Próf ég elska próf NOT

Eini gallinn við allt nám eru prófin finnst mér, hef alltaf verið skelfilega lítið hrifin af prófum. Verð alltaf nett kvíðin og lokast svo á síðustu metrunum, kem svo út úr prófinu og veit allt...ÞEGAR PRÓFIÐ ER BÚIÐ. Já ekki auðvelt þetta líf en ég hef nú komist í gegnum prófin í sjúkraliðanum og verslunarprófið og skal komast í gegnum þessi:) Ef ekki í fyrsta nú þá bara öðruDevil

Búin að ná að læra töluvert í dag en alls ekki nóg rosalega mikið efni að fara yfir og allt svo líkt finnst mér en hef höfuðverk yfir því kl 15.30 á morgun hlakka svo til. Búið að vera nett þreytt í dag þar sem Katla hélt að mér þætti gott að vaka og vakti sjálf til 3 þá gafst ég upp og gaf stíl þar sem hún vældi og ýldi út í eitt og hún steinsofnaði en að hún svæfi lengur en til 7 DÖÖÖHHH pabbi skoppaði svo fram með hana en þá var ég svo vel vöknuð að ég náði ekki að sofa meira...DÖÖÖHHHHH

Ætlum að fara í laufabrauð um helgina með Óskari, Unu og börnum. Gaman að því og svo ætla ég bara að fara að jólast eitthvað svona létt um helgina. Kallinn í fríi og svona verður bara slappað af og horft á videó og svona. Á eftir að prenta út jólakortin og dembi mér í það líka um helgina.

Er svo óglatt núna, asnaðist til að borða kjötbúðing feitan og fínan í kvöldmatnum og ég fæ alltaf ógleði þegar ég borða feitan mat núna svona síðustu vikurnar. Fékk einu sinni magasár og það byrjaði einmitt svona þannig að nú ætla ég að afstressa mig, hætta að borða feitt, og hlaupa af mér feita rassinn á morgun já eða næsta, já eða bara eftir jólin hann stækkar hvort eð er ;)

UUUUuuuuu hef eiginlega ekkert meira að segja ætla að fara að lesa aðeins meira eða svona meira bara renna yfir efast um að maður læri nokkuð meira núna of stutt til þess, en bíð enn spennt eftir einkunn úr Sál hefði alveg viljað fá hana áður en ég fer í Lolið væri léttir að vita að ég hefði náð og færi ég með gríðarlega stórt bros á smettinu í prófið:)

Sjúlli kveður í stuði með guðiW00t


Iss

Fyrra prófið búið og ég ætla ekkert að segja annað en ég er farin að sofa......

Sjúlli kveður svakalega svekkturAlien


1 des í dag.....

Í dag er 1. des sem þýðir að eftir 34 daga fer ég að vinnaCrying En við mæðgur s.s. ég og Katla trítluðum okkur í bæinn í smá frosti og alveg ekta jólasnjókomu. Ég fór í Janus og fjárfesti í hlýjum og góðum ullarvettlingum og svo í tvennum ullarsokkum á litla jólasveininn minn. Röltum svo í stemningu um bæinn en fólk var hægt og rólega að týnast þangað. Þegar loksins kl var orðin 16.42 varð mín litla pirruð og þá ákváðum við að nóg væri komið og fórum bara heim. Átti að kveikja á jólatrénu en við sjáum það bara altendrað á morgun haha.... En hressandi var þetta og svona prófkvíðalosandi skal ég segja ykkur, fer 5 ferðir á morgunLoL

Bakaði eina sort af smákökum í morgun sem heita kattartungur og eru vinsælustu smákökurnar á mínu heimili, er bara sykur, smjörlíki, hveiti og egg og síðan sett súkkulaðihnappar oná þegar út úr ofninu kemur. Brynju finnst þetta algert möst á aðventunni, enda gekk hún rösklega til verks og er mjög efnilegur bakari. Katla gerði sitt til að hjálpa til og seildist í deigið og náði að smakka á því, og einnig fékk hún smakk þegar var tilbúið og fannst gríðarlega gott.

Enginn ekta aðventukrans í ár hef alltaf búið til svona ekta grenikrans, en ætla núna að vera með frekar nýstárlegan bara fjögur stór kerti á disk og köngla og jólakúlur í kring eða eitthvað í þá áttina, geng í það á morgun:) Hef heldur engan almennilegan stað fyrir krans fyrst við létum borðstofuborðið fjúka, en þegar búið verður að taka allt í gegn hér þá kemur bara annað borðstofuborð.

Eyþór er að stjórna stúlknakórnum sínum á torginu og síðan í kvöld eru Hymnodiu tónleikar þannig að það er nóg að gera hjá honum eins og venjulega á þessum árstíma. Fórum í gær við Brynja og keyptum handa honum afmælisgjöf, var búinn að fá smá en aðalgjöfin var eftir, keyptum úlpu hrikalega flotta að okkar áliti og við hittum svona á rétt númer og allt og hann að sjálfsögðu ánægður með hana ekki þorað annað:)

Ég er svo ómannglögg að ég þoli það ekki, oft sé ég fólk sem ég kannast við en man bara engan veginn hvaðan og kann ekki við að heilsa, svo stundum bara sé ég ekki fólk sem reynir að heilsa mér eða fólk heilsar mér og ég hef ekki grun um hver viðkomandi er. Spjallaði t.d. áðan við konu töluverða stund sem ég hef ekki hugmynd um hver er en greinilega þekkir mig. Annars þekkja svo margir Eyþór og spjalla við mig eins og ég hafi líka þekkt það í 100 ár sem er bara æðislegt. En svona er þetta, þannig að ef ég heilsa einhverjum ekki,  sem heilsar mér er ég ekki dóni heldur bara hef ég ekki tekið eftir því, sérstaklega slæm þegar ég er að keyra, enda á maður að sjálfsögðu að hafa hugann við aksturinnGasp

Ætla að fara að lesa um ástandsbendi og aðstæðubendi hef ekki hugmynd um hvað það er...

Sjúlli kveður á leið í hugræna meðferð 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband