Dagur að kvöldi kominn

ójá hversu frumlegur getur maður nú verið og ofvirkur í blogginu svo ekki sé meira sagt. Dagurinn liðið hratt, Eyþór búinn að vera að vinna og rétt skaust heim í 2 tíma og er svo farinn aftur.
Hlakka til að fara að vinna fast eins og allir, er yfirleitt búin að öllu um 10 á morgnana af því sem ég ætla að gera og svo líður dagurinn við að leita sér að einhverju að gera fyrir utan að sauma gardínur hóst..........

Fékk s.s. vinnuna 50% á Hlíð og byrja um miðjan , vinn frá 8-12 og aðra hverja helgi, valdi að vinna jólin núna þar sem Eyþór er að vinna þá líka en verðum bæði í fríi um áramótin og  Brynja heima. Rakel sefur fram að hádegi um jólin þannig að hún verður bara við það að vakna þegar ég kem úr vinnunni, sem er bara gottKoss

Bakaði eðal súkkulaðiköku í dag sem við Brynja skófluðum í okkur þegar hún kom heim úr skólanum, afmælisgjafirnar eru enn að streyma til hennar og fékk hún í dag gjöf frá pabba sínum og fjölskyldu en það var óskadraumurinn Man. united búningurinn, tóm gleði yfir þvíHissa

Best að við mæðgur förum að næra okkur og Martein auðvitað er að búa til refafóður sem er alveg eðalgóður heitur réttur:)

 Sjúlli kveður glaður með nýju vinnuna


Það er kominn mánudagur!!!!!!!!!!!11

Maður varla fattar orðið hvaða dagur er þar sem allir dagar renna einhvern veginn í eitt eða hafa allavega gert hér á þessu heimili síðustu daga. Pest eftir pest búin að stinga sér niður hér hjá okkur og einnig nærliggjandi heimili, hlýtur að fara að taka enda. Eyþór fór í vinnuna núna í morgun með snýtuklúta í öllum vösum og ég ligg hér upp í sófa kolstífluð, lýsið var svolgrað í morgun þannig að þetta er að verða búiðÖskrandi

Var hringt í mig af Öldrunarheimilinu Hlíð á föstudaginn og mér boðin vinna, átti að vísu umsókn þar og búin að eiga lengi en bjóst alls ekki við að fá neitt þar. Á að koma í viðtal á eftir, hef ekkert fast í heimahjúkrun nema svona tímavinnu sem er að vísu alveg fínt en á meðan ég get unnið þá vil ég vinna, væri fínt að fara í 60% vinnu svona fram að fæðingu en sé til fæ kannski ekkert svo það er best að gera sér engar vonir.

Héldum smá kaffiboð í tilefni þess að Bimban okkar varð 13 ára, flestir voru nú samt veikir en hraustleikatröllin á Húsavík s.s. Elín og co komu brunandi...Mási bró var að fara að skella sér á árshátíð hjá sjúkrahúsinu með kjellunni sinni efast ekki um að það hafi verið alveg brill, skemmti mér alltaf konunglega á þeim samkomumKoss Hildur kom líka með sína litlu púka og mömmu en þetta var fínt. Brynja fór svo og gisti hjá vinkonu sinni og kom ekki heim fyrr en seint í gær...nennir ekkert að hanga yfir gamla settinu og allra síst þegar þau eru eins og síðustu daga.

Annars er allt bara við það sama svona eiginlega. Veðrið hérna er rosalega fínt, allt orðið autt aftur en það stendur nú ábyggilega ekki lengi, á að kólna og hlýna og kólna, ekki skrýtið þó landinn fyllist af hori.

Marteinn er farinn að láta finna fyrir sér, virðist ætla að verða kraftmikill krakki miðað við kikkin sem hann gefur manni undir naflann, flottastur. Eyþór dundaði sér við að mæla á okkur bumburnar, ég hafði vinninginn og hann var glaður, það hefur líka aldrei skeð áður að hann sé með minni en ég...stendur ekki lengi er á meðan erSaklaus

Enn ekki búin að sauma gardínur fyrir stofuna, efnið liggur í poka inni í skáp orðið 2 mánaða gamalt, vorum að vísu bara að fá stangirnar fyrir gluggana en hefði alveg getað verið búin að rimpa þeim saman. Ætlaði líka að vera byrjuð á að gera jólakortin, var byrjuð um þetta leyti í fyrra en ekkert byrjuð heldur að gera í þeim efnum núna, lýsir best letinni sem er í gangi hér.

Best að fara að týna á sig einhver tjöld ef maður ætlar að fara upp á Hlíð og kanna vinnuaðstæður, fengi að vinna í nýja rýminu sem er verið að opna á morgun jibbí, allt glænýtt og flott vinnuaðstaða eftir því sem maður hefur heyrt.  Hætt að bulla les þetta enginn hvort sem er en samt gott að geta röflað svona á prenti, líður alltaf eitthvað vel á eftir þegar ég er búin að bulla.

Hafið það gott lömbin mín og já það verða sko etnar rjúpur um jólin engin spurning.......

Sjúlli kveður á leið í larfana


Sjónvarpsgláp og starfsheiti

Ég er sjónvarpsfíkill

Undanfarna daga hef ég algerlegta sökkt mér í sjónvarpsgláp.  Búinn að vera lasinn og ég fann mér því miður ekkert uppbyggilegra að gera en að glápa á sjónvarpið.  Hef horft mikið á Discovery rásirnar allar saman, BBC Prime, Norrænu stöðvarnar og íþróttir.  Það er auðvelt að festast yfir þessu enda oft gott efni í sjónvarpinu, sérstaklega á discovery stöðunum.  Núna, þegar ég er orðinn nokkuð hress af pestinni, langar mig ógurlega til að halda áfram að glápa á sjónvarpið.  En ég ætla að gera eitthvað uppbyggilegra í staðinn.  Byrjaði strax í morgun þegar ég sat á klósettinu með kaffibollann.  Fór þá að spila tölvuleik í símanum (þegar ég var búinn að spjalla við Óskar P í símanum).  Núna er ég fyrir framan tölvuna og blogga og á eftir ætla ég kannski að setjast niður með fartölvuna og halda áfram að semja kennsluefni í orgelfræðum.  Er þetta ekki framför frá sjónvarpsglápinu??

En í öllu sjónvarpsglápinu fór ég að hugsa um öll þau starfsheiti sem til eru.  Ég horfði á hinn ágæta spurningaþátt "the weakest link" á BBC og ég áttaði mig á því að ég skildi ekki nema brot af öllum þessu fínu starfsheitum sem fólkið hafði.  Þetta er komið hingað til lands, þ.e. að búa til fín nöfn yfir allt.  Einhver þátttakandi í íslenskum þætti var dælitæknir. Ég efast stórlega um að íslenskufræðingar geti samþykkt þetta starfsheiti.  Sjarmör þessi vann við að dæla skít úr skólplögnum.  Sem sagt dælitæknir.  Ekki dælumaður, dælustjóri, skítsuga, heldur dælitæknir.  Ég er alls ekki að gera lítið úr starfi mannsins heldur starfsheitinu.  Sum starfsheiti eru lögvernduð og er það gott.  Ég er feginn að ég get ekki skráð mig á skyndihjálparnámskeið og kallað mig lækni eða hjúkrunarfræðing á eftir.  Ég þekkti einu sinni par sem voru skráð í símaskrá málari og leikskólakennari.  Hvorugt þeirra hafði neitt lært í þeim fögum sem þau þóttust vinna við.  Hann var vissulega handlangari hjá málara og hún vann á leikskóla, en þau gátu samt skráð sig með þessi lögvernduðu starfsheiti í símaskrána.  Ég er organisti.  Er stoltur af því og ég er í raun nokkuð ánægður með að allir þeir sem sinna því starfi innan kirkjunnar séu kallaðir sama nafni, óháð menntun.  Ég hef 7 ára háskólanám í þeirri grein á meðan aðrir hafa kannski ekkert nám en mikla hæfileika í tónlist.  Mér dettur ekki í hug að fara fram á að þeir hafi einhvern annan titil en ég.  Öðru máli gegnir um starf Ernu minnar, hún er sjúkraliði og það þýðir að hún hefur ákveðna menntun að baki til að sinna fólki og vinna inni á heilbrigðisstofnunum.  Þótt sumar heilbrigðisstofnanir ráði ófaglærða og láti þá ganga í lögvernduð störf sjúkraliða, þá vil ég geta treyst því að faglært fólk sinni mér þegar ég ligg inni á sjúkrahúsi.  A.m.k í hjúkrunarstörfunum.  Því miður er það nokkuð algengt að fólk sem aldrei hefur unnið við umönnun er að sinna sjúklingum með afar alvarlega og erfiða sjúkdóma hér í bænum.  Sjúkdóma sem krefjast þekkingar á, til að geta sinnt sjúklingum.  Aðstandendur hafa ekkert um málið að segja, jafnvel þótt slæm mistök í meðhöndlun hafi átt sér stað.  Ég ætla ekki að hætta mér meira út í þessa sálma. 

Eyþór


Skoðanakönnunin

Ég vil hvetja ykkur til að hjálpa okkur við að velja jólamatinn í ár.  Kjósið í skoðanakönnuninni hér til vinstri á síðunni.

Eyþór


Brynja Dögg 13 ára

Hún Brynja okkar á afmæli í dag.

Til hamingju með daginn elskan!


Ekki dauður enn

Nei ég er lifandi, þrátt fyrir að fullyrðt hafi verið að ég hafi lent í riffilskothríð í Hlíðarfjalli.  Ég  gaf viðtal á Rúv um daginn og hélt ég væri að draga úr fordómum spyrjanda um rjúpnaveiðar, sem ég fann svolítið fyrir.  En svo skilst mér að sagt hafi verið að ég hafi lagt á flótta niður úr fjallinu vegna riffilskothríðar!  Sagði það aldrei, enda ekki skotið úr rifflum á rjúpnaveiðum.  Ég ætla í framtíðinni að neita öllum viðtölum sem óskað er eftir varðandi annað en tónlist.  Annars erum við Erna búin að liggja í rúminu með kvef og hita.  Erum öll að koma til samt.  Spurning hvort skitan og ælan fylgi ekki á eftir því þær óværur eru að ganga í kring um okkur.  Við fáum afar sjaldan kvef eða pestir og Brynja sleppur alltaf.  Hraust stelpa. Við borðum hollan mat, það skiptir öllu.  Nú þurfum við bara að fara að útvega okkur langreið.  Allt helvítis röflið í erlendum stjórnmálamönnum fer svo í taugarnar á mér.  Ég er eins og venjulega sérlega fúll út í svía, enda með eindæmum leiðinlegur þjóðflokkur.  Þeir hneykslast þvílíkt yfir að 9 langreiðar af 23.800 séu skotnar.  Hvað er það, 0.004% af stofninum? (hugarreikningur)  T.d. veiða Svíaskrattarnir c.a. 150 birni á hverju ári.  Stofninn er rúmlega 1500 dýr.  10% af stofninum og til hvers eru þeir veiddir?   Ekki eru það göfugar veiðar að skjóta bara til að skjóta, ekki éta þessir matvöndu skrattar birnina?  Eru hvalir kannski rétthærri en birnir?  Er það stærðin sem skiptir máli?  Eigum við þá ekki að skjóta smáfugla í stað hvalanna?  Ég held að svíarnir séu hræddir við þessa litlu brúnu birni sem eru sauðmeinlausir nema að þeim sé ógnað.  Þér éta nokkra veiðihunda á ári og ég held að skýringin fyrir veiðunum sé þar komin.  Svíarnir vilja ekki vera varir við þá, bara geta montað sig af því að vera með þá.  Svíþjóð er 450 þúsund ferkílómetrar.  Það er sem sagt einn björn að meðaltali á hverja 300 ferkílómetra eða ein bjarnarfjölskylda á hverja 1000 ferkílómetra.  Eða Kanarnir.... Þeir eru jú á meðal helstu hvalveiðiþjóða heimsins. Þeir leyfa talsverðar veiðar á einhverjum smáhvölum.  Ég á sennilega aldrei eftir að kjósa Sjálfstæðisflokkinn en ég er núna ánægður með sjávarútvegsráðherrann okkar.  Vonandi tekst fjölmiðlum ekki að eyðileggja stemmninguna í kring um veiðarnar núna.  Hættum að éta innflutta danska kjúklinga og förum að éta hval. Og hananú!

Eyþór


Snjór og læti

Loksins kominn snjór, búið að vera þvílíkt fallegt veður hér í dag, búið að snjóa í logni og virkilega flott veður. Vorum löt hjónin og fórum ekki út úr húsi fyrr en um 6 leytið í dag, Eyþór að vinna en ég að ná í Brynju á æfingu, er nú frekar hált að keyra og einn og einn árekstur verið hér í dag, eins gott að ég var inni hahaKoss

Síðustu dagar hafa verið frekar slakir hjá mér búin að vera með þvílíkasta kvefið og horið að það hálfa væri nóg, held án gríns að ég hafi aldrei á ævi minni fengið kvef sem er eins slæmt og eins lengi og þetta virðist ætla að vera. Fór í vinnuna á föstudagsmorgun með tæplega 38 stiga hita og mikið var gott að komast heim.....

Fórum í mæðraskoðun á fimmtudag og heyrðist mikill og góður hjartsláttur og allt í þessu fína lagi, Marteinn virðist bara stækka og dafna eins og mamman sem vex í allar áttir um þessar mundir og nýtur þess fyllilega, vandamál sem verður tekið á eftir að Marteinn hoppar í heiminn...hahaSaklaus

Er að leggja lokahönd á peysuna hennar Brynju, búin að hamast síðustu daga því ég vissi að mamma væri að koma í dag ætlaði að gabba hana til að setja rennilásinn í en þá auðvitað hætti hún við...gabba hana bara næst þegar hún kemur allavega til að vera mér innan handa....mamma er það ekki vænan mínÞögull sem gröfin 

Brynhildur Sól og foreldrar ráku hér inn trýnið í morgun, en litla stýrið svaf en umlaði aðeins annaðslagið köttunum mínum til mikillar hræðslu, vissu ekki hvaða org þetta voru né hvaðan þau komu, verða nú að fara að venja sig við það blessaðir. Þegar ég var ólétt af Brynju átti mamma kött sem vildi hvergi vera nema ofaná bumbunni á mér og þegar Brynja sparkaði stökk hún hátt í loft og skildi ekkert í þessu ólátum, og svo eftir að Brynja fæddist vildi hún bara liggja ofan á vagninum hennar og vera hjá henni, kom um leið og hún byrjaði að gráta og þess háttar...magnaðir þessir kettirSkömmustulegurskemmtileg saga

Hef ekkert að segja af viti frekar en svo oft áður...ætluðum að fara á Mýrina í gærkvöldi en ég missti heyrnina þannig að við stefnum á familian að fara saman á miðvikudagskvöldið........bíð spennt.

Höfum nú ekki enn getað tekið okkur frí saman en vonumst til að gera það mjög fljótlega þó ekki væri nema fara eina helgi í bústað eða eitthvað...

Hætt að bulla um ekki neitt...

Sjúlli kveður í syngjandi sveiflu


Latte

Löt fjölskylda og ekkert að því barasta held ég:) Ekki alltaf nauðsynlegt að blogga enda enginn sem les þetta ja nema allir sem heimsækja síðuna og kvitta aldrei, skal aldrei hætta að röfla um þaðSaklaus 

Margt skeð siðan síðast var bloggað en verður ekki allt sagt hér í bili allavega. Litla nýja frænkan okkar var skírð á sl. laugardag og var hún skírð Brynhildur Sól og er það eðal nafn passar vel við nafn stóru systir hennar Ragnhildar Sólar. Brynja las ritningarlestur í skírninni og stóð sig eins og hetja við það en ég fékk heiðurinn af því að vera skírnarvottur....kenna blessuðu barninu góða siði og svona og hver er nú betur til þess fallinn en móðan sem kenndi Ragnhildi að segja prumpa um leið og mögulegt var *fliss* ójá og þessi manneskja ég ætla að fara að reyna að ala upp barn, gekk nú að vísu vel með Brynju hún er nokkuð heilbrigð svona miðað við móður hahaha.

Eyþór renndi sér í rjúpur eftir skírnina vestur í Búðardal og fékk hann 7 stykki en er að spá í að fara með Mása brósa mínum í rjúpur um helgina ef ég hef skilið þetta rétt sem er vafalaust rangt ..... eyrun á mér fá mikla hellu þegar farið er að tala um eitthvað svonaÞögull sem gröfin Ég var nú einu sinni alltaf ákveðin í því að ná mér í byssuleyfi en eftir að ég prófaði að skjóta úr byssu og var handlama í mjög langan tíma á eftir hætti þessi hugsun að hvarfla að mér, held mig bara við að prjóna og eitthvað svona kjelludútl.

Er núna að prjóna hettupeysu á Brynju og vona að ég hafi gert hana passlega á hana verður flott þegar hún er búin, búin með bolinn og aðra ermina og langt komin með hina og svo er bara munstrið og hettan og bingó það varð peysa eða það vona ég. Prjónaði húfu á kallinn minn um daginn en gerði hana alveg afskaplega stóra þannig að við getum verið bæði í henni svona næstum þvíSvalur bara fyndið.... Ætla svo næst að hendast í að gera eitthvað á hann litla Martein hvað sem það verður.......

Erum að fara í mæðraskoðun hjúin á morgun og svo 20 vikna sónar í þarnæstu viku og ætla ég að athuga hvort Brynja megi koma með þar sem það hittir á að vera föstudagur og hún búin snemma hefði gaman af því blessunin að sjá systkinið sitt hamast á skjánumUllandi

Vaknaði í gær með hálsbólgu og kvef, alls ekki sátt við það bíð spennt eftir að komast í hálskirtlaaðgerð sem var fyrirhuguð áður en ég varð ófrísk (frísk samt). Þoli ekki þetta orð "ófrísk" fatta alls ekki tenginuna við að vera með barni...eins orðin´"ólétta" jú maður verður yfirleitt þyngri en sama skítlegt orð.....

Eyþór er inni í bílskúr hjá Óskari Pé að snyrta bílinn okkar, fór með hann í gær og setti hann á vetrardekkin og ætlaði að dunda við að bóna og þrífa og svona núna, svo duglegur drengurinn, er í sumarfríi og verður að dunda eitthvað Skömmustulegur

Jæja ætla að fara að halda áfram að prjóna og drekka Latte....brjáluð í cafe Latte þessa dagana...

Sjúlli kveður bless

 

 

 


Skipað ég gæti ef væri mér hlýtt:)

Mér er sagt að blogga og er ekkert nema hlýðnin og geri það, á meðan stendur karlinn fyrir aftan mig og þykist vera að gera líkamsræktaræfingar haha og það engar smáKoss

Var að ljúka við að baka stafla af pönnsum þar sem það á nú að setja nafn á frænkuna mína nýfæddu á morgun, ætla svo að setja inn í þær í fyrramálið og búa til heitan rétt ógisslega dugleg:)

Brynja fór út að borða með pabba sínum, konunni hans og stjúpömmu sinni en stjúpafi hennar hefur legið þungt haldinn hér á sjúkrahúsi síðustu daga vegna þess að það sprakk slagæð í kvið heppinn að vera lifandi karlanginn eftir því sem mér skilst, vonum að honum batni hratt og vel og losni af gjörgæslunni.

Lítið að frétta annars skeður aldrei neitt hjá mér, fór á atvinnuleysisfund í morgun og finnst ég alltaf vera alger aumingi þegar ég er búin að fara á þessa fundi. Finnst svo hræðilegt að vera á bótum að ég veit að fólk trúir því ekki, vil fá að vinna fyrir mínu en stundum er þetta óumflýjanlegt þannig að.....en er nú aðeins að vinna hjá heimahjúkrun með, er að vinna á sunnudag og svo einhverja daga í nóv og svo eitthvað meira líklega í okt, annars finn ég að það er að verða svolítið erfitt að sinna sjúllastörfum með stækkandi bumbuHissa

Eyþór getur ekki beðið eftir því að skírn ljúki á morgun því þá er hann rokinn í dal Búðanna Búðardal fyrir þá sem ekki tengja og ætlar að drita niður eins og 9 stykki rjúpur fyrir jólin, sá reyndar áðan að það yrði alveg kjörið rjúpnaveður á mánudag en þá má ekki skjóta rjúpur, hvað er málið með að banna veiðar mánud-fimmtud, fáránlegt:)

LEigðum okkur Da Vince Code og ætla að hendast í sturtu áður en gónið byrjar, látið fara vel um ykkur í kvöld lömbin mín og kvittið í fjandans gestabókina...

Sjúlli kveður alger lúser


11. október

S5000063S5000064S5000062

Myndirnar tala sínu máli.  Snjórinn er kominn.  Reyndar má búast við að hann taki upp í dag.  Farinn að vinna, Bæ, Eyþór


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband