra tími kominn líka og vildu barasta fara út en ónei ég hafði betur og þeir fóru báðir að sofa líkaSickErna og kettirnir ómægad

Eyþór er að vinna eins og venjulega. Byrjuðum reyndar daginn á því hjúin að finna alveg svakalega edikslykt þegar við komum fram, sáum svo að það fór að drippla svartur vökvi úr einni skúffunni og viti menn haldið ekki að ein balsamikedik flaskan hafi farið á hliðina og lak út um alla skúffu og út á gólf, yndislegt. Eyþór skúraði allt í gær og gerði það aftur kl rúmlega 8 ímorgun ótrúlega duglegur.W00t

Best að fara að versla eitthvað til að borða þýðir ekkert þessa dagana að eiga ekkert í skápunum, langar alltaf í eitthvað og þá helst melónur eða eitthvað ferskt.

Sjúlli kveður með 4 í víkkun og svaka ferskurWizard

 


ha hvað!!!!!!!!!!1

Gott að ég á tölvu, annars myndi mér leiðast alveg svakalega. Já eða þannig talvan er bara svo góð afsökun til að gera ekki eitthvað annað sem er mun leiðinlegraBlush Er nú samt í morgun búin að afreka að ryksuga og brjóta saman þvottinn með bara smá hvíldum á milli, nokkuð gott maður verður nú að sýna smá lit, vildi samt alveg hafa butler til að gera þettaWoundering Eyþór er á kafi í vinnu en duglegur að gera hitt og þetta á heimilinu þegar hann kemur heim en það eru nú takmörk hvað maður biður hann um að gera þegar hann er búinn að vinna frá 8-22 eða eitthvað enda má alveg vera smá skítur hér og þar ekki að maður deyi neitt fyrir þvíSick

Vaknaði snemma í morgun, hugsa að ég hafi verið á svipuðu róli og þú Magga mín, en ég lá nú samt eins og klessa og var komin á hið gríðarlegasta flug í fermingarmálum, bæði gjafa og skreytinga. HAha ég fór ekki yfir um jólin en  fer líklega yfir um ferminguna. Verður svolítið mikið að stússa þarna í kring, prófin og ferming en það er allt í góðu lagi, Kristín (kona Sigga Dodda) og Unnur (amma Brynju) ætla að skreyta salinn og svona dúllerí þannig að það er í góðum höndum, hjúkket, ágætt að gera þetta svona í sameiningu þó svo að við sjáum um að redda öllu þar sem þau hjúin búa ekki í bænum

Fórum í skoðun í gær og Marteinn ætlar ekkert að gefa eftir og stækkar og stækkar, veit ekki hreinlega hvar þetta endar ef ég fer ekki að drífa þetta af, ekki að ég ráði sko neinu um það ónei hann ræður öllu hann Marteinn er búin að vera að ræða við hann og reyna að höfða til samviskunnar hjá honum en ekkert gengur. Fær svo gott að borða inni í mallanum að hann ætlar ekkert út spurning um að fara að svelta sig...Samt er eitt sem við skiljum ekki og það er að hann Marteinn er með stelpuhjartslátt, spurning hvernig á því stendur, haha gamlar kerlubækur.

Brynja hringdi rétt þegar við vorum að koma úr skoðuninni í gær og var þá orðin lasin, sóttum hana og var dagurinn voðalega letilegur, ég lærði en hún kúrði og horfði á tv, ekki sú þolinmóðasta þegar kemur að veikindum prinsessan, en búin að vera eitthvað slök í nokkra daga en alltaf ryksað í skólann þannig að þetta var nú í góðu lagi.

Annars er hreinlega ekkert að gerast, Mási var hér um helgina og færði okkur fullt af hnísukjöti sem við hreinlega elskum að snæða, takk fyrir það litli kall, og svo enduðum við helgina auðvitað á því að æða til múttu í vöfflukaffi alveg eðal gott.

Nenni ekki að skrifa meira enda hef ég ekkert að skrifa ætla að fara að hoppa og lesa sálfræði svona í bland fer vel saman.

Hafið það gott þar til næst

Sjúlli kveður ofsa feitur


X-factor hvað

ÉG get svo svarið það, var eins og venjulega á föstudagskvöldi að glápa á factorinn sem ég eiginlega skil ekki afhverju ég geri þar sem mér finnst þetta frekar ömurlegur þáttur ef frá er talinn Jagvan færeyingurinn frændi minnCool Finnst hann góður og hefur alltaf verið það og hefði ekkert þurft að fara í þennan þátt til þess, Ellý er steikt og kexrugluð og hennar vegna finnst mér þessi þáttur frekar leiðinlegur svo mörg voru þau orð.

Mási bróðir er hér hjá okkur þessa helgina þar sem sonurinn Hilmar er að keppa á Goðamóti og stendur það fram á sunnudag. Bara gaman að því. Þeir sitja svo núna og keppast við að reyna að svara hundleiðinlegum spurningum í Gettu betur.

Brynjan er eitthvað slök búin að vera að drepast úr ógleði og magaverkjum, hálsbólgu og höfuðverk, en lét sig samt hafa að fara á æfingu, sleppir ekki æfingu nema ske kynni að þyrfti að leggjast inn á sjúkrahús, þannig að núna er hún komin í bólið og ég læt mér s.s. leiðast í tölvunni.

13 dagar í dag í áætlaðan fæðingardag en auðvitað lengra ef Marteinn neitar að koma út, er nú af þrjóskri ætt þannig að það ætti ekkert að koma á óvart. Búin að vera með verki í dag svona seiðing en ekkert að ráði, brjóstsviðinn hreinlega að drepa mig, má ekki einu sinni drekka vatn held ég þá er ég komin með brjóstsviða, er að taka einhverja ógeðslega mixtúru sem lagar að vísu. Ojbara, ógleðin búin að vera líka í tvær nætur mér til mikillar gleði, vakna kófsveitt og ofsalega óglatt og vaki meiripartinn af nóttunni. Já segi ekki annað en þetta er sældarlífKissing

Hef eins og alltaf eitthvað merkilegt að segja sem samt lætur bíða eftir sér og endar á að ég man ekki hvað það var, svona er að vera hlunkur með gullfiskaminni. Ekkert til að gera grín að sko. Hef ekkert farið í dag nema jú sat í bílnum fyrir utan Bónerinn á meðan karlinn fór að draga björg í bú. SEm hann þarf að gera aftur á morgun sýnist mér þar sem ég er að verða búinn með það haha algert átvagl. Annað hef ég ekki farið svei mér þá.

Kláraði næstum skattaskýrsluna hennar mömmu kom að vísu smá vesen upp sem tengjast hlutabréfum hélt ég væri klár en ekki nógu klár þannig að ég geymi til morguns að leysa það, en geri það. Lærði líka slurk um taugar og þrátt fyrir að ég sé nú búin að vera sjúkraliði í 9 ár þá vissi ég ekki að það er til taug sem heitir skapabarmataug og pungtaug en fannst það býsna sniðugt þegar ég fattaði það...en hvað með það...er að læra allar mænutaugarnar, er ekki gaman finnst mér.

Ætla að fara að svara öllu rétt í Gettu betur...er svo klár

Sjúlli kveður alveg að fara á taugumW00t


Hvernig passa merkin saman

SPORÐDREKI og BOGMAÐUR
Þessi tvö merki laðast strax hvort að öðru, oftast kynferðislegaLoL, en það er lítil von til að sambandið verið langvarandi. Bogmenn eru yfirleitt lífsglaðir og opnir,Wink en Sporðdrekinn dulur, fáskiptinn og leyndardómsfullurWoundering. Framan af reynir Bogmaðurinn að kæta Drekann og rífa hann upp úr "þunglyndinu", en þegar það tekst ekki leitar hann uppi skemmtilegri félagsskap. Ef Sporðdrekanum finnst hann svikinn í tryggðum, er hann vís með að leita hefnda. Það er því vissara að reyna að skilja sem vinir! Bandit

Jahérna skal nú segja ykkur það hef nú aldrei heyrt annað eins. Sambandi verður ekki langvarandi...spurning hvenær við hjúin skiljum bara. Og ég sem hélt að við yrðum ALLTAF saman. En svona veit maður ekkert fyrr en maður hefur borið sig saman við stjörnumerki maka síns, hvað vorum við að hugsa að ganga upp að altarinu áður en það var gert.....

Sjúlli kveður alveg í öngum sínumCrying


Græningjar

Nei er enn með bumbuBlush og ætla bara að hafa hana, búin að sjá að hún fer mér alveg einstaklega vel. Annars er allt í orden Marri kallinn búinn að skorða sig þannig að ímyndaða sagan með hvalinn og bónus er úr sögunni, ja nema hvalurinn detti bara þá veit maður aldreiGasp

Pabbi orðinn verulega spenntur, farinn að hringja annanhvern dag liggur við og tékka á hvort ég sé að fara að eiga, gaman að því, verður hans 4 barnabarn svona eiginlegt, á nokkur svona að lániTounge Karlinn er að hugsa um að koma inneftir á morgun, varð smá svekktur þegar ég sagði honum að Eyþór yrði ekki heima, ná svo vel saman kallarnirKissing

Skráði mig í vinstri græna um daginn þannig að nú er það orðið opinbert er orðin flokksbundin. Margir sem tuða í mér að þeir séu þeir sem séu hvað mest á móti virkjunum og blabla afhverju skildi ég vera flokksbundin þeim kannski af því að ég er það líka. Búin að lenda oft í tuði út af þessu vinstri græna "rugli" í mér en hverjum er frjálst að hafa sína skoðun og ég hef mína og hananú....Áfram Steini (kunningjanafn Steingrímur) er reyndar líka skráð í íslandsvini og er bara líka stolt af því. Elska mitt fallega land, ekki það að ég ætli neitt að fara að hlekkja mig við Alþingishúsið eða kárahnjúkavirkjun eða eitthvað annað væri samt gaman að því, mér hefði alveg verið trúandi til þess hér í denn, gerði nú ýmislegt og eiginlega flest það sem mér datt í hug, var villingur viðurkenni það alveg. Hugsa að foreldrarnir mínir svitni þegar þeir leiða hugann að mínum unglingsárum...hahaShocking

Ein af mínum framhaldsskólasystrum er einmitt forsprakki samtakanna Íslandsvinir Andrea Ólafsd  og hefði ég nú ekki trúað því þegar að ég var í skóla með henni að ég yrði sammála henni að einhverju leyti. Ekki það að ég þekkti hana ekki mjög mikið en ....svona er þetta.

Fínt að frétta annars eða hvað, það hefði ég nú haldið. Hef lítið gert í dag, setti reyndar í vél og stundum set ég í vél og fötin mín koma út eins og ungabarnaföt, gleymt kannski að setja á rétt hitastig, svo núna í dag er ég búin að gera allt sem ég hef getað til að minnka peysu af Brynju með hinum ýmsu hitastigum en hún bara vill ekki minnka....pöntuðu sér nokkrar Þórsarabeibur peysur merktar heimasíðu sem þær eru með og voru ekki alveg vissar um stærðir...og Brynja týndist í sinni...haha gott á hana...

Eyþór er s.s. að fara suður í Njarðvík og heldur þar tónleika annaðkvöld og kemur svo á fimmtudagsmorgun aftur. Hleypi honum sko ekki í fleiri svona ferðir, nei nú skal hann fara að vera heima hjá frúnni og nudda á henni tærnar og það engar smá tær, næ ekki að klippa þær sko þannig að þær hafa lengst all svakalega kemst varla í neina skó nema af honum haha ojbadda.

Systur litlu komu í dag og voru hjá mér á meðan móðirin fór að skoða í búðir, voru í banastuði, önnur að slást við Brynju en sú minni að gera íþróttaæfingar hjá mér. Kissing Bakaði lummur sem ég hef ekki gert í langan tíma og voru bara nokkuð góðar þó svo ég segi sjálf frá.

Nenni ekki að bulla meira

Sjúlli kveður grænn allan hringinn

 


Hvað!!!!!!!!!!

Segi fátt en skrifa þeim mun meira baraCrying Ekki að það sé mikið að frétta úr munkakotinu okkar hér á Akureyri. Helgin liðin rólega og hávaðalaust, enginn Marteinn kominn í hús þrátt fyrir ýmis brögð kemur þegar hann kemur. Mæðraskoðun í dag sem ég sagðist ekki ætla í því ég ætlaði að vera búin að eiga, verð að bíta úr mér tunguna fyrir þaðGasp Verður sárt en læt mig hafa það.

Karlinn var að vinna um helgina, engar nýjar fréttir það, átti samt frí eiginlega allan sunnudaginn, svona kannski fyrir utan að vinnan var í símanum aðallega. Var samt heimaHappy Sem var gott, gott að hafa kallinn heima sérstaklega svona þegar fer að líða að þessu....Eyþór sagði mér að fíllinn gengi með í 2 ár í gær ég hélt það væri nú styttra eða eins og 10 mánuðir og líkti mér því alltaf við fílinn alltsvo að ég myndi ganga með eins og fíllinn, hætt þeirri samlíkingu núna. Aumingja fíllinn get ekki annað sagt.

Kötturinn minn hann Ronaldo gaf skít í mig á föstudag, í orðsins fyllstu merkingu hann kúkaði á mig, hafði enga ástæðu til gerði honum ekkert. Fór með hann til dýralæknis var þá ekki ræfillinn með næstum 40 stiga hita og magasýkingu, varð að fyrirgefa honum skítkastið, verð að viðurkenna samt að ég var mikið reið við hann. Þarf að gefa honum eitthvað sull sambland af leir og kol til að hreinsa magann, á ekki hvítan og svartan kött þegar því er lokið því honum finnst þetta ekki gott og fer þetta um allan feldinn, nóg að gera hjá honum greyinum eftir hverja gjöf.

Skrapp í haggarann á föstudagskvöldið, urðum að fá nammi við Brynja, hittum Kiddý og fjölskyldu þar og svo Þórunni mína í heimahjúkrun alltaf gaman að sjá hana. Sé ekki mjög marga þessa dagana enda reyni ég að fara ekki úr húsi, hrædd um að legvatnið fari og ég kannski stödd í Bónus, þyrfti að leggjast niður og hóa á hjálp þar sem Marteinn er ekki skorðaður enn nei held ekki. Væri samt fyndið að sjá hvalinn liggja á bónusgólfinu og svamla í eigin legvatni og hrína á hjálp, fólk myndi kannski bara labba framhjá þyrði ekki að hjálpa mér.Gasp

Ætla að fara að gera skattaskýrsluna fyrir mömmu, er gríðarlega klár í því eða þannig.....en geri það samt.

Sjúlli kveður stórskrýtinn að vandaW00t

 

 


Fjötrar eða frelsi

Ég fór á rosalega áhugavert málþing í dag sem bar yfirskriftina ,,Gulur, rauður, grænn - frelsi eða fjötrar samkynhneigðra í samfélaginu".  Akureyrarkirkja stóð fyrir þessu, með Sr. Óskar í fararbroddi.  Margar afar merkilegar reynslusögur, erindi og ljóð voru flutt og Ellen Kristjáns, Eyþór Gunnars og Páll Óskar sáu um tónlistina.  Það er frábært að sjá hversu jákvæð þróunin í réttindamálum homma og lesbía hefur verið undanfarin ár.  En um leið sorglegt að samkynhneigðir hafi ekki enn full réttindi á við gagnkynhneigða.  Ég er hræddur um að kirkjan sé að draga lappirnar.  En þeim prestum sem styðja baráttu samkynhneigðra fer fjölgandi og margir þeirra berjast fyrir fullum réttindum.  Vonandi líður ekki langur tími þar til ég spila við kirkjulegt brúðkaup pars af sama kyni.  Hvernig í ósköpunum er hægt í nútíma þjóðfélagi að meina tveimur ástföngnum einstaklingum að staðfesta kærleika sinn frammi fyrir Guði?  Tveimur heilbrigðum einstaklingum sem hafa sömu tilfinningar, sömu lífsskoðanir og gagnkynhneigðir?  Af hverju ættu þeir ekki að geta notið þess stórkostlega undurs að eignast og ala upp börn?  Það hlýtur að vera betra fyrir börn að alast upp með tveimur góðum foreldrum, af sama kyni, en að alast upp í ástlausu umhverfi hjóna af sitt hvoru kyninu.  Ég ætla að ræða þetta mun meira hér, en lasagnað er að kólna á borðinu.  Mig langar samt í lokin til að gera frábærlokaorð Sr. Sólveigar Láru á Möðruvöllum að mínum.  Vonandi munu ekki fleiri ungir einstaklingar verða fórnarlömb hugarfars hinna gagnkynhneigðu!

Eyþór


Ekkert að segja

Hef aldrei neitt að segja en samt tekst mér alltaf að blaðra hérna alveg heilu síðurnar, merkilegt nokk...

Karlinn minn er í borginni að halda tónleika í kvöld en kemur aftur í fyrramálið, fer svo aftur suður þann 7 mars að halda aðra tónleika og fer þá að morgni og kemur morguninn eftir, eins og núna.Shocking

Er að drepast úr helvítis bak-, grindarverkjum og hjartsláttaróþægindum síðustu tvo daga er að verða frekar skapvond á þessu öllu saman, á engan veginn við mig. Vaknaði í fyrrinótt við það að mig dreymdi að ég væri búin að eiga og væri að fara út að skokka með vagninn......geðbilað lið maður. Þrái að fara að hreyfa mig...hlakka ekki lítið til, verð eins og Speedy Gonzales þegar ég verð búin að losa mig við bumbuna, þýt um allar göturGrin

Fórum í dag mæðgur og keyptum fermingarkerti, servettur og gestabók, þurfti auðvitað að senda þetta allt suður til að láta merkja þannig að þetta kemur eftir 1-2 vikur. Ákváðum að vera bara snemma í þessu svo maður þurfi ekki að gera allt síðustu vikurnar, set þetta svo bara í plast og inn í skáp. Búnar að panta förðun, hárgreiðslu og myndatökuna. Ætlum að fara að kíkja eftir kjól og panta matinn en hún er að spá í að fá grillvagninn frá Bautanum koma á staðinn grilla, setja á hlaðborð og pakka svo öllu saman aftur og fara með það, gæti ekki verið þægilegraKissing Svo er líka fínt að dreifa kostnaðinum aðeins á meira en bara einn mánuð. Búin að reikna lauslega að fyrir utan gjöf kostar þetta um 200-250 þús og svo deilt með 2 þar sem pápinn hennar borgar helminginnHappy

Brynja fór í afmæli til vinkonu sinnar kl 6 þannig að ég skaust til Hildar og hitti Brynhildi Sól, en Ragnhildur og pabbi hennar fóru í laugina. Var að leita mér að svona hosum ungbarnahosum finnst svo krúttlegt að hafa lítil börn í þannig en fann engar, þannig að Hildur bjallaði snarlega í systur hans Guðmundar sem ætlar að gera svona fyrir mig, fyrst bara hvítar og svo þegar krílus er fætt þá koma fleiri litirLoL Bara snilld.

Lilja Hrund kom aðeins áðan, með drasl í íbúðina hennar mömmu en hún er loksins búin að finna sér íbúð hér til leigu allavega tímabundið og prófa, og var Lilja s.s. að koma með dót frá Húsavík, verið að tína þetta svona hingað í rólegheitum, stóru hlutirnir koma kannski um helgina. Annars er Lilja komin í baksjúklingaklúbbinn í fjölskyldunni, er með bólgur í festingum í baki eða eitthvað slíkt og er á leið í sjúkraþjálfun...hræðileg þessi baksýki í familiunni.

Verð nú aðeins að monta mig en ég var í prófi í Líffæra- og lífeðlisfræði og fékk 7,5 og var nokkuð montin með það, þar sem þetta er einhvern veginn ekki alveg mitt fag og ég gat ekki mikið lesiðGasp Svo fyrir verkefnin mín í upplýsingartækni er ég búin að fá 4 x 10 og 4 x 9 er ég heili eðaKissing haha varð bara að monta mig. En svo þegar ég fer í lokaprófin þá lokast ég algerlega og man ekkert hræðileg líðan, hef alltaf verið svona, gengið vel þangað til kemur að lokaprófum.

Well ætla að fara að horfa á þáttinn House á skjánum og liggja þar eins og skata, þarf að vísu að skella mér í sturtu en það er seinna tíma vandamál, finnur enginn af mér fnykinn hvort sem er þar sem ég er ein heimaSick

Hafið það sem best það sem eftir lifir kvölds..

Sjúlli kveður angandi af skítalykt

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband