12.1.2007 | 06:05
Pirruð og þreytt
Eitt gott við að hafa svona bloggsíðu að maður getur fengið útrás þegar maður vill og um það sem maður vill, burtséð frá því hvort einhver les það eða ekki algert aukaatriði. Núna er kl rétt að verða 6 og ég búin að vaka í skal ég ykkur segja 1 1/2 klst og geri aðrir betur. Helvítis hjartslátturinn er að gera mig hreinlega geðveika svo ekki sé meira sagt. Var að enda við að senda Alexander kvensjúkdómanum mínum meil og biðja hann að gera eitthvað í þessu, hljóta að vera til lyf eða eitthvað sem hægja á þessu, er nú samt ekki mikið fyrir lyf en núna ÓJÁ.
Erum hjónin að fara í kvöld að spila heima hjá Unu og Óskari sem verður bara gaman, er sjúk í að spila þessar vikurnar, svo er alltaf gaman að koma til þeirra skötuhjúannaBrynja er að fara í ball í Brekkuskóla þannig að gamla settið fer bara af bæ
Ætlaði að fara með Hillu sys upp á Bjarg að heimsækja gömlu vinnufélagana en held ég hafi ekki orku í það allavega ekki í dag, verð að reyna að sofna eitthvað á eftir. Svo varð Solla fermingarsystir mín 35 ára 3 jan og ætlar að hafa smá kaffiveislu á laugardaginn en þá á einmitt maðurinn hennar afmæli þannig að þetta verður dobblað og ætlum við aðeins að kíkja til þeirra í fyrramálið ef heilsan leyfir ætla nú bara að sjá til er ekki að höndla þetta í augnablikinu.
Annars er lítið títt, er ekki nálægt því að vera með meðgöngueitrun en aftur á móti greindist hjá mér sýkill (Streptokokkar)sem veldur því að ég verð að vera með sýklalyf í æð alla fæðinguna svo hann smitist ekki í barnið sem er bara hið besta mál, hefði verið verra ef hann hefði ekki uppgötvast, er víst frekar algengt á Íslandi skilst mér
Eyþór litli minn er öll kvöld að vinna núna aukaæfingar fyrir Hymnodiu en er í fríi um helgina nema Sunnudag þannig að strangt til tekið er hann bara í fríi á laugardag haha......manni finnst það samt töluvert Ætla að fara að fá mér vatnssopa áður en ég skrælna hérna.
Hafið það sem allra best
Sjúlli kveður á kafi í sjálfsvorkunn
10.1.2007 | 11:42
Hvað er títt....ja....eiginlega ekki neitt
Enn einn dagurinn kominn ekki það að ég hafi haldið að það væri að koma heimsendir ekki aldeilis orðaði þetta nú bara svona eins og njóli Maður er afslöppunin uppmáluð þessa dagana, hreyfi mig ekki nema í algerri neyð og þá bara rétt á milli herbergja, ýki kannski aðeins en alls ekki mikið. Vaknaði eins og venjulega um 5 leytið í morgun með heljar stuð í hjarta og gat ekkert sofnað aftur, lá samt eins og skata og hlustaði á minn elskulega eiginmann hrjóta eins og honum væri borgað fyrir það, væri nú aldeilis rík þá
Lagðist svo upp í rúm aftur um 8 leytið en gat ekki sofnað, fór nú samt ekki á fætur því þá fyrst væri að koma í ljós einhver veikleiki þannig að ég lá og góndi upp í loftið til rúmlega 10....dýrlegt alveg hreint.....
En fékk þá orkuskot í rassgatið og ryksugaði og henti í vél og ég veit ekki hvað og hvað......Svona er þetta nú frekar tilbreytingalausir dagar, er að bíða eftir niðurstöðu úr pissuprufunni minni en ég reyndist vera komin með prótein í það þannig að hún vildi útiloka meðgöngueitrunarbyrjun, held sé engin hætta á því...en betra að vera viss.
Rakel er farin til Sweden, fór í gærkvöldi og Magga frænka tók á móti henni og kom henni svo til Keflavíkur í morgun. Er orðin svo dugleg að ferðast þessi stelpa enda búin að fara alveg eina og eina ferðina
Tengdóinn minn hann Nonni velti vinnubílnum sínum í gær en slasaðist sem betur fer ekki, gerði þetta á rólegan hátt eins og honum einum er lagið. Getur komið fyrir alla og bara guði sé lof að hann meiddi sig ekkert...alltaf fyrir mestu, er samt töluvert sjokk eflaust .... ég varð nú eins og móðursjúk belja þegar ég klessti honduna en ég er nú bara ég. Nonni minn bara fyrir mestu að þú ert í lagi, aðstæður geta nú stundum verið erfiðar á þessum blessuðu vegum.
Eyþór minn er að vinna eins og vitleysingur, duglegur að æfa sig þessa dagana enda stefnan tekin á útskrift í vor, sér loks fyrir endann á þessu. Svo er hann að fara með Hymnodiuna sína á myrka músíkdaga í Hallgrímskirkju 20 jan held ég þannig að það er hellingur fyrir þann hóp að gera núna...annars eru allir svo frjóir í kórnum þrjú ný Hymnodiubörn á leiðinni....hipp hipp húrra fyrir því...
Hildur sys kom hérna færandi hendi í gærkvöldi með æðislegan dúnkerrupoka handa Marteini litla sem hún að vísu er viss um að er stelpa en hafði samt pokann fjólubláan. Kæmi mér nú ekki á óvart þó svo að hún hefði rétt fyrir sér, ég hélt því alltaf fram að Brynja væri strákur en hún að hún væri stelpa þannig að ..... aldrei að vita nema Marteinn verði Martína....en við spyrjum nú að leikslokum
Það er heljar geim hjá Brynju um helgina en Valsstelpur úr 4 flokki eru að koma og verða æfingabúðir í Hamri og auðvitað leiknir nokkrir leikir og það er alveg rífandi stemmari fyrir því hjá henni. Lét sig nú hafa það á sunnudaginn að mæta í leiðindaveðri á útiæfingu upp í Giljahverfi og skokka svo heim í skítakulda og snjóbyl...púff hefði ég nennt því ónei....
Ætla ekki að þusa frá mér allt vit verð að geyma eitthvað fyrir skólann sem er að byrja þann 20 jan hlakka svo til að fara að hafa eitthvað að gera...fyrst ég má ekki vinna....
Sjúlli kveður í alveg ferlegu stuði með bumbuna út um allt........
8.1.2007 | 11:33
Allt gamanið búið
Þá er þessi hátíð liðin en hún kemur aftur að vísu ekki sú saman sem betur fer. Um næstu jól verðum við ekki 4 heldur verðum við þá orðin 5 ef allt gengur að óskum, lítill gólandi Marteinn sem rífur og slítur í allt sem hann nær í Allir búnir að hafa það virkilega gott hérna um jól og áramót, vorum hjá Einhyltingum á gamlárskvöld og var það bara mjög gaman mikið bombað, borðað, drukkið og bara virkilega gaman hjá oss. Pabbi var með okkur líka og hafði held ég bara gaman af því að sjá hvað Akureyringar voru bilaðir með flugeldana.......
Fórum frekar snemma heim eða um 2 leytið þar sem Elín systir var búin að bjóða í mat á Húsavík á Nýársdag og vorum við komin þangað um 2 leytið í hreindýr og lamb, ekki að maður hafi beinlínis verið svangur en maður át samt alveg heilan helling........
Af Marteini er allt gott að frétta hann greinilega þroskast og stækkar og er farinn að sparka verulega í rifbeinin á elsku mömmu sem er ekki alltaf voðalega kát með það sérstaklega ekki þegar hún vill sofa....tökum á þessu máli fljótlega. Hraðslátturinn er að aukast núna svona síðustu daga ef eitthvað er og stendur líka lengur yfir í hvert skipti, frestaðist að ég ætti að fara til Gunnars en ég á að fara 22.01. Eins og gliðnunin ekki á undanhaldi og má ég þakka fyrir að geta komist út í bíl áður en ég fer að finna fyrir þessu helv.....en maður á ekki að kvarta.....gæti verið mikið verra, verð bara að vera til friðs. Er að fara í mæðraskoðun í dag og er þá komin 29 vikur og 4 daga þannig að þetta styttist óðum.
Eyþór er að vinna alveg á fullu og hefur svo sem ekki mikið getað slappað af en getur það vonandi fljótlega eitthvað en maður veit aldrei.. Brynja er í fríi í skólanum í dag vegna einhvers viðtalsdags, Rakel er að fara á morgun fljótt að líða en hún kemur aftur í vor......
Nenni þessu ekki lengur.......
Sjúlli kveður skapvondur að þessu sinni....